Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 Minning Sigríður Anna Valdimarsdóttir Fædd 10. júní 1940 Dáin 7. apríl 1994 Kveðja frá Hvöt í dag, föstudaginn 15. apríl, fer fram útfór Sigríðar Önnu Valdimars- dóttur, Freyjugötu 46. Sigríður hef- ur í mörg ár verið í Hvöt, félagi sjálf- stæðiskvenna í Reykjavík, og borið hag félagsins og Sjálfstæðisflokks- ins mjög fyrir brjósti. Hún vildi vinna að framgangi kvenna í stjórnmálum og sat í mörgum nefndum á vegum félagsins. Hún sat í stjórn hverfafé- lagsins Austurbær-Norðurmýri í mörg ár. Hún var sjálfstæðiskona af lífi og sál og fáir þeir fundir sem hún ekki sótti. Þó að Sigríður væri dul um sína einkahagi var hún ófeimin að ræða við nýjar félagskonur og kynna þær öðrum. Hún hafði ákveðnar skoðanir á þeim málefnum sem fjall- að var um á fundum og lét þær í ljós, enda fróð og vel að sér á mörg- um sviðum. Hún var ákafur friðar- sinni. Það er hagur hvers félags og flokks að eiga slíka stuðningsmenn að sem Sigríður Anna var. Við þökk- um henni samfylgdina. Anna Kristjánsdóttir, formaður Hvatar. Látin er hér í borg Sigríður Anna Valdimarsdóttir og verður hún jarð- sungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag. Skal hér minnst nokkrum orð- um góðra kynna okkar. Við munum um skeið hafa vitað hvor af annarri en leiðir okkur lágu fyrst saman er hún hafði samband við mig vorið 1973 í umboði rit- stjórnar 19. júní, ársrits Kvenrétt- indafélags íslands. Sigríður Anna var virk í Kvenréttindafélaginu, sat í stjórn þess og einnig Menningar- og minningarsjóðs kvenna, svo og í ritnefnd ársritsins. Um þetta leyti var sá háttur hafður á að í hveiju riti var tiltekið þema eða málaflokk- ur tekinn til umfjöllunar og var hún að falast eftir að ég þessu sinni tæki þátt í þeirra umræðu. Leiddi þetta til nokkurra samskipta milli okkar og fann ég þá þegar að hún var vel upplýst um menn og mál- efni, nákvæm í allri framsetningu og henni lagið að greina aðalatriði frá því sem aukalegt var. Þetta voru sterk persónueinkenni hennar og svo hitt hversu fámál hún var um sína einkahagi. Sigríður Anna var yngst þriggja bama hjónanna Elínar Þorkelsdóttur og Valdimars Þórðarsonar kaup- manns, fædd 10. júní 1940 í Reykja- vík. Faðir hennar var annar hinna dugandi og kunnu manna sem stofn- uðu verlsunarfyrirtækið Silli og Valdi er um langt árabil setti svip á athafnalíf höfuðborgarinnar. Sig- ríður Anna ólst upp með bræðrum sínum tveimur á foreldraheimilinu við Freyjugötu og átti hún heima í húsinu númer 46 við þá götu frá fímm ára aldri. Efnahagur fjölskyld- unnar var góður, heimilið vel búið og bömunum stóðu opnir þeir vegir út í lífið sem upplag þeirra og áhugi beindist að. Fljótt kom í ljós að dóttirin var námfús í besta lagi og hugur hennar stóð til mennta. En á unga aldri varð hún fyrir áföllum sem mörkuðu lífsbraut hennar æ síðan. Faraldur kom upp hér á landi, nokkrum árum eftir heimsstyijöldina síðari, er í daglegu tali var kallaður Akureyrar- veikin vegna þess hversu skæð sótt- in var á þeim slóðum. Sigríður Anna tók veikina og varð svo illa úti að kalla má að hún biði þess aldrei bætur. Nokkru síðar eða árið 1957 varð hún fyrir umferðarslysi, bifhjól ók á hana og þó allra hugsanlegra læknisbóta væri leitað urðu afleið- ingar þess varanlegar á heislu henn- ar. Námslöngum Sigríðar Önnu var mikil og vilji hennar til skólagöngu stéríiúrj iHún lauk iandsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík vorið 1955, nam síðan við Menntaskólann í Reykjavík og þaðan tók hún utan- skólapróf haustið 1961. Eftir það lá leiðin í Háskóla íslands þar sem hún í fyrstu lagði stund á tungumál, einkum ensku, en innritaðist svo í guðfræðideild og lauk þaðan prófi í grísku 1963 og ári síðar í hebresku. Um skeið nam Sigríður Anna ensku við Edinborgarháskóla en hvarf svo vestur um haf til frekara náms við Mills College, námsstofnun tengda Stanford háskóla í Kaliforníu. Þar las hún enskar bókmenntir, listasögu og þjóðfélagsfræði um 1970, og sumarið 1971 sótti hún námskeið í stjórnmálafræði við háskóla í Ox- ford. Heilsu hennar var svo varið að úthald og orka til langtímanáms í þeim greinum sem hugur hennar stóð til var takmörkunum háð og má gera sér í hugarlund hvílík von- brigði það hafa orðið henni. Eftir heimkomu frá námsdvöl er- lendis sinnti Sigríður Anna einkum því að lesa með skólafólki og fylgja því eftir til prófs. Mun erfítt að fínna vog til að vega slíkt starf sem vert væri. Sjálf las hún jafnan mikið og fylgdist vel með þeim málum sem efst voru á baugi heima og erlendis. Hún hafði yndi af að ferðast og var í reynd víðförul, hafði meðal annars farið til Austurlanda fjær og um löndin fyrir botni Miðjarðarhafs. Var hún duglegur ferðamaður og góður ferðafélagi sem vissi deili á löndum og þjóðum og miðlaði því óspart þegar við átti. Báðar höfðum við ferðast til ísraels og hún raunar dvalist þar lengur en ég. Þótti mér fengur að ræða við hana um það sem þar var að gerast, skynja þá miklu þekkingu sem hún hafði heyjað sér þar að lútandi, skörp að draga álykt- anir af atburðum og oft sannspá um framvindu mála. Hér heima var Sigríður Anna virk í félagsmálum af ýmsu tagi. Áður er getið þátttöku hennar í starfí Kvenréttindafélagsins. Lagði hún sóma sinn að veði er hún fúslega mælti með mér við inngöngu í þau samtök í ársbyijun 1975 og varð mér æ síðan eins og guðmóðir þar - sleppti ekki af mér hendi. Á ég góðar minningar um setu á sameig- inlegum fundum og ráðstefnum og í ýmiss konar fagnaði. Sumarið 1990 var haldinn hér fundur Alþjóðasam- taka kvenréttindafélaga á vegum Kvenréttindafélags Islands. Mál skiðpuðust svo við fundarlok að ég tók að mér að fara um Reykjavík og nágrenni með þremur fundar- gesta, tveimur japönskum konum og einni þeldökkri frá Afríku. Varð þetta eftirminnilegur dagur því Sig- ríður Anna tók að sér starf leiðsögu- manns en ég var ökumaður. Hún var vel mælt á enska tungu, fróð um land og þjóð og kom öllu vel til skila við hina fróðleiksfúsu gesti; auk þess valdi hún áhugaverða veit- ingastaði til áningar og veitti af rausn. Síðast nú um jól komu kveðj- ur hingað norður eftir frá þessum konum og rifja þær upp enn og aft- ur fróðlega og skemmtilega hand- leiðslu Sigríðar Önnu þennan ógleymanlega dag á íslandi. Sjálfstæðisstefnan átti hug Sig- ríðar Önnu og hún starfaði mjög að framgangi Sjálfstæðisflokksins bæði með þátttöku í flokksfélögum og kosningastarfí. Var lærdómsríkt að vinna með henni á þessum vettvangi þvi hún var glögg á hin pólitísku blæbrigði. Kom það vel fram á fund- um og ráðstefnum á vegum flokks- ins og einnig á landsfundum sem hún jafnan sótti þegar heilsan leyfði. Svo hittist á að við sammæltum okkur tvívegis á landsfund og áttum verulegar samræður um flokksmálin og kosningar sem slíkum fundum óhjákvæmilega