Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994 45 : : 1 1 I I i i i \ i i i ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ( ■ MÁ L VÍSINDA STOFNUN H á- skóla íslands hefur gefið út 7. bind- ið í flokknum Málfræðirannsókn- ir. Það nefnist Um frásagnarum- röðun og grundvallarorðaröð í forn- íslensku ásamt nokkrum saman- burði við nútímamál (179 bls.) og er eftir dr. Halldór Armann Sig- urðsson. Ritið fjallar um frásagnarumröð- un og grundvallarorðaröð í fornís- lensku og skiptist í 5 meginkafla auk inngangs- og niðurstöðu kafla. I 2. kafla er stiklað á stóru í fyrri skrifum málfræðinga um frá- sagnarumröðun í fornu máli og tengsl hennar við grundvallarorða- röð þess. í 3. kafla er fjallað um tíðni frásagnarumröðunar í fornís- lensku, einkum í ótengdum setning- um og meginniðurstaðan er sú að hún hafi iðulega verið stórlega ýkt og að orðaröðin sögn - frumlag sé þar til muna fátíðari en frumlag - sögn. Í 4. kafla er svo rætt sérstak- lega um tíðni og einkum þó dreif- ingu frásagnarumröðunar í tengd- um setningum í fornu máli. Þar kemur í ljós að tíðnin er mjög mikil í tengdum aðalsetningum en sáralít- il í aukasetningum. í 5. kafla er fjallað nokkuð um algengustu textaaðstæður frásagnarumröðun- ar, skilyrði hennar og hugsanlegt hlutverk í fornu máli. Þar er talið að skilyrði hennar ráðist m.a. af upplýsingagildi liða innan setningar og í 6. kafla er samanburður á frá- sagnarumröðun í forníslensku og nútímamáli. Meginniðurstaða ritsins felst í eftirfarandi: að grundvallarorðaröð forníslensku hafi verið frumlag - sögn en ekki sögn - frumlag og að ekki hafi verið uin stórvægilegar breytingar að ræða á frásagnarum- röðun og notkun hennar frá forn- máli til nútímamáls. Ritið er fáanlegt í öllum helstu bókabúðum, en einnig er hægt að panta það hjá Málvísindastofnun. ------♦ ♦ ♦------ Vitni vantar Á horni Kringlumýrar- og Háa- leitisbrautar rákust tveir fólksbílar saman af tegundunum Lancer og Lada. Þetta gerðist fímmtudaginn 7. apríl sl. um kl. 9.15. Ágreiningur er um ljósastöðu og þeir sem geta gefíð einhveijar upplýsingar um þetta vinsamlega hafi samband við Lögregluna í Reykjavík. Kópavogsmótið Hannes Hlífar er einn efstur Ungveijinn 18 ára gamli, Zoltan Almasi, er langstigahæsti kepp- andinn í Kópavogi. ___________Skák______________ Margeir Pétursson HANNES Hlífar Stefánsson vann Jón L. Arnason í fimmtu umferð Kópavogs- mótsins og er einn í efsta sæti því aðrar skákir í topp- baráttunni enduðu með jafn- tefli. Hannes á nú góða möguleika á að verða aftur efstur á alþjóðlegu móti hér innanlands, en hann varð í 1.