Morgunblaðið - 21.06.1994, Síða 13

Morgunblaðið - 21.06.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 13 LANDIÐ Fjöraferð Morgunblaðið/Alfons Á BLÍÐVIÐRISDÖGUM er gott að breyta til og fara af mölinni niður í fjöru, til að viðra sig, eins og þessi ungmenni gerðu á dögunum í fjörunni í Ólafsvík, ásamt heimilisdýrinu, henni Fríðu. Virtist hund- urinn njóta þess að spretta úr spori og njóta sjávarloftsins og freísisins ekki síður en börnin. Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson. í TILEFNI af komu Íslandssíldarinnar hingað færði bæjarstjóri Seyðisfjarðar áhöfninni rjómatertu sem skipstjórinn tók á móti. Síldin kom- in til Seyð- isfjarðar Seyðisfirði - Fyrsta svokallaða „ís- landssíldin" í hart nær þrjátíu ár barst til Seyðisfjarðar í síðustu viku. Margmenni var á bryggjunni við SR-mjöl þegar ísleifur VE lagðist að með fullfermi, um 1.100 tonn. Síldin er stór og jöfn að stærð og ætti að henta vel í alla vinnslu. Hún fer nú öll í bræðslu, þó margir hefðu viljað sjá eitthvað af henni fara í salt. Að sögn Gunnars Jónssonar, skip- stóra á Isleifi, fékkst sildin við land- helgismörkin aust-norðaustur af Langanesi. Um 18 tíma tók að fylla skipið. Skipveijar köstuðu sex sinn- um. Þeir fengu mest 400 tonn í kasti, en búmmuðu einu sinni. Fæðingarbær Jóns forseta endurreistur HORNSTEINN var lagður að end- urreisn fæðingarbæjar Jóns Sig- urðssonar á Hrafnseyri við Arnar- §örð 17. júní síðastliðinn. Ekkert stendur eftir nema hluti af eldhús- vegg en búið var í bænum til ársins 1902. Ráðgert er að endurreisn hans hefjist sem fyrst og ræðst hraðinn af því hversu vel gengur að fjármagna uppbygginguna að sögn Þórhalls Ásgeirssonar for- manns Hrafnseyrarnefndar. Hrafnseyrarnefnd lagði horn- steininn snemma dags og hófust formleg hátíðahöld klukkan 13.30 að viðstöddu fjölmenni. Telur Hall- grímur Sveinsson skólastjóri að um 1.300 manns hafi sótt skemmtun- ina. Hátíðarmessa var sungin í Minningarkapellu Jóns Sigurðsson- ar og þjónaði séra Kristinn Jens Sigurþórsson sóknarprestur á Þing- eyri fyrir altari. Einnig söng Kirkju- kór Þingeyrarkirkju undir stjórn Guðmundar Vilhjálmssonar og dr. Jóhannes Nordal flutti hátíðarræðu. Fj ölskylduskemmtun Fjölskylduskemmtun hófst rúm- lega fjögur undir stjórn Eyvindar Erlendssonar og var haldin á palli sem reistur var sérstaklega undir Bælisbrekku, þar sem Jón Sigurðs- son lék sér sem ungur sveinn að sögn Hallgríms. Einnig voru allir þeir sem voru á Hrafnseyri 17. júní 1944 kallaðir til og myndaðir í til- efni dagsins og Guðmundur Ingi Kristjánsson skáld og bóndi á Kirkjubóli flutti frumort kvæði. Loks var grillað og á eftir haldinn dansleikur í samkomutjaldinu þar sem ungir sem aldnir skemmtu sér fram undir miðnætti. HORNSTEINN var lagður að endurreisn fæðingarbæjar Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri 17. júní síðastliðinn. Talið frá vinstri: Ágúst Böðvarsson, Halldór Kristjánsson frá Kirkjubóli, Þórhall- ur Ásgeirsson, Jón Páll Halldórsson og Jóhannes Nordal. Morgunblaðið/Einar GAMLA brúin, en fjær sést þar sem nýja brúin er í byggingu. Slitlag við Hofsós Hofsósi - Nýlokið er að leggja bund- Efni var ekið út í ósinn síðastliðið ið slitlag á um það bil átta km kafla á veginn milli Hofsóss og Sauð- árkróks og má þá segja að búið sé að leggja slitlag á allan veginn að undanskildum smákafla við brúna yfir vestari ós Héraðsvatna og er sá kafli eftir vegna þess að verið er að byggja nýja brú yfir ósinn, en nýja brúin mun standa sunnar (ofar) en gamla brúin. haust og gert plan í miðjum ósnum, og á að byggja brúna á þurru, en hleypa síðan vatninu undir hana full- gerða. Fólk sem þekkir þennan veg bíður eftir því að loksins losni það við að fara svokallaða ósbeygju, en það er kröpp beygja við eystri enda gömlu brúarinnar, og hefur oft verið mjög erfið á vetrum. Mótmæla samkennslu Seyðisfirði - Enn hafa komið fram mótmæli á Seyðisfirði vegna sparn- aðaraðgerða menntamálaráðuneyt- isins. I maí mótmæltu kennarar Seyðisfjarðarskóla áætlunum ráðu- neytisins um samkénnslu 2. og 3. bekkjar á næsta skólaári, én nú eru það foreldrar barnanna sem að kvarta til Fræðsluskrifstofú Aúst- urlands. í ályktun sem samþykkt var á fundi foreldra fyrr í þessum mánuði er bent á að sparnaður sé óverulegur miðað við þau óþægindi sem af hljót- ast. I lok ályktunarinnar segir: „Fundurinn behdir á að samanlagður fjöldi nemenda í þessum árgöngum er alveg við þau mörk að skylt sé að kenna þeim í tveimur bekkjar- deildum. Þá háfa áfgangarnir ólíkar þarfir og nlismunandi námsstöðu, þannig að hætt er við áð þegar upp verðiif stáðið sé Véfið að hirða eyrinn og kasta krónunni." SIEMENS LU CH ISIÝ ÞVOTTAVÉL Á NÝJU VERÐI! • 11 kerfisinnstillingar fyrir suðuþvott, mislitan þvott, straufrítt og ull • Vinduhraði 500 - 800 sn./mín. • Tekur mest 4,5 kg • Sparnaðarhnappur (1/2) • Hagkvæmnihnappur (e) • Skolstöðvunarhnappur • Sérstakt ullarkerfi • Islenskir leiðarvísar Og verðið er ótrúlega gott. Siemens þvottavél á aðeins kr. 59.430 stgr. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300 o CQ Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála Hellissandur: Blómsturvellir Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson Stykkishólmur: Skipavík Búðardalur: Ásubúð ísafjörður: Pólíinn Hvammstangi: Skjanni Sauðárkrókur: Rafsjá Siglufjörður: Torgiö Akureyri: Ljósgjafinn Husavík: öryggi Þórshöfn: Norðurraf Neskaupstaöur: Rafalda Revðarfjörður. Rafvélaverkst. Áma E. Egilsstaðir: Sveinn Guðmundsson Breiðdalsvík: Stefán N. Stefánsson Höfn í Hornafirði: Kristall Vestmannaeyjar: Tréverk Hvolsvöllur Kaupfélag Rangæinga Selfoss: Árvirkinn Garður: Raftækjav. Sig. Ingvarss. Keflavík: Ljósbögihn Hafnarfjörður: Rafbúð Skúlá, Álfaskeiði Viljir þú endingu og gæði -! irelur þu SiEMEiMS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.