Morgunblaðið - 15.04.1994, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
Vímuefnameðferð
fyrir unglinga
Lýsing á leið unglings sem ákveður
að hætta í neyslu og verða edrú
eftir Magneu B.
Jónsdóttur
Mikið hefur verið fjallað um
unglinga sem eru á blindafyllerí
og á kafi í eiturlyfjum, sem ganga
um miðbæinn, rænandi og ruplandi
og lenda sífellt í slagsmálum.
Minna er fjallað um þá sem taka
sig á og venda kvæði sínu í kross.
Þeir eru ófáir, sem gengu um með
„mér er sama um allt“-viðhorf og
ógnandi meðborgurum sínum, sem
nú stunda sitt „edrúprógramm",
sækja vinnu eða skóla og hafa jafn-
vel stofnað fjölskyldu. Hvað gerðist
hjá þessum fyrrverandi „vandræða-
unglingum“? Jú, þeir fóru í með-
ferð. En þeir gerðu meira en það.
Þeir ákváðu að opna sig fyrir því,
að til sé betra líf og reyna allt sem
þeir gátu til að öðlast það. Það er
gífurlega erfið barátta. í þessari
grein ætla ég að segja frá þessari
baráttu sem unglingurinn háir til
að vera edrú, eins og ég þekki
hana af starfi mínu á Tindum.
Fæstir fara af sjálfsdáðum í
meðferð fyrr en allt er komið í
óefni. Fleiri hafa fyrir þrýsting for-
eldra eða barnaverndaraðila. I upp-
hafi meðferðar er farið í gegnum
viðamikla greiningu. Þar er athug-
að hvort viðkomandi á við raun-
verulegt vímuefnavandamál að
stríða og einnig eru önnur vanda-
mál greind. Þar er stuðst við upp-
lýsingar frá unglingnum og að-
standendum, sálfræðipróf og hegð-
„Meðferðin á Tindum
tekur ca. þrjá mánuði.
Þar fer fram tilfinn-
ingalegt, vitsmunalegt
og atferlisbreytandi
starf. Stöðugt er stuðst
við 12 reynsluspor AA
samtakanna og eru
fyrstu 5 sporin tekin
fyrir.“
unarathuganir. Jafnframt er reynt
að gera unglinginn móttækilegan
fyrir þeirri hjálp sem honum stend-
ur til boða.
Ef viðkomandi greinist með
vímuefnavandamál heldur hann
áfram í meðferð sem byggist á 12
reynslusporum AA samtakanna.
Hún gengur út á það að viðurkenna
á heiðarlegan hátt vanmátt gegn
vímuefnum og að hafa misst stjórn
á lífinu. Einnig að viðurkenna það,
að þurfa hjálp til að sigrast á fíkn-
inni og öðlast kjark til að gera það
sem til þarf. A þessu stigi meðferð-
arinnar þarf unglingurinn að segja
frá yfirsjónum sínum og sársauka-
fullri reynslu. Hann þarf að kynn-
ast tilfinningum sínum, bæði já-
kvæðum og neikvæðum og læra
að tjá þær á viðeigandi hátt. T.d.
ef hann var vanur að slá þann sem
niðurlægði hann þarf að læra að
skilja hvað er á bak við niðurlæg-
inguna og tala um það áður en
hann verður reiður. Hann þarf að
skoða hegðun sína og viðhorf og
breyta þeim. Hann þarf að vinna
með sektarkenndina og skömmina
vegna þess sem hann hefur gert
öðrum og sjálfum sér. Hann lærir
að skilja, að hann einn er ábyrgur
fyrir sinni neyslu, þótt ýmislegt í
lífi hans hafi rutt farveginn fyrir
hana.
Meðferðin á Tindum tekur ca.
þijá mánuði. Þar fer fram tilfinn-
ingalegt, vitsmunalegt og atferlis-
breytandi starf. Stöðugt er stuðst
við 12 reynsluspor AA samtakanna
og eru fyrstu 5 sporin tekin fyrir.
Hópvinnan er ráðandi en einnig er
gengið út frá því að hver og einn
þarf einstaklingsmeðferð. Tekið er
á sértækum vandamálum svo sem
kynferðislegu ofbeldi, einelti, and-
legu og líkamlegu ofbeldi, afbrotum
og sorg. Einnig fer fram öflug fjöl-
skylduvinna. Meðferðinni lýkur
með útskrift í eftirmeðferð. Hún
fer fram í Reykjavík og þar er
unglingnum fylgt eftir í ca. eitt ár.
