Morgunblaðið - 21.06.1994, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 41
FRETTIR
Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík
í DAGBÓK lögreglunnar eru færri
færslur en um venjulega helgi, eða
340 talsins. Af þeim eru 75 beinlín-
is vegna ölvunar, 26 vegna hávaða
og ónæðis utan dyra og innan, 19
vegna umferðaróhappa og -slysa,
þijár vegna heimilisófriðar, sex
vegna líkamsmeiðinga, sex vegna
ölvunaraksturs, fjórar vegna
skemmdarverka og fimm vegna
rúðubrota. Miklu færri umferðar-
lagabrot eru skráð nú, eða 18 tals-
ins, vegna anna við önnur verk-
efni, s.s. vegna fylgda þjóðhöfð-
ingja, og almennrar löggæslu
vegna lýðveldisafmælisins.
Um 3000 manns söfnuðust sam-
an í miðborginni og nágrenni að-
faranótt föstudags 17. júní. Um
tíma varð lögreglan að koma í veg
fyrir að fánastangir yrðu rifnar upp
og blómabeð eyðilögð. Reyndist
nauðsynlegt að handtaka 15
manns og í framhaldi af því að
færa sjö þeirra í fangageymslu.
Lítið bar á ungli.ngum undir 16 ára
aldri. Um kvöldið og aðfaranótt
laugardags er talið að um 30.000
manns hafi tekið þátt í hátíðarhöld-
unum í miðborginni. Hegðun lang-
flestra var til fyrirmyndar þó sjá
mætti talsvert ölvaða einstaklinga
innan um. Þurfti að handtaka 15
þeirra og færa á lögreglustöðina
vegna ofurölvunar, meiðinga og
slagsmála. Unglingar undir 16 ára
aldri voru áberandi á svæðinu og
var ölvun helst áberandi á meðal
þeirra. Reyndist nauðsynlegt að
fjarlægja 14 þeirra og koma þeim
í vörslu foreldra sinna. Aðfaranótt
Færri
færslur en
venjulega
17. - 20. júni
sunnudags voru um 2.500 manns
í miðborginni. Þá þurfti að hand-
taka fímm og vista tvo þeirra í
fangageymslunum.
Að morgni sunnudags var til-
kynnt um að rúmlega tvítugur
maður hefði klifrað upp á Stjómar-
ráðið við Lækjargötu og síðan fall-
ið niður af þakinu. Hann virtist
lítið meiddur, en var til öryggis
fluttur með sjúkrabifreið á- slysa-
deild.
Skömmu síðar sást til manns
reikuls í spori á Lækjartorgi þar
sem hann bar plaststól yfir höfði
sér. Aðspurður sagðist hann hafa
komið með stólinn heiman frá sér
og væri þarna til þess að fríka út.
I ljós kom hins vegar að stólinn
hafði hann tekið ófijálsri hendi á
bak við veitingahús við Lækjar-
götu. Við leit á manninum fannst
lítill hassmoli.
Um svipað leyti sást til ungs
ölvaðs manns taka sig til og sparka
af afli í rúðu einnar verslunarinn-
ar. Sprakk fyrir, en rúðan brotnaði
ekki, enda um öryggisgler að ræða.
Þegar líða tók á sunnudags-
morguninn sást til fullorðins
manns á gangi milli húsa við
Freyjugötu með hníf í hendi. Vegna
þess að hann hlýddi ekki fyrirmæl-
um lögreglumanna um að leggja
frá sér vopnið reyndist nauðsynlegt
að afvopna hann með aðstoð tárag-
ass. I ljós kom að brotist hafði
verið inn í bifreið í nágrenninu og
hnífurinn tekinn úr verkfæratösku.
Á laugardagskvöld kom snar-
ræði tveggja manna í veg fyrir
eldsvoða í húsi við Hringbraut.
Þegar þeir veittu því athygli að
reyk lagði út um glugga á'efstu
hæð hússins ákváðu þeir að kanna
málið. Komust þeir inn í íbúðina
og tókst að slökkva eld sem logaði
þar í potti á eldavél. Fiytja þurfti
annan þeirra á slysadeild vegna
gruns um reykeitrun.
Snemma á laugardagsmorgun
sást til ungs ölvaðs manns sem
spígsporaði um Aðalstræti klæddur
strigaskóm einum fata. Hann var
handtekinn. 1 ljós kom að ástæða
klæaleysisins var veðmál við kunn-
ingjana.
Á laugardagsnóttina þurfti að
taka niður íslenska fánann fyrir
fólk sem annaðhvort hafði gleymt
honum við hún eða var ekki í
ástandi til að geta tekið hann niður.
Fjölmenni tók þátt í hátíðardag-
skrá í miðborginni og í Laugardal.
Þrátt fyrir nokkrar tafir á umferð
á tímabili þann 17. júní vegna
hátíðarhaldanna á Þingvöllum má
segja að hátíðarhöldin hafi tekist
með ágætum á starfssvæði lögregl-
unnar í Reykjavík.
