Morgunblaðið - 23.08.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.08.1994, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Nordisk Forum í Abo 1.-6. ágúst 1994 HVAÐ var að sækja á Norrænu kvennaráðstefnuna í Ábo í Finn- landi? Eftir ráðstefnuna munu 1400 íslenskar konur svara þessu hver fyrir sig. Hver og ein okkar hefur upplifað sína kvennaráðstefnu. Ljóst er að þetta var risavaxið þing með um 16000 þátttakendum, mest kon- um, þar sem boðið var upp á um 2000 atriði eftir því sem fram kom í dagskrá. Ætla má að fyrirlestrar hefi verið um 800 talsins, þá voru margskonar listviðburðir: Leiksýn- ingar, tónlist, myndlist, kvikmyndir og alls konar uppákomur, svo bærinn iðaði af lífi og gleði þessa heitu ág- ústdaga. Skipulagi ráðstefnunnar má hins vegar líkja við skipulagt kaos eins og ein orðaði það. Opnunar- hátíðin fór fram að kvöldi fyrsta dagsins á einu lokuðu sviði sem byggt hafði verið á ánni sem rennur í gegnum Ábo. Aðeins fáir áttu þess kost að sjá eitthvað af því sem þar fór fram. Lokaathöfnin var enn kot- ungslegri en hún var haldin í tjaldi. Þar voru endurtekin ýmis menning- aratriði. Engar upplýsingar fengust fyrirfram um það sem þar átti að fara fram eða hversu lengi það átti að standa. Þá var ráðstefnusvæðið stórt og erfitt að rata. Fyrirlestrar fóru aðallega fram á háskólasvæðinu í sex mismunandi „þemahúsum" sem kölluðust hús andanna, hús framtíðar, hús ánægju og óhugnaðar, velferðarhúsið og al- þjólega húsið. Þijár dagskrár fylgdu pakkanum sem þátttakendur fengu í hendur: Upplýsingar um fyrirlestra í einni dagskrá um 160 bls. að lengd, menningardagskrá og kvikmynda- dagskrá. Svo af nógu var að taka. Ráðstefna um föðurhlutverkið Samhliða þessari fjölmennu ráð- stefnu fór fram opinber ráðstefna Norðurlandaráðs dagana 4. og 5. ágúst í Borgarleikhúsinu í Ábo þar sem mættu m.a. jafnréttisráðherrar Norðurlanda. Efni þeirrar ráðstefnu var: „Jafnréti á Norðurlöndum árið 2000. Jöfn skipting valds og dýrð- ar.“ Norðurlöndin fimm höðfu skipu- lagt dagskrá hvert og eitt. Svo fór að ég fylgdist með dagskrá íslend- inga og Svía. Framlag Svíanna þótti mér vísa fram á veg, þar var að fínna nýjan tón. Þeir fjölluðu um hvernig samræma mætti heimilisstörf og at- vinnuþátttöku. Sýndu þeir efnið að hluta til í leikritsformi og tók félagsmálaráð- herrann Bengt Wester- berg þátt í leikþættin- um. Á eftir talaði Göran Wimmerström frá Stokkhólmi sem hefur fengið það hlutverk, fyrstur manna, að und- irbúa og þróa námskeið fyrir verðandi feður. Hann greindi frá því hvemig hann þreifaði sig áfram og hvemig hann náði tökum á verkefninu. Hann sagði að feður yrðu að fá að umgangast böm sín á sínum eigin forsendum. Og nú væri hann að mennta aðra karlmenn til að halda slík námskeið. Þessi fyrirlestur þótti mér merkasta nýmælið og mættu íslensk stjórnvöld kynna sér þessi námskeið, t.d. sú nefnd sem nú starf- ar á vegum félagsmálaráðuneytisins um hlutverk karla. Félagsmálaráð- herra Svía ræddi svo á látlausan hátt um eigin reynslu og hvernig hann uppgötvaði að hann gat sem ráðherra haft áhrif á þróun jafnrétt- ismála. Föðurhlutverkið var einnig rætt á almennu ráðstefnunni