Morgunblaðið - 23.08.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994 15
LANDIÐ
•5TXXT
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
BÚIÐ ER að leggja fyrsta hluta brúargólfs í nýju brúna á Jök-
ulsá á Brú, en eftir er að steypa slitlag þar ofan á.
Samgöngubót við Jökulsá á Brú
Hæsta brú lands-
ins í byggingu
Velheppnuð Töðugjalda-
hátíð í blíðskaparveðri
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
HESTAKERRAN var vinsæl meðal barnanna en félagar úr
Hestamannafélaginu Geysi sáu einnig um hestaleigu á staðnum
og fóru margir í reiðtúr að Ægissíðufossi.
Egilsstöðum - Byggingafram-
kvæmdir ganga vel við nýju brúna
á Jökulsá á Brú og sl. fimmtudag
var lokið við lagningu hluta brúar-
gólfs. í þessum verkþætti voru
settar forsteyptar einingar í gólfið,
en síðan er eftir að steypa annað
eins lag ofan á það. Brúin er 7 m
á breidd og 125 m á lengd, og er
því gólfflötur um 900 ferm. Brúin
er mikið mannvirki og er sú hæsta
á landinu, því um 40 m cru frá
gólffleti niður að vatnsborði Jök-
ulsár.
Framkvæmdir standast áætlun,
en bygging brúarinnar hófst um
mánaðamót apríl/maí, og eru
áætluð verklok í lok september.
Þá er að vísu eftir að ganga frá
vegi að brúnni svo aka megi yfir
hana. Brúin stendur á nýju brúar-
stæði og er búið að byggja upp
veg sem liggur þar að, en frá-
gangi við vegagerðina lýkur í lok
október. ístak hefur unnið að
byggingu brúarinnar og hafa
12-14 menn unnið á byggingar-
stað, en Héraðsverk annast lagn-
ingu vegarins.
Hellu - Talið er að nokkur þús-
und manns hafi lagt leið sína á
töðugjöld rangæskra bænda um
helgina, en góða veðrið átti stóran
þátt í hversu vel heppnuð hátíðin
þótti. Töðugjöldin stóðu yfir í þijá
daga þar sem margháttuð kynning
á frumframleiðslu héraðsins fór
fram, m.a. með opnum búðum og
matarveislum þar sem allt hráefni
var fengið úr héraðinu.
Opin hús og Heklugos
Margvísleg atriði voru í boði um
helgina en á föstudagskvöldið var
sælkeraveisla bænda og stórdans-
leikur að Laugalandi í Holtum þar
sem KK-sextett með Ragnari
Bjamasyni og Ellý Vilhjálms lék
fyrir dansi. Hljómsveitin kom sér-
staklega saman eftir áratuga hlé
af þessu tilefni.
A laugardaginn var opið hús
hjá Landgræðslu ríkisins í Gunn-
arsholti og minjasafninu á Keldum
og lögðu margir leið sína þangað
en auk þess voru opin nokkur bú
í sýslunni. Gengið var á Heklu
með leiðsögn Flugbjörgunarsveit-
arinnar á Hellu.
Á Gaddstaðaflötum við Heklu
var starfrækt markaðstorg bænda
og hestaleiga en yfir svifu listflug-
vélar og Landgræðsluflugvélin
Páll Sveinsson. Mikla athygli vakti
valkyijukeppni Suðurlands sem
Magnús Ver stjórnaði og raf-
magnsgirðingastökkkeppni MR-
búðarinnar. Á laugardagskvöldið
var mikil þátttaka í grillveislu sem
Meistarinn hf. sá um en hráefnið
var allt úr nágrenninu. Mótshald-
arar telja að grillað hafi verið ofan
í um þúsund manns í þessari
stærstu grillveislu ársins.
Töðugjaldahátíðinni lauk á
sunnudag er sóknarpresturinn í
Odda, sr. Sigurður Jónsson mess-
aði undir berum himni á flötunum,
Qöldi manns sótti messuna sem
fór fram í einstakri veðurblíðu sem
einkenndi reyndar hátíðarhöldin
alla helgina.
Vonast er til að töðugjöldin
geti orðið að árvissum atburði í
héraðinu en framkvæmdanefndin
er afar ánægð með hversu vel
tókst til með þessa frumraun en
aðsókn fór fram úr björtustu von-
um en talið er að um 5-6 þúsund
manns hafi tekið þátt í hátíðinni
á einn eða annan hátt þessa þrjá
daga. Nefndina skipa Drífa Hjart-
ardóttir, Birgir Þórðarson, Ragnar
J. Ragnarsson, Erna Sigurðardótt-
ir, Egill Sigurðsson og Jórunn
Eggertsdóttir.
URVAL NOTAÐRA BILA
SUZUKI SWIFT 1000, árg. ‘90, 5
gfra, 3ja dyra, grár, ek. 55 þ. km.
Verð 530 þús.
LADA STATION 1500, árg. ‘91, 5
gíra, 5 dyra, rauður, ek. 50 þ. km.
Verð 350 þús.
LADA LUX 1500, árg. ‘93, 5 gíra,
4ra dyra, hvrtur, ek. 6 þús km.
Verð 500 þús.
LADA SPORT 1600, árg. ‘93, 5
gíra, 3ja dyra, rauður, ek.
15 þ. km. Verð 740 þús.
MMC LANCER GLX 1500, árg.
‘87, sjálfsk., 4ra dyra, grár, ek.
130 þ. km. Verð 390 þús.
Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar
MMC LANCER 1500, árg. ‘89,
sjálfsk., 4ra dyra, grænn,
ek. 91 þ. km. Verð 670 þús.
SEAT IBIZA, árg. ‘88, 5 gíra,
3ja dyra, rauður, ek. 49 þ. km.
Verð 220 þús.
HONDA CIVIC 4x4, árg. ‘87, 6
gíra, 5 dyra, blár, ek. 110 þ. km.
Verð 440 þús.
LADA SPORT 1600, árg. ‘89,
4 gíra, 3ja dyra, drapplitur,
ek. 57 þ.km. Verð 360 þús.
LADA SAMARA 1500, árg. ‘92, 5
gíra, 5 dyra, blár, ek. 26 þ. km.
Verð 520 þús.
Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga kl. 10-14.
SHMíCV NOTADIR f Jk Fb Jk
BIIAR LADA
_______314060/681200________________
MAZDA 323 1300, árg. ‘87, 4 gíra,
4ra dyra, grár, ek. 113 þ. km.
Verð 330 þús.
DAIHATSU CHARADE SG 1300,
árg. ‘93, 5 gfra, 4ra dyra, grænn,
ek. 4 þ. km. Verð 940 þús.
MMC LANCER GLXi 1500, árg.
‘91,5 gfra, 5 dyra, brúnn, ek. 42
þ. km. Verð 980 þús.
SUZUKI SWIFT GA 1000, árg. ‘89,
5 gíra, 3ja dyra, hvítur ek. 66 þ.km.
Verð 390 þús.
MMC GALANT GLSi 2000, árg.
‘91, sjálfsk., 4ra dyra, vínrauður,
ek. 61 þ. km. Verð. 1.190 þús.