Morgunblaðið - 07.08.1994, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 07.08.1994, Qupperneq 6
6 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Skuldir Svía aukast með ógnarhraða baksvið Ríkisfjármálin eru mál málanna í Svíþjóð í dag segir Steingrímur Sigurgeirsson en kosningar verða haldnar í Svíþjóð í næsta mánuði. Þrátt fyrir að stjómin hafí skorið niður meira en hún ætlaði sér í upphafi Iqortímabils nægir það ekki til. Sænska kerfíð virðist stefna í þrot. URBAN Backström seðlabankasfjóri og Ann Wibble fjármála- ráðherra sitja fyrir svörum I þinginu. Miklar vaxtahækkanir og ör skuldasöfnun ríkisins eru það sem mest er um rætt í Svíþjóð fyrir kosningarnar í næsta mánuði. Þrátt fyrir töluverðan hagvöxt og mikinn útflutning ein- kennist efnahagsmálaumræðan af neikvæðni og áhyggjum varð- andi framtíðina. Nær allir stjóm- málamenn eru sammála um að stórhættulegt væri að auka ríkis- útgjöld frá því sem nú er og þora því ekki að gefa út nein kosninga- loforð. Kosningarnar munu ekki snúast um það hvort skera beri niður heldur væntanlega öðru fremur um það hveijir eigi að axla byrðarnar. Helsta hættumerkið í sænsku efnahagslífi er hversu opinberar skuldir aukast gífurlega hratt. Skuldir sænska ríkisins nema um þessar mundir um 1.300 milljörð- um króna (sem samsvarar tæp- lega 12 þúsund milljörðum ís- lenskra króna) og áætlaður fjár- lagahalli þessa árs er um 160 milljarðar. Þegar allt hefur verið týnt til er því búist við að lánsfjár- þörf sænska ríkisins verði 206 milljarðar á þessu fjárlagaári. Á síðasta ári nam fjárlagahallinn 193 milljörðum eða um 13% af þjóðarframleiðslu. Heildarskuldir hins opinbera nema nú rúmlega 80% af þjóðarframleiðslu og búist er við að þær fari yfir 100% mark- ið á næsta ári. Þetta hrikalega ástand ríkis- fjármála Ieiddi til þess fyrr í sum- ar að margir stórir fjárfestar, með Bjöm Wolrath, forstjóra Skandia, í broddi fylkingar, byijuðu að sniðganga ríkisskuldabréf með þeim afleiðingum að vextir hækk- uðu verulega og hafa haldist háir. Skuldbindingar umfram afkastagetu Urban Báckström, seðlabanka- stjóri Svíþjóðar, greindi í síðasta mánuði fjárlaganefnd sænska þingsins frá stöðu efnahagsmála. Hann var ómyrkur í máli. Ef gengið væri út frá þeirri forsendu að vaxtastigið héldist óbreytt frá því sem nú er myndi hagvöxtur á næsta ári verða tæplega tvö pró- sent í stað þriggja prósenta, líkt og spáð hefur verið til þessa. Ári síðar yrði hagvöxtur kominn niður í rétt rúmlega eitt prósent. At- vinnuleysi myndi aukast verulega og skatttekjur ríkisins dragast saman með þeim afleiðingum að staða ríkissjóðs myndi versna um tugi milljarða sænskra króna á ári. Lagði hann ríka áherslu á nauð- syn þess að ríkisútgjöld yrðu skor- in verulega niður. Vaxtakreppuna sagði hann að mestu heimatilbúna og eina leiðin til að lækka lang- tímavexti væri að koma ríkisfjár- málunum í betra horf. Markmiðið væri jöfnuður í ríkisfjármálum og því markmiði bæri að ná fyrst og fremst með niðurskurði en ekki skattahækkunum. „Skuldbinding- ar hins opinbera hafa einfaldlega verið of umfangsmiklar miðað við hverju efnahagslífið getur staðið undir,“ sagði Báckström. Vextir haldast háir Anne Wibble fjármálaráðherra sat einnig fyrir svörum hjá nefnd- inni og tók í svipaðan streng og seðlabankastjórinn. Hún sagði að það versta sem gæti gerst væri að vextir héldust háir út allt næsta ár. Þá myndi draga úr fjárfesting- um, húsbyggingum, einkaneyslu og í raun þjóðarframleiðslunni í heild sinni. Ef hagvöxtur yrði pró- sentustigi lægri en áætlað er myndu skatttekjur dragast saman og útgjöld vegna atvinnuleysis- bóta aukast um allt að tólf millj- arða króna. Þá myndu háir vextir auka greiðslubyrði ríkisins af lán- um um aðra tólf milljarða. Jafn- vel þó að vextir myndu byija að lækka þegar í haust myndu vaxta- hækkanirnar í vor og sumar hafa slæm áhrif á afkomu ríkissjóðs, sagði Wibble. Ríkisstjórnin hefur fylgt strangri aðhaldsstefnu allt kjör- tímabilið og ríkisútgjöld verið skorin töluvert niður, raunar meira en stjórnin ætlaði sér í upphafi kjörtímabils. Haustið 1992 náðist þar að auki þverpóli- tísk samstaða um verulegan niðurskurð á mörgum sviðum, t.d. varðandi lífeyrisskuldbind- ingar. Nú er aftur á móti komið í ljós að allar aðgerðir til þessa duga skammt. Hefur jafnvel ver- ið bent á að þótt allar niðurskurð- artillögur