Oftast fara unglingarnir heim til
foreldra sinna, en í sumum tilfellum
er það ekki hægt og þá er leitað
annarra úrræða. Þau eru af skorn-
um skammti, sérstaklega fyrir
unga krakka.
Eftirmeðferðin heldur áfram
með hóp- og einstaklingsvinnuna,
svo og stuðningi við foreldrana.
Þar er lögð áhersla á að unglingur-
inn tengist AA samtökunum, kynn-
ist öðru edrú fólki og læri að
skemmta sér án vímuefna. í eftir-
meðferð Tinda vinna áfengisráð-
gjafi og sálfræðingur. Þar reynir
Magnea B. Jónsdóttir
mikið á að takast á við önnur
vandamál sem koma í dagsljósið
þegar vímuefnin eru ekki til staðar
til að deyfa þau. Oft skortir ungl-
inga sjálfstraust, eru feimnir, stríða
við kvíða og óöryggi. Þeir þekkja
engar leiðir til að skemmta sér án
vímuefna, enda það fyrirbæri sjald-
gæft í íslensku þjóðfélagi. Þótt
mikið hafi áunnist á heimilinu eru
ýmis samskiptavandamál til staðar
og erfiðleikar við að halda upp
þeim aga og reglum sem krakkarn-
ir kynntust í meðferðinni. Þar spil-
ar inní óöryggi foreldra sem vita
lítið um hvað er rétt að banna og
leyfa. Á þessum málum er tekið í.
eftirmeðferðinni og kostar það mik-
inn viijastyrk og sjálfsaga hjá ungl-
ingunum og þolinmæði hjá starfs-
fólki og foreldrum.
Oft eru allir alveg að gefast upp
og þá þarf að taka sig enn meira
á. Sumir ráða ekki við vandamálin
og standast ekki þrýsting fyrrum
neyslufélaga sem erfitt er að forð-
ast. Þá sjá þau enga aðra lausn
enn að „detta í það“ og ferðin nið-
ur er oftast hröð. Vellíðan í neyslu
Orð í umræðu um ís-
lenskan landbúnað
eftir Gísla S.
Einarsson
Á undanförnum mánuðum hefur
verið að koma æ betur í ljós að
kerfi það sem bændur búa við,
framleiðsla búvara, er með þeim
hætti að ekki verður við unað. Þeg-
ar kerfið var sett á var það vegna
þess að ljóst var að stjórnun varð
að koma á og nauðsyn kallaði á
aðlögun að markaði og að heildar-
yfirsýn lægi fyrir. Reynslan af kerf-
inu hefur komið ilía við marga
bændur, af mismunandi ástæðum.
Hagræðing án höfnunar
Misjafnlega stóð á í búrekstri
þegar kerfinu var komið á. Sumir
bændur höfðu farið að tilmælum
og minnkað bú sín áður en kerfið
var sett á en aðrir höfðu stækkað
bú sín í trássi við óskir og nutu
þess þegar stýringin var sett á.
Nú er svo komið að fjöldi bænda
getur ekki hætt búskap, hvað þá
stækkað bú sín til áframhalds.
Það er ekki auðvelt að benda á
leiðir til að koma á betri stjórnun
en það verður að laga kerfið að
þörfum markaðarins, ásamt því að
finna nýja markaði á erlendri grund,
sem miklar vonir eru bundnar við.
Ég tel að gera verði bændum,
sem hafa náð 67 ára aldri og vilja
bregða búi án þess að yfirgefa sín-
ar eignir, kost á að hætta á mann-
sæmandi veg, þannig að þeir geti
setið sína jörð með bústofn sem
nemur nokkrum kindum, kú og
fáeinum hrossum til ánægju og
yndisauka á efri árum. Ríkið sjái
viðkpmapdi aðilum fyrir lágmarks- í
launum, þannig að lífeyrir og aðrar
greiðslur dugi til viðunandi lífsvið-
urværis.
Þetta er leið til hagræðingar.
Það er svo enginn vandi að setja
bú aftur í rekstur ef markaðir vinn-
ast fyrir framleiðslugetu íslenskra
jarða.
