Morgunblaðið - 24.04.1994, Page 20

Morgunblaðið - 24.04.1994, Page 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1994 Meðalvegur — Via Media í TILEFNIAF KOMU GEORGS CAREY, ERKIBISKUPS AF KANTARABORG, TIL ÍSLANDS eftir Bolla Gústovsson vígslubiskup Hólostiftis í TILEFNI af íslandsheimsókn erkibiskupsins af Kantaraborg, Georgs Carey, kom mér til hugar að rifja upp sögu af sérstæðri hugmynd, sem fram kom við bisk- upaskipti hér á landi árið 1866. Hefði hún að líkindum leitt til náinna tengsla við ensku kirkj- una, ef Sjálandsbiskup hefði þá ekki tekið af skarið og kveðið hana niður. Þeim til fróðleiks, sem ekki hafa kynnt sér sögu kirkjuskipanar á Englandi, er ekki úr vegi að rifja það upp, að siðskipti urðu þar með sérstæðum hætti. Löngum hafa menn helst viljað rekja þau til hneykslismála í konungsfjölskyldunni og hefur síst af öllu gleymst, þegar að þeim tímamótum í kirkjusögunni er vikið, er Hinrik VIII. konungur lét þegna sína hylla sig sem höfuð enskrar þjóðkirkju árið 1534. Á yfirborðinu var tilefnið ekki stórvægilegra en hjúskaparbrot og sérstæð skilnaðarmál konungsins, sem að vonum féllu ekki hans heilagleika, páfanum í Róm, í geð. En þegar dýpra er skyggnst, kemur í daginn, að veigameiri ástæður lágu til siðskipta á Englandi. Þar gætti mjög sterkrar tilhneigingar til þjóðkirkjustofnunar. Á henni hafði að vísu einnig örlað með þjóðum á meginlandi Evrópu, en hvergi verið jafn eindregin og á Englandi. Auk þess var gagnrýni kaþólskrar siðbótar á margvísleg, mistök móðurkirkjunnar hávær þar í landi. Þessi öfl leiddu til stofnunar ensku kirkjunnar (Church of England) og setja mót á hana enn í dag. Hún er þjóðkirkja í krafti þeirrar staðreyndar, að þjónusta hennar er samofín lífi þjóðarinnar. Pjöldi Bolli Gústavsson. biskupa þar hefur átt sæti í efri deild breska þingsins og kirkjan hefur löngum sett ákveðið mót á skoðanir almennings vegna sterkrar þjóðfélagslegrar stöðu. Og sem fyrr getur voru það siðbótaröfl innan kaþólsku kirkjunnar á 16. öld, sem settu mark sitt á ensku bisk- upakirkjuna. Enska siðbótin var hóglát siðbót, sem gætti íhaldssemi gagnvart kirkjulegum arfi. Hún var í engu jafn róttæk í afstöðu sinni til fortíðar og siðbreytingaröflin lútersku og þó sér í Iagi hin kalv- ínsku. Eindregin íhaldssemi um kirkjulega skipan og formfestu hefur löngum sett svipmót á þessa kirkjudeild án þess að hún legði hömlur á eðlilegan framfaravilja. Þá má ekki sniðganga þá staðreynd, að þegar frá leið voru önnur öfl, sem létu að sér kveða í enskri siðskiptasögu. Áhrif Lúters, Kalvíns og Zwinglis bárust til Bretlandseyja. Sérstaklega gætti þeirra á dögum Játvarðar VI. (1547-53), en þá varð England um skeið hæli ofsóttra mótmælenda af meginlandinu og enska siðbótin sveigði þá mjög í sömu átt og stefnur annarra kirkjudeilda mótmælenda. Hins vegar er sá eftirtektarverði munur á siðskiptunum á Englandi og á þýskum, svissneskum og frönskum siðskiptahreyfingum, að England eignaðist engan róttækan siðskipta- frömuð, sem hefur sett svip sinn á kirkjuna þar, líkt og menn á borð við Lúter, Zwingli og Kalvín gerðu í heimalöndum sínum. Stefna ensku siðskiptanna var mótuð af mörgum andlegum straumum, sem kvísluð- ust á ýmsa vegu, og þá jafnframt af pólitískum atburðum. Einn var þó sá maður, sem hafði varanleg áhrif á mótun ensku kirkjunnar á 16. öld, líkt og Guðbrandur Þorláks- son Hólabiskup hér á landi, en það var Tómas Cranmer erkibiskup (1489-1556), sem með aðstoð ann- arra guðfræðinga samdi tíðareglu, er var nefnd Almenna bænabókin, Book of Common Prayer. Með þeirri bók lagði hann grunninn að guðs- þjónustulífi kirkjunnar og varð því mestur áhrifamaður í mótun henn- ar. Á tímum Stúartanna á 17. öld varð svo hákirkjustefnan allsráðandi í ensku biskupakirkjunni. II Talið er að kjörorðið v/a media sé komið frá Jósep nokkrum Hall biskupi (1574-1656), sem gaf út rit árið 1622 og nefndi Via