Morgunblaðið - 15.04.1994, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
Breytingartillögnr sjávarútvegsráðherra og meirihluta sjávarútvegsnefndar
Þrengdar heimildir til
að flytja kvóta á skip
TILLÖGUR meirihluta sjávarútvegsnefndar Alþingis og sjávarút-
vegsráðherra, sem kynntar voru í þingflokkum ríkisstjórnarinnar
á miðvikudag, gera m.a. ráð fyrir að fellt verði úr frumvarpi um
stjórn fiskveiða ákvæði um að heimilt sé að framselja aflahlut-
deild til fiskvinnslustöðva. Lagt er til að bannað verði að flylja
aflamark til skips ef meira en 15% aflamarks af sömu tegund
hafa verið flutt af skipinu á fiskveiðiárinu. Þá er lagt til að ef
fiskiskip veiðir minna en 50% af samanlögðu aflamarki sínu í
þorskígildum tvö fiskveiðiár í röð falli veiðileyfi þess og aflahlut-
deild niður og skal aflahlutdeild annarrar skipa í viðkomandi teg-
undum hækka sem því nemur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frambjóðendur ræða við kaupmenn
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir og Árni Sigfússon , oddvitar fram-
boðslistanna til borgarstjórnar Reykjavíkur, á fundi Kaupmannasam-
takanna. Milli frambjóðendanna eru Bjarni Finnsson, formaður Kaup-
mannasamtakanna, og Magnús Finnsson, framkvæmdasljóri.
Oddvitar framboðslistanna í Reykjavík
Laugavegurinn end-
urbættur á næsta ári
ÁRNI Sigfússon, borgarstjóri, lýsti því yfir á fundi með kaupmönnum
í Reykjavík í gær að hann vilji beita sér fyrir því að farið verði í endur-
bætur á Laugavegi á næsta ári. Mikilvægt sé að undirbúa framkvæmd-
irnar vel og að þær gangi hratt fyrir sig. Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, borgarstjóraefni R-listans, sagðist fagna því ef borgin ætli að taka
sér góðan tíma í að undirbúa þessa framkvæmd vel. Mikið vanti upp á
að framkvæmdir séu almennt nægilega vel undirbúnar hjá borginni,
enda sé það nánast regla að þær fari langt fram úr kostnaðaráætlun.
Einnig er lagt til að bannað
verði að flytja aflamark til skips
sem er bersýnilega umfram veiði-
getu þess. Þá er m.a. gerð sú
breyting á frumvarpi um Þróunar-
sjóð sjávarútvegsins að þróunar-
sjóðsgjald á fiskiskip komi til
framkvæmda frá og með árinu
1995 en ekki um næstu áramót
eins og ráðgert hafði verið og að
gjald á fiskvinnslustöðvar komi til
framkvæmda við álagningu gjalda
1995 vegna gjaldstofns ársins
1994 en ekki á yfirstandandi ári.
Alls eru gerðar breytingartillögur
sem lagðar verða fram í 5 frum-
vörpum.
Samstarfsnefnd sjómanna
og útvegsmanna
Lögð voru fram drög að sér-
stöku frumvarpi um samstarfs-
nefnd sjómanna og útvegsmanna
sem miðar að því, að koma í veg
fyrir að viðskipti með aflaheimildir
hafí óeðlileg áhrif á skiptakjör sjó-
manna. Á samstarfsnefnd útvegs-
manna og sjómanna að fjalla um
ágreining er tengist áhrifum við-
skipta með aflamark á uppgjör á
aflahlut sjómanna. Einungis heild-
arsamtök sem standa að tilnefn-
ingu samstarfsnefndarinnar geta
skotið málum til nefndarinnar.
Nefndin á að afla ítarlegra gagna
um fiskverð, forsendur þess og
önnur atriði sem geta haft áhrif á
aflahlut sjómanna og leita upplýs-
inga hjá viðkomandi útgerð og
áhöfn um öll atriði sem geta skipt
máli við úrlausn á hveiju máli.
Er skylt að veita nefndinni aðgang
að öllum gögnum varðandi uppgjör
og forsendur þess. Nefndin á að
koma þeim tilmælum til hlutaðeig-
andi útgerðar og áhafnar að
ágreiningur verði leystur í sam-
ræmi niðurstöður nefndarinnar en
geta ella skotið málinu til gerðar-
dóms. Gert er ráð fyrir að lögin
öðlist gildi 1. júní og gildi til árs-
loka 1995.
Bann við þátttöku
í kvótakaupum
Samhliða þessu frumvarpi er
lagt til að flutt verði frumvarp um
breytingar á lögum um skiptakjör
og greiðslumiðlun innan sjávarút-
vegsins og er þar lagt bann við
að draga kostnað vegna kaupa á
aflamarki frá heildaraflaverðmæti
við hlutaskipti. Brot á þessu
ákvæði varða sektum. „I þessu
banni felst einnig bann við fyrir-
fram samkomuiagi milli útvegs-
manna og sjómanna um kostnað-
arþátttöku af þessu tagi, m.a. í
því formi að þeir síðarnefndu leggi
Ijármuni í sérstaka sjóði til að
taka síðar þátt í kaupum útgerðar-
fyrirtækja á aflamarki. Er hér í
reynd verið að lögfesta þau ákvæði
er um þetta hafa gilt í kjarasamn-
ingum Sjómannasambands Islands
og Vinnuveitendasambands ís-
lands,“ segir í athugasemdum við
frumvarpið.