Nýr ráðuneytisstjórí
FORSETI íslands hefur
skipað Jón Birgi Jóns-
son ráðuneytisstjóra
samgönguráðuneytisins
frá 1. september 1994
að telja. Jafnframt hef-
ur Ólafi S. Valdimars-
syni verið veitt lausn frá
því embætti að eigin
ósk. ^
Um embætti ráðu-
neytisstjóra í sam-
gönguráðuneytinu,
sóttu eftirtaldir:
Halldór S. Kristjáns-
son skrifstofustjóri í
samgönguráðuneytinu,
Jón Birgir Jónsson sett-
Jón Birgir Jónsson
ur ráðuneytisstjóri í samgönguráðu-
neytinu og Ragnhildur Hjaltadóttir
skrifstofustjóri í sam-
gönguráðuneytinu.
Jón Birgir Jónsson
er fæddur í Reykjavík
23. apríl 1936. Hann
stundaði nám í verk-
fræði við Háskóla Is-
lands, lauk prófi frá
Danmarks Tekniske
Hojskole 1962.
Að námi loknu hóf
Jón Birgir störf hjá
Vegagerð ríkisins. Árið
1990 var hann ráðinn
forstjóri tæknisviðs og
aðstoðarvegamálstjóri
frá 1. febrúar 1992.
Jón Birgir Jónsson
er kvæntur Steinunni Norberg og
eiga þau þijá syni.
skólar/námskeið
tölvur
33% Tölvuskóli Reykiavíkur
t.Vu-T.mi ■ Borganúni 28 sim| 6t6699
■ Tölvunám í sumar
Tölvuskóli Reykjavikur heldur 24 klst.
námskeiö fyrir 10-16 ára og 6-10 ára.
I þvi fyrmefnda er megináhersla lögð á
að nýta tölvuna sér til gagns. Farið er
í fingrasetningu og vélritun, Windows,
stýrikerfi, ritvinnslu, teikningu, almenna
tölvufræði, töflureikni og leiki. í því síð-
amefnda eru kennd gmnnatriði í
Windows og ýmis þroskandi forrit skoð-
uð. Leikir fást gefins á báðum námskeið-
unum.
Innritun er hafm í síma 616699.
ýmislegt
■ Námskeið í tréskurði
Innritun fyrir haustönn (frá 1. septem-
ber nk.) stendur yfir.
Hannes Flosason,
sími 40123, Kópavogi.
nudd
■ Heilsunudd
Ef þú ert þreytt(ur), með verki eða lang-
ar bara í hvild frá amstri dagsins, þá er
upplagt að fara í nudd.
Býð upp á fjórar tegundir nudds.
Tímapantanir í síma 623881.
WHÆKWÞAUGL YSINGAR
HÚSEIGENDUFt -
HÚSFÉLÖG
ÞARF AÐ GERA VIÐ í SUMAR?
VANTAR FAGLEGAN VERKTAKA?
í Viðgerðadeild Samtaka iðnaðarins
eru aðeins viðurkennd og sérhæfð
fyrirtæki með mikla reynslu.
Leitið upplýsinga í síma 16010 og
fáið sendan lista yfir trausta
viðgerðaverktaka..
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Bjólfsgötu 7, 710
Seyðisfirði, föstudaginn 24. júní 1994. kl. 14.00, á eftirfarandi eign-
um:
Austurvegur 18-20, n.h., Seyðisfirði, þingl. eig. Jón Bergmann Ár-
sælsson, geröarbeiðendur Iðnlánasjóður og sýslumaðurinn á Seyöis-
firði.
Hamrahlíð 15, n.h., + vélar og tæki, Vopnafirði., þingl. eig. Sauma-
stofan Hrund hf., gerðarbeiöandi Iðnlánasjóður.
Lóð úr landi Helgafells, Fellahreppi, þingl. eig. Bjarni Pálsson, gerðar-
beiðandi Rammi hf.
Tjarnarbraut 17, e.h., Egilsstöðum, þingl. eig. Guðrún Tryggvadótt-
ir, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og Trygging hf.
Sýslumaöurinn á Seyðisfirði,
20. júní 1994.
Einbýlishús
Til leigu glæsilegt 300 fm einbýlishús við
sjávarsíðuna í Grafarvogi.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl., merkt:
„Einbýli - 12745“, fyrir 28. júní.
VEIÐI
Laxá í Kjós
Laus veiðileyfi til sölu.
Upplýsingar í síma 887252 á skrifstofutíma.
SmO auglýsingar
Fjallið
501233 mannræktar-
FJALLIÐ s,öð-
Lindargötu 14,
jarðhæð,
símar:
12970/73552.
Einkalestrar
Ingibjörg Þengilsdóttir, miðill, er
með einkalestra. Farið er inn í
tilfinningar og gefin góð ráð um
hvernig hægt er að leysa úr þeim.