fylgja. Þótti mér hún glögg á niðurstöður sem ekki virtist ávallt auðvelt að segja fyrir um. Svo hittist á að smátelpa á mínum snærum var með okkur dagpart á iððrum þessara fiindá óg fánnst mér eftirtektarvert að fylgjast með á hvern hátt Sigríður Anna nálgaðist hana og þær náðu vel saman. Hún beitti ekki því áleitna fasi sem marg- ir temja sér við börn, stundum með litlum árangri. Sem jafningja og jafnréttháa laðaði hún telpuna að sér og skírskotaði til hennar svo lengi eftir mundi hún þessa konu. Þarna held ég að hafí birst í hnot- skurn ríkur þáttur í eðlisfari Sigríðar Önnu. Hún var jafnréttissinni og hvarvetna sem konur voru að vinna að sínum málum og stuðla að auknu jafnrétti var hún fús liðsmaður. Nær seinustu jólum veiktist Sig- ríður Anna og fór á sjúkrahús, lá leið hennar síðan á Vífílsstaði og þaðan á heilsuhæli í Hveragerði. Skömmu fyrir páska heyrði ég frá henni, var hún þá komin heim og yfírfór póst sem hafði safnast fyrir og hringdi af því tilefni. Við áttum góð samtöl í síma og enda þótt ég fyndi að hún var ekki vel fyrir köll- uð hétum við því, ef líðan hennar yrði betri, að hittast yfír kaffibolla eða góðum málsverði á einhveiju af aðlaðandi veitingahúsum borgarinn- ar og spjalla saman. Það var svo margt til hennar að sækja, hún var ættvís og fróð á því sviði og persónu- saga lá opin fyrir henni. Næsta sem ég heyrði af Sigríði Önnu Valdimars- dóttur var andlátsfregn hennar. Hún lést á heimili sínu við Freyjugötu hinn 7. apríl síðastliðinn. Að leiðarlokum er ég set á blað fáein kveðjuorð til að minnast góðs samferðamanns skynja ég til fulls hversu dul hún var um eigin hagi og fátt mér tiltækt í þá veru. En þakka ber eftirminnilega samfylgd, góðan hug og ánægjulegar samveru- stundir. Hvíldarinnar hljótum við að unna þeim sem þreyst hafa í lífs- göngunni. Björg Einarsdóttir. Við vorum ekki háar í loftinu þeg- ar fundum okkar bar fyrst saman. Hún var 11, ég var 13. Og glaðir æskudagar Iiðu hjá eins og andblær vorsins, sem strýkur kinn og boðar að senn komi sumar. Við vorum staddar í Vindáshlíð í Kjós, í skemmtilegum hópi stúlkna sem nutu afraksturs þess að KFUK hafði reist og skipulagt sumardval- arstað fyrir stúlkur. í skjóli góðs fólks og félagsskapar vorum við þarna á frumbýlingsári og nutum þess að eiga svefnstað saman, hlát- urmildar, kátar stelpur á loftinu, sem enn var í byggingu. Og Systa var enginn eftirbátur okkar hinna, hún hló og tók þátt í ærslum okkar. Oft rifjaði hún upp þessa sumar- daga, og minntist uppátækjanna, hugmyndaflugs og frásagnargleð- innar, sem varð að ævintýraheimi okkar, þegar við trúðum því að hús- ráðendur væru steinsofnaðir. Við Sigríður hittumst oft á förnum vegi næstu árin. Þá áttum við góðar viðræður saman og skiptumst á frá- sögnum af því sem á daga okkar hafði drifíð hveiju sinni. Sigríður var einkar vel gefín, fjöl- menntuð og áhugasöm um allt það sem mátti verða til almenningsheilla. Hún var vel menntuð kona í orðsins fyllstu merkingu. Hún átti ríka rétt- lætiskennd og þoldi það ekki að brot- ið væri á mönnum eða hnjóði kastað að þeim sem minna máttu sín. í starfí fyrir Sjálfstæðisflokkinn hittumst við svo aftur og endumýj- uðum kynnin enn betur. Síðan er liðinn aldarfjórðungur. Við urðum góðar vinkonur og þar bar aldrei skugga á. Við áttum samleið í fjöl- breytilegum hópum stuðningsmanna hinna og þessara, sem voru að feta refilstigu