Morgunblaðið - 07.08.1994, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 25
SKOÐUN
SKOÐANAKÖNNUN
TÖLVUMYND af nýja Hæstaréttarhúsinu. Myndin er villandi að því leyti að á hana vantar aðalinn-
gangströppur frá Ingólfsstræti og þar með hæðarmun á Ingólfsstræti og „garðinum." Einnig er búið
að kaffæra kjallaraglugga Safnahússins. Þar að auki vantar að sýna akbraut sem á að verða á Ióð
Hæstaréttar frá innkeyrslu við Þjóðleikhúsið og vestur í Ingólfsstræti.
ÚTDRÁTTUR úr skipulagi Reykjavíkur frá 1927 af Arnarhóls-
svæðinu. Safnahúsið er fyrir miðri mynd.
borgarinnar, og hjálpa til að draga
úr streitu manna með því að bjóða
þeim til notalegs sætis.
Eg hefi fyrir satt að formaður
fráfarandi skipulagsnefndar
Reykjavíkur hafi spurst fyrir um lóð
við Suðurgötu sunnan Þjóðarbók-
hlöðu á háskólasvæðinu og verið
tekið heldur vinsamlega af háskóla-
rektor en rektor ekki heyrt af því
meira, sér til nokkurrar furðu.
Hvernig væri nú að dómsmála-
ráðherra tæki þessa fyrirspurn upp
aftur í allri friðsemd og til rólegrar
yfirvegunar? Ég fullvissa hann um
að það hús sem nú hefur verið teikn-
að fyrir réttinn mun sóma sér betur
í nálægð við Þjóðarbókhlöðu, en í
þröng við þær byggingar þar sem
því hefur verið ákveðinn staður.
Þetta mundi ekki leiða til mikilla
fjárútláta, því borgin þyrfti að
leggja í kostnað við jarðvegsskipti
í væntanlegum garði og gæti því
yfirtekið útgröftinn.
í samkeppnisútboðinu var lögð
rík áhersla á sjálfstæði réttarins og
þessvegna ætti að skilja á milli
húsa. En mér sýnist nú að miðað
við aðrar lóðir, svo ekki sé talað
um lóðina fyrir sunnan Þjóðarbók-
hlöðuna, að dómsmálaráðherra hafi
tekist að tjóðra kálfinn við bæjar-
helluna.
Ýmis atriði í meðferð málsins
benda ekki til djúprar virðingar
fyrir Hæstarétti íslands þegar skoð-
uð eru, en það verður annarra að
kryfja það þótt seinna verði. Manni
sýnist að í vinnu fyrir Hæstarétt
hefði átt að skila málsmeðferð sem
benda hefði mátt á til fyrirmyndar.
Og eins hefði verið æskilegt að hin
faglega umræða hefði verið á hærra
plani en ekki einkennst af stagl-
kendum endurtekningum sem hver
hafði upp eftir öðrum. Og sem í
sumum tilvikum virtust opinbera
atvinnuhagsmuni. I raun átti
Hæstiréttur íslands betra skilið.
Höfundurínn ersjálfstætt
starfandi arkitekt.
Hausttilboð til
Benidorm
aðeins kr. 39.900,-
Nú er allt uppselt út ágústmánuð til Benidorm og við seljum síðustu
sætin til Benidorm 7. og 14. september. Nýi gististaðurinn okkar,
Acuarium II, hefur reynst afar vel, frábærlega staðsettur með góðum
garði og veðrið á Benidorm er eins og það gerist best, um 30
gráður yfir daginn.
Verð kr. 30.900, "*
pr. mann m.v. hjón
með 2 börn, 2 vikur.
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
* Flugvallaskattar og forfallagjöld kr. 3.660,- f. fullorðna, kr. 2.405,- f. börn.
Verð kr. 49 •«)()() 9 "
pr. mann m.v. 2
í studio, Acuarium II.
Allir komu þeir aftur...
Könnun Hagvangs leiddi í ljós, að 93,5% ^
þeirra sem eiga DUX-dýnur myndu velja
DUX aftur, ef þeir þyrítu að kaupa nýja dýnu.
0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100%
Aðra sögu er að segja af þeim sem eiga
ekki DUX-dýnur. Mun lægra hlutfall þeirra
myndi fá sér samskonar dýnur aftur og þeir
eiga nú. Þetta segir sína sögu um gæði
DUX-dýnanna.
Stærð úrtaks: 1000 manns. Framkvæmdamáti: Símleiðis.
Gerð úrtaks: Slembiúrtak. Búseta: Allt landið.
Aldur: 18 - 67 ára. Framkvæmdatími: 24.-31. maí 1994.
DUX - gerir svefninn að sérstakri nautn.
DUX
—&
GEGNUM GLERIÐ
Faxafeni 7 (Epalhúsinu). Sími: 689950
BACKMAN