Morgunblaðið - 23.08.1994, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Skógarreiturinn
að Grund opn-
aður almenningi
SKÓGARREITURINN að Grund
í Eyjafirði var um helgina form-
lega opnaður almenning-i.
Höggvið var fyrir göngustígum
í fyrrahaust og þeir fullgerðir í
sumar, auk þess sem tré hafa
verið merkt. Aðalsteina Magnús-
dóttir, húsfreyja á Grund, opnaði
reitinn á laugardagsmorgun með
því að klippa á borða en það var
faðir hennar, Magnús Sigurðs-
son, bóndi, sem gaf land undir
reitinn, sem var stofnaður árið,
1900.
Jón Loftsson, skógræktar-
stjóri ríkisins og Halldór Blön-
dal, landbúnaðarráðherra,
fluttu báðir stutta tölu, áður en
Aðalsteina klippti á borðann.
Hópur gesta gekk síðan um reit-
inn í fylgd Sigurðar Blöndal,
fyrrverandi skógræktarstjóra,
sem sagði sögu hans og útskýrði
það sem fyrir augu bar. Síðar
um daginn endurtók Sigurður
svo þann leik fyrir annan hóp
fólks.
Tilraun til skógræktar
Skógarreiturinn að Grund er
einn fjögurra hér á landi, þar
sem tilraun var gerð í upphafi
þessarar aldar til að rækta skóg
af innfluttum trjátegundum í út-
jörð á bersvæði. í upphafi var
girt 1,6 hektara landspilda og
gróðursetning trjáplantna hófst.
Sigurður Blöndal upplýsti að
upphafsmaður þessarar tilraun-
ar hefði verið danskur skip-
stjóri, Carl Ryder, sem kalla
mætti föður íslenskrar skóg-
ræktar. Haustið 1899 kom hann
í Grund ásamt Páli Briem, amt-
manni á Akureyri, og Einari
Helgasyni garðyrkjumanni. Þeir
voru að leita að stað norðanlands
fyrir skógarreit samsvarandi
þeim, sem þetta sama sumar
hafði verið stofnaður í Almanna-
gjárhalli á Þingvöllum.
Vorið 1900 kom danski skóg-
fræðingurinn Christian E. Flens-
borg að Grund með 16.400 trjá-
plönt'ir og 3 kg af tijáfræi frá
Danmörku og var það allt sett
niður í hina nýju girðingu. Flens-
borg þessi var alls í fimm sumur
við gróðursetningu og sáningu
tijáfræs í Grundarreitnum, sett-
ar voru voru niður 27 þúsund
plöntur þessi sumur; 16 tegundir
alls, m.a. græðlingar af gulvíði
frá Sörlastöðum í Fnjóskadal, að
því er kom fram í máli Sigurðar
Blöndal.
AIls 21 tegund
1952 var reiturinn stækkaður
um 1,7 hektara með leyfi eigantía
Grundar og er nú 3,3 hektarar.
1954 hófst gróðursetning á ný
eftir 50 ára hlé, og til 1982 voru
gróðursettar um 9.500 plöntur.
Þær tegundir, sem gróðursettar
voru bæði tímabilin, 1900-1904
og 1954-1982, eru: bergfura,
broddfura, fjallafura, lindifura,
skógarfura, stafafura, blágreni,
broddgreni, hvítgreni, rauð-
greni, rússalerki, síberíulerki,
síberíuþinur, ilmbjörk, gráelri,
gráreynir, ilmreynir, silfurreyn-
ir, gulvíðir, blæösp og gráösp.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
SIGURÐUR Blöndal, fyrrum skógræktarstjóri, leiddi gesti við opnunina í allan sannleika um Grundar-
reit. Fyrir aftan hann sjást Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, og Anders Erikson, landbúnaðar-
ráðherra Álandseyja, sem staddur var í Eyjafjarðarsveit ásamt eiginkonu sinni um helgina.
Brimvarnargerð við Dalvíkurhöfn
Lægstu tilboðin
innan við 60%
AÐALSTEINA húsfreyja
Magnúsdóttir á Grund klippir
á borða og opnar Grundarreit-
inn formlega fyrir almenningi.
TILBOÐ voru í gær opnuð í gerð
brimvarnargarðs við Dalvíkur-
höfn. Níu tilboð bárust, og voru
þau lægstu tæplega 60% af kostn-
aðaráætlun, sem var 133 milljónir
króna.
Um er að ræða 130 metra varn-
argarð, sem á að vera tilbúinn
haustið 1994. Lægsta tilboð var
59,5% af kostnaðaráætlun skv.
verklýsingu. Það átti Völur hf.
Sumir tilbjóðendur voru með frá-
vikstilboð miðað við aðra aksturs-
leið en skilgreind var í útboðslýs-
ingu. Ekki liggur fyrir áætlun um
þann verkmáta, sem frávikstilboðið
gerir ráð fyrir né vissa um hvort
hægt sé að uppfylla fyrirvara, sem
gerðir eru í tilboðinu. Lægsta frá-
vikstilboð var 57,5% af kostnaðar-
áætlun. Það tilboð kom frá fyrir-
tækjunum Háfelli og Rein.
