Morgunblaðið - 21.06.1994, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 47
I DAG
Arnað heilla
W A ára afmæli. Á
| y morgun 22. júní
verður sjötugur Marteinn
Friðriksson, fyrrverandi
forstjóri Fiskiðju Sauðár-
króks, Kársnesbraut 35,
Kópavogi. Eiginkona hans
er Ragnheiður Bjarman.
Þau taka á móti gestum í
Lionsheimilinu, Sigtúni 9,
2. hæð milli kl. 17-19 á
afmælisdaginn.
BRIPS
IJmsjón Guóm. Páll
Arnarson
Á OPNU borði er einfalt mál
að taka 10 slagi með því að
svína fram og til baka í hálit-
unum. En vandinn er að rata
þá krókóttu leið við sjálft
spilaborðið. Þar reynir á
„lestrarkunnáttuna“.
Norður gefur, allir á
hættu. Norður
♦ 964
V Á103
♦ D84
♦ 8753
Vestur
♦ 103
V D52
♦ ÁG10
♦ DG1064
Austur
♦ G752
V 4
♦ K7653
♦ Á92
Suður
♦ ÁKD8
V KG9876
♦ 92
♦ K
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 hjarta
Pass 2 hjörtu Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil: laufdrottning
Spilið kom upp í rúb-
ertubrids i Toronto í Kanada
í kunningjahópi hins afkast-
amikla bridspenna, Eric Kok-
ish. Mjög blátt áfram leið er
að toppa hjartað. Ef það fellur
2-2 þarf ekki að hafa áhyggj-
ur af þrettánda spaðanum.
En Kokish kafar dýpra.
Til að byija með drepur
austur á laufás og spilar
níunni til baka og sagnhafi
trompar. Austur hefur enga
ástæðu til að viðhafa blekk-
ingar svo snemma spils og
laufnían bendir til að hann
hafi byijað með ásinn þriðja,
Suður frestar nú hjartaferð-
inni og spilar tígli að drottn-
ingunni. Vestur lætur tíuna,
sem fær að eiga slaginn.
Hann spilar laufgosa, sem
sagnhafi trompar og spilar
enn tígli. Gosinn frá vestri,
dúkkað, en austur yfirdrepur
og spilar aftur tígli. Suður
trompar og ásinn fellur.
Nú er orðið mjög skemmti-
legt að vestur hafi byijað með
DGIO fimmta í laufi og ÁGIO
þriðja í tígli. Sagnhafi leggui'
næst -niður ÁK í spaða og
hendir níunni úr borði þegar
tían kemur úr vestrinu. Spað-
atían gæti verið frá GlOx, en
reglan um „fijálst val“ segir
hitt líklegra að vestur hafi
byijað með tíuna aðra (með
GlOx gæti hann allt eins látið
gosann). Auk þess ber að taka
tillit til þeirrar staðreyndar að
austur spilaði ekki spaða þeg-
ar hann var inni á tígulkóng.
Með þijá hunda í litnum hefði
hann ekki verið smeykur við
að spila í gegnum sagnhafa.
Að öllu þessu samanlögðu tel-
ur Kokish að sagnhafi eigi að
finna réttu spilamennskuna:
Leggja niður hjartakóng og
svína tíunni, taka ásinn og
svína síðan spaðaáttunni í
bakaleiðinni.
ára afmæli. í dag
| U 21. júní er sjötug
Kristín Svavarsdóttir,
Skarðsbraut 9, Akranesi.
Hún er fædd og uppalin á
Akranesi, gift Jóhanni
Péturssyni, húsasmið.
Þau eiga 5 börn og 14
barnabörn og nokkur
bamabamabörn. Kaffi
verður til staðar í veitinga-
húsinu Barbró, Kirkjubraut
11, Akranesi milli kl. 15-18.
f7A ára afmæli. I dag
| I/ 21. júní er sjötugur
Jósafat Hinriksson, iðn-
rekandi í Reykjavík.
Hann og kona hans Ólöf
Þóranna Hannesdóttir
munu taka á móti gestum
í Sjóminjasafni J. Hinriks-
sonar, Súðarvogi 4,
Reykjavík milli kl. 17-21 í
dag, afmælisdaginn.
£* A ára afmæli. í dag
£)!/ 21. júní er fimm-
tugur Ingólfur Krist-
mundsson, vélfræðingur,
Grófarseli 7, Reykjavík.
Eiginkona hans er Elín
J.F. Magnúsdóttir, sjúkra.
liði. Þau verða að heiman
á afmælisdaginn.
££ A ára afmæli. A
Q H morgun 22. júní
verður fimmtugur Karl
Stefánsson, fram-
kvæmdasfjóri í Osta- og
smjörsölunni sf., Víði-
grund 5, Kópavogi. Kona
hans er Valborg ísleifs-
dóttir, starfsstúlka. Þau
taka á móti gestum á heim-
ili sínu eftir kl. 17 á morg-
un, afmælisdaginn.
Með morgunkaffinu
Ást er.
EKKERT MAL, vinur.
Þau hafa ekki einu sinni
varðhund!
\uo
Aðganga saman lífsms veg.
