Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 12

Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Rúnar Þór 1.020 konur í kvennahlaupi METÞÁTTTAKA var í Kvenna- hlaupi ÍSÍ í Kjarnaskógi á sunnu- dag. Yfir 1.000 konur, frá koma- börnum og hátt upp í nírætt, tóku þátt í hlaupinu og hlupu ýmist 2,2 km eða 4,4 km hring í skóginum. Þátttaka eykst Anna R. Hermannsdóttir, úr undirbúningsnefnd, lýsti yfir ánægju sinni með hlaupið. „Við erum ofsalega ánægðar. Aukning- in var mikil í fyrra, úr 200 í 600, og við áttum engan veginn von á að hún gæti orðið jafn mikil aft- ur. Mér fannst ég líka taka eftir almennri ánægju og stemmingin var mjög góð,“ sagði Anna. Hún tók fram að umhverfið í skóginum hefði eflaust haft góð áhrif á stemmninguna og sagðist vonast til að búið yrði að lengja brautina fyrir hlaupið að ári. Bæjarráð Mótmæla formannsvali BÆJARRÁÐSMENNIRNIR Sigurður J. Sigurðsson og Sig- ríður Stefánsdóttir óskuðu sér- bókunar vegna kjörs bæjarstjóra sem formanns bæjarráðs á fyrst fundi ráðsins á fimmtudag. Bókunin er svohljóðandi: „Við teljum afar óeðlilegt að bæjar- stjóri sem kjörinn fulltrúi í bæj- arstjórn skuli með þessum hætti afsala atkvæðisrétti sínum til þriðja fulltrúa Framsóknar- flokksins sem nú tekur sæti í bæjarráði til að fara með þetta atkvæði. Við lýsum því andstöðu við þess ráðstöfun." Hátíðarhöldin í tilefni af 50 ára lýðveldisafmælinu Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir Skralli TRÚÐURINN Skralli lét sig ekki vanta í Kjarnaskóg. Einhver laumaði að honum grillaðri pylsu og hann gaf hana börnunum. Haldið upp á lýðveldisafmæli Vel heppnuð þriggja daga hátíð „DAGSKRÁIN gekk almennt afskaplega vel og var sannköll- uð þriggja daga hátíð. Ég nefni sem dæmi frábæra stemmningu i bænum að kvöldi þjóðhátíðar- dagsins. Fólk var greinilega af- skaplega hrifið af því að geta valsað svona á milli tveggja teg- unda tónlistar. Úti við KEA var 20 manna nikkarahljómsveit og hljómsveitin Hunang á torginu. Skrúðgangan um daginn var líka með þeim fjölmennari sem hér hafa sést. Veðrið dansaði við okkur. Hvað er hægt að biðja um meir?“ sagði Jón Arnþórs- son, starfsmaður lýðveldishá- tíðarnefndar, um þriggja daga hátíðarhöld á Akureyri í tilefni af 50 ára afmæli lýðveldisins. Hann sagði að fjölbreytt dag- skrá hefði trúlega haft þau áhrif að færri komu til gróðursetning- ar á Rangárvöllum en ella. Að- eins hefði verið gróðursettur helmingur þeirra plantna sem þurft hefði til að ná fjölda bæj- arbúa. Afgangurinn yrði gróð- ursettur á vegum bæjarins. Út- gerðarfélag Akureyringa gaf plönturnar. Hvað fleiri dagskrárliði varð- aði nefndi Jón sem dæmi að afar góð aðsókn hefði verið að skáta- tívolíi og spyrnukeppni. Sömu sögu væri að segja af fjölskyldu- hátíð í Kjarnaskógi á sunnudag. Yfir 5.000 manns hefðu tekið þátt í sérlega vel heppnaðri dag- skrá. „Kjarnaskógur var notað- ur sem fjölskylduskógur eins og á að vera og leikskólakennarar héldu uppi fjörinu," sagði Jón. Mývatn - Mývetningar héldu þjóð- hátíð í Höfða 17. júní og fögnuðu 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins. Hófst hátíðin kl. 14. Veðrið var ágætt, kyrrt en skýjað, alveg þurrt og hiti 13 til 14 stig. Skrúðganga var frá hliðinu inn í Höfðann og á hátíðarsvæðið í fögru skógarijóðri. Stjórnandi og kynnir á samkomunni var Guðný Jónsdótir. Séra Örn Frið- riksson, prófastur