Sú breytingartillaga er gerð við
frumvarp um stjórn fiskveiða að
bátum minni en 6 brúttólestir, sem
stundað hafa veiðar með línu og
handfærum með dagatakmörkun-
um, verði einungis heimilt að
stunda slíkar veiðar en ekki leyft
að velja sér kvóta.
Þá er m.a. lögð til sú takmörkun
á verslun með aflaheimildir að
þegar meira en 15% af aflamarki
af einhverri tegund, sem úthlutað
var til skips í upphafi fiskveiðiárs,
hefur verið flutt til skipa í eigu
annarra útgerða án þess að um
jöfn skipti sé að ræða verði óheim-
ilt að flytja aflamark af sömu teg-
und til skipsins á sama fiskveiði-
ári. Á sama hátt verði óheimilt að
flytja aflamark frá skipi þegar
meira en sem svarar 15% af upp-
haflegu aflamarki skipsins af við-
komandi tegund hefur verið flutt
til skipsins frá öðrum útgerðum.
í breytingartillögum við frum-
varp um Þróunarsjóð sjávarút-
vegsins er lagt til að fellt verði
niður bann við að fiskvinnsluhús
sem hafa verið úrelt verði aftur
nýtt til fiskvinnslustarfsemi. Þró-
unarsjóði verði gert skylt að stuðla
að vöruþróun, markaðssetningu
íslenskra sjávarafurða og annarri
nýsköpun í sjávarútvegi, sem og
þátttöku íslenskra aðila í sjávarút-
vegsverkefnum erlendis og er
sjóðnum heimilt að veita lán og
ábyrgðir í því skyni. Einnig er lagt
til að Qármálaráðherra verði heim-
ilað að taka 2.720 millj. króna að
láni á þessu ári og endurlána Þró-
unarsjóði.
Frambjóðendurnir settu fram ýms-
ar hugmyndir á fundinum um hvern-
ig mætti bæta hag verslunar í
Reykjavík. Árni lagði mikla áherslu
á bættar samgöngur og sagði að þær
væru meðal lykilatriða að sterkari
verslun. Hann sagði að með lagningu
göngustíga mætti styrkja hverfa-
verslanirnar og eins þyrfti víða að
bæta aðkeyrslur að verslunum.
Sterkari verslun þýðir
minna atvinnuleysi
Ámi varpaði fram þeirri hugmynd
að borgin, í samvinnu við kaupmenn,
hótel, veitingahús og fleiri aðila,
standi fyrir sérstökum Reykjavíkur-
dögum. Þessir dagar gætu t.d. verið
í ágúst og verið í tengslum við af-
mæli borgarinnar.
Ingibjörg Sólrún sagði að efling
verslunar í Reykjavík væri mikilvæg-
ur þáttur i því að draga úr atvinnu-
leysi í borginn. Tæplega 900 verslun-
armenn í Reykjavík séu atvinnulaus-
ir í dag, 686 konur og 193 karlar.
Ingibjörg Sólrún sagði að eitt af því
sem R-listinn vilji beita sér fyrir sé
að skapa aðstæður fyrir meiri sam-
keppni í flutningastarfsemi í borg-
inni. Hún sagði að nýleg skýrsla um
skipaflutninga sýni að ekki sé van-
þörf á því. Hún sagði að borgin ætti
að geta boðið fyrirtækjum, sem vilja
hefja sjóflutninga til landsins, betri
aðstöðu.
Framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings
Framkvæmdastj óri nýrrar 10-11 verslunar í Borgarkringlunni
Tvær matvörubúðir á
svæðinu ættu að ganga
Morgunblaðið/Þorkel)
Opið 10 til 23 daglega
MARGIR kusu að gera innkaup í nýrri 10-11 verslun sem opnuð var
í Borgarkringlunni í dag.
Kemur til greina að
sigla skipunum
„MÉR finnst það koma til greina að sigla skipum okkar inn til Reykja-
víkur í mótmælaskyni, verði staðreyndin sú að menn ætli að eyði-
leggja kvótakerfið og minnka útflutningsverðmæti landsmanna um 10
milljarða. Ég vil ekki láta slíka hluti gerast án þess að mótmæla,"
sagði Einar Svansson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings á
Sauðárkróki, á aðalfundi Islenskra sjávarafurða í gær. Á fundinum
kom fram hörð andstaða við tillögur meirihluta sjávarútvegsnefndar
um skerðingu á framsali aflaheimilda og ákvæða í frumvarpi um há-
marksafla krókabáta.
