Morgunblaðið - 07.08.1994, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
i
I
I
I
)
I
)
I
í
I
í
►
I
>
i
i
i
I
b
Ofbeldi og einræði
HERMAÐUR fylgir Luc Desire, fyrrum yfirmanni öryggislög-
reglunnar, Tontons Macoutes, eftir að hann var handtekinn í
höfuðborginni, Port Au Prince. Öryggislögreglan laut stjórn
Duvalier-feðganna, einræðisherra sem ríktu á Haítí í um 30 ár.
komið er hann lýsti yfir því að
borgarastéttin samanstæði af óseðj-
andi hundum sem hver héldi sína
leið án tillits til annarra. Áður hafði
hann fordæmt „manninn í Róm“ og
lýst þeirri skoðun sinni að valdakerf-
ið innan kaþólsku kirkjunnar væri
gjörspillt: „Þeir bentu á syndarana,
á fátæku ræflana sem stálu sér til
matar eða voru mökum sínum ótrú-
ir en kusu að leiða hjá sér heildar-
skipulag spiilingarinnar. Þeir upp-
hófu hið smáa og gerðu bandalag
við djöfulinn." Yfirboðarar Aristide
sendu hann í þriggja ára „endurhæf-
ingu“ til Kanada eftir þetta.
Þessi herför í nafni
kærleika og mann-
úöar breyttist í
martröð, sem
bandaríska þjóðin
vill ekki endurtaka
Artistide hefur ævinlega neitað
að kannast við hann sé haldinn per-
sónulegum metnaði. Hann kveðst
vera verkfæri fólksins og sam-
þykkti á þeim forsendum að bjóða
sig fram í forsetakosningunum. Eft-
ir að honum var steypt af stóli virð-
ist hann þó einkum hafa beint kröft-
um sínum að því að komast á ný
til valda. Hann hefur dvalist í
Bandaríkjunum og einkum reynt að
höfða til áhrifamanna á vinstri
vængnum og í röðum bandarískra
blökkumanna. Clinton-stjórnin, sem
ekki hefur þótt sýna sannfærandi
framgöngu á vettvangi utanríkis-
mála, hefur nú látið undan þrýstingi
þessara afla.
Aristide hefur af einhveijum
ástæðum ekki viljað hvetja alþýðu
manna á Haítí til að rísa upp gegn
herforingjastjórninni sem styðst ein-
göngu við um 7.000 manna liðsafla.
Hann hefur ýmist hvatt til innrásar
eða fordæmt öll slík áform. Hefur
þetta orðið til að styrkja þá skoðun
margra að hann sé ekki með öllum
mjalla.
Á meðan Jean-Bertrand Aristide
unir sér við gítarleik og ljóðagerð í
íbúð sinni í Washington D.C. logar
allt í deilum innan höfuðborgarinnar
vegna þeirra stefnu sem Clinton
forseti hefur mótað gagnvart Haítí.
Þingheimur hefur lýst yfír því að
forsetinn geti ekki fyrirskipað hern-
aðaraðgerðir án þess að fyrir liggi
samþykki þings og þjóðar. Þetta
deilumál hefur jafnan komið upp
þegar forseti Bandaríkjanna hefur
hótað aðgerðum í krafti þess að
nann er æðsti yfirmaður heraflans
og kom ekki í veg fyrir herferðir
þeirra Reagans og Bush. Almenn-
ingur fær ekki skilið hvers vegna
beita á herafla landsins, ef nauðsyn
krefur, til að koma á lýðræði í ná-
lægu smáríki og hið sama gildir
almennt um þingmenn. Deilur eru
uppi innan sjálfrar ríkisstjórnarinn-
ar.
Hvernig snertir ástandið á Haítí
hagsmuni Bandaríkjanna? Sjálfur
sagði Clinton á miðvikudagskvöld
að hagsmunir Bandaríkjannan fæl-
ust í því að þúsundir Bandaríkja-
manna væru búsettar á Haítí. Um
ein milljón manna frá Haítí byggi í
Bandaríkjunum og það snerti við-
skiptahagsmuni Bandaríkjanna að
tryggja að lýðræði, friður og stöð-
ugleiki ríkti í þessum heimshluta.
Margir urðu til að gagnrýna þessa
skilgreiningu forsetans og benda
má á að hún gæti átt við flest ríki
heims. Að auki hefur dregið mjög
úr flóttamannastraumnum frá Haítí
til Bandaríkjanna að undanförnu.
