Morgunblaðið - 23.08.1994, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994
UNGLINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
Það er spurning
Myndir þú
vilja vera eldri
en þú ert?
Inga Mæja, 15 ára.
Nei.
Ingvar, 15 ára.
Já, svona tveim árum.
Birgitta, 16 ára.
Já, ég vildi vera þrem árum eldri.
V arð heltekinn
af fótbolta
sem unglingur
Knattspyma hefur alltaf verið
vinsæl íþróttagrein á íslandi og margir
fótboltamenn hafa gerst atvinnumenn í
greininni erlendis. Ragnar Margeirsson
fótboltakappi úr Keflavík er einn af þeim.
Samhliða því að spila fótbolta vinnur
______hann sem lögregluþjónn á_
Keflavíkurflugvelli.
Eg var bara týpískur unglingur
myndi ég segja. Ég byrjaði snemma
í boltanum og upp úr fermingu
byijaði þetta vanalega, stelpu-
standið og þessi venjulegu vanda-
mál. Ég fór að vera lengi úti og kom jafn-
vel ekki heim fyrr en daginn eftir. Fótbolt-
inn byrjaði svo hjá mér fyrir alvöru þegar
ég var sextán ára gam-
all, og ég fór fljótlega
að spila með meistara-
flokki og gekk mjög
vel. Ég vakti athygli
erlendra liða fljótlega
og var svo að þvælast
út mikið í atvinnumennsku og aftur heim.
Svoleiðis gekk það í nokkur ár þangað til
ég fór til Belgíu í tvö ár í atvinnuspila-
mennsku.
* * *
Unglingsárin eru mjög merkileg, maður
ætlar að gera svo margt og það er svo gam-
an að vera til, engin ábyrgð eða neitt, lífið
leikur við mann. Það var ágætt að vera
unglingur hérna í Keflavík, við marséruðum
Hafnargötuna fram og til baka, eins og
unglingar hérna gera enn þann dag í dag.
Það voru klíkur í gangi og ég var í einni
slíkri, þeirri stærstu í Keflavík. Æskulýðs-
heimilið var svo staðurinn sem við gátum
sótt um helgar. Við fórum ekki að kíkja
Reykjavíkur fyrr en við vorum orðin að
minnsta kosti sextán ára.
* * *
Ég var ágætis námsmaður þegar
ég byrjaði í skóla en þegar ég fór
í gagn-
fræða-
skóla
heltók fótbolt-
inn mig alveg og námið
fór að liggja á milli
hluta og varð númer
þijú í forgangsröðinni. Ég varð svo heltek-
inn af fótboltanum að ég hætti í skóla eftir
skyldunámið og það eitt komst að hjá mér
að komast í atvinnumennsku í fótbolta. Mér
finnst reyndar að það hefði mátt betur fara
þar, hefði mátt vera meiri skynsemi í þessu
hjá mér. Kannski hefði ég átt að einbeita
mér meira að náminu því það bitnar á manni
síðar meir að vera menntunarlaus. Þjóðfé-
lagið er bara að breytast svo mikið að ef
maður er ekki með menntun eru möguleikar
til atvinnu svo litlir.
* * *
Ég ráðlegg ungum mönnum sem stendur
til boða að fara í atvinnumennsku að staldra
við og íhuga vel alla mögu-
leika. Ef þeir hafa ákveðið að
læra eitthvað ættu þeir að gera það, en það
getur verið erfitt að hafna góðu tilboði frá
góðu liði. Það er oft erfitt að segja nei.
* * *
Þjóðfélagið er orðið þannig í dag og kröf-
urnar svo miklar að mikilvægi menntunar
verður ekki ofmetið. Það má samt ekki
gleymast í öllu því sem boðið er uppá að
lífið á að vera skemmtilegt svo við verðum
stundum að gefa okkur lausan tauminn og
njóta þess bara að vera til.
