Morgunblaðið - 15.04.1994, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
VIDSKIPn AIVINNULÍF
Fyrirtæki
Tap Fiskiðjusamlags
Húsavíkur 12 millj.
Undirbúningur hafinn að 100 milljóna fjárfestingu í rækjuvinnslu
TAP Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. á síðasta ári nam alls um 11,8
milljónum króna samanborið við 11,9 mílljóna tap árið áður. Veru-
legpur bati varð engu að síður í rekstrinum þar sem félagið fékk
greiddar rúmar 25 milljónir úr verðjöfnunarsjóði árið 1992 og hafði
rúmar 11 milljónir í óreglulegar tekjur. Heildarvelta á sl. ári nam
alls 1.250 milljónum og jókst um 12,8% frá árinu áður. Að meðal-
tali störfuðu 140 manns hjá félaginu og voru launagreiðslur 215
milljónir. Fiskiðjusamlag Húsavíkur rekur frystihús, rækjuverk-
smiðju ásamt fleiri greinum tengdum fiskvinnslu.
Innlagður bolfiskur varð alls
4.496 tonn á móti 4.611 tonnum
árið 1992 og hafði dregist saman
um 115 tonn. Samdrátturinn milli
áranna 1991 og 1992 varð 547
tonn þannig að á tveimur árum
nemur samdrátturinn í bolfiski 662
tonnum. „Þarna sjáum við í hnot-
skurn alvarlegasta vandann sem
fyrirtækið á við að stríða," sagði
Einar Njálsson stjómarformaður á
aðalfundi fyrirtækisins nýverið.
Skemmtigarðar
Tívolígarður
íRússlandi
„Rækjan hefur aftur á móti stöðugt
verið að aukast. Árið 1993 voru
tekin til vinnslu um 5 þúsund tonn
af rækju á móti 3.700 tonnum árið
1992 þannig að aukningin varð
1.300 tonn.“
Unnið hefur verið að því að und-
irbúa endurskipulagningu á rækju-
vinnslu Fiskiðjusamlags Húsavík-
ur. Gert er ráð fyrir að að flytja
verksmiðjuna af Höfðanum og
koma henni fyrir í saltfiskverkun-
arhúsi á hafnarstétt. Jafnframt
þessu gera tillögur um þetta mál
ráð fyrir að rækjupökkunarstöð frá
Þróunarsetri íslenskra sjávaraf
urða verði flutt til Húsavíkur. í
Verðbréfaþing
máli Einars kom fram að áætlanir
sýndu að hér væri um að ræða
mjög arðsaman kost. Fjárfestingin
er samtals um 100 milljónir, þ.e.
flutningur á rækjuverksmiðjunni
og pökkunarstöðinni ásamt end-
urnýjun á hluta af tækjabúnaði.
Þessar hugmyndir hafa verið
kynntar fjárfestum en ljóst þykir
að fjármagna þurfi hluta af fram-
kvæmdum með nýju hlutafé. Stjórn
Fiskiðjusamlagsins hefur tilkynnt
íslenskum sjávarafurðum að félag-
ið muni taka við pökkunarstöðinni
enda breytast ekki forsendur við
endurskoðun á rekstraráætlunum.
Eigið fé félagsins var tæpar 6
milljónir í árslok og eiginfjárhlut-
fall 1,03%. Heildarskuldir voru
tæplega 544 milljónir. Handbært
fé frá rekstri nam tæplega 20 millj-
ónum samanborið við um 25 millj-
ónir árið áður.
í lok ársins voru hluthafar fé-
lagsins 107 að tölu og átti Kaupfé-
lag Þingeyinga tæplega 26% hluta-
§ár og Húsavíkurbær 54%.
Innlendup bjór meö 71% hlutdeild
Markaðshlutdeild tegunda:
Egils Gull
Thule
Tuborg Grænn
Viking
Becks
Löwenbau
Heinken
Holsten
Pripps
lce bjór Q 1,9%
Aðrartegundir l
Heildarsala bjórs í
janúar til mars var
1.430.180 lítrar
—----1
_____| 10,3%
Markaðshlutdeild framleiðenda:
35,9%
35,4%
Ölgerðin E.S.