og því beint til norrænu ráðherranefndar- innar að hún gerði tillögu til Samein- uðu þjóðanna að haldin verði ráð- stefna um föðurhlutverkið. Því var vel tekið og má vænta þess að næsta jafréttisráðstefna ijalli um hlutverk feðra. Osýnilegir ræðumenn Það var gaman að sjá og heyra Berit Ás, norska fræðimanninn sem stofnaði sinn eigin flokk í Noregi á áttunda áratugnum og varð formað- ur hans. Hún sýndi myndband um fimm algengustu aðferðir karla til að halda konum niðri í opinberu lífi. Hún sýndi hegðun karla og lék svip- brigði þeirra svo snilldarlega og með þvílíkum húmor að hlátrasköllin heyrðust um þéttskipaðan salinn: Hvernig karlar gera konur ósýnilegar og/eða hlægilegar, hvernig upplýs- ingum er haldið frá konum, hvernig konum er refsað á tveimur vígstöðv- um, í vinnu og á heimili, og hvernig þær eru fylltar sektarkennd. Sjálf minnist ég þess úr borgarstjóm Reykjavikur, að þegar ein kona tal- aði stóðu flokksbræður hennar allir upp, litu á klukkuna og sögðu hver við annan um leið og þeir gengu út úr saln- um: „Þetta verður svona hálftími.“ Fróðlegt er því að kynna sér ræðustíl kvenna sem ekki fá meiri uppörvun en hér hefur komið fram. Ég hlustaði á einn slikan fyrirlestur í Ábo. ítar- legasta rannsókn á Norðurlöndum á ræðum stjórnmálakvenna er sænsk doktorsritgerð sem Kerstin Thelander vann við háskólann í Uppsölum um 1980. Þar kom fram að konur á sænska þinginu tileinkuðu sér fljótt ræðustíl karla. Sú könnun sem greint var frá í Ábo var ekki sambærileg. Hún tók aðra þætti til athugunar en kannaðar voru ræður frá fjórum borgarstjórnarfundum í Árósum: Hversu vel borgarfulltrú- arnir héldu sig við efnið, hversu mik- ið þeir skreyttu ræður sínar með til- vitnunum, sögum og líkingamáli, hversu mikið þeir notuðu orð sem dróu úr málflutningi þeirra og hversu mikla tillitssemi þeir sýndu öðrum. Niðurstaðan var sú að töluverður munur var á ræðustíl kvenna og karla. Konur héldu sig meira við efn- ið og sýndu meiri tillitssemi í ræðu- flutningi. Aðeins 10% kvennanna krydduðu ræður sínar en 48% karl- anna og 90% kvennanna notuðu úr- dráttarorð en 62% karlanna. í við- tölum kom fram að enn líður konum best þar sem spjallað er saman í litl- um hópum. Ekki er mér kunnugt um að nein slík rannsókn hafi verið gerð hér á landi og er hér komið verkefni fyrir málfræðing. Öðruvísi þroskaferill Þegar ég var í menntaskóla var ég í stelpnabekk. Það var ekki af því að þær kennsluaðferðir sem not- aðar voru væru aðrar en hjá strákun- um. Nú gætir þess töluvert í umræðu um skólamál að taka verði tillit til þess að telpur þroskast á annan hátt en drengir. Skólinn miði hins vegar við þroska drengjanna. Nefna má að telpur þroskast að jafnaði fyrr en drengir. Talið er að hæfileiki þeirra Gerður Þorsteinsdóttir Nordisk Forum hefur fært okkur mikið efni til að vinna úr, segir Gerður Steinþórsdótt- ir, sem telur að íslend- ingar þurfi að bretta upp ermar ef takast á að ná settum markmiðum. til vísindalegrar hugsunar sem raun- greinar byggja á minnki mjög á ungl- ingsaldri þegar drengir öðlast slíkan þroska. Við þessu verði að bregðast. I Svíþjóð hefur starfshópur á vegum