Meðan ástand er eins og það er
verður að draga úr fjárfestingu
tækja í landbúnaði á Islandi, en
gert er ráð fyrir fjárfestingu upp
á 8-900 milljónir á árinu 1994
þegar allt gengur á afturfótum.
Þessu verður að breyta.
Búháttabreyting
Mikið hefur verið rætt um bú-
háttabreytingu. Það er enginn vafi
á því að unnt er að hverfa að ýmiss
konar starfsemi á býlum í sveitum,
það hafa dæmin sannað. Slíkar
breytingar gerast aðeins á löngum
tíma og til þess að árangur náist
þarf að vinna margra ára þróunar-
starf.
Þegar rætt er um offramleiðslu
í landbúnaði er ávallt sagt að bænd-
um verði að fækka (sbr. grein
Sturlu Böðvarssonar í DV 8. mars
sl.). En ég held að það verði að
gera bændum kleift að hverfa að
annars konar búskap og að fólk fái
að búa þar sem það helst kýs og
með það sem hentar best á viðkom-
andi jörð. Til þess að svo megi
verða þarf bæði þróun og rann-
sóknir. Marktækar breytingar taka
áratug og á meðan verður að gera
viðkomandi aðilum mögulegt að lifa
mannsæmandi lífi og lijálpa þeim
sem fara illa út úr tilraunum þann-
ig að þeir sitji ekki eftir með von-
lausar skuldir og tjón.
Það er rétt að geta þess í þessu
sambandi, að ég tel að rétt hafí
verið að hefja loðdýrabúskap og
fiskirækt á sínum tíma, það sanna
dæmin í dag. En að hleypa þessu
öllu af stað, eins og gert var gegnd-
arlaust, er óþolandi, því að stór
hópur fjölskyldna og einstaklinga
situr í gjaldþrotum og skuldum
fyrir það að menn ætluðu að byggja
Róm á einum degi. Þeir sem sitja
í ábyrgð eru ríkisvald og bankar,
sem stjórnlaust mokuðu fé, án
rannsókna, í þær aðgerðir sem að
framan getur.
Alþingi og búvörulög
Síðustu vikur hefur staðið yfir
stríð á Alþingi um breytingu á
búvörulögum. Að þeim breytingum
loknum hefur verið komið á meiri
vernd fyrir íslenskan landbúnað en
nokkru sinni fyrr, og það að sjálf-
sögðu með fullu samþykki Alþýðu-
flokksins. Menn reyndu að koma
inn í þessa lagasetningu túlkun á
framkvæmd laga eftir að GATT-
Úi-úgvæ-samningur gengur í gildi
í janúar 1995 eða í júlí 1995. Þessa
framkvæmd gat undirritaður ekki
samþykkt og notaði sem rök ítrek-
aðar ræður landbúnaðarráðherra
um hvernig farið skyldi með undir-
búning lagasetningar eftir undirrit-
un GATT-samnings.
Það hefur verið spaugilegt að
kynnast þeim áróðri sem hafður
hefur verið uppi gegn Alþýðu-
flokknum varðandi íslenskan land-
búnað. Með gegndarlausum áróðri
hefur Alþýðuflokknum verið kennt
um hvernig komið er fyrir landbún-
aði á íslandi. í því sambandi vil ég
segja: Við kratar skorúmst ekki
Gísli S. Einarsson
„Með gegndarlausum
áróðri hefur Alþýðu-
flokknum verið kennt
um hvernig komið er
fyrir landbúnaði á ís-
landi. I því sambandi
vil ég segja: Við kratar
skorumst ekki undan
ábyrgð.“
undan ábyrgð. Frá upphafi höfum
við aðeins stjórnað landbúnaðar-
ráðuneyti í 4 mánuði 1977-78
gegn því að gera þar engar breyt-
ingar. Stjórnunar- og aðgerða-
ábyrgð liggur hjá framsókn, íhaldi
og Alþýðubandalagi. Þessir flokkar
bera fyrst og fremst ábyrgð á því
að fjölmargar bændafjölskyldur eru
við fátæktarmörk.