Media, The Way of Peace (Meðalvegurinn, leið friðarins). Hefur enska biskupa- kirkjan löngum lagt áherslu á það, að hún feti via media og í því felist festa hennar og styrkur. Jafnhliða þeirri staðhæfíngu er sú fullyrðing, að enska kirkjan sé a bridge church (kirkja, sem brúar bil) öllum öðrum fremur, vegna þess að hún standi mitt á milli kaþólskra og mótmæl- enda. Að þessu er nú ósjaldan vikið í sameiningarstarfí kirknanna, hinu ökumeniska starfi. Þá hefur sú skoðun löngum verið ríkjandi meðal leiðandi manna þessarar kirkju- deildar, að hún haldi áfram starfi hinnar óskiptu kirkju (undivided Church) frá fyrstu öldum kristin- dómsins. Er því þá haldið fram, að rómversk kaþóslka kirkjan hafi spillt arfi fornkirkjunnar, þegar kom fram á miðaldir, en mótmælendur hafí síðan rýrt mjög þann mikilvæga fortíðararf í betrunarákafa sínum. Á hinn bóginn hafi enska biskupa- kirkjan tekið rétta stefnu í beinu framhaldi af hinni óskiptu kirkju frá fyrstu öldum' kristindómsins. Ekki er unnt að rekja sögu þess- arar kirkjudeildar í lengra máli, greina frá heiftarlegum ofsóknum Afmælisrit helllaóskaskrá - tabula gratulatoria til heiðurs dr. Þórl Kr. Þórðarsyni, prófessor. Á sjötugsafmæli dr. Þóris Kr. Þórðarsonar 9. júní nk. kemur út afmælisrit honum til heiðurs, í Ritröð Guðfræðistofnunar. Afmælisritið mun einkum hafa að geyma greinar eftir Þóri, en jaíhframt þtjár greinar um hann sem þrír af prófessorum háskólans skrifa, þeir dr. Bjöm Bjömsson, Jón Sveinbjömsson og dr. Páll Skúlason. Að stærstum hluta fjalla greinar Þóris að sjálfsögðu um hin margvíslegustu viðfangsefni guðfræðinnar. Má þar nefna greinamar „Hvað er Guð? - spyrja börnin", „Um skilning á Biblí- unni“ og „Lífshamingjan". Einnig er þama að finna greinar sem fjalla um borgar- mál og um málefni Háskóla íslands. Þá verður birt viðtal sem Magdalena Schram tók við Þóri fyrir rúmum tíu árum. Nefnist það „Djöfullinn kann Biblíuna líka utanað". Loks verða birtar nokkrar greinar Þóris um ýmsa samferðamenn hans. Yður er hér með boðið að taka þátt í að heiðra dr. Þóri og gerast áskrifandi að afmælisritinu. Nafn yðar yrði þá birt með nöfnum annarra áskrifenda á heillaóskaskrá fremst í ritinu. Þeir sem vilja þiggja boðið em beðnir um að hafa samband við Skálholtsútgáfuna í símum 21090 og 621581 (milli kl. 9 og 17) eða skrifstofu Guðfræðideildar í síma 694348 (milli kl. 10 og 15) fyrir þriðjudag 3. maí. Áskriftarverð fyrtr ritlð er kr. 2.990,- innbundlð og kr. 2.490,- óinnbundið. GuðfræðiUofnun Há$kólan$ Skálholtsútgáfan Útgáfufélag þjóðkirkjunnar George Carey, erkibiskup af Kant- araborg. Dr. Pétri Péturssyni var hugleik- ið, að íslenska þjóðkirkjan endur- heimti þá biskupsstöðu, sem helg- aðist af successio apostolica. Maríu drottingar (1553-1558) á hendur mótmælendum, en sem kunnugt er var hún kaþólsk og kunn undir nafninu Blóð-María. Þá ekki heldur veigamiklum þætti Elísabet- ar I. drottningar (1558-1603), sem rétti hlut siðbótarinnar og gekk endanlega frá stofnun þeirrar kirkju, sem staðið hefur á Englandi fram á þennan dag og er nefnd anglikönsk eða enska biskupakirkj- an. III Þá er komið að þeim þætti, sem leiddi til þessara skrifa. í ensku bisk- upakirkjunni hefur jafnan verið lögð sérstök áhersla á „erfðaröð biskup- anna“, successio apostolica. Hún hélst á Englandi þar sem einn af kaþólsku biskupunum tók hinn nýja sið. Því var hann ekki settur af, heldur var honum falið að vígja erk- ibiskupinn af Kantaraborg. Þessi sérstaða biskupakirkjunnar varð til- efni þeirrar hugmyndar, sem vikið var að í upphafi og varðar kirkju- sögu íslands. Þegar Helgi Thordars- en biskup yfir Islandi lét af emb- ætti árið 1866, var dr. theol. Pétur Pétursson kjörinn eftirmaður hans. Kom þá í ljós, að dr. Pétri var hug- leikið að íslenska þjóðkirkjan endur- heimti þá biskupsstöðu, sem frá upphafi helgaðist af því, að þeir, sem gegndu henni öndverðlega í kristn- inni, hlutu