Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMIIMGAR
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994 35
LÚÐVÍKALFREÐ
MAGNÚSSON
Aðalbjörg bjó yfir fágætum pers-
ónutöfrum, sem geisluðu frá henni,
jafnt í kennslu og meðal samstarfs-
fólks. í starfi beitti hún þessum
eiginleikum sínum á snilldarlegan
hátt. Það fór þó aldrei milli mála
hvers hún vænti af nemendum sín-
um. Hún var skarpgreind og ólg-
andi af hógværri kímni og góðvild.
Hún var umburðarlynd eins og títt
er um þá sem eru sterkrar gerðar.
Stundum kom fyrir að hún brosti
góðlátlega yfir þvaðri og voru þau
bros oft miklu áhrifameiri en löng
andmæli. Hún hafði sterkan aga á
nemendum sínum, hvort heldur var
um að ræða sex ára börn eða ungl-
inga. Ef útlit var fyrir að nemendur
einbeittu sér ekki nóg lækkaði Aðal-
björg róminn og sló þá þögn á nem-
endur og fóru að hluta grannt eftir
því hvað hún var að segja. Þegar
margir heyra orðið agi, kemur oft
upp í huga þeirra harka og hróp.
Það var ekki aginn hennar Aðal-
bjargar. Blæbrigðum sínum í starfi
sem kennari beitti hún alltaf á rétt-
um tíma og á réttan hátt eftir því
hvaða einstaklingur átti í hlut.
Um nokkurn tíma hafði Aðal-
björg átt við erfiðan sjúkdóm að
etja. Það var gleði í skólanum þeg-
ar hún kom aftur til starfa. En svo
fór að hún varð að lúta í lægra
haldi fyrir manninum með ljáinn.
Það er skarð fyrir skildi hjá Selja-
skóla við fráfal) Aðalbjargar. Það
var gæfa skólans og fólksins í
hverfinu að fá hana hingað til
starfa. Blessuð veri minning henn-
ar.
Aðstandendum Aðalbjargar
votta ég djúpa samúð.
Ásgeir Pálsson.
+ Lúðvík Alfreð Magnússon
var fæddur á Gjögri í Ár-
neshreppi í Strandasýslu 25.
ágúst 1918. Hann lést á Sjúkra-
húsinu í Keflavík 12. júní síð-
astliðinn og var útför hans
gerð frá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju 16. júní.
LÚLLI afi minn er farinn. Minn-
ingarnar streyma fram í hugann.
Ég sé hann sitjandi í stólnum sín-
um hlæjandi, vegna þess að ein-
hver í fjölskyldunni var að segja
brandara. Hann hló mikið hann
afi, þrátt fyrir að hann hafi verið
mikið veikur var hann ávallt í góðu
skapi og aldrei kvartaði hann.
Hann var lífsglaður og kunni að
meta það sem hann átti. En allir
þurfa að fara, og afi fékk að kveðja
þennan heim á þann hátt sem hann
hefði örugglega kosið sjálfur, í
faðmi fjölskyldu sinnar.
Afi var alltaf góður við okkur
barnabörnin. Það var oft beðið með
óþreyju eftir jólaböllunum hans
Lúlla afa, en skemmtilegri jólaböll
hef ég aldrei farið á. Afi fylgdist
alltaf vel með okkur og vissi ávallt
hvað var að gefast hjá okkur. Afi
var duglegur og góður maþur, en
núna er hann kominn á betri stað
þar sem honum líður vel. Minning
hans mun alltaf geymast hjá okk-
ur.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
ðll bömin þín, svo blundi rótt.
(M. Joch.)
Elsku afi minn, ég kveð þig nú.
Blessuð sé minning þín.
Þín Rósa.
Fallegt og varan-
legt á leiöi
Smíðum krossa og ramma
úr ryðfríu stáli, hvíthúðaða.
Einnig blómakrossa á leiði.
Sendum um land allt. Ryð-
frítt stál endist um ókomna
tíð. Sendum myndalista.
Blikkverk sf.,
sími 93-11075.
Veldu verðlaunatækin frá
Blomberq
Blomberg hlaut
hin eftirsóttu,
alþjóðlegu 1F
verðlaun fyrir
framúrskarandi
glæsilega og
vandaða eldavél
á stærstu iðn-
sýningu Evrópu
í Hannover í
Þýskalandi. 586
framleiðendur frá
251 landi kepptu
um þessa eftirsóttu
viðurkenningu.
Við bjóðum 6 gerðir
eldavéla á verði
frá aðeins
kr,.55,955* stgr,
Að auki bjóðum við
mikið úrval af
helluborðum og
innbyggingarofnum
frá Blomberg
*Stadgreidsluafsláttur er 5%
Aðalbjörg hóf kennslustörf í
Reykjavík 1958 og kenndi lengst
af við Austurbæjarskóla og Selja-
skóla síðustu 14 árin. Á sl. hausti
kenndi hún veikinda og gekkst und-
ir uppskurð, en kom ótrúlega fljótt
til stafa að nýju og lauk kennslu
vetrarins. Það starf sem Aðalbjörg
valdi sér, að kenna heimilisfræði
er ábyrgðarmeira og vandasamara
en ætla mætti við fyrstu sýn. Að
kenna verðandi húsmæðrum að
standa fyrir heimili og viðhafa nýtni
og hagsýni er afar þýðingarmikið
og þetta starf leysti Aðalbjörg af
hendi frábærlega vel. Ekki hefi ég
heyrt nemendur Aðalbjargar minn-
ast hennar öðruvísi en með hlýju
og virðingu enda kom hún fram við
menendur sína af prúðmennsku og
kurteisi og þeirri virðingu sem ungl-
ingum og börnum ber.
Eftir að hafa starfað með Aðal-
björgu í Austurbæjar- og Seljaskóla
í 20 ár minnist ég einskis sem
gæti varpað skugga á það sam-
starf. Eins og áður segir notaði
Aðalbjörg hvert tækifæri til að auka
þekkingu sína og færni í starfi. Því
var það er kennarar skólans ákváðu
að fara í náms- og kynnisferð til
Newcastle að hún hugðist vera
með. En þá ferð fór hún ekki því
að örlögin höguðu því svo að hún
var orðin veik er lagt skyldi af stað
og hinn 10. júní fór hún í þá ferð
sem okkar allra bíður og enginn á
afturkvæmt úr.
Það er jafnan skarð fyrir skildi
þegar einn félaginn úr hópnum
hverfur á braut. Skarð Aðalbjargar
verður vandfyllt. Við starfsfélagar
hennar munum minnast hennar fyr-
ir frábæra ljúfmennsku og alúðlega
framkomu jafnt við samstarfsfólkið
og nemendur skólans. Við sem
störfum með Aðalbjörgu í Selja-
skóla sendum eiginmanni hennar
og börnum innilegar samúðarkveðj-
ur. Blessuð sé minning hennar.
Hjalti Jónasson.
Gail flísar
úwðmi
1 íH É
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
///-
Einar
Farestveit&Cohf
Borgartúni 28 tf 622901 og 622900
- Þjónusta i þina þágu
plurgmWaSrili
- kjarni málsins!