Afstaða forseta Bandaríkjanna
hefur einnig verið á reiki í þessu
máli sem svo mörgum öðrum. í
kosningabaráttunni hét Clinton því
að opna Bandaríkin fyrir flótta-
mönnum frá Haítí þar til lýðræði
hefði verið komið á. Þessa stefnu
sína, sem flestum þótti strax í upp-
hafí fráleit, neyddist forsetinn síðar
til að afturkalla. Aukin harka tók
þess í stað að einkenna málflutning
hans og nú krefjast bandarísk
stjórnvöld þess ekki einungis að
herforingjamir á Haítí gefist upp.
Þeir munu ennfremur þurfa að fara
úr landi.
Clinton í klemmu
Þótt unnt kunni að reynast að
færa rök fyrir slíkum skilgreining-
um á hagsmunum verður ekki betur
séð en að Bill Clinton sé kominn í
nokkurn vanda vegna herskárra
yfirlýsinga sinna um að lýðræði
verði innleitt á ný á Haítí. Þegar
til lengri tíma er litið grefur það
undan þeirri yfirburðastöðu sem
Bandaríkjamenn hafa notið á vett-
vangi alþjóðamála reynist forsetinn
ekki tilbúinn til að standa við yfírlýs-
ingar sínar. Bandaríska utanrík-
isstefnu er ekki unnt að reka í krafti
marklausra hótana. Vera kann að
hótanimar dugi og herforingjarnir
gefíst upp en ekki þykir sæmandi
að taka slíka áhættu. Þá þykja hern-
aðaráformin ýmist óljós eða van-
hugsuð. Spurt er hvernig afla beri
stuðnings við þau, hvernig setja eigi
saman alþjóðlegt gæslulið eftir
bandaríska innrás og hversu lengi
erlendar sveitir skuli halda til í land-
inu.
Vinsældir forsetans em í lág-
marki, þingheimur er í óða önn við
að tæta í sig frumvarp Clintons um
endurbætur á heilbrigðiskerfinu,
forsetinn sætir linnulausum per-
sónulegum árásum og flokkur hans
mun að öllu óbreyttu verða fyrir
verulegu áfalli í þingkosningunum
í haust og jafnvel tapa meirihluta
sínum í öldungadeildinni. Verulegar
efasemdir hafa nú þegar vaknað
vestra um að Clinton verði endur-
kjörinn 1996. Ætli forsetinn sér að
leiða athygli almennings frá þeim
erfiðleikum sem hijá hann með því
að láta til skarar skríða gegn rib-
böldum í smáríki, sem á sér enga
lýðræðishefð, mun það ekki takast.
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 13
| Pulihoinlega frjáls \
M eð Freeway 450 frá simonsen
Uóiastói vasaiais\m\ qq
bWas\m tyrá \s\ensV.a
\a\s'\n\aV,eráó lýMT 4B0\
Sterá\i\,\óWut og
rá\o<5 meóiæráeijut
\ Ua\Q« \\æq\\eQu e\<j\ráe\Va\
\ Uq\sV,V\ó\\\\u\\oq
\ - úapönsV, gæóa \\am\e\ós\a
\ Y'jwráuþfet V,QS\\wa
Síöumúla 37 - 108 Reykjavík
S. 91-687570 - Fax.91-687447
NYR
LADfl
Með þessum nýja Lada
Sport færöu kærkomió
tækifæri til að’eignast
kraftmikinn og góöan bíl
sem hefur alla buröi á vió
margfalt dýrari jeppa.
Bíllinn er þægilegur í
akstri. meö rúmgóöu
farangursrými og í alla
staði mun betur útbúinn
en áöur.
Littu á Lada Sport áöur én
þú heldur lengra.
Það borgar sig...
... í beinhörðum peningum.
SPORT
Öflugri og
betur útbúinn
Stærra og aógengilegra
farangursrými
Ný og kraftmeiri 1700 cc ué!
Betri sæti • meó ullaráklæói
Ný og breytt innrétting
Léttara stýri
<
<
<
<
<
4*
,s\\ng
by99a*hyg^
,40
Aukabunaöur a mynd: altelgur og toppgrind
ASMÚLR 13 • SÍMl: 68 12 00 • BEINN SfMI: 3 12 36