—3. sæti á Reykjavíkur- skákmótinu í febrúar. Fast á hæla Hannesar fylgir Alm- asi, stigahæsti keppandinn, og enskir alþjóðameistarar. Flestir af öflugustu íslend- ingunum á mótinu tefldu inn- byrðis í fimmtu umferð. Andri Áss Grétarsson mætti fímmta stórmeistaranum í röð og tapaði íyrir Grikkjanum Skembris. Þrátt fyrir þetta á Andri ennþá góða möguleika á áfanga og nú hlýtur róðurinn að fara að léttast. Það eru jú ekki nema sjö stórmeist- arar á mótinu. Helgi Áss bróðir hans tapaði líka, fyrir danska al- þjóðameistaranum Bjarke Krist- ensen, sem er að hressast eftir lélega byijun. Úrslit fimmtu umferðar: Emms—Almasi jafnt., Jón L.— Hannes 0—1, Helgi Ól.—Kumaran jafnt., Grivas—Hebden 0—1, Skembris—Andri Áss 1—0, Þröst- ur—Guðm. Gíslason 1—0, Krist- ensen—Helgi Áss 1—0, Benedikt— Jón Garðar jafnt., Ólafur—Guðm. Halldórsson 0—1, Tómas—Wells 0—1, Áskell—Bragi jafnt. Staðan eftir fimm umferðir: 1. Hannes Hlífar Stefánsson 4 v. 2. -4. Almasi, Ungveijalandi, Emms og Kumaran, Englandi 3'/2 v. 5.—10. Jón L. Árnason, Helgi Ólafsson, Hebden, Englandi, Skembris, Grikklandi, Þröstur Þór- hallsson og Bjarke Kristensen, Danmörku 3 v. 11.—13. Grivas, Grikklandi, Jón Garðar Viðarsson og Benedikt Jón- asson 2 'h v. 14..—18. Wells, Englandi, Andri Áss Grétarsson, Helgi Áss Grétars- son, Guðmundur Gíslason og Guð- mundur Halldórsson 2 v. 19.—20. Ólafur B. Þórsson og Áskell Örn Kárason Vh v. 21,—22. Tómas Björnsson og Bragi Halldórsson 1 v. Enski stórmeistarinn Mark Hebden þótti fyrirfram vera með sigurstranglegustu keppendunum, en tvö töp fyrir íslenskum skák- mönnum settu stórt strik í reikn- inginn. En hann sigraði gríska stórmeistarann Grivas glæsilega í fimmtu umferðinni og nálgast toppinn. Hebden fann laglegan vinningsleik í þessari stöðu, nýtir sér það að hvítur hefur ekki „loft- að út“ af fyrstu reitaröðinni: Svart: Hebden, Englandi ■ b c d m l o h Hvítt: Grivas, Grikklandi 24. - e5!! 24. - h5? 25. Re3 - Rxd4? væri hins vegar stórlega misráðið vegna 25. Heel! og svartur tapar liði. 25. dxe5 - Hc4 26. exf6+ - Kf8 27. Df3 - Hxg4! 28. Dxd5 Hugmynd svarts sést í fram- haldinu 28. Dxg4 — Ddl+ og hvít- ur tapar drottningunni eftir 29. Heel — Dxg4. 28. - Hxd5 29. h3 - Hf4 og með heilan mann yfir vann Hebden auðveldlega. Skólaskákmót Reykjavíkur Einstaklingskeppni skólanna í Reykjavík, úrslitakeppni, fór fram í Skákmiðstöðinni Faxafeni 12 dagana 11.—13. apríl. Arnar E. Gunnarsson varð skólaskákmeist- ari Reykjavíkur í eldri flokki en Bragi Þorfínnsson í yngri flokki. Þeir eru báðir í Æfingaskóla Kenn- araháskóla íslands. í hvorum flokki var teflt um þrjú sæti á ís- landsmótinu í skólaskák sem fram fer á Húsavík í maí. I eldri flokki komust þeir Björn Þorfinnsson og Torfi Leósson í úrslitin, ásamt Arnari. í yngri flokki eru það þeir Bergsteinn Einarsson og Davíð Kjartansson sem fylgja sigurveg- aranum norður. Eldri flokkur, 8,—10. bekkur 1. Arnar E. Gunnarsson, Æfsk. 8'/2 v. 2. Björn Þorfinnsson, Æfsk. 7l/2 v. 3. Torfi Leósson, Hlíðask. 