Morgunblaðið - 07.08.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
Hvar verður
stríðsárasafnið?
STRÍÐSÁRASAFNIÐ verður í
gömlum kampi ofan við Reyðar-
fjörð. Á svæðinu er stórt hús sem
byggt var löngu eftir stríð sem
frystihús og nokkrir braggar, sem
Bandaríkjamenn reistu árið 1943
og hugðust nota sem hersjúkra-
hús, en var aldrei tekið í notkun.
Stefnan er sú að yfirlitssýning
verði í gamla frystihúsinu en í
bröggum verði striðsárakaffihús,
jafnvel gistiaðstaða eða sýning á
aðbúnaði hermanna. Einn braggi
gæti hýst farartæki og lóðin yrði
notuð fyrir stærri minjar.
Menn velta fyrir sér af hverju
þetta mikla sjúkrahús var reist
þegar farið var að halla á óvinina
og allt útlit fyrir að stríðinu færi
að ljúka. Að sögn þjóðfræðinem-
anna Jóns Jónssonar og Valdi-
mars Tr. Hafstein eru uppi hug-
myndir um að þessu sjúkrahúsi
ásamt því á Seyðisfirði hafi verið
ætlað að taka við mönnum frá
Noregi, þ.e.a.s. innrásinni í Nor-
egi sem aldrei varð.
Reyðarfjörður var á stríðsár-
unum aðalbækistöð landhersins á
Austurlandi. í kauptúninu og
umhverfi þess höfðu hersveitir
margra þjóða aðsetur. Þar voru
allt í senn Bretar, Bandaríkja-
menn, Kanadamenn og flugsveit
Norðmanna, auk „íslenska setul-
iðsins“ sem svo var nefnt, en það
voru menn sem flykktust hvað-
anæva að í setuliðsvinnuna.
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 15
BBSBBBB
Glæsilegar og vandaðar
þvottavelar á góðu verði.
Fagor þvottavélar hafa sannað ágæti sitt hérlendis sem og
víðar í Evrópu. Fjöldi ánægðra viðskiptavina er
okkar besta viðurkenning.
FE-54 39.900 kr. stgr.
FE-83 48.900 kr. stgr.
Munalán, Visa og Euro-raðgreíðslur
RONNING
BORGARTÚNI 24
SfMI 68 58 68
l’VOTTAVKl.AR ÚPPÞVOTTAVÉLAR Hl.DUNARTÆKI KÆLISKÁl’ÁR S.IÓNVÖR1’ MYNDBANDSTÆKl
SENNILEGA er myndin af breskum hermanni sem hét Ernest.
Hann var einn af þeim níu hermönnum sem urðu úti í vonsku
veðri á heræfingu á Eskifjarðarheiði í janúar 1942. Myndin er
tekin á Seyðisfirði og er í eigu Kristins Ásgeirssonar.
að sprengja hana þannig að hún lít-
ur úr eins og heil.“
— Nú eru þið fæddir löngu eftir
stríð. Hvernig er tiifinning ykkar
gagnvart þessum tíma?
„Það hefur verið mjög gaman að
skoða stríðsárin, sem voru auðvitað
tími geysilegra breytinga. Við fórum
nánast frá steinöld yfir í tækniöld á
þessum tíma. Það er raunar stór-
merkilegt að hér hafi verið stofnað
lýðveldi í hers höndum," segir Valdi-
mar.
„Vinnan við þetta verkefni hefur
verið mikil upplifun fyrir menn eins
og okkur sem höfðum nánast enga
hugmynd um þennan tíma. Mér
finnst tilfinningin vera fyrst og
fremst „blessað stríðið", því hér var
aldrei stríð einungis her. Að frátöld-
um þeim hörmungum þegar skip
voru skotin niður virðist þetta hafa
verið skemmtilegur tími fyrir íslend-
inga. Árekstrar milli herliðs og ís-
lendinga voru fátíðir úti á landi, hins
vegar voru þeir meiri á höfuðborgar-
svæðinu."
Húsnæði ekki frágengið
Að sögn ísaks Ólafssonar sveitar-
stjóra hefur ekki enn verið gengið
frá kaupum á því húsnæði í kampin-
um sem er ekki fyrir í eigu bæjarfé-
lagsins. „Það liggja fyrir ákveðnar
tillögur frá vinnuhópnum um hvern-
ig safnið eigi að líta út og hvernig
verði staðið að framkvæmdum á
næstunni. Hvort tveggja er til um-
fjöllunar hjá sveitarstjórninni núna.“
— Telst ekki mikil bjartsýni að
ætla að opna safnið næsta sumar
þar sem framkvæmdir við húsnæði
eru ekki ejnu sinni hafnar?