Upplýsingar í símum 12970 og
73552.
Ingiþjörg Þengilsdóttir.
FERÐAFELAG
<§) ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Þriðjudaginn 21. júní:
1) KI. 20.00 Sólstöðuganga: Esja
- Kerhólakambur - komið niður
Þverfellshorn. Þátttakendur á
eigin bílum velkomnir í hópinn.
Verð kr. 900. Brottför frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmeg-
in, og Mörkinni 6. Allir þátttak-
endur fá Esjumerkið „Esjugang-
an 1994“.
2) Sólstöðuferð í Viðey. Siglt
frá Sundahöfn. Gengið um
austureyjuna. Verð kr. 800.
Miðvikudaginn 22. júnf: Heiö-
mörk, skógræktarferð (frítt).
Þetta verður siðasta vinnuferðin
í reit Ferðafélagsins í Heiðmörk
á sumrinu. Komið með - ókeyp-
is ferð - létt og skemmtileg
vinna!
Miðvikudaginn 22. júníkl. 08.00
Þórsmörk. Kynnið ykkur hag-
stæð kjör á dvöl í Þórsmörk.
Dagsferð á kr. 2.700, kr. 1.350
f. börn 7-15 ára.
Fimmtudagur 23. júní kl. 20.00
Jónsmessunæturganga -
Flekkuvík-Keilisnes-Kálfatjörn.
Verð kr. 1.000.
Laugardaginn 25. júní kl. 10.30:
Lýðveldisganga 7. áfangi end-
urtekinn frá Botnadal að Skála-
brekku (12 km). Verð kr. 900.
Helgarferðir 24.-26. júní:
1) Jónsmessuferð til Þórs-
merkur. Gist f Skagfjörðs-
skála/Langadal. Gönguferðir
um Mörkina.
2) Eiríksjökull. Gist í tjöldum i
Torfabæli.
25.-26. júní kl. 10.00 Þingvellir.
Gist í tjöldum.
1.-3. júlí: Fjölskylduhelgi í
Þórsmörk. Margt til skemmt-
unar. Ódýr ferð í tiiefni árs fjöl-
skyldunnar og 40 ára afmælis
Skagfjörðsskála. Uppl. og far-
miðar á skrifstofu F.f.
Sumarleyfisferðir:
23.-26. júni (4 dagar) Jóns-
messuferð í Skagafjörð. Glst
að bænum Lónkoti í Sléttuhlíð.
Siglt frá Hofsósi í Málmey. Farið
verður um innanverðan Skaga-
fjörð og gengið á Mælifellshnúk.
Jónsmessunæturganga á Tinda-
stól.
Húsferðir í Hornvík og Hlöðuvík
(10 dagar):
28. júní - 7. júlí. Gönguferðir
m.a. á Hornbjarg, f Látravik og
á Hælavfkurbjarg og víðar.
Ingjaldssandur á Vestfjörðum -
nýr áningarstaður: Kynnist for-
vitnilegu svæði - gönguferðirviö
allra hæfi í umhverfi sem heillar.
Fararstjórar: Jóhannes Krist-
jánsson og Guðrún Kristjáns-
dóttir. Fariö með flugi til ísafjarð-
ar að morgni eða á eigin vegum
að bænum Brekku á Ingjalds-
sandi (svefnpokagisting) og þar
veröur dvalið í 6 daga (má stytta
feröina). Næstu feröir:
19.-24. júlf.
23.-28. ágúst.
Leitið upplýsinga á skrifstofu
F.í. Komið með og kannið nýjar
slóðir - ferð um Vestfirði er óvið-
jafnanleg!
Upplýsingar og farmiöasala á
skrifstofu F.í.
Ferðafélag íslands.
UTIVIST
Hallvcigorstig 1 • simi 614330
Jónsmessunæturganga
fimmtud. 23. júní kl. 20.00
Val er um göngu á Hengil eða í
Marardal. Brottför frá BSi bens-
ínsölu. Verð kr. 1.100/1.200.
Helgarferðir 24.-26. júní
1. Snæfellsjökull á Jónsmessu.
Ganga á jökulinn. Val er um tjald-
gistingu eöa í svefnpokaplássi
að Arnarstapa. Fararstjóri: Bót-
hildur Sveinsdóttir.
2. Jónsmessunæturganga yfir
Fimmvörðuháls. Gengið yfir
Fimmvöröuháls aðfaranótt laug-
ardags, um 8-9 klst. löng ganga.
Fararstjóri: Árni Jóhannsson.
3. Básar við Þórsmörk. Fjöl-
breyttar gönguferðir um Goöa-
land og Þórsmörkina. Gist í tjöld-
um eða skála. Fararstjóri: Ingi-
björg S. Ásgeirsdóttir.
4. Fimmvörðuháls. Fullbókað er
í ferðina. Fararstjóri: Höröur
Haraldsson.
Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
Útivist.