menntamálaráðuneytisins kannað þetta mál og gefið út skýrslu sem kallast „Visst ar vi olika - Vissulega erum við ólík“. Þessi skýrsla var kynnt á ráðstefnunni og sat kennslu- málaráðherrann, Beatrice Ask, fyrir svörum. í skýrslunni er lögð mikil áhersla á að kennarar og skólastjór- ar verði uppfræddir um þennan mun á kynjunum og bregðist við honum með breyttri námsskrá og ólíkum kennsluaðferðum. Tilraun í þessa átt var gerð fyrir nokkrum árum á Akur- eyri í einum bekk í gagnfræðaskóla og gafst vel en lagðist af. Óþolandi launamisrétti Fyrir rúmum áratug var stofnuð hér á iandi Framkvæmdanefnd um launamál kvenna. Nefndin sýndi fram á launamisréttið með skýrum dæmum. Þrátt fyrir mörg orð um aukið jafnrétti á síðustu árum dreg ég slíkar fullyrðingar mjög í efa. Launasvínaríið er gleggsta dæmið. í nýiegri könnun sem Ragnheiður Harðardóttir kynnti í Ábo kom fram að konur sem fara í framhaldsnám auka tekjur sínar að jafnaði um 42% en karlar um 104%. Á þinginu var kynnt skýrsla, jafnlaunaverkefnið, sem unnin hefur verið á vegum Norð- urlandaráðs. Þar var farið í gegnum helstu rök sem notuð eru til að skýra launamun og þau hrakin. Hagfræð- ingurinn Agneta Stark kom með bráðskemmtilegt innlegg sem fjallaði um það hvort við hefðum efni á sömu launum til handa konum og körlum. Hún sagði: „Ef það er of dýrt að hækka laun kvenna, höfum við þá efni á að yfirborga karla bara af því að þeir eru karlar?" Friður Á ráðstefnunni í Osló hafði verið sérstakt friðartjald. Eftir að járn- tjaldið féll hefur dofnað yfir starf- semi friðarhreyfinga og ekkert sam- norrænt verkefni um frið 'var á ráð- stefnunni í Ábo. Ég hlustaði á dag- skrá Friðarhreyfingar sænskra kvenna einn daginn, en hún var frem- ur fámenn. En það var hátíðlegt að ganga út í nóttina og sjá kertaljósin lýsa á ánni þar sem þau mynduðu friðarmerkið og orðið Hírósíma. Þetta var að kvöldi 6. ágúst. Og hugurinn leitaði heim þar sem kertin fljóta á Tjöminni í svalri nóttinni, ár eftir ár á Hírósímadaginn. Jafnrétti árið 2000 í ávarpi til ráðstefnugesta sagði Margareta Pietikainen, formaður Nordisk Forum nefndarinnar, að markmið ráðstefnunnar væri að kynna og varpa ljósi á ýmsa þætti jafnfréttismála, að fá nýtt fólk til að starfa að jafnréttismálum, skapa sambönd og tengsl milli einstaklinga og þjóða. Fjölbreytnin á ráðstefnunni var geysimikil. Aðeins var hægt að fylgj- ast með broti af því sem þar fór fram. Hér hefur eingöngu verið drepið á efni fáeinna fvrirlestra. Nordisk For- um var einnig undirbúningur að kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna í Kína á næsta ári. Þótt norræn- ar konur væru í miklum meirihluta í Ábo var þar þó slæðingur af karl- mönnum, konum frá öðrum löndum og heimsálfum og börnum. Minnumst þess að þetta er ár fjölskyldunnar. Margar íslenskar konur fluttu er- indi um margvísleg efni. Þá vil ég nefna leikþættina og var mér tjáð að leikþáttur Stígamóta um ofbeldi hefði verið áhrifamikill og átakanleg- ur. Æskilegt er að íslenska undirbún- ingsnefndin haldi ráðstefnu þar sem íslensku konurnar kynntu m.a. fram- lag sitt á Nordisk Forum. Það var gert eftir ráðstefnuna í Osló 1988, auk þess