Viking brugg
Becks
Heineken
Holsten
Pripps
4,9%
4,6%
Anhauser/Busch Q 2,4%
Aðrir □ 2,5%
BJÓRSALA jókst á fyrsta fjórðungi þessa árs um rúmlega 37% í lítrum talið en tæp-
lega 35% í alkóhólítrum, skv. upplýsingum frá ÁTVR. Bent hefur verið á af hálfu ÁTVR
að meginástæða þessarar aukningar felist (því að páskasalan I ár fór fram í mars en á
sl. ári var dymbilvikan í apríl. Sú skýring er ekki einhlít því umtalsyerö aukning varð í
janúar og febrúar. Að mati Benedikts Hreinssonar, markaðsstjóra Ölgerðarinnar, skýrist
aukningin einnig af því að bjór er nú að stærstum hluta seldur í hálfs lítra dósum í stað
33 sentilítra dósa á sama tíma í fyrra. Sala á hálfs lítra dósum hófst sem kunnugt er í
ágúst á sl. ári. Á myndinni hér að ofan má sjá að innlendu framleiðendurnir voru með
71,3% hlutdeild á markaðnum á þessu ttmabili en sem fyrr er Egils gull með yfirburði
gagnvart öðrum bjórtegundum.
Avöxtunarkrafa húsbréfa og
spariskírteina lækkar
Erlend 0 g innlend verðbréf í erlendri mynt hafa selst fyrir 3,6 milljarða frá áramótum
SALA húsbréfa og spariskírteina á Verðbréfaþingi margfaldaðist
í gær og ávöxtunarkrafa lækkaði í kjölfar á yfirlýsingu Davíðs
Oddssonar, forsætisráðherra, um að svigrúm væri til frekari vaxta-
lækkana en urðu í kjölfar aðgerða ríkisstjórnarinnar í lok október.
Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði um 0,07 prósentustig og spariskír-
teini, sem seldust við 5% ávöxtunarkröfu í útboði ríkissjóðs í fyrra-
dag, seldust í gær við lok markaðar á ávöxtunarkröfunni 4,90%.
Erlend verðbréf og innlend verðbréf í erlendri mynt hafa selst fyr-
ir 3,6 milljarða króna frá áramótum.
Kaupmannahöfn. Reuter.
STJORN Tívolígarðanna í
Kaupmannahöfn hyggst
koma upp skemmtigarði í
Rússlandi, þótt hún neiti að
láta uppi um hve mikla fjár-
festingu sé að ræða eða hve-
nær framkvæmdir hefjist.
Skemmtigarðurinn verður í
borginni Perm í Mið-Rússlandi,
1.100 km austur af Moskvu,
og verður kallaður Tívolí-
Gorkíj-garðurinn.
Alþjóðadeild Tívolí mun enn
fremur' verja 2,5 milljörðum
danskra króna í gerð skemmti-
garðs í Kurashiki í héraðinu
Okayama í suðvesturhluta Jap-
ans. Af öðrum framkvæmdum
mæa nefna skemmtigarð við
Rín skammt frá Dússeldorf í
Þýzkalandi og ævintýragarð í
anda Hans Christians Anders-
ens í Óðinsvéum á Fjóni, þar
sem ævintýraskáldið fæddist.
Fjórar milljónir manna
heimsóttu Tívolí í Kaupmanna-
höfn - síðasta núlifandi dæmi
um skemmtigarða 19. aldar -
á 150. afmælisárinu 1993.
íslandsvikan er skipulögð og í
samráði við atvinnumáladeild
Jönköping, samkvæmt upplýsingum
frá Sænsk-íslenska félaginu. Einnig
hefur félagið Kulturbruket og kaup-
mannasamtökin í Jönköping sam-
þykkt að taka þátt í vikunni. Komið
verður á fót mörkuðum í þremur
stærstu verslunarmiðstövum borgar-
innar þannig að íslenskar vörur
Sala húsbréfa varð samtals rúm-
ar 700 milljónir, sem er um það
bil tífalt meira en algengast er, og
ávöxtunarkrafan lækkaði úr 7,20%,
sem hún hefur verið undanfarnar
vikur og í 7,13% við lok viðskipta
í gær. Spariskírteini seldust fyrir
220 milljónir, sem er um það bil
tvöfalt meira en algengt er, og
verða í sviðsljósinu þessa viku.
í því skyni að auðvelda íslenskum
fyrirtækjum þáttöku á mörkuðunum
þremur hefur Kulturbruket skipu-
lagt atvinnuþróunarverkefni, þar
sem um 10 manns munu veita fyrir-
tækjum aðstoð.
Margt. annað verður um að vera
þessa Islandsviku í Jönköping. Verið
er að skipuleggja tónlistar-, bók-
ávöxtunarkrafan á þinginu féll um
0,08 prósentustig.
Meiri eftirspurn
að undanförnu
Sigurbjörn Gunnarsson, deildar-
stjóri hjá Landsbréfum, sagði að
markaðurinn væri að bregðast við
stefnuyfirlýsingu forsætisráðherra
mennta- og listviðburði, einnig
maraþonskákkeppni utandyra í mið-
borg Jönköping. Strætisvagnar
verða prýddir íslenskum fánum og
búðargluggar skreyttir munum sem
minna á Island. Markmiðið er að
enginn íbúi Jönköping komist hjá
því að taka þátt í hinni íslensku
hátíð.
