Morgunblaðið - 21.06.1994, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
DOMSMAL
Héraðsdómur dæmir 15 til fangelsisvistar en sýknar þrjá af ákærum í stóra fíkniefnamálinu
Sakfellt fyrir innflutn-
ing á tugum kílóa af
hassi auk innflutnings
á amfetamíni. Dómamir
frá 60 dögum upp í
4 V2 ár.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gærmorgun 15 karlmenn
í 60 daga til 4‘/2 árs fangelsi en
sýknaði tvær konur og einnig mann
sem framseldur hafði verið til lands-
ins frá Svíþjóð í umfangsmesta
fíkniefnamáli sem rekið hefur verið
fyrir dómstólum hérlendis. Ólafur
Gunnarsson, 39 ára, meintur höfuð-
paur málsins, var dæmdur í 4'/2 árs
fangelsi og sakfelldur fyrir innflutn-
ing á 19,6 kg af hassi og 1,89 kg
af amfetamíni og tilraun til inn-
flutnings á 910 grömmum af amfet-
amíni að auki. Þorgeir Jón Sigurðs-
son, 30 ára, var dæmdur til 3 '/2 árs
fangelsis og sakfelldur fyrir aðild
að innflutningi á 18,8 kg af hassi
og 1,9 kg af amfetamíni. 54 ára
gamall maður, sem sakfelldur var
fyrir aðild að innflutningi á 7,3 kg
af hassi og 890 g af amfetamíni,
var dæmdur til 22 mánaða fangels-
isvistar.
Þrír menn hlutu 18 mánaða fang-
elsisdóma, einn 15 mánaða dóm,
einn 12 mánaða fangelsi; 3 voru
dæmdir í fangelsi í 10 mánuði; einn
í 6 mánuði, 2 í þijá mánuði og einn
hlaut 60 daga fangelsisdóm.
í dómi Héraðsdóms er Ólafur
Gunnarsson sýknaður af 4 af 13
ákæruliðum sem varða og af því
sem honum var gefið að sök er
hann sýknaður af innflutningi á 6,2
kg af hassi og 1,2 kg af amfetamíni.
Sýknaður þar sem aðeins einn
bar á hann sök
í þeim tilvikum þar sem Ólafur
er sýknaður var um að ræða smygl-
ferðir þar sem hann hafði bæði hjá
lögreglu og fyrir dómi neitað sakar-
giftum og aðeins var til að dreifa
framburði ákærða, Þorgeirs Jóns,
eins ujn meintan þátt Ólafs í brotun-
um. í tilvikunum fjórum segir í
dóminum að gegn eindreginni neit-
un Ólafs þyki ekki sannað að hann
hafí framið umrædd brot.
í þeim tilvikum þar sem Ólafur
hafði gengist við ákæru-
atriðum í yfirheyrslum
hjá lögreglu en síðan
dregið játningar til baka
fyrir dómi, segir ýmist í
dóminum að framburður ____________
hans sé ótrúverðugur og -
að Ólafur hafi engin haldbær rök
fært fyrir hinum breytta framburði
sínum. í þessum tilvikum virðist
sakfelling hans einnig jafnan byggð
á framburði tveggja eða fleiri af
þeim mönnum sem einnig voru
ákærðir í málinu eða á gögnum sem
fengust við hlerun á heimili eins
sakborninganna af samtali Ólafs
við húsráðandann 0g þriðja sak-
bominginn.
Um ákvörðun refsingar yfir Ólafí
segir dómurinn að sannað teljist að
hann hafi átt aðild að innflutningi
á um 19,6 kg af hassi en þar af
hafi verið Iagt hald á tæp 6 kg.
Sannað sé að ákærði hafi tekið við
rúmlega 10 kg af hassinu og sönn-
uð sé sala hans á 1.300 grömmum.
Einig sé sannað að hann hafi átt
aðild að innflutningi á um 1,8 kg
af amfetamíni og tilraun til inn-
flutnings á 910,6 g af amfetamíni,
sem við efnagreiningu reyndist kof-
fein og glúkósi en ekki amfetamín.
Sönnuð sé móttaka hans á um 1,1
kg af amfetamíninu og sala á 25
grömmum.
