Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C
176. TBL. 82. ÁRG.
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
^ Morgunblaðið/Árni Sæberg
A Ströndum
Bandaríkjamenn sakaðir um að standa á bak við andóf í Havana
Kastró hótar að opna
allar flóðgáttir á Kúbu
Havana. Reutei.
„Þjófnaðir
og rán hf.“
BRASILÍSKUR bílaþjófur, Robson
Augusto do Nascimento Araujo, í Sao
Paulo sérhæfði sig í að stela dýrum
BMW-bílum og reyndi ekkert að sigla
undir fölsku flaggi. Hann auglýsti starf
sitt með því að dreifa nafnspjöldum þar
sem hann gaf upp starfsheitið „þjóf-
ur“. Fyrirtækið nefndist „Þjófnaðir og
rán hf.“ við Glæpagötu 666, Þrjótagörð-
um. „Á 12 ára ferli mínum hef ég aldr-
ei kynnst annarri eins ósvífni," sagði
lögreglustjóri Sao Paulo.
Krúnurökuð
í flotaskóla
CITADEL-flotaskólinn bandaríski í
Suður-Karólínu hefur verið skikkaður
til að taka við konu í fyrsta sinn í 162
ára sögu stofnunarinnar. 19 ára stúlka,
Shannon Faulkner, vann mál gegn skól-
anum sem ætlaði að hafna henni vegna
kynferðis. Faulkner fær í sumum efn-
um sérstaka meðhöndlun, þarf t.d. ekki
að ljúka nema 18 armbeygjum á tveim
minútum en ekki 40 beygjum eins og
karlarnir. Hún þarf ekki að sofa í svefn-
skála með hinum nemendunum 2.000,
fær inni í sjúkraskýlinu. Oljóst er hvort
því verður læst að næturlagi. Eitt verð-
ur Faulkner, sem er með sítt, dökkt
hár, þó að sætta sig við: Hún verður
krúnurökuð — ella gæti hún að sögn
lögmanns skólans ekki samlagast öðr-
um nemendum.
Kreppa tær
- og skrökva
KÖNNUN sem gerð var við háskólann
í Utah undir stjórn dr. Charles Honts
hefur valdið efasemdum um áreiðan-
leika lygamæla en lengi hefur verið
vitað að hægt er að beita þá ýmsum
brögðum. 100 manna hópur var látinn
„stela“ verðmætri mynt, síðan fengu
80 þeirra þjálfun I að leika á mælinn.
Samkvæmt gildandi lygamælafræðum
sýnir saklaust fólk streitueinkenni þeg-
ar það svarar stöðluðum gátspurning-
um eins og „Hefurðu nokkurn tíma
skrökvað eftir að þú varðst fullorð-
inn?“ Hont sagði þátttakendum að þeg-
ar gátspurningarnar væru bornar upp
ættu þeir að bíta í tunguna, kreppa
tærnar eða telja aftur á bak í hugan-
um, byija á nógu hárri tölu! Þetta tókst
með ágætum; hálftíma þjálfun nægði
til þess að helmingurinn slapp í gegn.
FIDEL Kastró Kúbuforseti segir að Banda-
ríkjamenn reyni að grafa undan stjórn sinni
með stöðugum undirróðri og hafi stjórnvöld
í Washington stutt „fimmtu herdeild“ er
efni til óeirða í landinu. Að undanförnu
hafa Kúbverjar, sem vilja komast úr landi,
rænt þrem ferjum og á fimmtudag féllu
tveir lögreglumenn í átökum við ferjuræn-
ingja. Kastró segir Bandaríkjastjórn amast
við löglegum innflytjendum frá Kúbu en
nota alla flóttamenn í áróðursskyni. Hann
hótaði á föstudag að opna allt upp á gátt
og leyfa þeim að fara sem vildu en heimildar-
menn telja að þá myndu hundruð þúsunda
manna reyna að komast til Bandaríkjanna.
Átök urðu í höfuðborginni Havana á föstu-
dag, tugir manna köstuðu gijóti í lögreglu
og brutu rúður í verslunum og hóteli. Talið
er víst að óeirðinar tengist feijuránunum.
Árið 1980 leyfði Kúbustjórn skyndilega
um 100.000 manns að fara úr landi og sök-
uðu Bandaríkjamenn Kastró m.a. um að
hafa notað tækifærið til að losna við alla
glæpamenn úr fangelsum og senda þá til
andstæðinga sinna.
Kúbverjum hampað
Hart hefur verið deilt í Bandaríkjunum
undanfarna mánuði um flóttamenn frá Ha-
ítí sem flýja ógnarstjórn og sárafátækt í
landi sínu en þeim er að jafnaði snúið við
reyni þeir að komast inn í landið. Vegna
áhrifa samtaka kúbverskra innflytjenda í
Bandaríkjunum fá allir flóttamenn frá Kúbu
hins vegar búsetuleyfi en Kastró segir að
Bandaríkjastjórn notfæri sér flóttafólkið til
að reka áróður gegn kommúnistastjórninni
í Havana. „Það skiptir þá engu máli þótt
fólk ræni flugvél, bát eða fleka, þótt fólk
drukkni, það sem skiptir þá máli er áróður-
inn,“ sagði Kastró á fundi með fréttamönn-
um í sjónvarpi.
Efnahagsþrengingat' í kjölfar hruns
Sovétríkjanna, bakhjarls Kastrós, sverfa æ
meir að almenningi og viðskiptabann Banda-
ríkjanna, sem staðið hefur í meira en þtjá
áratugi, bætir ekki úr skák. Borið hefur á
hörgulsjúkdómum á'eyjunni og skortur er
á ýmsum brýnum nauðsynjum. Flóttamönn-
um hefur því ijölgað verulega síðustu árin.
í sl. mánuði sökk dráttarbátur, sem flótta-
menn höfðu rænt, eftir árekstur við gæslu-
skip og drukknuðu 32. Stjórnvöld segja að
um slys hafi verið að ræða en ekki ásetning
en Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði at-
burðinn dæmi um „fantaskap" Kúbustjórn-
ar.
Stríðsárasafn
á Reyðarfirði
Hulunni
svipt aff yfirborði
Mars
16
VIÐSKIPTI/AT VINNULÍF
BETRA SEINT
ENALDREI i s
Fjársfóöur
Islands