„Jú, jú, það er þessi venjulega
íslenska bjartsýni," svarar ísak.
„Húsnæðið er í þokkalegu ástandi
og það er aldrei svo að svona safn
sé opnað fullbúið. Það verður tekið
í notkun í áföngum á einhveiju ára-
bili. í gamla húsinu ofan við bragg-
ana er t.d. vinnslusalur sem hægt
verður að setja í stand sem sýningar-
sal með tiltölulega litlum tilkostn-
aði. Hins vegar mun það ekki koma
í ljós fyrr en um áramót hvort tíma-
setningar standast."
— Hvernig er rekstur safnsins
hugsaður?.
„Safnið verður væntanlega rekið
sem sjálfseignarstofnun sem hafi þó
fast framlag frá sveitarfélaginu á
hveiju ári. Að öðru leyti er stefnt
að því að fá safnið viðurkennt af
Þjóðminjaráði, sem þýðir að ríkið
muni greiða hálf laun safnvarðar.
Að vísu hefur hið opinbera verið
fremur tregt til þessa og má því
kannski segja að mikil bjartsýni ríki
hjá okkur varðandi rekstur safnsins.
Hins vegar verður væntanlega leitað
til innlendra og erlendra aðila um
styrki. Verði safnið gott og fjölsótt
koma inn tekjur af aðgangseyri, en
einnig með sölu bæklinga, minja-
gripa og rekstri kaffihússins," segir
Isak.
Nemendavinna og
fræðimannaíbúð
í tillögum vinnuhópsins kemur
einnig fram að hugmyndin sé að
bjóða nemendum á Austurlandi upp
á aðstöðu til að vinna verkefni í
tengslum við nám í sögu og sam-
félgsfræðum. Jafnvel sé í athugun
að koma síðar meir upp fræðimanna-
íbúð í tengslum við safnið.
„Okkur hefur fundist einstaklega
gaman að fá tæki til að vinna að
þessum málum. Við teljum þetta
gott framtak hjá Reyðfirðingum og
sveitarfélaginu til sóma. Ef vel verð-
ur staðið að málum hefur stórhugur-
inn alla burði til að breytast í rismik-
ið safn sem verður skemmtilegt að
sækja heim. Safnið er líka ómetan-
legt framlag til varðveislu á íslenskri
menningarsögu og ætti að verða stolt
allra bæjarbúa,“ voru lokaorð þeirra
Jóns og Valdimars þegar við höfðum
gengið um kampinn og þeir útskýrt
uppbyggingu safnsins.
iópferð 28. október - 12. nóvember, 16 dagar
Ferðatilhögun: Flogið til Fort Lauderdale 28. október og
gist 2 nætur í Fort Lauderdale. 30 október verður lagt í 7
daga siglingu frá Miami um Karíbahaf. Við-komustaðir
eru Playa Del Garmel og Cozumel í Mexíkó, Montego
Bay a Jamaica og Grand Cayman. Komið er til Miami
6. nóvember. Gist verður í 6 nætur á hinu glæsilega
svítuhóteli, Guest Quarters í Fort Lauderdale. Flogið
verður til Keflavíkur 12. nóvember.
Verð kr. 8U. 700\
miðað við 2 fullorðna og 2 börn (2-16 ára).
Kr. 129.400
Innifalið: Flug, gisting, 7 daga sigling með fullu fæði,
flugvallaskattar, hafnarskattar, þjórfé um borð, akstur
til og frá flugvelli og skipi, fararstjóri.
á mann í tvíbýli,
Okkar vinsæla
verksmiðju-útsala
heldur áfram!
Herraföt frá kr. 9.900,-
Stakir herrajakkar frá kr. 6.900,-
Stakar herrabuxur frá kr. 2.900,-
Flauelsbuxur frá kr. 3.500,-
Dömujakkar frá kr. 6.900,-
Dömubuxur, fínni frá kr. 2.900,-
Dömupils___________frá kr. 2.900,-
Einnig innfluttur fatnaður
á kostnaðarverði.
Gallabuxur, úlpur, regnjakkar,
regnbuxur, herraskyrtur, peysur
o.m.fl.
NYBYLAVEGUR
DALBREKKA
Toyota
AUÐBREKKA
SAUMASTOFA-HEILDVERSLUN
nd/l/RÁd/iii« riAsbiMi
Opið mánud. - föstud. kl. 9-18,
lauaard. frá kl. 10-14.