Atvinnulaus en skorti ekki fé
Þá segir í dóminum að þó ekki
sé hægt að slá neinu föstu um frek-
ari sölu Ólafs á fíkniefnum og eng-
ir aðrir hafi borið um kaup fíkni-
efna af honum en sumir með-
ákærðu, telji dómurinn sannað að
hann hafí staðið að flutningi þess-
Höfuðpaurínn
dæmdur til 4 Vi árs
fanffelsisvistar
Morgunblaðið/Kristinn
FRÁ meðferð stóra fíkniefnamálsins fyrir Héraðsdómi. Frá vinstri: Jóhannes Rúnar Jóhannsson
sækjandi, Guðjón St. Marteinsson dómsformaður, Hjörtur O. Aðalsteinsson héraðsdómari, Örn Claus-
en hrl. og Sigurður Tómas Magnússon héraðsdómari.
Yfirheyrslur
að næturlagi
aðfinnslu-
verðar
ara efna til landsins í ágóðaskyni
og ásetningur hans hafi staðið til
þess að koma efnunum í verð. „Á
því tímabili sem ákæran lýtur áð
var ákærði að langmestu leyti at-
vinnulaus. Á sama tíma virðist
ákærða ekki hafa skort fjármagn.
Hann lagði fjármagn til fíkniefna-
kaupa og til kaupa á flugfarseðlum
og til farareyris einstakra með-
ákærðu, lánaði mönnum peninga,
fór sjálfur í margar utanlandsferð-
ir, lagði fram fé til heimilishalds
o.fl. ... Dómurinn telur framburð
ákærða þess efnis að hann hafi
unnið háar fjárhæðir í peningaspil-
um ótrúverðugan," segir dómurinn
og telur langlíklegast að Ólafur
hafi selt verulegan hlut þeirra fíkni-
efna sem hann tók við og rúmur
fjárhagur hans á þessum tíma verði
að mestu skýrður með
sölu á fíkniefnum. Þá seg-
ir að dómurinn telji sann-
að að í sumum tilvikum
hafí Ólafur verið frum-
kvöðull og aðalskipu-
” leggjandi brotanna en í
öðrum ekki.
Ábyrgð aðstoðarmanna ekki
minni
í sumum ákæruliðum sé vart
gerandi munur á hlut einstakra
ákærðu sem hlut eigi að máli, t.d.
sé refsiábyrð þeirra, sem keypt
hafi efnin ytra, flutt þau til landsins
og virðist hafa verið þátttakendur
í mestöllum undirbúningi einstakra
ferða, ekki minni en refsiábyrgð
Ólafs þótt hann hafí lagt til fjár-
magnið. „í raun vakti hið sama
fyrir öllum ákærðu, þ.e. að að afla
sér fjárhagslegs ávinnings með
brotum sínum og/eða í sumum til-
vikum að afla fíkniefna til eigin
neyslu," segir í dóminum. Síðan
segir að brot Ólafs hafi verið stór-
felld og beri að virða heildstætt sem
óslitna brotastarfsemi.
Refsing var talin hæfíleg fang-
elsi í fjögur ár og sex mánuði, að
teknu tilliti til þess að Ólafur hafi
rofíð skilorð sex mánaða fangelsis-
dóms.
Um þátt Þorgeirs Jóns Sigurðs-
sonar segir að hann hafí keypt ytra
um 18,8 kg af hassi og staðið að
flutningi þess til landsins og af-
hendingu. Þá hafí hann keypt um
1,9 kg af amfetamíni og flutt til
landsins og afhent hér á landi.
Hann hafí framið brot sín í ágóða-
skyni og þáttur hans hafí að mestu
verið fólginn í undirbúningi ein-
stakra ferða, kaupum fíkniefna
ytra, útvegun fólks til að bera fíkni-
efnin til landsins, afhendingu efna
ytra og aðstoð við að koma efnum
fyrir á burðarmönnum, auk mót-
töku og afhendingu efna hér á landi.
Dómurinn telji refsiábyrgð hans
í_ einstökum ferðum ekki minni en
Ólafs Gunnarssonar. Brotin séu
stórfelld og beri að virða heildstætt
sem óslitna samfellda brotastarf-
semi. Þorgeir hafi játað brot sín
greiðlega og hafi átt með fram-
burði sínum stóran hluta að upp-
ljóstrun málsins og sé það virt til
refsilækkunar. Refsing mannsins,
sem áður hafði gengist undir tíu
dómsáttir og hlotið 13 refsidóma,
var talin hæfileg fangelsi í þijú ár
og sex mánuði.
Burðarmenn bera mikla
ábyrgð
Um refsingu yfir 54 ára manni,
sem var dæmdur til 22 mánaða
fangelsisvistar, segir að hann hafí
flutt 7,3 kg af hassi og tæp 890
grömm af amfetamíni til landsins.
