Morgunblaðið - 21.06.1994, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristinn
BJÖRK svífur niður á Laugardalsvöll í faðmi Þórs
Jóns Péturssonar, en á söng hún „Akkerislagið“
af breiðskífu sinni, en á íslensku.
FJÖLMARGIR lögðu leið sína í Laugardalinn á sunnudag, enda mikið um að vera þar. Líklega hafi margir þeirra
á áttunda þúsund áheyrenda sem komu saman á gervigrasinu komið þangað til að sjá Björk og heyra.
BJÖRK Guðmundsdóttir hafði í nógu
að snúast á sunnudag, en þá voru
tónleikar hennar og hljómsveitar í
Laugardalshöll á vegum Smekkleysu
í samvinnu við Morgunblaðið. Fyrr
um daginn stökk hún meðal annars
í fallhlíf niður á gervigrasið í Laugar-
dal og söng þar fyrir á áttunda þús-
und manns.
Björk kom með hljómsveit sinni
og fjörutíu manna fylgdarliði til
landsins aðfaranótt sunnudags, en
tók samt daginn snemma því strax á
sunnudagsmorguninn var blaða-
mannafundur Smekkleysu, þar sem
meðal annars var kynnt sumarútgáfa
Smekkleysu, en Björk er einn af eig-
endum Smekkleysu. A þeim blaða-
mannafundi sagði Björk að tónleik-
arnir í Laugardalshöllinni þá um
kvöldið væru án efa merkilegustu
tónleikar hennar, því það væri í
fyrsta sinn sem hún kæmi fram á
Annir
hjá Björk
tónleikum hér á landi og flytti ein-
ungis eigin tónsmíðar með eigin
hljómsveit. Aðspurð um það hvort sú
staðreynd skýrði þann mikla fjölda
sem væri í fylgdarliði hennar kvað
hún já við og sagði að tónleikarnir
væru einskonar árshátíð samstarfs-
manna hennar, sem hefðu gripið
tækifærið til að hittast allir, en það
væri næsta sjaldgæft.
Björk sagðist vera farin að vinna
að næstu breiðskífu sinni, hún tæki
mest upp heima hjá sér eftir því sem
andinn blési henni í brjóst, en hún
hefur skipulagt sumarið þannig að
það nýtist henni sem best til laga- )
smíða og upptöku. Ekki segist hún
stefna á að selja meira af næstu plötu
en fyrstu breiðskífu hennar, Debut,
hefur selst, „ég held að ég hafi með-
al annars verið svona heppin og geng-
ið svo vel, vegna þess að ég hef ekki
stefnt á einhverja milljónasölu, en
bara reynt að gera þetta eins vel og
ég get“, sagði hún.
Eftir blaðamannafundinn hélt
Björk niður í Laugardalshöll þar sem |
hljóðfæri voru sett upp og tæki og
tól stillt fyrir uppákomu kvöldsins.
Að því loknu fór hún út á flugvöll
og upp í vél sem flutti hana í Laug-
ardalinn hvar hún stökk í fallhlíf nið-
ur á gervigrasið í faðmi Þórs Jóns
Péturssonar. Eftir að niður var kom-
ið og Björk búin að spretta af sér
umbúnaðinum sem þurfti söng hún
Leikið á allan
tilfinningaskalann
TÓNLIST
Laugardalshöll
JÓMFRÚTÓNLEIKAR
BJARKAR
GUÐMUNDSDÓTTUR
Björk Guðmundsdóttir og sex manna
hljómsveit hennar í Laugardalshöll
19. júní. Ahorfendur á sjötta þúsund.
SÁ VIÐBURÐUR sem mesta at-
hygli vakti og aðsókn fékk á Lista-
hátíð í Reykjavík að þessu sinni var
tónleikar Bjarkar Guðmundsdóttur
og hljómsveitar hennar í Laugar-
dalshöll á sunnudag, sem Smekk-
leysa hélt í samvinnu við Morgun-
blaðið. Þetta voru fyrstu tónleikar
Bjarkar hér á landi frá því Sykur-
molana þraut örendi, jómfrútónleik-
ar, og lengi 'nafði þeirra verið beðið
og af mikilli óþreyju.
Björk sagði í viðtali á sunnudag
að þetta væru mikilvægustu tónleik-
ar hennar til þessa, enda hún ekki
áður komið fram með eigin lög og
eigin hljómsveit; fram að því alltaf
í samstarfi við aðra listamenn, þá
helst Sykurmolana.
Sykurmolarnir léku einu sinni í
Laugardaishöll, á Stuðmannatón-
leikum, þá nýstofnuð hljómsveit og
óþekkt og áhorfendur harla fáir.
Að þessu sinni þurfti ekki að kvarta
yfír aðsókn, enda seldist upp vel
fyrir tónleikana og miðar gengu
kaupum og sölum fyrir utan Höllina
á geypiverði.
Ahorfendur voru flestir í yngri
kantinum, sem vonlegt er, en einnig
mátti sjá ráðsettari og rosknan sem
röðuðu sér yfírleitt í stúkuna. Áber-
andi var hve stúlkur á aldrinum 15
tii 18 ára voru hátt hlutfall þeirra
sem í salnum skemmtu sér, iíklega
hátt í tveir þriðju viðstaddra.
Stemmningin áður en Björk sté
á svið var gríðarlega góð og átti
danssveitin Bubbleflies sinn þátt í
að hita viðstadda upp. Eftir því sem
nær dró að Björk birtist var sefjun-
in meiri og fólk reyndi að særa
hana á svið með því að kaila í sí-
feliu Björk, Björk. Það var að vonum
fögnuður þegar fyrstu tónar upp-
hafslagsins heyrðust og enn magn-
aðist æsingur viðstaddra þegar
Morgunblaðið/Kristinn
Björk birtist á sviðinu og fór að
syngja um vöiundarhús mannlegrar
hegðunar. Reyndar sló það marga
sem hugðust taka undir út af laginu
þegar þeir heyrðu að hún söng á
íslensku og þannig hét lagið Mann-
leg hegðun, en ekki Human Be-
haviour eins og það heitir á breið-
skífunni Debut. Eftir að söngólmir
áttuðu sig létu þeir ekki á því standa
að syngja með af kappi og var svo
fram eftir tónleikum. Hljómsveitin
virtist vel þétt og með á nótunum
og þó Björk virtist óstyrk til að
byrja með óx henni ásmegin eftir
því sem á leið og kunni greinilega
vel að meta hlýlegar viðtökur tón-
leikagesta. Fleiri breiðskífulög
fylgdu á eftir, öll á íslensku, Þú
veist að ég elska þig, Einn dag enn,
Venusstrákurinn og Komdu til mín,