Morgunblaðið - 15.04.1994, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. APRÍL 1994
39
Guðrún Daðadótt
ir - Minning
Fædd 17. maí 1898
Dáin 1. apríl 1994
Fyrsta apríl andaðist á hjúkrun-
arheimilinu Eir í Reykjavík Guðrún'
Daðadóttir föðursystir mín. Hún var
aldamótabarn og af þeirri kynslóð
sem tók þátt í að leggja undirstöður
að velferðarþjóðfélagi okkar.
Guðrún fæddist • á Dröngum á
Skógarströnd. Foreldrar hennar
voru María Andrésdóttir, en hún
var systir þeirra skáldsystra, Her-
dísar og Ólínu, og Daði Daníelsson.
Börn þeirra urðu 15.
Ung að árum fór Guðrún vestur
á Bíldudal í fóstur til frænku og
uppeldissystur Maríu móður sinnar,
frá Ásthildar Thorsteinsson, Svo
þegar Thorsteinsson-fjölskyldan
flutti til Danmerkur varð Guðrún
eftir og ólst upp hjá Finnboga Arn-
dal kennara og konu hans,
Ljósmyndasafn Guðrúnar
frænku hafði að geyma myndir af
Bíldudalsfólkinu og þar á meðal var
Muggur, listamaðurinn vinsæli.
Eftir að Guðrún flutti suður var
Ásthildur Thorsteinsson búsett í
Hafnarfirði og þá bar fundum
þeirra saman á nýjan leik.
Guðrún frænka mín gerist nú
kaupakona í Viðey á Kollafirði, en
þá var þar rekið myndarlegt bú.
Til er ljósmynd af mörgum hárprúð-
um vel klæddum stúlkum við að
Vegna meinlegra prentvillna í
eftirfarandi grein í Morgunblað-
inu miðvikudaginn 6. apríl síðast-
liðinn birtum við hana hér á nýj-
an leik. Hlutaðeigendur eru inni-
lega beðnir afsökunar á mistök-
unum;
Mig langar með fáum orðum að
kveðja vin minn og sóknarfélaga
sem reyndist mér alltaf svo vel.
Alfred var biskup kaþólsku kirkj-
unnar í sjö ár og þjónaði ég honum
sem kórdrengur allan þann tíma.
Hann var ávallt léttur í lund og
áttum við margar góðar og ánægju-
legar stundir saman. Hann bauð
mér stundum heim í mat og þá var
oft glatt á hjalla og mikið hlegið
og því kveð ég þig, Alfred minn,
með söknuði. Megi Guð og gæfan
fylgja þér.
Hvíl í friði.
Gunnar Lund.
rifja flekk á túninu í Viðey. Þar eru
fóstursysturnar Guðrún og dóttir
Finnboga Arndal. Guðrún ræktaði
alltaf samband við fjölskyldu sína
eins og fósturfjölskyldurnar.
Dætur Maríu og Daða áttu það
sameiginlegt að vera einkar vel
klæddar og höfðu mjög góða fram-
komu svo að eftir var tekið. Prófess-
or Sigurður Nordal og Ólöf kona
hans höfðu Kristínu Daðadóttur um
tíma til þess að gæta barna sinna.
En hvíti dauðinn lagði hana að velli
áður en hún hafði lokið ráðningar-
tíma sínum þar. Sigurður hafði orð
á því við mig að hann hefði verið
stoltur af Kristínu. Hún var vel
gefin og glæsileg stúlka.
Þegar móðir Guðrúnar, María
Andrésdóttír, varð níræð tók Ríkis-
útyarpið viðtal við hana, Þar kom
fram að hún hefði viljað vera megn-
ug tjl þess að veita börnum aínum
þá menntun er hugur þeirra stóð
til. Á þeim árum var lífsbaráttan
hörð og tækifæri fá, Systkinin fóru
snemma að vinna enda vel verki
farin og dugleg. Námsleiði var þá
óþekkt hugtak. Fróðleiksþrá var þá
algeng en aðgangur að bókasöfnum
takmarkaður vegna bókaskorts eða
þau vart til í mörgum byggðarlög-
um.
María móðir Guðrúnar elst upp
á Kvennabrekku í Dölum hjá séra
Guðmundi Einarssyni, en Guð-
hag kaþólsku kirkjunnar á íslandi
að leiðarljósi. Þrátt fyrir að hafa
gegnt hárri stöðu innan kirkjunnar
þáði hann engin laun fyrir störf
sín. Ef einungis fleiri hefðu reynt
að skilja ásetning hans í hirðisstarf-
inu hefði starf hans fyrir róm-
versk/kaþólsku kirkjuna, sem hann
unni svo mjög, orðið auðveldara.
