Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.08.1994, Blaðsíða 26
.26 SUNNUDAGUR 7. ÁGÚST 1994 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, MALEN G. KRÖYER, Keldutandi 7, andaðist fimmtudaginn 4. ágúst sl. Guðiaug Kröyer, Jón Björnsson, Elín Kröyer, Þorsteinn Þórarinsson, Sigrún Kröyer, Jón Haraidsson og barnabörn. t •“J Elskuleg móðir mfn, tengdamóðir, amma og langamma, NÝBJÖRG JAKOBSDÓTTIR, sem lést á hjúkrunardeild Hrafnistu, Hafnarfirði, 27. júlí sl., verð- ur jarðsungin frá Kópavogskirkju mánudaginn 8. ágúst kl. 13.30. Hanna Marta Vigfúsdóttir, Björn K. Örvar, Björg Örvar, Kjartan B. Ön/ar, Anna Birna Björnsdóttir, Björn Lárus Örvar, Unnur Þorsteinsdóttir og barnabarnabörn. t Móðir okkar, ÞORGERÐUR JÓNSDÓTTIR, Byggðarholti 21, Mosfellsbæ, lést f Landspítalanum 3. ágúst. Jón Þorgeirsson Vilborg Þorgeirsdóttir, Friðgeir Þór Þorgeirsson, Guðmundur Skúli Þorgeirsson. Ástkær uppeldisdóttir mín, EBBA KRISTÍN EDWARDSDÓTTIR, talmeinafræðingur, Framnesvegi 28, verður jarðsungin frá Kristskirkju, Landakoti, þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13.30. Sigríður Halldórsdóttir. ■f Útför systur okkar og mágkonu, ■ HÖLLU BACHMANN, kristniboða, sem andaðist 2. ágúst verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudag- inn 10. ágúst kl. 13.30. Jón G. Hallgrímsson, Þórdís Þorvaldsdóttir, Helgi Bachmann, Kristfn Sveinsdóttir, Helga Bachmann, Helgi Skúlason, Hanna Bachmann, Jón K. Ólafsson. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á Minningasjóð KFUM og K til styrktar kristniboði, s. 888899. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES STRAUMLAND, frá Skáleyjum, Kaplaskjólsvegi 63, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13.30. Gunnar J. Straumland, Sævar Straumland, Inga L. Hansdóttir, Ólafur J. Straumland, Katrfn Marísdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Skrifstofa garðyrkjustjóra Reykjavíkur verður lokuð eftir hádegi mánudaginn 8. ágúst vegna jarðarfarar INGVARS AXELSSONAR. Garðyrkjustjórinn í Reykjavík. STEINUNN HERMANNSDÓTTIR + Steinunn Her- mannsdóttir fæddist 24. sept- ember 1921 í Vík. Hún lést á Hrafn- istu 27. júlí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Do- rothea Högnadótt- ir frá Vík og Her- mann Friðrik Hjálmarsson, vél- stjóri, frá Aðalvík á Ströndum. Systk- ini Steinunnar eru: Högni Haukur d. 1930, Guðmundur Magnús, Halldór Jón, Jóhann Halldór og Ásta, d. 1993. Eftir- lifandi eiginmaður Steinunnar er Sturla Pétursson. Börn þeirra eru fjögur og heita: Haukur Dór, Dorothea, Pétur Rúnar og Hrafnhildur Oddný. Utför Steinunnar fór fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 29. júlí síðastliðinn. NÚ ER hún Gógó okkar farin í eina ferðina enn. Þessi er svolítið öðruvísi, hún er farin án Pálínu og við vitum að Gógó kemur ekki til baka. Fyrir 28 árum kynntist ég Gógó. Auðvitað vissi ég af þessari frænku minni og hafði séð hana með pabba en ekki mikið meir. Hún var gjarn- an nefnd í sömu andrá og Lína frænka, föðursystir mín. Báðar áttu það sameiginlegt að vera hörkuduglegar en gátu hvesst sig þegar þeim fannst þurfa en máttu ekkert aumt sjá. Báðar höfðu svip- aða fjármálapólitík, Gógó vann ■ REYKJAVÍKURDEILD RKÍ gengst fyrir námskeiði í almennri skyndihjálp, sem hefst mánudag- inn 8. ágúst. Kennt verður frá kl. 20 til 23 og eru kennsludagar 8., 9., 15. og 16. ágúst. Námskeiðið telst vera 16 kennslustundir og verður haldið í Fákafeni 11, 2. hæð. Þátttaka er heimili öllum 15 ára og eldri. ■ NÁMSKEIÐIÐ Jóga gegn kvíða verður endurtekið hjá Jóga- stöðinni Heimsljósi 9. ágúst næstkomandi. oftast kauplaust að sínum saumaskap og ef Lína átti einhvern afgang þá var hann notaður til gjafa. Gógó hafði aldrei mikinn fyrirvara og ekki heldur í það skiptið sem hún ákvað að koma vestur. Móðir mín var á sjúkrahúsi og pabbi einn með okkur systkinin, þá er hringt frá Reykjavík, stutt símtal: „Sæll frændi, landshorna- flækingurinn hér. Ég er að koma. Tekurðu á móti mér?