stjórnarinnar (sem ganga undir nafninu Nathalie- áætlunin) myndu ná fram að ganga næmi fjárlagahallinn rúm- lega níu prósentum af þjóðar- framleiðslu út öldina, ef hagvöxt- ur á sama tíma væri 2%. Hátekju- og fjármagnsskattur Carl Bildt forsætisráðherra óskaði fyrir skömmu eftir því við Ingvar Carlsson, formann Jafnað- armannaflokksins og fyrrum for- sætisráðherra, að þeir myndu gefa út sameiginlega viljayfirlýsingu um ríkisfjármálin. Þetta boð var sett fram með óformlegum hætti á bak við tjöldin en Carlsson gerði það opinbert og sagðist hafna samstarfi við hægrimenn. Jafnað- armenn hafa raunar gefið út nokkuð misvísandi yfirlýsingar um ríkisfjánnálin. Göran Persson, talsmaður þeirra í ríkisfjármálum og fjármálaráðherraefni, boðaði þannig að jafnaðarmenn myndu leggja fram tillögur í ríkisfjármár- um þann 19. ágúst en þá verður kosningastefnuskrá þeirra gefin út. Carlsson lýsti því hins vegar yfir skömmu síðar að engin þörf væri á slíku. Tillögur flokksins til þessa nægðu til að koma Svíþjóð út úr kreppunni. Hafa jafnaðar- menn m.a. lagt til 20 milljarða króna „örvunaraðgerðir" sem myndu að þeirra mati skapa 90 þúsund ný atvinnutækifæri og þar með draga úr fjárlagahallanum. Þá hafa þeir lagt til minniháttar niðurskurð í varnar- og landbún- aðarmálum. Jafnaðarmenn virðast einnig ætla að heyja kosningabaráttu sína á þeim nótum að „fjármagns- eigendur“ og hinir betur stæðu eigi að bera hitann og þungann af því að ljármagna ríkissjóðshall- ann. Þeir hafa boðað hátekjuskatt á tekjur yfir 200 þúsund krónur á ári (um tvær milljónir íslenskra króna) og hækkun fjármagns- skatta. Ekki „breiðu bökin“ Það er þó fátt sem bendir til að það verði í raun „breiðu bökin“ sem beri byrðarnar, ef þessar til- lögur verða framkvæmdar. Anita Lignell Du Rietz, við þjóðhag- fræðideild Handelshögskolan í Stokkhólmi, ritaði fyrir skömmu grein í dagblaðið Dagens Nyhet- er, sem vakti mikla athygli í Sví- þjóð. Þar færir hún rök fyrir því að tillögur jafnaðarmanna muni gera það að verkum að kaupgeta meðallaunamanns í Stokkhólmi, með um 160 þúsund króna árs- tekjur, muni minnka um 15.600 krónur. Ef um hjón með svipaðar tekjur væri að ræða myndi kaup- geta fjölskyldunnar minnka sam- tals um 30 þúsund krónur á ári. Að hennar mati er það „tómt tal“ að það verði hátekjumenn, sem muni þurfa að taka á sig skattahækkanir. Heildartekjur þeirra, sem hafa yfir 200 þúsund króna árstekjur, nemi einungis 80 milljörðum króna og þar af renna nú þegar 50 milljarðar í ríkissjóð gegnum beina og óbeina skatta. Jafnvel þó að þeir 30 millj- arðar, sem eftir eru, yrðu skattað- ir upp til agna myndu þeir ekki duga til að loka fjárlagagatinu. Því hljóti skattahækkanirnar að bitna á þeim, sem eru með með- al- og lágar tekjur. Saka jafnaðarmenn um tvískinnung Hægrimenn saka jafnaðar- menn um tvískinnung í ríkisfjár- ' málum og segja þá ekkert nýtt hafa til málanna að leggja. Bildt segir í nýlegri blaðagrein að það séu jafnaðarmenn sem beri ábyrgð á útþenslu hins opinbera og skattahækkunum frá því eftir stríð, sem dregið hafi allan kraft úr sænsku efnahagslífi. Sakar hann jafnaðarmenn um að vera enn fasta í hugmyndafræði fortíð- arinnar, sparnaðartillögur þeirra séu neyðarlegar og í raun boði þeir ekkert annað en gamaldags útþenslustefnu og skattahækkan- ir. Porystumenn í sænsku atvinnu- lífi hafa hins vegar kvartað yfir því að ríkisstjórnarflokkarnir hafi ekki lagt fram neinar haldbærar tillögur sjálfir í ríkisfjármálum. Einungis Þjóðarflokkurinn (flokk- ur Wibble fjármálaráðherra) hefur útfært slíkar tillögur og hafa þær verið gagnrýndar fyrir að byggj- ast fyrst og fremst á skattahækk- unum. I ræðu á kosningafundi um síð- ustu helgi sagði Bildt að til að koma böndum á ríkisútgjöldin fyr- ir árið 1998 yrði að styrkja fjár- lögin um 5-15 milljarða til viðbót- ar við Nathalie-áætlunina. Kynnti hann sjálfur tillögur sem hann taldi að myndu þýða 30-40 millj- arða sparnað. Meðal þess sem hann lagði til var að afnema blaðastyrki með öllu og skera nið- ur framlög til stjórnmálaflokka um helming. Það væri að hans mati skynsamlegra en niðurskurð- ur í varnar- eða menntamálum. Þá reifaði hann breytingar á regl- um um lífeyrisgreiðslur fyrir tím- ann og ýmsum öðrum bótum (s.s. barnabótum þeirra tekjuhæstu), sem myndu spara allt að 20 millj- arða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.