7 v. 4. Jón Viktor Gunnarsson, Hvas- salsk. 6 V2 v. 5. Davíð Ó. Ingimarsson, Æfsk. 4 'h v. 6. Ingi Ágústsson.Hólabrsk. 4‘h v. 7. Sindri Bjarnason, Hólabrsk. 4 v. 8. Þorbjörn Snorrason, Breiðhsk. 4 v. 9. Svava B. Sigbertsd., Ártúnssk. 4 v. 10. Þorvaldur Þorvaldsson, Breiðhsk. 4 v. Yngri flokkur, 1.—7. bekkur 1. Bragi Þorfinnsson, Æfsk. 9 v. 2. Bergsteinn Einarsson, Breiðhsk. 7 v. 3. Davíð Kjartansson, Breiðagsk. 7 v. 4. Bjarni Kolbeinsson, Æfsk. 6‘/2 v. 5. Davíð Guðnason, Hólabrsk. 6 v. 6. Hjörtur Daðason, Seljaskóla 6 v. 7. Sigurður P. Steindórsson, Grandask. 5 ‘h v. 8. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmss., Árt- únssk. 5‘/2 v. 9. Hrafn Harðarson, Melaskóla 5 v. 10. Atli Jóhann Leósson, Breiðhsk. 5 v. 11. Ingibjörn Ingibjörnsson, Hólabrsk. 5 v. 12. Höskuldur P. Halldórssön, Fossvsk. 5 v. 13. Guðjón H. Valgarðsson, Hólabrsk. 5 v. 14. Agnar Freyr Helgason, Öldu- selssk. 5 v. 15. Valur Sveinbjörnsson, Rima- skóla 5 v. 16. Magnús Magnússon, Hólabrsk. 5 v. o.s.frv. Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafsson og Ríkharður Sveinsson. Námskeið um Biblíuna BIBLÍUSKÓLINN við Holtaveg gengst fyrir nám- skeiði um Biblíuna fimm mánudagskvöld í apríl og maí. Biblían verður kynnt og skoðuð, samsetning hennar og tilurð. Leitað verður svara við því hvernig bók Biblían er, hvers vegna hún er kölluð Guðs orð og að hvaða leyti hún er verk manna og að hvaða leyti verk Guðs. Rætt verður um ýmsar spurning- ar er fólk glímir við sem tengjast náttúruvísindum og Biblíunni. Kennsla hefst mánudag- inn 18. apríl kl. 20 og fer fram í Aðalstöðvum KFUM og KFUK við Holtaveg. Leiðbeinandi verður Ragnar Gunnarsson. Násmkeiðs- gjald er 800 kr. nUIBVINIB agimnarifrii Laugavegi45 simi2l255 í kvöld: VINIRVORSOG BLÓMA FRÍTTINN Laugardagskvöld: Suðrænt kvöld með SNIGLABANDINU Wterkur og KJ hagkvæmur auglýsingamiöill! Tryggvagötu 8, sími 17799 í kvöld: SPILABORGIN Laugardagskvöld: SPILABORGIN Sunnudagskvöld: MÆÐIJSÖNGVA- SVEITIN --------f^-0 P A P A R í meiriháttar stuði, föstudagskvöid HÖRKUDANSSTEMMNING BLUSMENN ANDREU laugardagskvöld - alvörublús vnASTíe 3 • slui ts ts ts Opið í kvöld frá kl. 22 Föstudagsfjör með DANSSVEITINNI og Evu Ásrúnu K Sími 686220 / 0311 i || QÍt < | f 'í’ x f \ Ás'; í Í ;.. VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SÍMI 685090 Gömlu og nýju dansarnir íkvöld frá kl. 22-3 Hljómsveitin T únis leikur Miða-og borðapantanir ^7^37^ í símum 685090 og 670051. r ^ ~ i | Þorvaldur Halldórsson G unn arf^yýý vason ná upp góðri siemmnmgu Þægilegt unihverfi - ögrandi vinningarl OPIÐ FRÁ KLUKKAN 19:00 - 03:00 *L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.