stjórnmálanna innan flokks okkar. - Við áttum víðar sam- leið, þar sem Sigríður lét sinn hlut ekki eftir liggja, hún átti festu og forsjá. Ég kom oft á heimili hennar, þar var mér ætíð vel tekið. Vandlega dúkað borð með heitu súkkulaði og kökum, eða kaffisopi í betristofu var veisla í hvert sinn. Móðir hennar, Elín, heimskona með aðlaðandi glað- værð bætti okkur selskapinn með nærveru sinni. Hún sagði okkur frá löngu liðinni tíð, tók þátt í vinskap okkar rétt eins og jafnaldra. Hún var svo hlý og dramblaus kona. Með foreldrum sínum, hjónunum Elínu Þorkelsdóttur og Valdimar Þórðarsyni, kaupsýslumanni, bjó SigríðuTi Anna alla rtíð.1 Þáð dúldist engum sem til þekktu að hún var augasteinn þeirra og öruggt skjól þegar halla tók undan fæti. Heimilið var fágað af menningu góðra for- eldra sem þekktu þau gildi að fara vel með alla hluti og hreykja sér hvergi. Þau veittu öðrum af silfurföt- um sínum. Sigríði þótti vænt um foreldra sína og bræður, þá Þorkel og Sigurð Bjarna. Og bræðrabörnin voru oft umræðuefni hennar þegar við hitt- umst eða töluðum saman í síma, en það gerðum við svo oft. Hún var stolt af velgengni þeirra og stækk- andi fjölskyldu sinni. Hún hafði gam- an af litrófi lífsins og vissi deili á svo mörgu. Fyrir trausta vináttu, hlýtt viðmót og vinarþel þakka ég og fjölskylda mín Sigríði, nú þegar leiðir skilja. - í dag strýkur andblær vorsins tár af kinn. Brynhildur K. Andersen. Sigríður Anna Valdimarsdóttir lést að heimili sínu, Freyjugötu 46, sjöunda apríl sl. Hún veiktist í nóv- ember á síðasta ári og leitaði sér lækninga. Eftir dvöl á sjúkrahúsi til rannsókna og meðferðar var hún komin heim þar sem hún lést skyndi- lega af sjúkdómi sínum. Sigríður sem jafnan var kölluð Systa af vinum og vandamönnum bjó við Freyjugötuna allt sitt líf. Hún fæddist í húsinu númer 49 og bjó þar til 6 ára aldurs að hún fluttist með fjölskyldu sinni yfír götuna í húsið á móti, Freyjugötu 46. Þar bjó hún síðan, fyrst með foreldrum sín- um og fjölskyldu og síðar ein eftir lát foreldra sinna. Foreldrar hennar voru Sigríður Elín Þorkelsdóttir hús- móðir, f. 13. ágúst 1903, d. 13. des- ember 1980, og Valdimar Þórðarson, f. 28. janúar 1905, d. 1. júlí 1981, kaupmaður í Reykjavík. Elín var dóttir Sigríðar Grímsdóttur húsmóð- ur á Eyrarbakka og Þorkels útvegs- bónda Þorkelssonar lengst af á Eyr- arbakka. Valdimar var sonur Önnu Helgadóttur húsmóður frá Glamma- stöðum í Svínadal í Borgarfjarðar- sýslu og Þórðar Þórðarsonar frá Höfða í Hnappadalssýslu. Bræður Systu eru Þorkell og Sig- urður Bjarni. Þorkell er fæddur 3. október 1932. Hann hefur lengi ver- Fædd 22. september 1916 Dáin 28. mars 1994 Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tið. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. (V. Briem.) Við systumar viljum með nokkr- um orðum kveðja ömmu okkar, sem lést á Vífilsstöðum eftir langvarandi veikindi. Það ekki hægt að segja að hún hafi verið heilsuhraust seinni árin, en dugleg var hún mjög og kvartaði aldrei. Ein okkar systranna, Kristín, ólst upp hjá ömmu og afa og betra uppeldi hefði hún ekki fengið. Aldrei var nein óregla á því heimili og allt var gert til að baminu liði sem best. Það var svo margt sem ég gat lært af ömmu og pn njér þá ið búsettur í Bandaríkjunum þar sem hann stundar verðbréfaviðskipti. Hann á tvö börn, Sigríði Elínu og Valdimar, móðir þeirra er Heba Júl- íusdóttir