NÝ 500 fermetra 10-11 verslun
var opnuð í gær í Borgarkringl-
unni og síðdegis í gær sagðist
Eiríkur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Vöruveltunnar
hf., sem rekur verslunina, vera
ánægður með fjölda viðskipta-
vina sem lagði leið sína í
verslunina. Ragnar Atli Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Hofs hf., eignar-
haldsfyrirtækis Hagkaups, seg-
ist ekki óttast samkeppnina við
nýju verslunina.
Eiríkur sagðist ekki vera
hræddur við samkeppnina við
Hagkaup, sem er til húsa í Kringl-
unni, enda sé hverfið í kringum
verslunina stórt og umferðaræðin
í gegnum það fjölfarin.
„Það er alltaf verðstríð í gangi.
Eg verð bara að gera betur en
þeir,“ segir hann. „Af hveiju ætti
ekki að ganga að hafa tvær
verslanir á þessu svæði eins og
allar fataverslanir sem starfa í
Kringlunni og Borgarkringlunni?"
Hann bendir á að opnunartími
10-11 verslunarinnar sé lengri en
Hagkaups og því eigi fólk kost á
því að versla utan hefðbundins
verslunartíma. Verslunin í Borgar-
kringlunni er fjórða 10-11 verslun-
in sem opnuð er á höfuðborgar-
svæðinu og til stendur að opna
fimmtu búðina síðar á þessu ári í
Hafnarfirði.
Oðruvísi horft, við ef um
stórmarkað væri að ræða
Ragnar sagðst ekki eiga von á
því að nýja verslunin hefði áhrif á
Hagkaup í Kringlunni enda væri
nýja verslunin einungis 500 fer-
metrar. Málið hefði horft öðruvísi
við ef um aðra 4.000 fermetra
stórverslun hefði verið að ræða.
Nýlega hefur opnunartími Hag-
kaups í Skeifunni verið lengdur
og samræmdur því sem gerist í
verslunum fyrirtækisins á Sel-
tjarnarnesi og í Grafarvogi. Ragn-
ar Átli sagði að þessi lenging opn-
unartíma væri að vissu leyti við-
brögð við fjölgun svokallaðra
„klukkuverslana“ eins og 10-10,
11-11 og 10-11 undanfarin ár.
Einar Svansson taldi líklegt að
menn áttuðu sig ekki á því, í hveiju
tillögur sjávarútvegsnefndar fælust.
Hann sagði að ekki væri bara talað
um að menn yrðu að taka helming
aflaheimilda sinna á tveimur árum,
heldur væri líka verið að tala um,
að væri kvóti fluttur af einu skipi
yfir á annað, mætti aðeins flytja 15%
þess sem framselt var, til baka. Það
þýddi einnig að sá, sem tæki við
kvótanum mætti ekki flytja frá sér
nema 15% af því sem hann tæki við.
Einar sagði það dæmigert fyrir
vinnubrögð Alþingis að koma með
fljótaskriftartillögur á síðustu stundu
án þess að hafa hugmynd um það
hvernig það kæmi út. Þetta gæti
haft mjög alvarlegar afleiðingar fyr-
ir fyrirtæki og þjóðarbúið.
Hringlandaháttur
Halldór Árnason, framkvæmda-
stjóri Borgeyjar hf. á Höfn tók í
sama streng og Einar Svansson og
sagði að það væri óþolandi að búa
við svona hringlandahátt í stjórnun
fiskveiða. í hans fyrirtæki hefðu
menn á síðasta ári gert miklar breyt-
ingar á rekstrinum í samræmi við
gildandi lög og reglur um stjórn fisk-
veiða. Grundvellinum undan þeim
breytingum yrði kippt með takmörk-
un á framsali aflakvóta. „Það er
ekki hægt að búa við svona óvissu,"
sagði Halldór.
Fulltrúar útvegmanna innan ís-
lenskra sjávarafurða áttu síðdegis í
gær fund rneð Kristjáni Ragnarssyni
formanni LÍÚ til að fara yfir stöð-
una. Að sögn Einars Svanssonar
geta útgerðarmenn víða að _af Iand-
inu ekki sætt sig við að LÍÚ leggi
blessun sína yfir þessar tillögur.
„Við munum hugsanlega fara fram
á opinn fund í félaginu, ef það ger-
ist,“ sagði Einar.
Bitamunur
„Ég trúi því ekki að óreyndu að þetta
verði niðurstaðan," sagði Arthur
Bogason, formaður Landssambands
smábátaeigenda, um tillögur sjávar-
útvegsnefndar. Arthur segir að ekk-
ert sé tekið á vanda aflamarksbáta
sem búnir séu að missa 70% af veiði-
heimildum sínum á 32 mánuðum.
Breytingin á banndagakerfinu sé
bitamunur en ekki eðlismunur.
Arthur segir að aflamarksbátar
iiafi hlutfallslega mest allra af veiði-
heimildum í þorski, en ekkert tillit
sé tekið til þess að niðurskurðurinn
hefur allur verið í þorski. í fyrirliggj-
andi tillögum sé ekki heldur gert ráð
fyrir því að smábátar njóti þess ef
veiðiheimildir verða auknar.
1
í
[
I
(
t:
l
8
I
8
I
I
|
C
I
I
E
f
I
í
(
I
H