Morgunblaðið - 21.06.1994, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Smálúða og grænmeti
á grillið
Á heimili Krístínar
Gestsdóttur er mikið
grillað og það er hún
sjálf sem sér um það.
Mér finnst gaman að grilla
og vil ekki leyfa neinum
að gera það fyrir mig.
Mest gaman er að búa til brauð
á grillinu og næst á óskalistanum
er fiskur. I síðasta þætti var ýsa
grilluð með lítilli fyrirhöfn, en fisk
er mun þægilegra og fljótlegra
að grilla en kjöt. Það lekur ekki
eins mikið úr fiskinum og hann
er fljótari að soðna. Núna var
smálúða sett á grilið, en með henni
var grillað epli, paprika, laukur
og hvítlaukur. Frosnar franskar
kartöflur voru keyptar og settar
í álbakka og voru þær tilbúnar
eftir 7 mínútur. Grænmetið og
eplin voru í 10 mínútur á grillinu,
en fiskurinn í 7 mínútur. Undir-
búningstími var um 10 mínútur.
Fáir íslendingar borða roð af fiski.
Ekki er sama, hver tegundin er,
einnig skiptir stærð máli. Roð af
smálúðu er mjög gott grillað.
Skafa verður allt slím af roðinu,
og er gott að helia sjóðandi vatni
á það, þá liggja slím og hreistur
laust. Þegar ég sneri lúðuflökun-
um á grillinu, losnaði roðið af í
heilu lagi, það var ágætt, þá gat
það verið aðeins lengur en fiskur-
inn á grillinu. Það varð stökkt og
mjög ljúffengt og þegar fiskurinn
var borinn fram, klippti ég roðið
ræmur og lagði
ofan á hann. Ymsir
hafa komið að máli við
mig og beðið um upp-
skrift af skonsum á grillið,
en þær birtust í blaðinu 16. júlí
1993. Sú uppskrift kemur hér í
lokin.
Grilluð smálúðuflök
2 meðalstór smólúðuflök
safi úr ’Asítrónu
1 Vitsk. salt
nýmalaður pipar
matarolía
Skafið roðið, sjá hér að fram-
an. Hellið sítrónusafa yfir hold-
hliðina, stráið salti og pipar yfir
og látið bíða í 10 mínútur.
Hitið grillið, hafið mesta hita.
Penslið grindina (óþarfi er að
nota samlokugrind). Penslið báð-
ar hliðar flakanna með matarolíu,
setjið flökin á grindina, roðhliðin
snúi niður. Grillið í 5 mínútur,
snúið við og grillið í 3 mínútur. á
síðari hliðinni.
Grillaðar franskar kartöflur
’Akg franskar kartöflur
ólbakki
Setjið kartöflurnar á bakkann
og setjið á grillið. Snúið við eftir
3-4 mínútur.
Grilluð paprika
4 paprikur
matarolía
Takið stilk og steina úr papr-
iku. Skerið síðan í breið rif langs-
um. Penslið með matarolíu. Setj-
ið á grillið. Húðin snúi niður fyrst,
grillið í 5 mínútur á hvorri hlið.
Grillaður laukur
2 stórir laukar
matarolía
Afhýðið laukinn, skerið í breið
rif langsum. Flettið blöðunum í
sundur. Penslið með matarolíu
og þræðið upp á grillteina. Grillið
í 10 mínútur. Snúið öðru hverju.
Grillaður hvítlaukur
1 stór hvítlaukur
matarolía
Takið utan af lauknum, takið
síðan húðina utan af rifjunum,
penslið með matarolíu. Þræðið
rifin upp á grillteina og grillið í
10 mínútur. Snúið öðru hverju.
Grilluð epli
Skerið eplin í tvennt, takið úr
þeim kjarnann, penslið með
matarolíu. Setjið á grillið. Látið
skurðflötinn snúa niður fyrst í 3-4
mínútur, snúið þá við og grillið í
6-10 mínútur.
Skonsur á grillið
5 dl rúgmjöl
5 dl hveiti
1 msk. þurrger
'Atsk. salt
2 msk. kúmen
Vidl matarolía
’/idl siróp
3 2/4 dl fingurvolgt vatn, alls ekki
heitara
Setjið öll þurrefni í skál, bræð-
ið sírópið í volgu vatninu og setj-
ið út í ásamt matarolíu. Hnoðið
saman.
Fletjið út um 'A sm þykkt, legg-
ið álpappírbút, skerið ferning,
10x10 sm með kleinuhjóli eða
hnífsegg ekki alveg í gegn. Legg-
ið á álpappír. Látið lyfta sér með-
an grillið er að hitna, í um 15
mínútur.