Dómurinn telur að þótt brot hans
séu einkum fólgin í flutningi efn-
anna til landsins gegn þóknun sé
refsinæmi þess sem flytur fíkniefni
inn til landsins mikið. Ákærðu geti
ekki dregið úr eða dreift refsiábyrgð
þótt þeir skipti með sér verkum við
framningu brots. Það að menn sam-
mælist um brot skuli að hafnaði
verka til þyngingar refsingunni.
Til þessara orða er síðan jafn-
framt vísað við ákvörðun refsingar
íjögurra annarra burðarmanna
fíkniefna inn til landsins en þeir
voru dæmdir til 3-18 mánaða fang-
elsis fyrir innflutning hvers um sig
á 1-4,6 kg af hassi. Sá sem þyngst-
an dóm fékk hafði jafnframt verið
dæmdur fyrir að bera inn til lands-
ins 700 grömm af amfetatmíni.
26 ára maður sem hafði keypt
2,3 kg af hassi erlendis til flutning
til landsins og átt þátt í innflutn-
ingi á 7 kg til viðbótar, auk 900 g
af amfetamíni, var dæmdur til tíu
mánaða fangelsisvistar. 27 ára
maður, sem dæmdur var fyrir aðild
eða tengsl við innflutning á 10 kg
af hassi með ýmsum hætti, hlaut
15 mánaða fangelsi. 29 ára maður,
sem lagt hafði fram í eitt skipti
peninga til fíkniefnakaupa, hlaut
þriggja mánaða fangelsi.
48 ára maður, sem kom við sögu
innflutnings á 4 kg af hassi og til-
raun til innflutnings á 910 grömm-
um af amfetamíni, hlaut 18 mánaða
fangelsi. Sá sem borið hafði hassið
inn til landsins í þau skipti og hið
ætlaða amfetamín, sem reyndist
glúkósi og sykur þegar efnagrein-
ing lá fyrir, var aðeins dæmdur
fyrir aðild að hassinnflutningi þar
sem hann bar að hann hefði ekki
vitað af ætluðum amfetamíninn-
flutningi og var talið að hann hefði
ekki haft ásetning til annars en að
flytja inn hass.
Sex mánaða fangelsi hlaut 25
ára gamall maður, sem talið var
sannað að hefði skipulagt innflutn-
ing á 2,3 kg af hassi og 300 grömm-
um af amfetamíni. 22 ára maður,
sem flutti 5,8 kg af hassi og 200
grömm af amfetamíni í bíl sínum
með Norrænu, var dæmdur í tíu
mánaða fangelsi. 60 daga fangelsi
hlaut 41 árs maður fyrir afhendingu
fjármuna sem ætlaðir ---------------
ákærðir fyrir aðild að viðkomandi
smyglferðum. Dómurinn segir að
enda þótt verulegar líkur bendi til
aðildar mannsins að fíkniefnamis-
ferli þyki sök hans ekki nægilega
sönnuð og verði hann því sýknaður.
Fundið að næturyfirheyrslum
í dóminum er vikið að því að við
ýmis tækifasri hafi yfirheyrslur lög-
reglu yfir Ólafi Gunnarssyni farið
fram að næturlagi og segir að það
sé aðfinnsluvert enda sé ekki hægt
að ætlast til að réttargæslumenn
vinni störf sín á þeim tíma sólar-
hrings nema sérstök þörf krefji.
Að öðru teyti er ekki fundið að rann-
sókn lögreglunnar og m.a. tekin-
afstaða til þess að staðið hafi verið
að hlerun á heimili eins sakborn-
ingsins með lögmætum hætti en við
þá hlerun fengust m.a. gögn sem
sakfelling Ólafs byggðist á í nokkr-
um atriðum.
Veijendur margra úr hópi
ákærðu höfðu krafist þess að máls-
varnarlaun yrðu greidd úr ríkissjóði
með vísan til mannréttindasáttmála
Evrópu þar sem skjólstæðingar
þeirra hafi ekki haft nægilegt fé
til að greiða fyrir lögfræðiaðstoð,
sem þeir skuli því njóta ókeypis.
Um þetta atriði segir dómurinn að
tilvitnað ákvséði sáttmálans, sem
nú hefur öðlast lagagildi hér á landi,
sé þess efnis að hafi sakborningur
ekki nóg fé til að greiða lögfræðiað-
stoð skuli hann fá hana ókeypis sé
það nauðsynlegt vegna réttvísinnar.
Ekki verði séð að féleysi ákærðu
hafí hamlað því að þeir hafí notið
fullra varna í málinu. Því var krafan
ekki tekin til greina.