vígslu af hendi postula Krists. Þannig hafi frelsarinn með blessan og handayfirlagningu feng- ið postulunum biskupsvald með sér- stakri, guðdómlegri náð og þeir síð- an afhent valdið öðrum á sama hátt, mann fram af manni. Að mati ka- þólsku kirkjunnar er því enginn biskup rétt vígður, nema hann hafi hlotið þessa heilögu blessan af bisk- upi, sem áður hefði þegið hana á sama hátt framan úr öldum. Þessi vígslukeðja slitnaði í öllum löndum mótmælenda, nema á Englandi og í Svíþjóð. Þegar dr. Pétur Pétursson hafði hlotið biskupskjör, kom til orða að íslenska kirkjan tengdist ensku biskupakirkjunni þessu and- lega bandi og dr. Pétur vígðist enskri biskupsvígslu. Áhugi mun hafa verið fyrir því meðal enskra kirkjumanna. Létu prestar þar í Dr. theol. Hans Lassen Mortensen, Sjálandsbiskup, tók af skarið og hafnaði óskum dr. Péturs. landi í ljós áhuga fyrir því að stofn- að yrði til samstarfs milli þeirra og norrænu kirkjunnar. Urðu töluverð- ar umræður um þetta mál og bréfa- skriftir. Munu enn vera til skjöl um þessi sérstæðu samskipti. Þá var prentuð ritgerð um sameiningartil- raunirnar, „Intercommunion with the Scandinavian Church“, og birt- ist hún í ágúst 1866 í The Colonial Church Chronicle. Það er næsta athyglisvert að Kristján konungur IX. virðist hafa verið hlynntur þess- ari hugmynd, en Sjálandsbiskup, H. Martensen, harðneitaði að fallast á hana. í ljós hefur komið að þessar óskir íslenskra kirkjuyfirvalda um enska biskupsvígslu átti sér nokk- um aðdraganda. Höfðu samningar um hana verið í ráði á seinustu árum Helga biskups Thordarsen, og þegar hann dvaldist sér til lækninga á Skotlandi vorið 1867, þ.e. ári eftir vígslu dr. Péturs, þá þökkuðu ensk- ir kennimenn honum sérstaklega fyrir jákvæðar undirtektir hans við þetta mál. Birtist endursögn í Þjóð- ólfi af ávarpi þeirra, tekin úr blaðinu The Scotsman, 12. júní 1867, og við það er bætt: „og jafnframt var Pétri biskupi, eptirmanni Helga biskups, þakkað fyrir vinsamlegt hugarþel, er hann með alsherjar kristilegu örlyndi hefði látið í ljósi við hina ensku kirkju, með órækum vottum“. Freistandi er að rekja ástæður fyrir harðri afstöðu Sjálandsbiskups gegn þessari ensku vígslu, en það yrði að sjálfsögðu of langt mál á þessum vettvangi. Dr. theol. Hans Lassen Martensen, sem varð Sjá- landsbiskup 1854, hafði forðum hafnað því að hljóta vígslu af sænsk- um erkibiskupi, en Grandtvig gamli og ýmsir prestar dönsku kirkjunnar, sem fylgdu honum að málum, höfðu lagt á það mikla áherslu að höfuð- biskup dönsku kirkjunnar kæmist þannig inn í hina fornu vígsluröð. Greinir Martensen frá þessu í ævi- sögu sinni, Af mit Levned. Jafn- framt kemur þar skýrt fram að við biskupsútnefningu hafi hann ekki notið stuðnings Danakonungs, sem þá var Friðrik VII. Þeir, sem kynna sér sögu þessa áhrifamikla kirkju- höfðingja og guðfræðings, komast að raun um að skoðanir hans og þjóðhöfðingjans fóra ekki ávallt saman. Að því leyti er ekki að undra, þótt þeir yrðu ekki sammála um það, hvort biskupinn yfir íslandi skyldi sækja vígslu til ensku bisk- upakirkjunnar forðum. En fróðlegt er að velta því fyrir sér, hver áhrif það hefði haft á þróun kirkjumála hér á landi, ef svo hefði farið, og jafnframt hvort það hefði haft áhrif á sjálfstæðisbaráttu íslendinga. Nú þegar erkibiskupinn af Kant- araborg, Georg Carey, heimsækir ísland fyrstur þeirra, er því háa embætti hafa gegnt, þá þykir mér vel við hæfi að rifja upp þessa sögu af hugmynd, sem litlu munaði að rættist. Ef svo hefði farið, er líklegt að forveram hans herradóms hefði orðið tíðförulla hingað til íslands. En af heilum hug fögnum við komu erkibiskupsins, sem lýkur hér heim- sókn til kirknanna á Norðurlöndum og biðjum að ferð hans færi kristn- ar kirkjur nær einingarmarkinu. Guð vísi oss öllum veginn eina og sánna, veg hins krossfesta og upp- risna Drottins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.