“ Ekki var laust við að pabbi brosti þegar hann sagði að Gógó frænka mín væri að koma vestur. Þessi tími okkar með Gógó verð- ur mér ætíð minnisstæður, það var svo margt öðruvísi heima. Bræðúr mína kallaði hún Stapakóngana sína, sérstaklega ef þeir höfðu staðið sig vel. Kaffikönnuna kall- aði hún Fínu eftir einhverri fínni könnu úr Vík og saumavélina Pál- ínu. Eitt skipti man ég að mér sinnaðist við frænku og það var þegar við Dóra systir mín höfðum undirbúið jarðarför þriggja hana sem pabbi hafði slátrað en Gógó varð á undan okkur einhverra hluta vegna og hélt veislu þá um kvöld- ið. Ég var nokkuð lengi að sættast við hana eftir þessa „viili- mennsku". Annað atvik frá þessu sumri er mér líka ofarlega í minni og það var þegar sjómaður á staðn- um hafði hallað ótæpilega á Stapa- kóngana hennar. Þá hvessti heldur betur hjá frænku en ekki náði hún í sjómanninn þá um kvöldið. Til að rétta hlut sinna manna dreif hún sig á fætur kl. sex næsta morgun og stóð bísperrt á bryggj- unni og tók á móti kauða er hann hugðist róa. Þegar hún sagði frá þessu síðar um daginn sá ég ekki betur en hún kættist og héldi niðri í sér hlátrinum. En einkennilegast af öllu fannst mér að frænka kall- aði manninn alltaf vin sinn upp frá því en nefndi hann aldrei með nafni. Gógó mína sá ég síðast í Vík- inni og kvöddumst við þar í hinsta sinn. Stapakóngarnir kysstu hana og föðmuðu og gamli glampinn í augunum og brosið voru enn á sín- um stað. Hún kvaddi svo eins og hennar var von og vísa, án óþarfa formála, og trúlega er hún komin keik og sperrt á sinn síðasta áfangastað. Við systkinin þökkum Gógó samfylgdina og biðjum algóðan Guð að leiða hana og styrkja. Björk Högnadóttir. KRISTINN SVANSSON + Kristinn Svansson fæddist í Reykjavík 27. júní 1955. Hann lést af slysförum 23. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 29. júlí sl. FÓLK virðir fyrir sér og dáist að sólaruppkomu og sólarlagi, blessar nýtt líf, er fæðist, en staldrar við og syrgir sárt , er dauðinn knýr á. Elsku Vera mín. Ég skrifaði minningargrein sem byijaði á þess- um orðum þegar þú misstir bróður þinn, sem þá var aðeins 19 ára, fyrir tuttugu árum. Nú aftur, hörmulegt áfall. Þú aðeins 37 ára og missir mann þinn aðeins 39 ára. Þegar ég fékk þessar fréttir dofnaði ég upp, og gömlu góðu minningarnar helltust yfir mig. Þó er mér sérstaklega efst í huga þegar við fórum austur á gamla t Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR VALDÍS ELÍASDÓTTIR frá Rauðsdal, andaðist í Sjúkrahúsi Patreksfjarðar 2. ágúst. Útförin fer fram frá Brjánslækjarkirkju þriðjudaginn 9. ágúst kl. 14.00. Bjarni Ólafsson, Svanhvft Bjarnadóttir, Sigurjón Árnason, Ólafur Bjarnason, Arndís Sigurðardóttir, Björg Bjarnadóttir, Karl Höfdal, Samúel Bjarnason, Elsa Bjarnadóttir, Sigurður Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Faðir okkar, tengdafaðir og fósturfaðir, ÞÓRÐUR RUNÓLFSSON fv. öryggismálastjóri, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Jakobína Þórðardóttir, Runólfur Þórðarson, Hildur Halldórsdóttir, Þórður Jónsson. „Ramblernum“ ykkar og tyggjó var notað til þess að stöðva bensín- lekann og komumst samt. Rakel og Gummi voru lítil þá og þið ný- byijuð að búa. Allar stundirnar sem við áttum saman í Asaparfell- inu, þar sem ég kynntist Kidda, vil ég þakka fyrir. Eg man alltaf þegar Kiddi sagði við mig: „Gunna nú skil ég þig“, þar sem bíl- hræðsla var oft rædd þegar ég vann á gjörgæslunni og Kiddi þá farinn að keyra sjúkrabíl. Síðan deyr þessi fallegi ungi maður í bílslysi. Leiðir okkar skild- ust svo að mestu undanfarin ár, því miður. Þó hittumst við oft á förnum vegi og í Kolaportinu um helgar. Síðasta brosið hans Kidda sá ég 17. júní þegar við vorum að ræða um „eftirlitsferð“ á ungling- unum okkar. Þá lá þér svo á Vera mín og Kiddi sagði við okkur: „Jæjá ég verð að passa að týna ekki Veru hún er svo lítil“, og brosti sínu fallega brosi. Elsku Vera mín, geymdu þetta falleg bros í hjarta þínu um ókom- in ár. Ég og fjölskylda mín vottum þér og bömunum innilega samúð. Og einnig ykkur elsku Sigga, og Jón Geir. Megi Guð styrkja ykkur og styðja í þessari miklu sorg. Guðrún Hákonardóttir, æskuvinkona. Jóga gegn kvíða Þann 9. ágúst verður þetta námskeið endurtekið vegna mikillar aðsóknar og fjölda áskorana. Það er einkum ætlað þeim sem eiga við kvíða og fælni að stríða. Kenndar verða á nærgætinn hátt leiðir Kripalujóga til að stíga út úr takmörkunum ótta og óöryggis til aukins frelsins og lífsgleði. I lok námskeiðs verður stofnaður stuðningshópur. Engin þekking eða reynsla af jóga nauðsynleg. Leiðbeinandi Ásmundur f Gunnlaugsson, jógakennari. « JÓGASTÖÐIIV HEIMSLJÓS, Skeifunni 19, 2. haeð, s. 889181 (kl. 17—19).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.