Hins vegar segir að við ákvörðun
málsvamarlauna verði að hafa í
huga að málið hafi verið gífurlega
umfangsmikið og margir ákærðir,
en alls voru 18 manns sakaðir um
innflutning á nær 40 kg af hassi
og 6 kg af amfetamíni.
Dómsmeðferð hafí tekið Iangan
tíma og hafí veijendur allra sak-
borninga þurft að sækja þinghöld
og gæta hagsmuna skjólstæðinga
sinna. Þáttur sumra ákærðu í mál-
inu hafi verið lítill og hefði í sumum
tilvikum verið heimilt að ljúka þætti
þeirra í samræmi við ákvæði rétt-
arfarslaga um játningamál. Þyki
því ósanngjamt að dæma þá sem
sakfelldir hafí verið til að greiða
málsvarnarlaun að öllu leyti. Því
var niðurstaða dómsins sú að Ólaf-
Gunnarsson skyldi
ur
vora til kaupa á 2 kg af Höfuðpaurirtn greiða 3A hluta 1.700 þús-
hassi og fyrir að hafa sýknaður af 4 unc* króna réttargæslu og
efnið undir höndum um ákæruliðum málsvarnarlauna Jóns
f13 Magnússonar veijanda
_________________ sína, Þorgeir Jón Sigurðs-
son skyldi greiða '4 hluta
skeið.
Sá framseldi var
sýknaður
Eins og fyrr sagði vora konumar
tvær sem ákærðar vora í málinu
báðar sýknaðar af ákærum. Ann-
arri hafði verið gefið að sök að
hafa flutt inn 1 kg af hassi og allt
að 500 g af amfetamíni en hinni,
í félagi við eiginmann sinn, sem
hlaut 12 mánaða fangelsi, að hafa
2-2,3 kg af hassi til landsins og
borið inn hluta af efninu.
Jafnframt stóra málinu var í gær
felldur dómur yfir 34 ára íslendingi
með sænskt ríkisfang, sem var upp-
haflega ákærður ásamt öðrum í
málinu. Þáttur hans hafði verið
skilinn frá þætti annarra þar sem
hann kom ekki til landsins við upp-
haf dómsmeðferðar. Maðurinn var
hins vegar sóttur til landsins af lög-
reglu í síðustu viku og var mál
hans þá flutt og dæmt samhliða
stóra málinu. Maðurinn, sem
hafði á síðasta ári verið handtekinn
í Svíþjóð og framseldur eftir form-
legum leiðum til landsins, var sýkn-
aður af öllum ákærum. Honum
hafði verið gefíð að sök að hafa átt
aðild að innflutningi á 7,1 kg af
hassi og 2,6 kg af amfetamíni í
þremur smyglferðum. í niðurstöð-
um dómsins segir að maðurinn hafí
algjörlega neitað aðild að innflutn-
ingi fíkniefna en hins vegar hafði
hann í öllum tilvikum játað að hafa
hitt af tilviljun á förnum vegi er-
lendis þá sem jafnframt vora
1.200 þúsund króna málsvarnar-
launa veijanda sína. Þá vora þrír
sakborningar dæmdir til að greiða
'A hluta einnar milljónar króna
málsvarnarlauna veijenda sinna og
jafnframt að fullu 50-80 þúsund
króna réttargæslulaun. Málsvarn-
arlaun annarra veijenda voru hins
vegar lögð á ríkissjóð að 9/10 hlut-
um en 1/10 hlut beri sakborningar
hver fyrir sig. Að auki voru máls-
varnarlaun veijenda kvennanna
tveggja sem sýknaðar voru, sam-
tals 1,2 milljónir króna, felld á ríkis-
sjóð og einnig 800 þúsund króna
málsvarnarlaun veijanda sænska
ríkisborgarans sem sýknaður var í
sérstöku máli eins og fyrr sagði.
Ríkið greiðir 10,3 af 12,6
milljónum
Alls voru tildæmd málsvarnar-
laun í máli þessu 12,6 milljónir
króna og er hlutur ríkissjóðs í þeim
samkvæmt dómsorði 10,3 milljónir
króna. Þá voru þeir ákærðu, sem
sakfelldir vora, dæmdir sameigin-
lega til að greiða helming af einnar
milljónar króna saksóknarlaunum
auk þess kostnaðar sem féll á við
rannsókn málsins og beinlínis
hlaust af brotum þeirra eins og
segir í dómi héraðsdómaranna Guð-
jóns St. Marteinssonar, Hjartar O.
Aðalsteinssonar og Sigurðar Tóm-
asar Magnússonar.