Við leikmenn megum ekki gleyma
þeirri skyldu okkar að endurgjalda
prestum andlega hvatningu og
skilning þeirra.
Því miður njótum við ekki krafta
hans lengur. Drottinn ákvað að
kalla hann heim og leysa hann und-
an jarðneskum skyldustörfum.
En þau fræ sem hann hefur sáð
hér á landi og um allan heim munu
bera ávöxt hundraðfalt fyrir góð-
mennsku verka hans.
(Ruby) Veronika S.K.
Palaniandy,
Valdimar Jónsson.
mundur var sonur Einars Ólafsson-
ar í Skáleyjum og Ástríðar Guð-
mundsdóttur, sem var annáluð
ágætis kona og skörungur. Systir
Guðmundar var Þóra í Skógum
móðir Matthíasar Jochumssonar og
Guðrúnar í Miðbæ í Flatey, en Guð-
rún var móðir Andrésar Andrésson-
ar föður Maríu, Ólínu og Herdísar.
Þessi ættartengsl verða til þess að
María elst upp á Kvennabrekku, en
faðir hennar, Andrés Andrésson,
drukknaði frá mörgum börnum.
Þær fóstursystur Maríu, Ásthildur
Thorsteinsson og Thedóra Thorodd-
sen fóru báðar í skóla. Thedóra
hafði orð á því við föður sinn að
hann ætti líka að lofa Maríu að
læra því að hún væri ekki síðri
nemandi en þær systur. Tíðarand-
inn var á þeim tima ekki jákvæður.
María var dagfarsprúð og virðuleg
kona og hafði af miklu að miðla
úr sínum andlega sjóði. Maður
hennar, Daði Daníelsson, var „mús-
íkalskur" maður og gat orðið sér
flti um lærdóm í tónfræði og hljóð-
færaleik á yngri árum. Hann var
forsöngyari um tíma í Breiðabóls-
staðarkirkju á Skógarströnd.
Guðrún Daðadóttir giftiat Pétri
Eyvindssyni ættuðum úr Mosfolls-
sveit, Þau bjuggu í Reykjavík,
Heimili þeirra var þekkt fyrir gest-
risni og myndarskap. í þá daga var
yfirleitt leitað til kunningja og ætt-
ingja þegar til Reykjavíkur var far-
ið. Ég naut þess að vera þeirra
gestur.
Faðir minn, bróðir Guðrúnar,
minntist þess oft hve gott hefði
verið að koma til Gunnu systur og
Péturs, ekki einungis vegna þess
hve frábærar móttökurnar voru,
heldur aðstoðar þeirra hjóna við
útréttingar.
Börn Guðrúnar og Péturs urðu
þrjú. Þau eru: Jónína skrifstofu-
maður í Reykjavík; Björn er verk-
fræðingur í Reykjavík og kvæntur
Elísabetu Sigurðardóttur og eiga
þau þijú börn; Valdimar er bæði
lærður stýrimaður og húsasmíða-
meistari og er kvæntur Ásdísi Krist-
jánsdóttur og eiga þau fjögur börn.
Sagt er að besta aðferðin við
barnauppeldi sé að vera góð fyrir-
mynd. Það tókst Guðrúnu og Pétri.
Þau hjón virtu hvort annað og sam-
heldni einkenndi fjölskylduna.
Árið 1951 missti Guðrún mann
sinn og var hún ekkja í tæp 43 ár.
Lengst af bjuggu þær mæðgurnar
saman í húsinu sem Pétur byggði
í Miðtúni 74.
Pétur var reglusamur og uni-
hyggjusamur heimilisfaðir. Ég
minnist frænku minnar með virð-
ingu, þakklæti og söknuði. Ég á
þijár gjafir frá Guðrúnu sem ég
geymi en þær bera vott um rausnar-
skap og smekkvísi.
Góð og mikilhæf kona er gengin
og sendir Miðhúsafólkið börnum
hennar og fjölskyldum innilegar
samúðarkveðjur.
Ólína Kristín Jónsdóttir.
Alfreð Jolson
biskup - Minning
„í hveijum sönnum vini má skynja Guð.“
(Lucy Larcom.)