Jönköping-borg er orðin ein
stærsta miðstöð vörudreifingar í
Skandinavíu og er þar m.a. að finna
dreifingarmiðstöð Ikea fyrir Evrópu.
Fulltrúar Sænsk-íslenska félags-
ins verða á Islandi næstu daga og
hægt er að komast í samband við
þá á skrifstofu Útflutningsráðs.
um að stjórnvöld væru tilbúin að
beita þeim tækjum sem tiltæk
væru til þess að lækka vextina enn
frekar. Raunar hefðu verið merki
um það síðustu daga að eitthvað
væri að gerast því eftirspurn eftir
húsbréfum hefði verið meiri en
áður og tiltölulega lítið framboð.
Honum kæmi ekki á óvart þótt
vextir á húsbréfum færu niður
undir 5% en mikið neðar færu
þeir varla. Það gæti kannski gert
það að verkum að húsnæðisbréf
færu að seljast, en lítið hefði selst
af þeim að undanförnu þar sem
Húsnæðisstofnun hefði ekki verið
tilbúin að taka hærri ávöxtunarkr-
öfu en 5%.
Sigurbjörn sagðist vera þeirrar
skoðunar að vextir hér á landi
myndu taka æ meira mið af vöxtum
í nágrannalöndunum. Fjármagnið
leiti þangað sem hagstæðasta
ávöxtunin sé hvort sem það sé hér
eða erlendis og til marks um það
nemi kaup á erlendum og innlend-
um verðbréfum í erlendri mynt nú
3,6 milljörðum króna frá áramót-
um.
Rétt hjá stjórnvöldum
Bjarni Ármannsson, forstöðu-
maður fjárvörslu- og markaðssviðs
Kaupþings sagði að markaðurinn
virtist vera að bregðast við yfirlýs-
ingu forsætisráðherra með þessum
hætti og einnig væri sjálfsagt spá-
kaupmennska á ferðinni. Menn
teldu að ríkisstjórnin og Seðlabank-
inn myndu gera allt sem í þeirra
valdið stæði til að ná vöxtum á
skuldabréfum til langs tíma niður
fyrir 5%.
Aðspurður hvort hann teldi frek-
ari raunvaxtalækkanir raunhæfar
sagði hann að þáttur Seðlabankans
væri þar stærstur. Spurningin væri
hversu miklu menn væru tilbúnir
til að fórna til að halda vöxtum á
þessu stigi. Kaup Seðlabankans á
ríkisverðbréfum auki fjármagn í
umferð og gefi öðrum svigrúm á
markaðnum. Ef aðrir komi ekki inn
í það skarð, sem myndist, sé frek-
ari vaxtalækkun ekki óraunhæfur
möguleiki á næstunni. Hvort það
sé til langírama sé annað mál og
velti meðal annars á þróun efna-
hagsmála. Um leið og hér yrði ein-
hver þensla eða svigrúm skapaðist
til fjárfestinga væri eðlilegt að
vextir færu eitthvað hækkandi. En
hann teldi við núverandi aðstæður
að það væri alveg rétt af stjórnvöld-
um að reyna að halda vöxtum lág-
um en það væri alveg ljóst að það
kostaði eitthvað.
Markaðurinn ræður
Valur Valsson, bankastjóri ís-
landsbanka, segir að Davíð Odds-
son, forsætisráðherra meti stöðuna
í vaxtamálum rétt í grein sinni í
Morgunblaðinu í gær, en það mun
hinsvegar koma fram á markaðn-
um hversu mikið og hversu fljótt
vextirnir lækki.
Valur sagði lækkunina vera fyrst
og fremst í höndum markaðarins
og segir að það sem snúi að bönk-
unum sé að undanfarið hafi vextir
bankanna markast að töluverðu
leyti af framlögum þeirra til af-
skriftarreikninga og þegar þær
greiðslur lækkuðu skapaðist svig-
rúm til vaxtalækkunar.
iniiiiii.iiii.iiij
íslandskynning í Jönköping
SÆNSK-ísIenska félagið I Jönköping hefur ákveðið að efna til ísland-
skynningar 13.-19. júní næstkomandi í tilefni af fimmtíu ára afmæli
islenska lýðveldisins. Þar gefst islenskum fyrirtækjum tækifæri til að
komast í samband við sænska dreifingaraðila. Svíþjóð er tiltölulega
lítill markaður fyrir íslenskar afurðir en félagið hefur áhuga á að
aðstoða íslensk fyrirtæki að ná fótfestu þar.
1
í
I
I
l
i
•i
s
I
c
1
í
1
(
I
I
t
I
i
I
c
t
I
I.
I