Morgunblaðið - 07.08.1994, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 19
keppnisaðila á heimaslóðunum
sjálfum. Já, það er vikurvinnsla í
Þýskalandi. Fyrir mörg þúsund
árum voru þar einnig mikil vikur-
gos. Þá er auk þess á markaðnum
vikur frá Ítalíu, Grikklandi, Tyrk-
landi og Azoreyjum. Og þá er ótal-
in samkeppnin frá öðrum einangr-
Fyrirtækid Jarðefnaiðnadur hf. var
stofnað árið 1976. Það er í eigu
sveitarfélaga á Suðurlandi og 280
einstaklinga, sem flestir eru einnig
búsettir á Suðurlandi.
an og vestan Þjórsár. Vikurinn er
úr gosi sem varð fyrir 2.800 árum
og úr gosi sem varð fyrir 4.000
árum. Það er all nokkur aukning á
vinnslu væntanleg og meginregla
okkar og skylda er að ganga vel
um námurnar. Vinna í þeim skipu-
lega til þess að nýta vikurinn sem
best. Til þess að hann endist sem
lengst. Rannsóknir sýna að við er-
um að vinna úr námum sem hafa
að geyma um 28 milljónir rúm-
metra af vikri. Það ætti að eridast
okkur í allmörg ár,“ svarar Árni.
Þú talar um að ganga vel um
námurnar. Hvernig lítur landið út
þar sem búið er að taka vikurinn.
Sviðin jörð?
„Nei, nei, ekki sviðin jörð. Það
er að vísu aldrei hægt að slétta
alveg út þar sem búið er að taka
mikið magn af jarðefnum. En við
þurfum alls staðar að byija á því
að ýta ofanálagi í burtu. Þegar við
erum búnir að ná vikrinum, ýtum
við ofanálaginu aftur yfir og slétt-
um það út eins og frekast er kost-
ur. Það er ekki um neinar gróður-
skemmdir að ræða, einfaldlega
vegna þess að námurnar eru á nán-
ast gróðurlausum auðnum. Það hef-
ur komið upp sú umræða að sá í
landið, en við teljum það ekki snið-
ugt. Þá myndi gróðurinn breiðast
þar út og þá væri fyrst hægt að
tala um gróðurskemmdir. Vikurinn
yrði heldur ekki eins góður, t.d. til
ræktunar, því jarðvegur og fræ
myndu blandast við hann. Og svona
þar fyrir utan, þá er landið á þess-
um slóðum dökkt og gróðurlaust.
Mér finnst það fallegt þannig og
við skiljum við það í sinni uppruna-
legu mynd.“
Að halda sínu striki
Hvernig tilfinning er það að hafa
staðið af sér svo langan og erfiðan
storm og sigla nú lygnan sjó?
„Það þarf ekki að hafa mörg orð
um það. Það er frábær tilfinning.
Fyrirtækið hefur siglt út úr skulda-
súpu og eigendur þess geta nú horft
fram á bjartari tíma. Þessu má
þakka fyrst og fremst óbilandi
þrautseigju ýmissra stjórnarmanna
sem hafa látið tíma sinn og peninga
renna endalaust í verkið. Gengið í
persónulegar ábyrgðir. Einnig elju
sveitarfélaganna að gefast ekki
upp. Þetta fyrirtæki hefur oft verið
nærri því að stranda fyrir fullt og
allt, en alltaf hafa menn barist
áfram fullir bjartsýni. Nú nýtur
fyrirtækið þess og það er góð til-
finning.
Og það er í rauninni aðdáunar-
vert hvernig menn hafa haldið festu
sinni þegar dæminu er skipt upp
og skoðað nánar. Það er 210 kíló-
metra hringur sem ekinn er til að
sækja vikurinn og færa hann þang-
að sem hann er sigtaður, malaður
og þveginn. Því næst er siglt með
hann til Rotterdam eða Dordrecht
í Hollandi, 1.100 sjómílur. Þar er
vikurinn umskipaður, settur í
smærri fljótabáta sem fara með
hann inn í Evrópu og mitt Þýska-
land. Þar sigla skipin m.a. fram hjá
vikurnámum og verksmiðjum sam-
andi byggingarefnum! Að beijast
áfram við þessar kringumstæður
og standa svo í þeim sporum sem
við stöndum í dag hlýtur að vera
lítið kraftaverk," segir Árni.