en þau Þorkell slitu samvist- ir. Sigurður Bjarni er fæddur 17. júlí 1937. Hann er bankafulltrúi hjá íslandsbanka og er í sambúð með Ingibjörgu Daníelsdóttur sem einnig starfar þar. Sigurður á þtjár dætur, Þórunni, Önnu Maríu og Elínu. Móð- ir þeirra var Bryndís Friðþjófsdóttir en hún lést 1991. Valdimar faðir Systu gekk í Sam- vinnuskólann. Þar kynntist hann Sig- urliða Kristjánssyni og stofnuðu þeir saman verslanir víða í Reykjavík sem báru nöfn þeirra beggja, verslanir Silla og Valda. Í upphafi opnuðu þeir tvær verslanir samtímis 1. des- ember 1925 en alls urðu þær 14 og var fyrirtækið rekið í 50 ár. Systa sem var yngst bamanna ólst upp við mikið ástríki á heimili sínu. Auk þeirra barna og foreldr- anna bjuggu þar einnig lengi tveir móðurbræður hennar, Guðmundur og Þorkell. Þegar Systa var um níu ára gömul veiktist hún og var talið að hún hefði fengið Akureyrarveik- ina svonefndu. Nokkrum árum síðar varð hún fyrir skellinöðru og hafði hvort tveggja áhrif á heilsu hennar síðan þannig að hún hafði ekki fullt þrek og var höfuðveik. Hún var fróð- leiksfús og átti mjög auðvelt með nám en heilsuleysi varð til þess að hún las hluta Kvennaskólans utan- skóla og lauk einnig stúdentsprófí frá Mennaskólanum í Reykjavík 1961 utanskóla. Hún sótti nám í guðfræðideild Háskóla íslands og tók þaðan próf í grísku 1963 og hebr- esku 1964. Hún stundaði einnig nám í ensku, listasögu, sálarfræði og þjóð- félagsfræði við Mills College í Oak- land í Kalifomíu veturinn 1968-69 og lagði svo stund á enskunám við Háskóla ísiands 1970-72. Hún sótti síðar námskeið í ensku við Edinborg- arháskóla og námskeið í þjóðfélags- og stjómmálafræði í Oxford í Eng- landi. Systa ólst upp á menningarheimili og vandist því ung að taka þátt í umræðum fullorðinna. Valdimar fað- ir hennar hafði unnið við verslunar- störf í Þýskalandi og Danmörku um tíma eftir nám í Samvinnuskólanum. Hann fylgdist vel með þjóðmálum og heimsmálum, og var víðlesinn, las mikið erlend tímarit og bækur. Elín móðir hennar var ættrækin og um- hyggjusöm og mjög virk í félagsmál- um. Hún starfaði í Kvenréttindafé- lagi íslands meðal annars að því að safna fé og byggja Hallveigarstaði. Hún var einnig ötul í starfi fyrir Fríkirkjuna í Reykjavík eins og þau hjón bæði og var hún í kvenfélaginu en Valdimar í stjórn safnaðarfélags- ins í u.þ.b. 40 ár. Mjög kært var með Systu og foreldrum hennar og voru þær mæðgur mjög samrýndar. Það var Systu því eðlilegt að taka þátt í félagsstarfi móður sinnar og fékk hún snemma einlægan áhuga á réttindamálum kvenna og fór ung að starfa fyrir Kvenréttindafélagið. Hún gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið, var í ritnefnd „19. júní“, blaðs Kvenréttindafélags íslands, 1968-76, í stjórn Menningar- og efst í huga hvað amma var næm á umhverfið og fólkið. Það var stund- um á mínum unglingsárum sem við voru ósammála um ýmíslegt, en alltaf kom á daginn að amma hafði rétt fyrir sér. Amma vildi að við systurnar menntuðum okkur og hefðum kurt- eisi og snyrtilega umgengni að leið- arljósi. Okkur fínnst þetta góð heil- ræði og munum við hafa þau fyrir okkar börnum í framtíðinni. Blessuð sé minning ömmu. Elsku afi, við biðjum Guð að styrkja þig í sorg þinni og söknuði. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Kristín, Steinunn og Þorbjörg. Minning Þorbjörg Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.