Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 39

Morgunblaðið - 21.06.1994, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ1994 39 tókst á við þær og bar sigur af hólmi. Gæfan brosti einnig við henni í líki góðs maka og barna, sem eru hvert öðru mannvænlegra. Arngunnur var svo lánsöm að kunna að meta þessar góðu gjafir. Arngunnur var listfeng kona og hugleiddi á yngri árum að nema myndlist. Hún var óspart hvött til þess af listakonunni frú Barböru Arnason, sem gift var afabróður Arngunnar, Magnúsi Á. Árnasyni, listamanni. Af þessu varð þó ekki og fáum við því ekki að vita hvaða stefnu líf hennar hefði tekið ef þessi leið hefði verið valin. Að leiðarlokum þakka ég fyrir allar gjöfulu samverustundirnar og bið fjölskyldu Arngunnar blessunar Guðs. Gyða Magnúsdóttir. Hún Arngunnur vinkona mín er látin, 51 árs gömul. Við vorum óað- skiljanlegar vinkonur á unglingsár- unum, Agga og Bogga vorum við kallaðar þá. í þijá vetur vorum við saman í skóla, fyrst í Gaggó Vest og síðan í landsprófinu við Vonar- stræti. Eftir það skildust leiðir hvað skólagöngu viðvék en áfram vorum við samrýndar vinkonur. Ég minnist margs frá þessum árum. Arngunnur og Erla voru bún- ar að vera vinkonur lengi þegar ég kynntist þeim. Þær voru KR-ingar og spiluðu handbolta og ég fór að fylgja þeim á æfingar og á völlinn og síðan fór ég að æfa sjálf, ég held bara til að fá að vera í þeirra hópi. Arngunnur átti heima á Sól- vallagötu 31, á miðhæðinni, með foreldrum og systkinum, afi hennar og amma bjuggu á efri hæðinni en móðurbróðir og hans fjölskylda á neðri hæð. Þetta var elskulegt og glaðvært fólk allt saman, samgang- ur á milli hæða og alltaf mikið um að vera, eða þannig er það í minning- unni. Að koma inn á heimili Þórg- unnar og Jóns, foreldra Arngunnar, fannst mér mjög sérstakt vegna þess að þarna var allt fullt af fram- andi hlutum sem Jón hafði komið með frá útlöndum, en hann var í mörg ár stýrimaður á stórum skipum sem sigldu út um allan heim. Ég minnist tilhlökkunar Arngunnar þegar von var á pabba hennar heim, Blömastofa Friöjinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við ðll tilefni. Gjafavörur. Erfidrykkjur Giæsilq; kalíi- lilaðborð liillcgir saíir og injög góð þjónusta. Upplýsingar í sínia 2 23 22 . FLUGLEIDIR HlTKL LlfTLKIIin MINNINGAR og innilegs sambands feðginanna og ég man líka eftir fatnaði sem hann færði henni sem var öðruvísi en sá sem fékkst hér heima. Ég minnist þess þegar Arngunnur bauð mér í fyrsta skipti með sér um borð í Tröllafoss, sem lá hér í höfninni, að heimsækja pabba sinn er hann var þar á vakt. Við fengum þar að borða en fórum síðan í eltingaleik um allt skip. Mér finnst eins og það hafi verið þá sem við endanlega innsigl- uðum vináttuböndin. Þótt margt komi upp í hugann þegar ég hugsa til unglingsáranna þá finnst mér oft sem ég eigi auð- veldara með að kalla fram hugar- ástand en atburðina sjálfa. Ég minn- ist heitra maídaga í bakgarðinum á Sólvallagötunni. Við Arngunnur liggjandi á dýnum og púðum í sól- baði. Einhveijir aðrir íbúar hússins voru þarna líka og ég man eftir notalegu skvaldri og hlátri. Ánægjustund sem þó var blandin samviskubiti, því við vorum í upp- lestrarfríi og skólabækurnar lágu óhreyfðar í grasinu. Ég minnist Þingvallaferðar sem við fórum ein- hvern .tímann um vor, tvær saman, fyrst með strætó upp að Árbæ, síðan gangandi og á puttanum.'Við höfð- um með okkur svefnpoka og sváfum um nóttina úti milli tijáa nálægt Valhöll. Þegar við opnuðum augun í morgunsárið spígsporuðu þre$tir rétt við andlit okkar, en fleira man ég ekki úr þeirri ferð. Við fórum margar ævintýraferðir saman og eftirminnileg er dvöl í sumarbústað í Þrastaskógi sem við fórum með Erlu og Öldu. Við Arngunnur reynd- um að komast í vinnu á sumrin og stundum tókst það. Sumarið sem við urðum 16 ára vorum við kaupakonur á Hrauni í Ölfusi og annað sumar fengum við vinnu í Skógrækt Reykjavíkur. Um tvítugt skildust leiðir, og það liðu stundum mörg ár án þess við hittumst. En sambandið slitnaði aldrei alveg. Eftir að hún fór að búa með Palla, fyrir nærri tuttugu árum, byijaði nýtt og gott tímabil í lífi Arngunnar. Hún kom oftar í heim- sókn til mín og við gáfum okkur góðan tíma til að