Engin orð fá lýst manni sem
Alfred biskup Jolson var. Hann var
maður sem bar skilyrðislausan kær-
leik til allra manna. Hann gaf stöð-
ugt frá sér.
í hans augum voru börnin okkar
stærsta von. Söknuður okkar er
mikill. Við höfum misst mikið.
Kross hans var mjög þungur en
öllu tók hann með brosi á vör og
ávallt setti hann aðra framar eigin
hagsmunum.
Oft misskildi fólk ferðir hans
erlendis. Sérhver ferð var farin með
ísIíHHlskosliir
lr'armingar
Verð frá 1400 kr. á niann
(il 4849
Munió minníngarkort
Menningar- og minningar-
sjóós kvenna.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓNEY MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
Hringbraut 104,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 16. apríl kl. 14.00.
Friðbjörg Ólína Kristjánsdóttir, Matthias Guðmundsson,
Þórheiður Kristjánsdóttir,
Jón Ólafsson, Helga Hilmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ELÍN ÞORKELSDÓTTIR,
frá Álftá,
Suðurgötu 12,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 16. apríi kl.
16.00.
Þeim sem vilja minnast hennarer bent á Sjúkrahús Suðurnesja.
Kvenréttindafélag
íslands,
sími 18156. ,i...
Valtýr Guðjónsson,
Emil Valtýsson, Guðrún Valtýsdóttir,
Gylfi Valtýsson, Aslaug Bergsteinsdóttir
ogbarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför bróður
okkar
JAKOBS MARÍUSAR SÖLVASONAR,
Skagfirðingabraut 15,
Sauðárkróki,
Kristfn Sölvadóttir,
Kristján Sölvason,
Sveinn Sölvason.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa,
HANS OTTO JETZEK,
Tjarnargötu 24,
Reykjavik.
Álfheiður Lindal Jetzek,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
SIGRIÐAR G. LÁRUSDÓTTUR,
Hraunbæ 103,
Reykjavfk.
Erna Sigurðardóttir, Sigurður Þórðarson,
Gísli H. Sigurðsson,
Hólmfríður Sigurðardóttir, Björn E. Sigurðsson,
Smári Sigurðsson,
Sigurður Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Við þökkum innilega öllum þeim, er
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
WILLIAMS J. NOLANS,
Melteig 14,
Keflavfk,
sem andaðist 20. mars á heimili sínu.
Rósa Nolan,
Agnes S. Hodes, David Hodes,
William Elfar Nolan, Connie Nolan,
Joseph M. Nolan,
Brian Ólafur Nolan, Mary Nolan,
Margrét R. Nolan, John Biebelhausen
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
EGILS KARLSSONAR,
Jaðri,
Eskifirði.
Arnheiður Halldórsdóttir,
Sólveig Krístmannsdóttir, Árni Helgason,
Ágústa Egilsdóttir,
Atli Börkur Egilsson,
Kolbrún Brynja Egilsdóttir,
Karl Ingvar Egilsson,
Guðbjörg María Egilsdóttir,
og barnabörn.
Haukur Björnsson,
Bea Meyer,
Bernhard Bogason,
Kristfn Kristinsdóttir,
Kristján Kristinsson
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför míns hjartkæra eiginmanns, föður, stjúpföð-
ur, tengdaföður, afa, langafa og bróður,
BRYNJÓLFS MAGNÚSSONAR,
Bústaðavegi 85.
Sérstakt þakklæti til séra Ólafar fyrir að fara á sjúkrahús til hans
og flytja sína fallegu bæn sem honum þótti svo vænt um. Einnig
þökkum við Pálma Jónssyni lækni fyrir hans miklu hjálp okkur til
handa, og séra Sigfinni sjúkrahúspresti fyrir hvað hann kom fljótt
til hans. Svo skal þakka Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins
fyrir hjúkrun heima á meðan hann beið eftir plássi á sjúkrahúsi.
Guð blessi ykkur öll.
Jóna G. Sigurðardóttir,
Sigurður Brynjólfsson, Guðborg Kristín Olgeirsdóttir,
Margrét Karlsdóttir, Herbert Svavarsson,
Brynjólfur Sigurðsson, Elfn Vfdalín Bjarnadóttir,
Olgeir Sigurðsson, Edda Rósa Gunnarsdóttir,
Jóhanna Selma Sigurðardóttir,
Erik Vfdalín Brynjólfsson
ogsystkini.