Morgunblaðið - 21.06.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.06.1994, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/C/D 137. TBL. 82. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS A Irsk hjónabönd Boltinn hjóna- djöfull Dublin. Reuter. ÍRSKUR stjórnmála- maður varaði í gær við því að skilnaðartíðni á írlandi kunni að aukast í kjölfar heims- meistara- keppninnar í knattspyrnu. Segir hann að er fótbolta- áhangendur snúi heim frá Bandaríkjunum, þar sem keppnin fer fram, slyppir og snauðir eftir að hafa eytt langt umfram efni, muni það reynast of mikið álag á fjölmörg hjóna- bönd. Þessa myrku framtíðarsýn á Austin Currie, einn forystu- manna aðalstjórnarandstöðu- flokksins á írlandi, Fine Gael. Sagði hann að allt benti til þess að skilnaðartíðni ykist sí- fellt og að heimsmeistara- keppnin bætti þar ekki úr skák. Skilnaðir eru ólöglegir í lýð- veldinu írlandi, þar sem lang- flestir íbúanna eru kaþólskir. Þúsundir íra eru nú staddir í Bandaríkjunum til að hvetja lið sitt í heimsmeistarakeppninni. Reuter. Múslimar ijúfa vopnahlé Sarajevo. Reuter. TILKYNNT var um gróf brot á vopnahléi sem Sameinuðu þjóðirn- ar (SÞ) komu á í Bosníu fyrir ell- efu dögum. Tilkynningin barst í gær, nokkrum stundum eftir að Bosníu-Serbar hótuðu að hefja gagnárás á her Bosníustjórnar. Sagði háttsettur foringi í liði SÞ að múslimar hefðu rofið vopna- hléið en að Serbar hefðu, enn sem komið væri, sýnt óvanalega still- ingu með því að hefja ekki gagn árás. Radovan Karadzic, leiðtogi Bosníu-Serba, hótaði því á sunnu- dagskvöld að her Serba myndi hefja gagnárás á Bosníuher, hættu múslimar ekki þegar árásum á Serba á Orenfjalli. Tóku háttsettir foringjar í her Bosníu-Serba undir þetta. Karadzic sagði þúsundir Serba hafa flúið undan árásum múslima, sem hygðust ná á sitt vald mikil- vægum vegi í miðhluta Bosníu. Oeirðir í Seoul TIL harðra átaka kom í gær milli óeirðalögreglu og mótmælenda í Seoui, höfuðborg Suður-Kóreu, í gær. Beitti lögreglan táragasi gegn þúsundum námsmanna og hrísgrjónabænda sem voru að mótmæla áformum Suður-Kóreu- stjórnar um að opna fyrir inn- flutning á hrísgrjónum. Boutros-Ghali víll franska íhlutun í Rúanda Bandamenn Frakka vilja ekki taka þátt París, Kígalí, Sameinuðu þjóðunum. Reuter. N-Kóreusljórn segist vilja semja Refsiaðgerðir ræddar áfram Sameinuðu þjóðunum. Reutcr. BOUTROS Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær öryggisráð SÞ til að samþykkja boð Frakka um aðgerðir til að koma á friði í Rúanda. Sagðist hann telja æskilegt að sveitir Frakka. yrðu um þrjá mánuði í landinu. Frakkar hafa farið formlega fram á það við öryggisráðið að fá að senda tvö þúsund manna herlið til Rúanda og er búist við að beiðni þeirra verði afgreidd í dag eða á morgun. Einnig myndi sjö hundruð manna herlið frá Senegal aðstoða Frakka. Óryggisráð- ið hefur áður samþykkt að senda um 5.500 friðargæsluliða til Rúanda. Reutcr. Simpson kveðst saklaus MADELEINE Aibright, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóð- unum, ræddi í gær drög að refsiað- gerðum gegn