spjalla. Fyrir mig var það alveg sérstök tilfinning og hitta Arngunni; ég fann það svo vel að við vorum alltaf sömu góðu vin- konurnar og eins og í gamla daga var það návistin fremur en samtölin, hugurinn fremur en orðin, sem skipti máli. Að sitja andspænis henni, að horfa og hlusta á hana tala og hlæja þessum smitandi hlátri, það var eins og að endurlifa unglingsárin. Nú sakna ég Arngunnar. Hluti af mér hefur dáið, en ekki horfið. Ég samhryggist Palla og börnum Arngunnar, þeim Margréti, Stein- grími, Ragnari og Maríu Erlu. Einn- ig Jóni föður hennar og öðmm að- stándendum. Borghildur Óskarsdóttir. t Móðurbróftir minn, HALLDÓR VIGFÚSSON, Laufásvegi 43, tést f Landspítalanum 19. júní. Fyrir hönd aðstandenda, Vigfús Guðmundsson. t Ástkær eiginmaftur minn, faftir okkar, tengdafaftir og ,afi, ÓSKAR JÓHANNESSON fyrrverandi bóndi frá Svinhóli, lést á heimili sínu, Álfhólsvegi 109, 17. júní sl. Útför auglýst síðar. Ragnheiður Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Ástkær eiginmaftur minn, faðir okkar, tengdafaftir, afi og langafi, SKÚLI SIGURJÓN LÁRUSSON frá Hellissandi, Breiðargötu 18, Akranesi, sem lést í Sjúkrahúsi Akraness 18. júní sl., verftur jarðsunginn frá Akranes- kirkju fimmtudaginn 23. júní kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness. Björg Hallvarðsdóttir, Anna Kristín Skúladóttir, Jón Ingi Haraldsson, Lárus Skúlason, Málfríður Guðbjörg Skúladóttir, Gísli H. Hallbjörnsson, Skúli Skúlason, Margrét G. Rögnvaldsdóttir, Guðmundur Skúlason, Guörún ísleifsdóttir, Hallveig Skúladóttir, Stefán Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ALMA DANIELLA NICLASEN frá Færeyjum, Þórkötlustöðum 3, Grindavík, lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 16. júnf. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju þann 23. júní kl. 14.00 og jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði í Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Ása Niclasen. t Ástkær faftir okkar, tengdafaftir og afi, ÁMUNDI ÓSKAR SIGURÐSSON, Neðstaleiti 3, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miftvikudaginn 22. júní kl. 15.00. Margrét Ámundadóttir, Sigrún Una Ámundadóttir, Gibbons Dee Cline, Kristín Helga Ámundadóttir, Friðþjófur Ó. Johnson, Hildur Sofffa Ámundadóttir, Ásgeir Þórðarson og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúft og hlýhug við andlát og útför sonar míns, föftur og bróður okkar, STEFÁNS KRISTINS GUÐMUNDSSONAR, Áshamri 30, Vestmannaeyjum. Guðmundur Kristinn Axelsson, Bára Ingvarsdóttir, Guðleifur Kristinn Stefánsson, Erling Jónsson, Axel Guðmundsson, Valdimar Guðmundsson, Hafsteinn Guðmundsson, Þóranna Guðmundsdóttir og aðrir vandamenn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúft og vinarhug vift andlát og útför eigin- manns míns, föftur okkar, tengdaföftur, afa og bróður, NARFAWIUM málarameistara, Háaleitisbraut 69, Reykjavík. Svanhvít Aðalsteinsdóttir, Þórdís Wium, Úlfar Þór Indriðason, Snorri Wium, Unnur María Þórarinsdóttir, HeimirWium, Asa Elmgren, Sólveig Wium, Guðmundur Kr. Pétursson, barnabörn, systkini og aðrir vandamenn. t Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóftur, ömmu og langömmu, FINNDÍSAR FINNBOGADÓTTUR, Sauðafelli. Sérstakar þakkir til allra þeirra, er sýndu henni trygglyndi og vinar- hug síðustu æviárin. Hörður Haraldsson, Kristín Ágústsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföftur, afa og langafa, AÐALSTEINS GUÐMUNDSSONAR, Hrafnlstu, áður Hofsvallagötu 15, verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykja- vík í dag, þriðjudaginn 21. júní, kl. 15.00. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, JÓNASAR KRISTINS TRYGGVASONAR, frá Siglufirði. Vilborg Jónsdóttir, Pálína Aðalsteinsdóttir, Valberg Gfslason, Halldóra Aðalsteinsdóttir, Magnús Þorbjörnsson, Agnes Aðalsteinsdóttir, Brynjólfur Sandholt, Guðmundur Aðalsteinsson, Steinunn Aðalsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Stelnar Jónasson, Vilborg Jónsdóttir, Margrét Jónasdóttir, Einar Hermannsson, Gunnlaugur Jónasson, Rannveig Guðlaugsdóttir, Sólveig Jónasdóttir, Gunnar Þórðarson, Bryndís Jónasdóttir, Guðmundur Kjartansson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.