Morgunblaðið - 23.08.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994 17
VIÐSKIPSTI
Efnahags-
bati íBret-
landi eykst
London. Reuter.
SKRIÐUR er kominn á efnahagsbat-
ann í Bretlandi samkvæmt nýjum og
endurskoðuðum tölum og hagfræð-
ingar segja að hagvöxturinn verði
líklega meiri en 2.75% á þessu ári
eins og stjórnvöld spáðu í júní.
Samkvæmt hinum nýju tölum
jókst verg landframleiðsla um 1% á
öðrum ársíjórðungi miðað við fyrsta
fjórðung ársins í stað 0.9%.
Það táknar að hagvöxtur jókst um
3.7% miðað við annan ársfjórðung
1993 í stað 3.3% eins og áður hafði
verið spáð.
Hagfræðingur kunnrar verðbréfa-
sölu kvað endurskoðunina auka trú
manna á spá fyrirtækisins um 3.5%
hagvöxt 1994. Hann gerir ráð fyrir
að um þetta verði samkomulag á fjár-
málamörkuðum, „Með hliðsjón af
hinum nýju tölum,“ sagði hann, „yrði
hagvöxtur meiri en 2.5% á árinu,
þótt alger kyrrstaða yrði í efnahags-
lífinu síðari hluta ársins."
Stjórnvöld endurskoðuðu spá sína
um hagvöxt á árinu í júní, en breyttu
tölum sínum aðeins í 2.75% úr 2.5%.
„Það virtist bera vott um gætni, jafn-
vel á sínum tíma,“ sagði annar hag-
fræðingur.
Nokkrir hagfræðingar hafa óttazt
að aukin neyzla kunni að neyða
stjórnvöld til að hækka vexti til að
koma í veg fyrir of óhagstæðan
greiðslujöfnuð. Nýju tölurnar hafa
dregið úr þessum ótta, enda eykst
útflutningur meir en innflutningur.
Tölur um viðskiptajöfnuð hafa einn-
ig verið endurskoðaðar. Samkvæmt
nýjum tölum var hann óhagstæður
um 10.3 milljarða punda 1993, en
ekki 10.9 milljarða eins og tilkynnt
var í júní. Því hefur verið spáð að að
viðskiptajöfnuðurinn verði óhagstæð-
ur um 9.5 milljarða punda 1994 og
hagfræðingar telja það viðráðanlegt.
------» 4—»-----
Þýzk verð-
bólga virð-
ist aukast
Frankfurt. Reuter.
VERÐBÓLGA í Vestur-Þýzkalandi
virðist hafa aukizt í ágúst í fyrsta
skipti í eitt ár, þar sem neyzluvöru-
vísitala hefur hækkað vegna hækk-
aðs verðs á olíu og kaffi að sögn
hagfræðinga.
Verðbólga hefur verið á stöðugu
undanhaldi samkvæmt mánaðarleg-
um bráðabirgðatölum síðan í júlí
1993.
Fjórir hagfræðingar sögðu Reuter
að þeir teldu að væntanlegar verð-
lagstölur mundu sýna 3% ársverð-
bólgu í stað 2.9% í júlí. Fjórir aðrir
hagfræðingar töldu að verðbólgan
yrði ,2.9% eins og í júlí.
Bankinn Julius Bár, sem spáir
3.1% verðbólgu í ágúst, sagði að
sums staðar hefði verð á benzíni
hækkað um allt að 5% og sú hækkun
ein mundi hækka verðlagsvísitöluna
um 0.15%.
Goldman Sachs kvað hækkað verð
á kaffi vegna frosta í Brazilíu hafa
stuðlað að aukinni verðbólgu.
REYTTUR FRAMHALDSSKÓLI
, K ■ „„AW/
emendaplassum
oráðstafað
t laus pláss á vist
' lyrir einstæða foreldra
cacs
róTi h *
RL______
SIMl 93-51200 • 93-51201
FAX 93-51209
KKi HÖS He.LDi'R. FÓUC/
...af skrifstofuvörum í Hallarmúla!
Penninn Hallarmúla býður viðskiptavinum sínum 20% afslátt af ýmsum algengum skrifstofuvörum
sem keyptar eru í heilum pakkningum - með öðmm orðum í kassa. Þannig fæst magnaður afsláttur
af vömm sem notaðar em á öllum skrifetofum: Ljósritunarpappír, faxpappír, bréfabindum, ýmsum
pennum, umslögum, reiknivélarúllum, skrifblokkum og svo mætti lengi telja.
Láttu því sjá þig - jafnvel í morgunsárið, því að Penninn
Hallarmúla opnar kl. 8 - og njóttu góðrar þjónustu til viðbótar við
magnaðan „kassa-afslátt".
SKRIFSTOFU MARKAÐUR
HALLARMÚLA
illil