Sérðu þig í sömu sporum eftir
tíu ár?
„Ég vil ekkert um það segja. Ég
er bara framkvæmdastjóri. Bara
skrifstofublók. Hvað ég verð og
hvar eftir áratug verður tíminn
bara að leiða í ljós.“
En svona í lokin, er ekki rétt að
álykta að þú hafir verið sjaldséður
sem hvítur hrafn á heimilinu síð-
ustu árin á meðan orrustan stóð
yfir?
„Það má segja að það sé ekki
ofsögum sagt. Það er slæmt, vegna
þess að ég nýt þess að veija tíma
með Brynju konu minm og drengj-
unum okkar þremur. Ég hef líka
ótai áhugamál sem hafa orðið að
víkja. Ég er til dæmis með mikla
veiðidellu, en hef lært að láta mér
nægja að horfa á aðra, fylgjast með
fréttum og rifla upp liðna daga. Ég
er líka mikill áhugamaður um ljós-
myndun, en hún kostar mikinn tíma
sem er ekki til. Lögfræði er einnig
mikið áhugamál og ég reyni að grípa
í bækurnar af og til. Hér áður var
ég einnig í handknattleik, en er
löngu steinhættur því. Reyndi að
vísu að byija aftur í fyrra, mætti
þá á æfíngu , en það lá við að þyrfti
að bera mig heim aftur. Kannski
að það rofi eitthvað til í þessum
málum nú þegar betur horfir fyrir
fyrirtækið en nokkru sinni fyrr?“
Haföu samband viö sölusknfstoiiir okkíir,
umboðsmcnn um allt land, ferðaskrtfstoíumar
cða í síma 690300 (svarað mánud-föstud. frá kL 8-19
ogálaugaríLírákl. 8-16).
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
NÝKOMIN MJÖO VÖNDUÐ,
OEONHEIL REYRHÚSCÖCN
Á FRÁBÆRU VERÐI.
Verð: 3ja sæta sófi
2ja sæta sófi
stóll
sófaborð
sófasett, 3+1+1
kr. 39.000,- stgr.
kr. 26.000,- stgr.
kr. 15.000,- stgr.
kr. 9.600,- stgr.
kr. 69.000,- stgr.
Valhusgögn Ármúla 8, símar 812275 og 685375 "jrt*
Fararttjóri Fluýleióa
Glasgowbýðurgestum sínumgóð imikaup, skemmtun og
aflireyingu, gróskumikið lista- og menningarlíf og að auki
nálægð við stórbroma náttúrufegurð Skotlands.
IPHpl
Okkar vinsæii fararstjóri, Anna Þorgrímsdóttir, tekur á móti farþegum
á flugvelli, íylgir þeim á hótel, skipuleggur íjölbrcyttar skoðunarferðir,
verður farþegum tii aðstoðar og fylgir þeim út á flugvöll við brottför.
Brottfarardagar
Ágúst-tilboð
5% afsláttur efgengið erfrá greiðslu fyrir 1. september.
Á þiiðju- og togardögum. í okt. og nóv. er einnig flug á
fimmtu-og sunnudtigimi.
Heimkotnudagan Áþriðju- og kiugaidögum. I okt. og nóv. cr
einnig hefmkoma á Dmmm- og sunnudögum.
Llgnwiksdvöler 1 nótt()gliámaik.sdvöler7nænir.
Hópaisláttur
2.000 kr. afsláttur á mann ef 20 eða fleiri ferðast saman. 40.000 kr.
sparnaður fyrir 20 manna hóp.
O Textavarp
Nánari upplýsingar á bls. 670 í textavarpi.
Meðal mjöggóðra hótela sem
Flugleiðir bjóða gistingu á í Glasgow
má nefiia Glasgow Hilton, Hospitaiity Inn,
Hie Copthome og Glasgow Marriott
Böm 2ja -11 ára fá 10.000 kr. afsLátt
Gildirfrá 15. september til 31. mats.
Innifalið: Flug, gisting, nioigunveröur og ílugvallarekattar.
Bókunarfyrirvari er enginn. Verð miðast viðgengi 22. júlí 1994.
* 10£flugvallarskatturbætistviðGl:isgowfrá l.nóvcmber.
Ven)flá28.700kr.
ámann
í tvíbvli
í 3 nætur á Hotel Hospitality Inn
Haust-vetur
94/95.