á Skútustöðum, annaðist helgistund og flutti bæn. Ragnar Jónsson stjórnaði almenn- um söng og lék með. Þórdís Guð- finna Jónsdóttir fór með ávarp fjall- konunnar. Ræðu dagsins flutti Garðar Karlsson skólastjóri. Þá var glímusýning sem Pétur Ingvarsson glímukappi stjórnaði. Þar sýndu nokkrir knáir glímumenn af báðum kynjum listir sínar. Síðast var sleg- ið á létta strengi og höfðu viðstadd- ir gaman af, ekki síst unga fólkið. Samkoman fór vel fram og var hin ánægjulegasta. Fjölmenni sótti hana. VINNINGSNUMER í Happdrætti Krabbameinsfélagsins ________ Dregið 17. júní 1994. ------ VW GOLF 1800 Státion: 54720 HYUNDAI ELANTRA 1800 GTi: 81388 BIFREIÐ AÐ EIGIN VALI EÐA GREIÐSLA UPP í ÍBÚÐ. VERÐMÆTI KR. 1.000.000: 143922 VÉLSLEÐI Ski-Doo Grand Touring: 116688 VINNINGAR Á KR. 100.000: úttekt hjá Húsasmiðjunni, Radíóbúðinni, Útilífi, ferðaskrifstofu eða húsgagnaverslun: 1919 22988 41816 2582 25624 43249 2650 29472 45501 ■ 3077 29517 45659 4608 31017 46815 5151 31474 51404 5462 31658 53602 6170 32367 53856 9214 32502 54934 15479 32895 56560 16874 33162 57876 17045 33962 60099 17527 36845 61281 17820 37794 61891 18265 40230 61990 Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, sími 621414. Krabbameinsfélagið þakkar landsmönnum veittan stuðning. 63252 83041 111257 124404 139455 67914 83940 112958 124544 141745 68441 90706 113004 124704 142779 68482 91510 113636 126670 142855 69266 92878 115378 128213 143383 70746 93736 115454 128567 143445 71110 94001 116184 128718 146482 71540 96851 118087 129754 147416 74631 102535 119195 130207 148730 78836 103695 119395 132632 149570 79669 105817 119430 132658 149881 80028 107558 119606 134105 151385 80864 107737 121360 134173 152707 80930 108041 121728 135048 153923 82226 108276 123154 138347 153988 Krabbameinsfélagið _ _ Morgunblaðið/Rúnar Þór ÁRNÝ Leifsdóttir, nýstúdent, tók fyrstu skóflustunguna að nýju húsi í Stefánslundi. Brautskráning frá Menntaskólanum Skóli á tímamótum 136 stúdentar voru brautskráðir frá Menntaskólanum á Akureyri á 17. júní. Við það tækifæri var einnig tekin skóflustunga að nýju húsi í Stefánslundi. Við brautskráningna sagði Tryggvi Gíslason, skólameistari, að skólinn, eins og íslenska lýð- veldið, stæði á tímamótum. Með 2.400 fm nýbyggingu norðan gamla íþróttahússins tvöfaldaðist skólahúsnæði. Unnið væri að sóknaráætlun til ársins 2006 í tengslum við nýja húsið. Hann hvatti nýstúdentana til að láta ekki sitt eftir liggja við upp- byggingu landsins. „Hugvit er undirstaða menningar, vísinda og lista. í hugviti okkar búa gáfur, skarpskyggni, innsæi og frumleiki. Á mannlegu hugviti byggjast allar framfarir og öll þróun. I hugvitinu býr einnig siðvit, vitund um rétt og rangt,“ sagði Tryggvi meðal annars. Hann óskaði nýstúdentum til hamingju og þakkaði þeim fyrir samveruna í skólanum. Ovenjumikið um rúðubrot MIKIL ölvun var í miðbæ Akur- eyrar aðfaranótt 17. júní. Til- kynnt var um 5 rúðubrot. Þrátt fyrir manníjölda bar lítið á ölvun næstu nótt. Lögregla hafði afskipti af 5 ökumönnum vegna meintrar ölvunar við akstur og 9 vegna hraðaksturs um helgina. Jafn margir gistu fangageymslur lögreglunnar vegna ölvunar, óspekta eða rúðubrota. Frá 17. til 20. júní var samtals tilkynnt um 8 rúðubrot í bænum. Lítið bar á ölvun aðfaranótt 18. júní en umgengni var frekar slæm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.