sem sérstök skemmtidag- skrá var á Hótel íslandi. Þá væri tilvalið að bjóða hingað til lands ein- hveijum af þeim erlendu fyrirlesur- um sem mesta athygli vöktu. Af þeim sem ég hlustaði á vil ég benda sérstaklega á tvo: Göran Wim- merström sem hefur undirbúið og þróað námskeiðin fyrir verðandi feð- ur. Hann gæti frætt um starf sitt og skipulag og innihald feðrafræðslu. Þá vil ég nefna hagfræðinginn Agnetu Stark sem ætti að fá til að halda erindi um hagfræði, um launamál kvenna og konur og Evrópusamband- ið, en það mál hefur hún kynnt sér vel. Nordisk Forum hefur fært okkur mikið efni til að vinna úr. Og ljóst er að við íslendingar þurfum svo sannarlega að bretta upp ermar ef takast á að ná markmiðinu: Jafn- rétti árið 2000. Höfundur er í stjórn Kvenréttindafélags íslands og varaformaður jafnréttisnefndar Reykjavíkur. ÞAÐ ER nú séð að margir hag- fræðingar og „sérfræðingar" eru famir að ókyrrast mjög. Manngreyin eru farnir að sjá að almenningur er orðinn hundleiður á úrtölum og svartagallsrausi þeirra. Þeir gera sér sýnilega einhveija grein fyrir því að of langt hefur verið gengið, fólk er farið að sjá í gegnum vefínn. Fáir hlusta lengur með andakt. Nú nýverið boðaði forsætisráð- herra til fundar til að kynna niður- stöður Þjóðhagsstofnunar, unnar úr nýjustu gögnum, þar sem einhver vonarglæta var boðuð, varkárlega þó, um framþróun og bata öllum til handa. Við tíðindum þessum urðu kerfisvarðir bölsýnismenn ókvæða. Gat verið að þeirra væri ekki sviðs- Ijósið lengur, gat verið að tilrauna- kerfi þeirra væri að snúast í höndum þeirra? Krói þessara manna, verðtrygg- ingarákvæðin, hefur nærri gengið frá vilja manna til athafna. Ungt fólk horfír til þess að einungis „víxlarar" hafa einhvern möguleika til tekna. Það er vonum seinna að menn í stjórn landsmála eru famir að gefa undir fótinn að síðustu leifar Ólafslaga verði afnumdar. Fjármálaráðherra og forsætisráðherra eiga heiður skil- inn fyrir að sitja ekki fastreirðir við keip dauðyfla. Það hefur verið siður langskóla- genginna manna, úr hagfræði eða viðskiptafræðum, að tala um fagleg vinnu- brögð í mannaráðning- um, og dásama fræði sín sem hin einu réttu og allt utan þeirra væri hjóm, bull og þvæla. Venjulegt fólk væri hætt að þora að hafa skoðanir á hinum að- skiljanlegu málefnum, fyrr en þeir höfðu heyrt erkibiskupsboðskap í fjölmiðlum þeim, sem eru óþreytandi við að lepja upp eftir biskupum víxlaranna. Öll þessi fjölmiðlaathygli hefur komið þeirri fyrru inn hjá þessum mönnum að þeirra sé valdið, en að vísu ekki ábyrgðin, og þeirra orð, stórisannleikur. Morg- unblaðið, eitt fjölmiðla, hefur haft þor til að gagnrýna, með réttu, ýmsa reikningsstokka „fræðimanna" bæði í stjórnun fiskveiða og við stjómun hagkerfis. Hafí ritstjórar blaðsins þökk. Almenningur mun gera sér ljósari grein fyrir því, að kenningar þessara manna eru ekki betri eða heilagri en kenningar „erkibiskupa" fortíðar- innar þá því var haldið að almúgan- um að jörðin væri flöt. Stundlegar kenningar í efnahags- stjómun, s.s. Ólafslögin, dæmast oft á börn síns tíma og eiga alls ekki við þegar víð- ara sjónarhom fæst, með fjarlægð í tíma. Tökum dæmi, við