STJÖRNUift G
S 6 F_S R
Bensíntittur, bíldæl-
ingnr eða slöngutemjari
Nafn: Ingþór Hallsson.
Heima: Borgarnesi.
Aldur: 16 ára.
Skóli: Grunnskólinn í Borgarnesi.
Sumarstarf: Bensíntittur — bíldælingur —
slöngutemjari.
Helstu áhugamál: Ja, þau eru fá. Ég hef
eiginlega engan tíma fyrir annað en að
dæla á bíla. Annars eru það veiðar og að
skemmta mér um helgar. Laxveiðar og böll.
Uppáhalds hljómsveit: Ætli það sé ekki
Morrisey og U2.
Uppáhalds kvikmynd: Það er ekki
spurning, það er Shining. Já, og
Taxi Driver, ég hef, hana alitaf 1
með mér og ég get ekki talið I
skiptin sem ég hef horft á hana.
Mér finnst skemmtilegast að
horfa á sálfræðiþrillera sem
hægt er að pæla í eftir á.
Uppáhalds sjónvarpsefnið:
Ég horfði alltaf á Limbóþætt- J
ina þegar þeir voru, en nú •
horfi ég aðallega á gamanþætti
helst breska eins og Hale og Page. Síðan
horfi ég á bíómyndirnar.
Besta bókin: Það er líklega Stephen King
bókin Shining. Mér finnst samt myndin betri
af því að Jack Nicolson lék það vel.
Hver myndir þú vilja vera ef þú værir
ekki þú? Julio Iglesias, hann fær svo mikið
af kvenmönnum.
/
ingu
f\'NN
Hvernig er að vera unglingur í dag? Ef
maður skemmtir sér ekki nóg þá bara mygl-
ar maður og verður leiðinlegur. Og þá fær
maður skítkast frá öðrum. Maður verður
alltaf að reyna að skara fram úr, sko. Vera
ofaná. Það er mín heimspeki. Annars er
kannski ekki gert nógu mikið fyrir ungl-
inga. Það má ekki vera í miðbænum um
helgar, þá er löggan komin að böggast í
manni og draga mann heim. Það ætti að
gefa unglingum meira frelsi og gera meira
af því að segja frá jákvæðum hlutum í fjöl-
miðlum.
Hverju myndir þú vilja breyta
í þjóðfélaginu? Það mætti
byggja stærri sundlaug í Reykja-
vík, með almennilegum renni-
brautum. Það er það eina sem mér
dettur í hug. Jú, og hafa tívólí allt
árið um kring. Það er minn draum-
ur.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir? Að veiða og vera með lax
á. Það er mesta spennan. Og reyna
að landa honum, mér hefur nú ekki
enn tekist það, ég missi hann alltaf. En það
skemmtilegasta sem hægt er að gera er að
fara með vinum sínum á ball og skemmta
sér verulega, sletta úr klaufunum.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir?
Það sem er leiðinlegast er að Geiri og Maggi
henda mér of oft út að dæla á bílana. Og
þegar ég er settur í skítverkin, eins og að
fara út með rusl og svoleiðis. Líka þegar
ég lendi illilega í stelpunum í sjoppunni,
þegar þær eru á blæðingum eða eitthváð
og eru óþarflega skapvondar.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður
stór? Ef ég get ekki orðið heilbrigðisráð-
herra eða Julio Iglesias þá myndi ég bara
vilja vera ég sjálfur. Það er eiginlega sama
hvað ég væri að vinna við, ég myndi bara
vera ... ég, skemmtanadýrið.
Hvað viltu ráðleggja þeim sem umgang-
ast unglinga? Að tala svolítið meira kúl
við þá, svo þeir skilji almennilega, koma
með aðeins meiri slettur. Og leyfa þeim
meira, ekki vera að halda þeim inni eða
ofvernda þá. Unglingar eiga að ráða hvað
þeir gera, þeir gera engar vitleysur.
Hvað viltu segja að lokum? Party on.