Morgunblaðið - 15.04.1994, Blaðsíða 7
7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
-*«£!pSío.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Frá löndun í höfninni í Keflavík
sem svo er nefnd en hún er með
réttu í Vatnsnesvík við Stakks-
fjörð.
Sameinað sveitarfé-
lag á Suðurnesjum
Kjósa um
nýtt nafn
. KcDavík.
ÍBÚAR í Keflavík, Njarðvík og
Höfnum kjósa á morgun um nafn
á nýju sveitárfélagi. I febrúar sl.
samþykktu íbúar í Keflavíkurbæ,
Njarðvikurbæ og Hafnahreppi
með kosningu að sameina sveit-
arfélögin. Kosið verður um fimm
nöfn, Fitjar, Hafnavík, Nesbær,
Reykjanes og Suðurnes. Auk þess
eiga kjósendur kost á að rita það
nafn sem þeir telja heppilegast
að nýja sveitarfélagið heiti í auða
línu sem verður á kjörseðlinum.
Áður hafði verið óskað eftir til-
lögum frá íbúum. byggðanna um
nafn og var nefnd skipuð til að
velja tíu nöfn úr þeim tillögum.
Bæjarstjórnir Keflavíkur og Njarð-
víkur og hreppsnefnd Hafnahrepps
völdu síðan framangreind nöfn fyr-
ir íbúanna til að kjósa um. Hin
nöfnin fimm sem ekki komu til
greina voru: Faxanes, Nesbyggð,
Bergvík, Faxabær og Stakksfjörð-
ur.
Kosið verður um sameiginlega
bæjarstórn í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningunum hinn 28. maí
nk. Sveitarfélögin verða síðan sam-
einuð í júní og verður hið nýja
bæjarfélag 5. stærsta sveitarfélag
landsins með rúmlega 10.000 íbúa.
- BB
----» ♦ ♦--
Skattmat dagpeninga
30 daga þak
fellt niður
Samninganefnd Farmanna- og fiskimannasambands íslands
Verkfallsheimilda verði aflað
SAMNINGANEFND Farmanna- og fiskimannasambands íslands sam-
þykkti á fundi í fyrradag að beina því til fiskimannafélaga innan
FFSI að þau afli heimilda til boðunar vinnustöðvunar nú þegar. í
ályktun sem samþykkt var á fundinum segir að hörmuð sé sú af-
greiðsla meirihluta Alþingis að staðfesta bráðabirgðalög til að stöðva
verkfall sjómanna. Staðfesting bráðabirgðalaganna og tómlæti ríkis-
stjórnarinnar gagnvart vanda sjómanna hleypi auknu lífi í kvóta-
braskið og stíli upp á enn harðari átök í næstu framtíð.
í ályktuninni segir m.a. að við
núverandi aðstæður eigi sjómenn í
miklum vandræðum með að stunda
eðlilegar veiðar vegna þess að
þorskur sé ekki leyfður sem með-
afli, og ljóst sé að kvótabraskið
muni verða til staðar og færast í
auknum mæli yfir í þær tegundir
sem ekki hafa veiðst upp á undan-
förnum árum.
Afnám aflamarks
Til þess að vinna bug á kvóta-
braskinu til bráðabirgða og koma
aftur á eðlilegri umgengni um mið-
in skorar samninganefnd FFSÍ á
Alþingi að afnema aflamark á þeim
tegundum sem ekki þurfi vegna
verndunarsjónarmiða að vera inni í
kvótakerfinu. Eins og ástand sé nú
á karfa, grálúðu og þorski telur
samninganefndin að ekki sé hægt
að afnema kvótaskiptingu á þessum
tegundum, en bendir jafnframt á
að nauðsynlegt sé að leita leiða
hvernig farið verði með meðafla
utan aflamarks svo tryggt sé að
veiðar megi stunda með eðlilegu
móti og tryggja atvinnu úr þeim
afla sem veiddur er sem meðafli
við fiskveiðar annarra tegunda.