Bakið á álpappírnum á grillinu
í um 5 mínútur, snúið við á annan
álpappírsbút í aðrar 5 mínútur.
Athugið að tími er breytilegur,
grillin eru mismunandi og veður-
lag okkar hér á íslandi er líka
breytilegt, en það skiptir megin-
máli varðandi tíma.
Brjótið í sundur að bakstri
loknum. Þetta geymist mjúkt og
heitt, ef brauðið er vafið í álpapp-
ír og stykki sett utan um.
ATVINNU A / l(AI YriKlf^AI?
JHk H Hr IW ■THi HfcÉPX \ LÁ vJ7L í \~sll \vJ7/ V#\
Ifl
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Lausar eru til umsóknar stöður leikskóla-
kennara og þroskaþjálfa. Einnig staða mat-
reiðslumanns við nýjan leikskóla, Sólborg
við Vesturhlíð.
Unnið er að því að móta starf, sem kemur
til móts við þarfir fatlaðra og ófatlaðra barna
í sameiginlegu umhverfi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Jónína Kon-
ráðsdóttir, í síma 15380.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Óskum að ráða
sjúkranuddara
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði óskar að
ráða einn sjúkranuddara í fullt starf. Aðeins
löggiltur sjúkranuddari kemur til greina og
æskilegt væri að viðkomandi hefði lært
sogæðanudd.
Þá vill stofnunin ráða sjúkranuddara frá
1. september nk. til 1. janúar.
Þeir, sem áhuga hafa á þessum störfum,
vinsamlega hafi samband við Wolfgang
Roling, yfirmann nudd- og baðdeildar,
f síma 98-30300.
Heilsustofnun NLFÍ.
Organistar
- tónlistarfólk!
Organista vantar í hlutastarf við Blönduós-
kirkju nú þegar eða á komandi hausti.
Til greina kemur, auk organistastarfsins, tón-
menntakennsla, kórstjórn og hljóðfæra-
kennsla.
Umsóknarfrestur er til 12. júlí.
Upplýsingar gefur formaður sóknarnefndar,
Guðmundur Ingi Leifsson, vinnusími
95-24209, heimasími 95-24249.
Fræðslustjóri.
Skólastjórastaða
Bréfaskólinn auglýsir laust til umsóknar starf
skólastjóra, en starfið veitist frá 1. septem-
ber 1994.
Æskilegt er að umsækjandi hafi háskóla-
menntun eða sambærilega menntun, hafi
reynslu í námsgagnagerð, kennslu- og út-
gáfustarfi. Ennfremur þekkingu á fjar-
kennslumálum, stjórnun og rekstri.
Skriflegar umsóknir berist stjórn skólans, þar
sem fram koma upplýsingar um menntun,
aldur og fyrri störf.
Allar umsóknir verður farið með sem trúnað-
armál og öllum svarað.
Nánari upplýsingar veitir formaður skóla-
nefndar, Höröur S. Óskarsson, í síma
91-682929 og skólastjóri, Guðrún Friðgeirs-
dóttir, sími 91-629750.
Umsóknarfrestur er til 22. júlí, en umsóknir
skulu berast til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „Trúnaðarmál - 5678."
Sálfræðingar!
Sálfræðing vantar til starfa á Fræðsluskrif-
stofu Norðurlands vestra á Blönduósi.
Sérmenntun og/eða reynsla á sviði skólasál-
fræði æskileg.
Nánari upplýsingar veitir fræðslustjóri, Guð-
mundur Ingi Leifsson, í símum 95-24369
(skrifstofa) og 95-24249 (heima).
Umsóknarfrestur til 18. júlí.
Fræðslustjóri.
Afgreiðsla
í kjötborði
Skagfirðingabúð á Sauðárkróki óskar eftir
starfskrafti til afleysinga í sumar.
Um er að ræða umsjón með kjötborði
verslunarinnar.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax.
Upplýsingar gefur verslunarstjóri, Ómar
Bragi Stefánsson, í síma 95-35200.
Skagfirðingabúð,
Sauðárkróki.
Hótel- og veitinga-
skóli Islands
óskar eftir að ráða stundakennara.
Kennslugreinar eru:
Franska, stærðfræði, rekstrarfræði, teikning
og leturgerð, veitingasaga, matreiðsla og
framreiðsla.
Umsóknarfrestur er til 6. júlí.
Umsóknum skal skila til skólans.
Frekari upplýsingar veitir skólameistari í síma
91-681420, dagana 23. og 27. júní,
á skrifstofutíma.