A Los Angctes Tirres Syndieaie
TAKTU saman allar
syndirnar og ég skal
skrifa ávísun á stundinni
HÖGNIHREKKVISI
Í>B1TA C-<?/MaÖG RQANPl LITUR.','
STJÖRNUSPA
cftir Frances Drakc
KRABBI
Afmælisbarn dagsins: Æv-
intýraþráin er þér í blóð
borin og þú vilt gjaman fara
ótroðnar slóðir.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl)
Nú gefst tími til að ræða sam-
eiginleg hagsmunamál við
fjölskylduna. Láttu skynsem-
ina stjóma ferðinni 1 fjármál-
Naut
(20. apríl - 20. maí) (ffö
Þig skortir ekki dugnað, en
iú hefur tilhneigingu til að
flýta þér um of. Taktu þér
nægan tíma áður en þú tekur
ákvörðun.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér hættir til að slá slöku við
árdegis, en þegar á daginn
líður endurheimtir þú vinnu-
gleðina og kemur miklu i
verk.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HÍ0
Það er ánægjulegt að um-
gangast þá sem hafa sömu
áhugamál og þú og skiptast
á skoðunum. Þú átt annríkt
í kvöld.
Ljón
(23. júli — 22. ágúst)
Þér liggur á að koma áhuga-
máli þinu á framfæri en þarft
að varast fljótfæmi. Taktu
þér nægan tíma til undirbún-
ings.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Sumir eru að undirbúa ferða-
lag. Þér berast fréttir frá fjar-
stöddum vini. Reyndu að va-
rast ágreining útaf smámáli.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Einhver nákominn hefur til
hneigingu til að eyða of miklu
i dag. Þú færð upplýsingar
sem eiga eftir að reynast þér
vel.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Varastu óþarfa ágengni.
Hlustaðu á það sem aðrir
hafa til málanna að leggja
og reyndu að rata milliveginn.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Þú getur þurft að reyna fyrir
þér áður en þú finnur réttu
leiðina til að leysa smá vanda-
mál, en það tekst með þolin
mæði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Með samvinnu og sameigin-
legu átaki ástvina tekst að
lyfta grettistaki í dag. Þú
ferð út að skemmta þér í
kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú vinnur að umbótum á
heimilinu megnið af deginum.
En þegar kvölda tekur gefst
tími til að slappa af með ást-
vini.
Fiskar
Framleiðum óprentaða tau-burð-
arpoka. Lágmarkspöntun 30 stk.
Bolir, húfur og svuntur.
Húfugerð og tauprent,
sími 91-677911.
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
- kjarni málsins!
Utivistartatnaður, sundfatnaöur,
íbróttaskór og fleira.
Sportbúð Kópavogs,
Hamraborg 20A - sími 641000
(19. febrúar - 20. mars)
Þér tekst vel að koma hug-
myndum þínum á framfæri í
dag. Gættu þess að vera
stundvís ef þú átt stefnumót
ihkvöld.
Stj'órnusþána á a<) lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
Mako Satin rúmföt
með blúndu
19% afíUttu*
. 'VE
sœngurfataverslun
Njálsgötu 86, sími 20978.
Lokað á laugardögum í júlí.
Póstsendingaþjónusta
Náttúruleg andlitslyfting
Með vöðvaþjálfunar-, acupunkta- og leisertæki þjálfum við
upp slappa vöðva og opnum stíflaðar orkurásir í andlitinu.
Sogæðanudd
Með öflugu sogæðanuddtæki losar þú líkama þinn
við uppsöfnuð eiturefni, bjúg og stuðlar að því að
ofnæmiskerfi líkamans geti starfað sem skyldi.
Bætt heilsa — betra útlit.
Norðurljós. heilsustúdíó.
Borgarkringlunni, 4. hæð, sími 36677.
Tölvuáhugamenn
athuaið,
Eigum fyrirliggjandi vinsælu ExSys tengin:
RAOTENG! - EX-4031
• 16 bita raðtengi (RS-232).
• 2 útgangar, 9 og 25 pinna.
• COM 1-4. IRQ 3-15.
• XT / AT samhæft.
FJÖLNOTA IDE-TENGI - EX-3060
• 2FDD og 2HDD.
• Tvö raðtengi. COM 1-4. IRQ 3-5.
• Eitt samhliða tengi.
• Eitt leikjatengi,
• AT samhæft.
SAMHLIÐA TENGI - EX-4000
• Eitt samhliða tengi
• LPT 1-3. IRQ 5, 7.
• XT / AT samhæft.
HRAÐVIRKT RAÐTENGI - EX-40311
• Hraðvirkt 16 bita raðtengi (2x 16C450).
• 2 útgangar, 9 og 25 pinna.
• COM1-4. IRQ 3-12,15.
• Samskiptahraði 50 - 115.200 BAUD.
Tæknival
Skeifunni 17 - Simi (91) 681665 - Fax (91) 680664
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði
HEILSUFÆÐl ER SELT ALMENNINGI
Vegna fjölmargra fyrirspuma vill Heilsustofnun NLFI
í Hveragerði upplýsa að almenningur getur
keypt hádegis- eða kvöldverð í nýrri og glæsi-
legri borðstofu stofnunarinnar. Matur er á
hlaðborði og er hann allur framleiddur úr
grænmeti, ávöxtum, kornmeti, mjólk og
mjólkurafurðum. Fiskur er á boðstólum
einu sinni í viku. Yfirmaður í eldhúsi er
franski matreiðslumeistarinn Francois Louis
Fons. Þeir, sem hyggjast kaupa mat, þurfa að hafa
samband við starfsfólk ( borðstofu.
Heilsustofnun NLFÍ
Grænumörk 10, Hveragerði.