setn- ingu laganna var vísi- tala á launum og hækk- uðu þau til samræmis við hækkanir úti í þjóð- félaginu, til að mynda vegna hækkana á kaffi. Ekki tók það menn langan tíma að sjá að við svo búið mátti ekki una, ekki gætu fram- leiðendur á Islandi borið kostnað af frostnóttum í Brasilíu. Einnig urðu menn á einu máli um að ekki dygði að launa- greiðendur hefðu eitthvað með olíu- kreppu, og slíka óáran að gera, til hækkunar launa. Spakvitrir fóru að tala um víxlverkanir, sem eitthvað fyrirbæri sem væri þeim algerlega ókunnugt og því óviðkomandi, skepn- an hefði tekið upp á þessum fjanda að þeim fomspurðum. Settust nú spakir menn niður og lögðu til við stjómendur þjóðarinnar að afnema bæði vísitölubætur á laun, en samt töldu hinir sömu það aldeilis nauðsyn- legt, að reikna téða vísitölu út, sérdeil- is tilhækkuna lánskjaravísitölu, ekki máttu víxlararnir missa spón úr sínum aski. Mátturinn er vaxtavinanna. Almenningur er orðinn hundleiður á svartagalls- rausi kerfisvarðra böl- sýnismanna, segir Bjarni Kjartansson, sem hann segir hafa brugðist ókvæða við bataspám forsætis- ráðherra. Síðasta dæmi þessa er, að nú hef- ur raskast hlutfall innan starfshópa, vegan sífelldra hagræðingarátaka. Þannig hefur starfsfólki fækkað sem hefur stuttan starfsaldur, og því á lægri launum, en þeir sem eldri eru í starfi, og því á betri kjörum, halda vinnu sinni. Framangreint hefur það í för með sér að vísitala launa hækk- ar, en kjör launþega hafa ekki batn- að sem þessu nemur. Þrátt fyrir að allir, sem koma að málum, viti þetta, þá er ekkert gert, heldur mun láns- kjaravísitalan sjá um að víxlarnir hagnist vel á þessu. Dýrðin er vaxta- vinafélagsins. Það er hjákátlegt, jafnvel grát- broslegt, að hlusta á hagfræðinga sem nefna sig við jafnaðarmennsku tala um nauðsyn vísitölubindingar á fjárskuldabindingum, helsta fótakefli launþega sem hafa þor til að reyna að eignast húsaskjól. Einnig hlómar þessi kratíski söngur illyrmislega í eyrum einyrkja og smáatvinnurek- enda. Læðist að mönnum sá grunur að það sé ástæða fyrir þessu, nefnilega sú að þegar allt leikur í lyndi, er ekki þörf á sífelldum „félagslegum" úrræðum. Þá minnka völd þessara manna, sem enginn hefur kosið til valda. Minnugir þess, að ekki væri þeir vissir um ráðningu til einkafyrir- tækja, hamast þessir við að sverta og hæða allt það jákvæða sem kem- ur fram á hveijum tíma. Fagleg vinnubrögð eru farin að þýða að ekki megi ráða neinn til stjórnunar innan kerfísins nema hinn sami sé langskólagenginn í tilteknu fagi, og helst til vinstri í stjórnmál- um. Ekki þora kerfiskarlar að horfa til stefnu margra stórfyrirtækja úti í hinum stóra heimi, sem hafa uppi annað, og að þeirra mati, skynsam- legra verklag í þeim efnum. Háttur smiðsins er, að hafa góð og beitt verkfæri í höndum en þau ráða ekki ferðinni, það gerir smið- urinn, ella yrði engin smíðisgripur- inn. Eggja ber Davíð Oddsson að láta tilfínningu sína ráða að nokkru, minnugur þess að kenningar eru stundlegar, sköpun er annað og meira. Höfundur er forstöðumaður. Hin fjármálalegu Medúsuhöfuð Bjarni Kjartansson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.