Samninganefndin beinir þeirri
eindregnu áskorun til sjávarútvegs-
nefndar Alþingis að leitast verði við
að einfalda núverandi stjórnkerfi
og fækka um leið þeim möguleikum
sem t.il staðar séu með sölu á
óveiddum afia úr sjó.
Hagkvæmt bílalán!
SaN. O
Staðgreiðslulán er heildarlausn við kaup á nýjum bíl
Lánstími allt aó 5 ár
Nú býðst í fyrsta sinn Staðgreiðslulán til allt að 5 ára sem gefur þér kost á enn
léttari greiðslubyrði.
Sveigjanleiki
. Hvenær sem er á lánstímanum getur þú greitt aukalega inn á Staðgreiðslulánið
eða greitt það upp.
100% lán
Staðgreiðslulánið getur numið öllu bílverðinu ef lánstími er 30 mánuðir eða
skemmri. Það getur numið allt að 75% bílverðs ef lánstíminn er 31 -48 mánuðir
en 65% ef hann er lengri.
Vextir eru sambærilegir bankavöxtum
Staðgreiðslulánið er í formi veðskuldabréfs og vextir eru sambærilegir skulda-
bréfavöxtum Islandsbanka.
RÍKISSKATTSTJÓRI hefur fellt
úr gildi kafla í orðsendingu sem
send var launagreiðendum í jan-
úar sl. Kaflinn fjallaði um dag-
peninga vegna dagsferða innan-
lands án gistingar og kvað m.a.
á um að heimilt væri að halda
utan staðgreiðslu og draga frá
slíkum dagpeningum 3.400 krón-
ur fyrir hveija ferð vegna 30
dagsferða og að ferðir sem þann-
ig væri tekið tillit til gætu aldrei
orðið fleiri en 30.
Ákvörðun um að fella úr gildi
ákvæðið um 30 daga þak var tekin
í kjölfar dóms sem gekk í Héraðs-
dómi Reykjavíkur 11. mars sl. Þar
var felldur niður úrskurður yfir-
skattanefndar sem hafði meinað
verkamanni hjá Pósti og síma á
Egilsstöðum að draga dagpeninga,
sem hann hafði fengið greidda
vegna vinnu ijarri heimili sínu, frá
tekjum á skattframtali.
Eftir niðurfellingu kaflans mega
launþegar draga dagpeninga vegna
dags%(ð> frá tekjjini iái,skídftfran>.rt1.;l|
tali burtséð frá fjöldaofierða-.d
'i
81 ,41 ,EI ,01 ,? .UHiUiil
.\t po H .lil tíHAiIp
Síllinn er staógreiddur
Þegar þú kaupir þér nýjan bíl, greiðir Glitnir það sem á vantar. Þannig er bíllinn
staðgreiddur og því nýtur þú bestu kjara hjá seljanda.
Þú tryggir þar sem þér hentar
Tryggja þarf bílinn með kaskótryggingu á lánstímanum og að sjálfsögðu ræður
þú hvar hann er tryggður.
Kynntu þér hagstœó kjör Staógreióslulána og geróu jafnframt samanburó
á þeim lánsformum sem bjóóast. Sölufulltrúar bifreióaumboóanna veita
þér nánari upplýsingar og útbúa tilheyrandi skjöl á skjótan
og einfaldan hátt.
Glitnlrhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
ibiovgtí 00,££ .noiinisvio* ’.oniÁ 00.? I
n.t.vt-mrv, ImdK 00. j in.vf'i-nió7 i:ib
íitlobíiolO nttóiX óiqu)vtúf'u|)ioM C0.V
n0??njýpi$)9 nM n<i?»ÍM>tfí úithi pó -Kth ntúl ti'
Ármúla 7 108 Reykjavík
Sími 608800 Myndsendir 608810
óiniDiathoójlH OO.Ov .no?íiubii)8 nóbtí ‘iójte>it»J ihtóbio
útln? po uióit liiyt óúO —iinpb7hnútTi?Á ni'nónrt ■ tjibdfotút 1