Morgunblaðið - 23.08.1994, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Frumsýn-
ing á Flint-
stones í
London
KVIKMYNDIN Flintstones var
frumsýnd í London í lok júlímán-
aðar. Á meðal frumsýningar-
gesta var margt stórmennið, þ.
á m. Karl Bretaprins, Elle MacP-
herson, Kyle MacLachlan með
eiginkonu sinni Lindu Evange-
listu, Sylvester Stallone, John
Goodman, Brian Levant leikstjóri
og Rosie O’Donneli.
Ekki er annað sjá af meðfylgj-
andi myndum en að glatt hafi
verið á hjalla í veislunni. Mikið
mæddi þó á John Goodman sem
bæði þandi raddböndin og sýndi
hæfni sína í keiluíþróttinni.
Flestir voru sammála um að
honum hefði tekist hreint ágæt-
lega upp, a.m.k. við að fá fólk
til að brosa.
SIGURÐUR Rúnarsson, rútubílsljóri Austurleiða, bjargar fólki
upp úr Steinólfsá fyrr í sumar.
Kærar þakkir fyrir
alla hjálpina
ÞÝSKIR ferðamenn komu þökk-
um á framfæri til Sigurðar Rún-
arssonar, rútubílstjóri Austur-
leiða, á sérstakan hátt, eftir að
hann hafði hjálpað fólki á jeppa-
bifreið upp úr Steinólfsá í sumar.
Þeir sendu Halldóri Blöndal sam-
gönguráðherra bréf, þar sem þeir
báðu hann að finna leið til að
þakka Sigurði frækilega fram-
göngu.
I bréfinu stendur: „Við erum
komin aftur til Þýskalands eftir
að hafa ferðast um ísland og við
viljum koma innilegri hrifningu
okkar á íslenskri þjóð og náttúru
á framfæri. Rútubílstjórinn sem
ók leiðina Hvolsvöllur - Þórsmörk
19. júlí er ágætt dæmi um hjálp-
semi íslendinga. Ég veit ekki hvað
hann heitir, en allir farþegar rút-
unnar sem við ferðuðumst með
voru hrifnir af því sem hann gerði.
Hann stakk rútunni niður í ánna
til að ná upp jeppa sem var fastur
í henni miðri. Honum tókst að
koma bílnum að landi og bjargaði
þar með bíistjóranum úr hættu.
Það eina sem við gátum gert var
að lána honum þurr föt. Eg held
að þú getir fundið leið til að heiðra
þennan rútubílstjóra fyrir framlag
sitt.“
Sigurður Rúnarsson er rútubíl-
stjórinn sem um ræðir. Hann seg-
ir Steinólfsá hafa verið sérstak-
lega erfiða yfírferðar í sumar og
hann sé búinn að hjálpa fjórum
rútum og fáeinum bílum upp úr
ánni. „Þetta getur verið hættulegt
þegar mikill vatnsflaumur er í
ánum og vatnið er orðið djúpt.“
Hann segir það hafa komið nokkr-
um sinnum fyrir í gegnum tíðina
að hann fengi send bréf og mynd-
ir, enda æki hann þessa leið dag-
lega öll sumur, „... en það er nú
kannski ekki algengt að maður
fái þakkarbréf sent til Halldórs
Blöndals“, segir hann kankvís-
lega.
KYLE MacLachlan og Linda Evangelista ásamt Elle MacPher-
son og fylgisveini hennar, viðskiptajöfrinum Tim Jefferies.
Á meðfylgjandi mynd sést í
hvirfilinn á Karli Bretaprins
þar sem hann heilsar leik-
stjóranum Steven Spielberg.
Lengst til vinstri á myndinni
sést Rosie O’Donnell sposk á
svip en á innfelldu myndinni
sést John Goodman taka lag-
ið fyrir frumsýningargesti.
Pfeiffer
eignast barn
■LEIKKONAN Michelle Pfeiffer
og framleiðandinn David Kelley
eignuðust sitt annað barn 5. ágúst
síðastliðinn. Syninum var gefið
nafnið John Henry, en þyngd hans
fékkst ekki uppgefin. Þau eiga
þegar eina dóttur að nafni Clau-
dia Rose, en hún er sautján mán-
aða gömul. Leikstjórarnir Bille
August og Oliver Stone bíða báðir
eftir leikkonuninni í næstu kvik-
myndir sínar, en hún segist ætla
að eyða tíma með syni sínum fyrst
um sinn.
Gleðibomba
ársins
30.000 manna
veisla...
Enn er nóg af
kampavíni og
kransakökum í
gleðileiknum
guðdómlega.
Við minnum á
að tónlistin
með vinsælasta
lagi landsins er
komin aftur í
verslanir
Skífunnar.
, Xjöynr brúðkaup og jarðarfór
Iman
lumbraði á
Rosie
O’Donnell
■FYRIRSÆTAN Iman, sem
giftist söngvaranum David
Bowie árið 1992, er við tökur á
myndinni Exit to Eden um þess-
ar mundir. Það er erótísk kvik-
mynd sem verðiir frumsýnd í
haust, með henni, Dan Aykroyd
og Rosie O’DonnelI í aðaíhlut-
verkum. í myndinni lendir hún
í slagsmálum við Rosie O’Donn-
ell og áður en tökur fóru fram
sagði Rosie, sem er öllu meiri
um sig, Iman að hafa ekki
áhyggjur, hún myndi ekki
þjarma að henni. Rosie gerði sér
enga grein fyrir því að Iman
lyftir lóðum hvern dag. „Ég er
mjög sterk,“ segir Iman. „Eftir
að okkur var sagt að byrja,
þurfti bæði hana og Dan til að
halda mér niðri. Daginn eftir var
hún öll blá og marin, en ekki
sást skráma á mér.“