Norður-Kóreustjórn við rússneskan starfsbróður sinn, Júlíj Vorontsov. Að sögn Jimmy Carters, fyrrverandi Bandaríkjafor- seta, hefur N-Kóreustjórn boðist til að hætta um stundarsakir við áætl- anir sínar í kjarnorkumálum, en um það hefur ekkert formlegt tilboð borist. Ný Bítlalög London. Rcutcr. FYRRUM Bítlarnir Paul McCartney, George Harrison og Ringo Starr hafa tekið upp nokkur lög saman, í fyrsta sinn í 24 ár. Þetta var haft eftir upptökustjóra hjá plötufyrir- tæki þeirra. Bjóst hann við því að nýju lögin yrðu leikin í tíu þátta sjón- varpsröð sem hann vinnur að. Carter, sem átti viðræður við ráðamenn í Norður-Kóreu í síðustu viku, sagði, að þeir hefðu boðist til að fresta um sinn kjarnorkuáætlun- um sínum og leyfa alþjóðlegt eftirlit gegn því, að teknar yrðu upp viðræð- ur um eðlileg stjórnmála- og efna- hagsleg tengsl milli N-Kóreu og Bandaríkjanna. James Rubin, talsmaður sendi- nefndar Bandaríkjanna hjá SÞ, kvaðst í gær ekki geta sagt um hvenær leitað yrði staðfestingar á þessum yfirlýsingum N-Kóreustjórn- ar við Carter en tók fram, að skilyrð- in fyrir viðræðum væru m.a., að eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorku- málastofnunarinnar yrði leyft að vinna sitt verk; að kjarnaofn, sem nýlega var tekinn úr notkun í N- Kóreu, yrði ekki fylltur eldsneyti á ný og gamla eldsneytið ekki unnið áfram. ■ „Jákvæð teikn“/18 VITN ALEIÐSLUR í máli O.J. Simpsons hófust í Los Angeles í gær, en hann var handtekinn á föstudag sakaður um að hafa myrt fyrrum eiginkonu sína og elskhuga hennar. Simpson kvaðst sakiaus af ákærunni en dómari ákvað að hann yrði ekki látinn laus gegn tryggingu sökum þess hve alvarlegt brotið væri. Ef Simpson verður fundinn sekur á hann yfir höfði sér dauðarefsingu. Boutros-Ghali segir í bréfi til öryggisráðsins að þær sveitir skorti hergögn og taka muni þó nokkurn tíma að þjálfa sveitirnar er nýr bún- aður berst. Því sé æskilegt að Frakkar sjái um friðargæslu í millit- íðinni. Skæruliðar í Rúanda hafa hótað hernaðaraðgerðum gegn Frökkum, sendi þeir lið til landsins. Saka þeir Frakka um að hafa veitt stjórn Rúanda, sem skipuð er mönnum af Hútu-ættbálki, aðstoð í átökum við Tútsímenn á árum áður og segja einu ástæðu þess, að Frakkar vilji nú hafa afskipti af deilunni, vera að Hútumenn standi höllum fæti. Neituðu leiðtogar uppreisnarmanna að ræða við sendiherra Frakka er hann fór fram á viðræður um hinar væntanlegu aðgerðir í gær. Talið er víst að frönsku hersveit- irnar munu fara inn í Rúanda frá Zaire og Mið-Afríska lýðveldinu og reyna að vernda óbreytta borgara á svæðum, þar sem hart er barist. Frakkar hafa farið fram á við bandamenn sína í Evrópu að þeir leggi fram liðssveitir vegna aðgerð- anna í Rúanda. Hittast ráðherrar aðildarríkja Vestur-Evrópusam- bandsins á fundi í Brussel í dag til að ræða málið en ekki er talið að hann muni skila neinum árangri. Svipaður fundur sl. föstudag var árangurslaus þar sem ekkert annað ríki er reiðubúið að senda hermenn sína til Rúanda sökum hinnar miklu áhættu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.