Listasumar ’94
Söngvaka
í sumar hefur
verið flutt söng-
dagskrá í kirkju
Minjasafnsins á
Akureyri. Dag-
skráin hlaut nafnið Söngvaka og á
henni fara flytjendur í gegn um
sögu íslenskrar sönglistar allt frá
fimmundarsöng og rímun til söng-
laga samtímans. I kvöld eru fiytj-
endur Ragnheiður Ólafsdóttir og
Þórarinn Hjartarson og verður
þetta síðasta Söngvakan í sumár.
Hún hefst kl. 21.00.
Málverkasýning
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opn-
aði málverkasýningu í Deiglunni á
laugardaginn. Sýning hennar
stendur kl. 14-18 til 29. ágúst.
------» ----------
■ LIFANDI land hf., sem gengst
fyrir landbúnaðarsýningunni að
Hrafnagili, efnir í dag til ráðstefnu
sem nefnist Landbúnaðurinn og
ferðaþjónustan, þar sem fjalia á um
sameiginlega hagsmuni þessara at-
vinnugreina. Framsöguerindi flytja
Laufey Steingrímsdóttir, forstöðu-
maður Manneldisráðs, Arnheiður
Eyþórsdóttir, forstöðumaður Rann-
sóknarstofnunar fiskiðnaðarins á
Akureyri, Baldvin Jónsson, mark-
aðsfulltrúi, Atli Björn Bragason,
rekstrarhagfræðingur, Eriendur
Garðarsson, framkvæmdastjóri og
Tomas Tómasson, framkvæmda-
stjóri Hótel Borgar og Hard Rock.
Ráðstefnan er haldin í Laugarborg
og hefst kl. 10. Ráðstefnustjóri er
Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Ak-
ureyri.
■ HALDID verður upp á 150 ára
afmæli Munkaþverárkirkju næst-
komandi sunnudag, 28. ágúst. Herra
Ólafur Skúlason, biskup, prédikar.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
TVÍBURARNIR Úlfar Bjarki og Halldór Rafn kíkja á eldislax,
sem er til sýnis í keri að Hrafnagili.
Góð aðsókn að
landbúnaðar-
sýningunni
AUÐHUMLA ’94, landbúnaðar-
sýningin að Hrafnagili, var opnuð
á laugardaginn að viðstöddu fjöl-
menni og var aðsókn mikil um
helgina og áfram í gær, að sögn
Vöku Jónsdóttur, framkvæmda-
stjóra sýningarinnar.
Við setninguna flutti heiðurs-
gesturinn, Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, borgarstjóri Reykjavíkur,
ávarp, svo og Haukur Halldórsson,
formaður Stéttarsambands bænda
og Halldór Blöndal, landbúnaðar-
ráðherra, sem setti sýninguna.
Um 2.000 miðar voru seldir á
sýninguna um helgina, og gestir
hafa því alls verið um 3.000, að
sögn Vöku Jónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra, því mikið var um
barnafólk, en aðgangur er ókeypis
fyrir tíu ára og yngri.
Sýningin er mjög fjölbreytt. Á
útisvæði sýna vélainnflytjendur og
ýmsir þjónustuaðilar, grænfóður
og kornrækt er í sýnireilum og er
kornskurður sýndur þegar aðstæð-
ur leyfa. Húsdýrasýning er á veg-
um Búnaðarsambands Eyjafjarðar,
eldisfiskur er til sýnis í keijum og
íslenskt grænmeti og garðávextir
til sýnis og sölu. Á svæðinu eru
fjórar kynslóðir mjólkurbíla og
Félag búvélasafnara við Eyjafjörð
sýnir uppgerðar eldri búvélar. Þá
er saga jeppans til sveita á árunum
1946-1966 rakin á vegum Bíla-
klúbbs Akureyrar. Einnig eru
sýndar búvélar sem eyfirskir hag-
leiksbændur hafa smíðað og hest-
vagn er í ferðum um svæðið. Félag-
ar úr bílaklúbbnum 4x4 eru einnig
á svæðinu með bíla til sýnis og
sýndu þeir m.a. listir sínar í gær,
ásamt vélsleðamönnum sem óku á
Eyjafjarðaránni.
í íþróttahúsi staðarins kynna
afurðasölu- og þjónustufyrirtæki
vörur sínar og þjónustu. Bænda-
samtökin og stofnanir landbúnað-
arins kynna starfsemi sína, sem
og ýmsar deildir Rannsóknarstofn-
unar landbúnaðarins. Einnig setur
RALA á Möðruvöllum upp þema-
verkefni sem ber yfirskriftina „Frá
moldu til manns“. Þá er boðið upp
á fyrirlestra um landbúnaðarmál.
Einnig eru sýnd verk norðlenskra
alþýðulistamanna, svo og hand-
verk eldri borgara.
I tengslum við sýninguna verður
Tilraunastöðum á Möðruvöllum
opin almenningi til sýnis. Gestum
býðst að ganga um byggingar og
tilraunareiti með leiðsögn heima-
manna. Þá er opið fjós hjá Bene-
dikt á Hrafnagili, þar sem mjaltir
eru kl. 16.30.
Sýningin er opin alla daga k!.
13-19, nema næstkomandi laugar-
dag — þegar henni lýkur — en þá
er opið frá kl. 10 til 19.