Höfundur cr 4. þingniaður
Vesturlandskjördæmis.
stendur stutt yfir og allmargir leita
sér hjálpar á ný. Enn svo eru marg-
ir sem ná að halda sér frá vímuefn-
um og er það mjög gefandi að sjá
breytinguna á þeim. Þau fríkka og
mildast í andliti og fara að hugsa
um að halda sér til. Þau brosa
meira og fá líf í augun. Þau tjá sig
á opinskáan hátt um líðan og til-
finningar og hafa öðlast gott inn-
sæi. Þau eru gott fordæmi fyrir
yngri systkini og unglinga sem eru
í neyslu. Þetta eru unglingarnir
sem eiga eftir að mæta kröfum
þjóðfélagsins á þroskaðan og heil-
steyptan hátt. Þetta eru ungling-
arnir sem eiga eftir að móta fram-
tíðina og við sem höfum staðið með
þeim í baráttunni fylltumst stolti
við þá tilhugsun.
Höfundur er sálfræðingur á
Tindum, meðferðarstofnun fyrir
unglinga í vímuefnavanda.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbrauy
Kopavogi, sími
S71800
Opið sunnudaga
kl. 13-18.
Nissan Sunny 1600 SLX 4x4 ’90, 5 g.,
ek. 70 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 830 þús.,
sk. á ód.
Nissan Micra GL '91, 5 g.p ek. 45 þ.
Toppeintak. V. 590 þú
MMC Lancer EXE '92, hlaðbakur, dökk-
blár, 5 g., ek. aðeins 15 þ., rafm. í öllu
o.fl. V. 1160 þús., sk. á ód.
Subaru Legacy Arctic 2,0 ’93, 5 g , ek.
aðeins 9 þ., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl.
V. 2060 þús., sk. á ód.
MMC Pajero V-6 ’91, 5 g., ek. 40 þ., ál-
felgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1890 þús.,
sk. á ód.
Honda Civic LSi '92, 3ja dyra, 5 g., ek.
40 þ., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1150
þús.
Lada Samara 1500 ’91, 5 dyra, 5 g., ek.
51 þ. V. 390 þús.
MMC Galant GLSi hlaðbakur '92, sjálfsk.,
ek. 40 þ. V. 1450 þús.
Toyota Corclla Touring 4x4 '90, 5 g.,
ek. 77 þ. V. 990 þús., skipti á árg. '92-94,
sjálfsk. bíl.
MMC Colt GLX '90, 5 g., ek. 70 þ., rafm.
í rúðum o.lf. V. 750 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLX hlaðbakur '90, 5 g.,
ek. 87 þ., þjónustu og smurbók frá Heklu.
V. 820 þús. Tilboðsverð kr. 730 þús. stgr.
Toyota Corolla Liftback '88, steingrár, 5
g., ek. 87 þ. V. 590 þús. Toppeintak.
Nissan Sunny 1.6 SLX hlaðbakur '91,
rauður, 5 g., ek. 53 þ., álfelgur, spoiler,
rafm. í rúðum o.fl. V. 950 þús.
Dodge Dakota Sport 4 x 4 '91, vsk-bíll, 6
cyl., 5 g., ek. 50 þ., 4ra manna. V. 1490
þús.
Chevrolet Blazer Thao S-10 '87, sjálfsk.,
rafm. í öllu, ek. 108 þ., álfelgur o.fl. Gott
eintak. V. 1150 þús., sk. á ód.
Renault 21 GTX Nevada 4x4 station
'90, dökkgrænn, 5 g., ek. 61 þ., rafm. í
rúðum o.fl. V. 1180 þús., sk. á ód.
Volvo 440 GLT '89, 5 g., ek. 80 þ., álfelg-
ur, spoiler o.fl. V. 850 þús., sk. á ód.
Honda Accord EX 2000 '91, rauöur, 5
g., ek. 70 þ., rafm. i rúðum, álfelgur, spoil-
er o.fl. V. 1350 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLX station 4x4 '88, silf-
urgrár, 5 g., ek. 69 þ., rafm. i rúðum,
centrallæs. V. 750 þús., sk. á ód.
MMC Galant Super Salon '89, blár,
sjálfsk., ek. 73 þ., rafm. í rúðum, sóllúga,
álfelgur, spoiler o.fl. V. 1050 þús. Vantar
'92 Galant Super Salon.
Daihatsu Charade TX '87, 4 g., ek. 87
þ. V. 280 þús.
Toyota Double Cab V-6, 4,31 '89, rauður,
sjálfsk., 6 cyl., ek. 30 þ. á vól. 44“ dekk.
Mikið breyttur. V. 1590 þús. stgr.