Morgunblaðið - 24.04.1994, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 24.04.1994, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1994 B 31 Séð úr Sænska frystihúsinu yfir Ingólfsgarð. Hluti af Sænska frysti- húsinu séð frá Skúla- götu. • •J: j: Úr porti frysti- hússins. Til vinstri er verið að vinna að bygg- ing- arfram- kvæmd- um á geymslu- skúrum. SÍMTALID ER VIÐ SVANHILDIGUÐIÓNSDÓTTUR SAUMAKONU Vonast eftir pöntun 95-37366 — Saumastofan Hofsósi, góðan daginn. Já, góðan dag, þetta er á Morgunblaðinu, þið saumið ís- lenska fánann er það ekki? — Jú, það gerum við Er mikið pantað af fánum núna vegna lýðveldisafmælis- ins? — Já, það er dálítið. Er það bara dálítið? — Já, mér finnst það ekki vera meira en það, kannski er það sparsemi eða að fólk tekur svona seint við sér, en ég er alltaf að vona að heyra frá Rík- iskaupum. Þeir sjá um fána- kaupin fyrir lýðveldisafmælið og ég er að vonast eftir að fá góða pöntun frá þeim. Getur þú annað stórri pöntun héðan af? — Já, það get ég, svona hundrað fánum, en tíminn líður. Hvaðan færðu efni í fánana?! — Það er innflutt, það er enginn sem vinnur þetta efni hér á landi, því er nú ver og miður. Hvaðan kaupir þú efnið? Það kemur frá Bretlandi, þetta var áður unnið hjá Iðnað- ardeild SÍS á Akureyri, en allir vita hvernig það fór. Er þetta eins skilvirk af- greiðsla og var? — Já, þetta hefur gengið vel, en það er bara dálítið lang- ur afgreiðslufrestur, minnst sex vikur. Hvað saumar þú marga fána á mánuði? — Við getum saumað tutt- ugu fána á dag ef við fáum frið til þess, en við gerum ýmis- legt annað, þá erum við búnar að sníða fánann, það fer eins langur tími í það og að sauma. Þegar ég segi tuttugu þá á ég við meðal stóra fána. Hvað eruð þið margar á þess- ari saumastofu? — Við erum flestar þijár. Hvenær fórstu að sauma ís- lenska fánann? — Það var 1. desember árið 1972 sem þessi saumastofa var stofnuð, og þá með það fyrir augum að sauma íslenska fán- ann fyrir þjóðhátíðarárið 1974. Við fengum þetta verkefni frá Akureyri. Þeir saumuðu þetta áður á Fataverksmiðjunni Heklu, en efnið var ofið á Gefj- un. Þetta þótti tiltölulega lítið verkefni svo þeir á Heklu töfð- ust bara á að taka þetta inn í sín stóru verkefni. Við unnum miklu fleiri hér þegar þetta byijaði en urðum fljótt verk- efnalausar. Þá fórum við út í að sauma vinnufatnað. Kaupfé- lag Skagfirðinga rak þessa saumastofu til ársins 1991. Þá tók ég sjálf við rekstrinum og hef rekið þetta síðan. Rekstur- inn ber ekki meira en seni svar- ar tveimur stöðugildum. Hvaðan fáið þið yfírleitt pantanir á saumaskap á fánum? — Ég fékk góða pöntun fyr- ir stuttu frá Bandalagi íslenskra skáta, þeir eru með átak í þess- um efnum til þess að fá skóla vítt og breitt um landið til þess að kaupa fána og eiga á burðar- stöng. Einnig panta einstakl- ingar talsvert og fyrirtæki eins og Flugleiðir. Einnig saumum við töluvert af ríkisfánunum líka. Ég þakka þér kærlega fyrir upplýsingarnar. — Það var lítið. Á HIPPATÍMANUM var hassneysla talsvert algeng í vissum hópum vestrænna samfélaga. Brátt tóku að heyrast raddir um að hass- neysla væri heilsuspillandi. Sunnudaginn 20. apríl 1980 birtist í Morgunblaðinu frétt þar sem sagði að bandarískir sérfræðingar hefðu sent frá sér skýrslu hvar fram kæmi að æ fleiri sönnunargögn staðfestu þá kenningu að langvarandi hassreykingar yllu lungnaskemmdum, krabbameini og hefðu jafn- framt skaðleg áhrif á eigin- leika mannsins til þess að geta af sér afkvæmi. í um- ræddri skýrslu er lýst sér- stökum áhyggjum vegna þess að sá hópur unglinga verði stöðugt stærri, sem reyki hass í þeirri góðu trú að hass- reykingar séu skaðlausar - og þeir reyki sterkari og sterkari afbrigði maríjúana- jurtarinnar. Ifréttinni segir ennfremur: „Dr. William Pollin, forstöðumaður stofnunar þeirrar í Bandaríkjun- um sem berst gegn neyslu eitur- lyfja segir: „Margt ungt fólk lítur á marijúana sem skaðlausa jurt sem hefur þá eiginleika að lífa upp á tilveruna.“ „En staðreyndin er sú,“ segir Dr. Pollin, „að rannsóknir sýna að þetta er margbrotin fíkniefna- jurt og neysla hennar getur haft FRÉTTALJÓS ÚR FORTÍD Hassog heilsutjón skaðleg áhrif á námstækni og hreyfíkerfi líkamans og getur að lokum leitt af sér alvarlega sjúk- dóma.“ Sagt er í skýrslunni að ganga megi út frá sem gefnu: Lungnaskemmdir: Af þeim til- raunum og rannsóknum sem þeg- ar liggja fyrir má ráða, að dagleg notkun marijúana leiði til lungna- skemmda með svipuðum hætti og miklar sígarettureykingar. Krabbamein: Rannsóknir hafa sýnt, að marijúanareykur hafi að geyma meiri krabbameinsvald- andi efni en tóbaksreykur. Barneignir: Rannsóknir hafa sýnt að sæðisfrumum fækki veru- lega hjá ungum mönnum sem reykja marijúana og að sæð- isfrumur sumra þeirra sem séu forfallnir séu afbrigðilegar. Loks kemur fram í bandarísku skýrslunni að fáar tilraunir hafi verið gerðar á konum í þessu efni af ótta við, að sjálfboðaliðar úr þeirra hópi myndu hljóta óbæt- anlega skaða af. Seinni tíma rannsóknir hafa staðfest enn frekar þessar niður- stöður sem fram kom í fyrr- greindri frétt og sýnt fram á fleiri skaðlegar verkanir af hassreyk- ingum. Búnaðarbanki íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Námsmannaíínunni Umsóknarfrestur er til 1. maí. Veittir verða 10 styrkir hver að upphæð 150.000 krónur. Styrkimir skiptast þannig: * 5 útskriftarstyrkir til nema Háskóla íslands * 3 styrkir til námsmanna erlendis í SÍNE * 2 útskriftarstyrkir til nema á háskólastigi/ sérskólanema Umsóknareyðublöð eru afhent í öllum útibúum Búnaðarbankans og á skrifstofum Stúdentaráðs, SÍNE og BÍSN. Einungis aðilar í Námsmannalínunni eiga rétt á að sækja um þessa styrki. Umsóknum skal skilað fyrir 1. maí til BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS Markaðsdeild, Austurstræti 5 155 Reykjavík ®BÚNAÐARBANKl ÍSLANDS NÁMSB LÍNAN A

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.