Morgunblaðið - 23.08.1994, Page 52
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1 103 RKYKJA VÍK
SÍMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTIIÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Júlíus
SLÖKKVILIÐSMENN í reykköfunarbúningum fóru niður í tank prammans með súrefni og komust mennirnir þá til meðvitundar.
Fjórir menn urðu fyrir eitrun inni í dýpkunarpramma við Reykjavíkurhöfn
Björgunarmaður féll með-
vitundarlaus niður í opinu
TVEIR menn voru hætt komnir þegar þeir urðu
fyrir eitrun og misstu meðvitund þar sem þeir
ætluðu að hefja störf inni í lokuðu rými niðri í
dýpkunarpramma, sem liggur við Grandagarð, á
áttunda tímanum í gærkvöldi. Þriðja starfsmann-
inum tókst við illan leik að komast upp úr pram-
manum og kalla eftir aðstoð slökkviliðs og lög-
reglu en hann fékk vægari eitureinkenni.
Slökkviliðsmaður sem fyrstur fór niður í pram-
mann til að huga að mönnunum missti meðvitund
nær samstundis og hann kom niður í prammann.
Mennirnir voru allir fluttir á slysadeild og voru
óðum að ná sér í gærkvöldi, skv. upplýsingum
læknis.
Talið er að mennirnir hafi fengið kolmónoxíð-
eitrun, sem myndast í miklu loftleysi. Voru þeir
allir með meðvitund þegar þeir komu á slysa-
deild en einn þeirra hafði einnig meiðst á höfði
eftir að hafa fallið úr stiga ofan í tankinn.
Reykkafarar náðu mönnunum
Mennirnir þrír ætluðu að huga að olíuskiptum
í prammanum og fóru tveir þeirra niður í hliðar-
tank á prammanum gegnum þröngt op og hnigu
niður meðvitundarlausir þegar þeir komu ofan í
tankinn. Þriðji maðurinn snéri strax við og kall-
aði eftir aðstoð. Slökkviliðsmaður sem fyrstur
kom til aðstoðar hné niður um leið og hann kom
í opið og féll niður í tankinn. Að sögn lögreglu
hafði hann ekki fengið réttar upplýsingar um
slysið og mun hafa talið að mennirnir væru
klemmdir niðri í prammanum.
Voru slökkviliðsmenn í reykköfunarbúningum
þá sendir niður með súrefnistæki til að sækja
mennina sem komust strax til meðvitundar þegar
þeir fengu súrefni. Voru þeir í fyrstu mjög ring-
laðir en vel gekk að ná þeim upp og flytja þá á
slysadeild. Ekki er talið að miklu hafi mátt muna
að verr færi, en aðeins liðu nokkrar mínútur frá
því að hjálparbeiðni barst þar til sjúkrabílar og
lögregla voru komin á vettvang.
Að sögn læknis áttu tveir mannanna að fá að
fara heim í gærkvöldi eftir að þeir höfðu jafnað
sig en þeir sem urðu fyrir mestri eitrun dvöldu
áfram á sjúkrahúsi í nótt undir eftirliti lækna.
Lögfræðingur LIU
Kemur ekki
til greina
að ákveða
veiðikvóta
JÓNAS Haraldsson, lögfræðingur
LÍÚ, telur ekki koma til greina að
íslendingar setji sér einhliða þorsk-
kvóta í Barentshafi eins og Jóhann
A. Jónsson, útgerðarmaður á Þórs-
höfn, hefur stungið upp á.
Jóhann ætlar að leggja þessa til-
lögu fram á fundi útgerðarmanna
með sjávar- og utanríkisráðherra á
Akureyri á morgun, en hann segir
tillögur sínar byggjast á aðild Is-
lands að hafréttarsáttmála SÞ.
„Ég er á móti gertæki í hvaða
mynd sem er, að menn taki sér þann
rétt sem þeir telja sig eiga eða vilja
hafa. Ég tel að það eigi að ganga
til samninga eins og alltaf,“ sagði
Jónas.
Ekki einfalt mál
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir allt of snemmt að ræða hvort
þessi hugmynd komi til greina.
„Þetta er mál sem þarf að skoða
mjög vel, því þetta er ekki einfalt,"
sagði hann.
„Þetta hefur ekkert verið rætt,“
sagði Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra þegar hann var inntur
álits á tillögu Jóhanns A. Jónssonar.
Þorsteinn vildi ekki tjá sig frekar um
málið.
■ Fiskveiðideilan/6 og 8
------♦ ♦ ♦-----
Markaða fyrir
kjöt leitað víða
UNDANFARIÐ hafa margir aðilar
leitað nýrra markaða fyrir kindakjöt
og hefur áherslan verið lögð á að
selja unnið kjöt sem gæðavöru.
Við markaðsöflunina hafa fram-
leiðendur m.a. notið aðstoðar fisk-
sölufyrirtækjanna. Verð sem fengist
hefur er enn nokkuð undir því sem
talið er viðunandi fyrir bændur og
vinnslustöðvar.
Frá því í síðustu sláturtíð hafa
verið flutt út tæplega eitt þúsund
tonn af kindakjöti og þá aðallega á
hefðbundna markaði í Svíþjóð og
Færeyjum, en einnig hefur verið
selt kjöt til Japans, Grænlands og
Bandaríkjanna.
■ Reynt að nota/26
■ Aðalfundir/9 og 13
Níu evrópsk trygginga-
félög bjóða þjónustu hér
Léstí bíl-
veltu á Vest-
urlandsvegi
KARLMAÐUR á sjötugsaldri lést
og kona liggur þungt haldin á Borg-
arspítalanum eftir bílveltu, sem
varð á Vesturiandsvegi fyrir innan
Tíðaskarð skammt frá afleggjaran-
um að Hjarðarnesi, um kvöldmatar-
* leytið í gær. Þrennt var í bílnum
og slapp ökumaðurinn með minni
háttar meiðsli.
Konan var flutt alvarlega slösuð
með þyrlu á Borgarspítalann í
Reykjavík og var ekki búið að full-
kanna meiðsli hennar í gærkvöldi,
en samkvæmt upplýsingum læknis
var ekki talið, að hún væri í lífs-
hættu.
Tilkynning barst um slysið kl.
Morgunblaðið/Kristinn
FRÁ slysstað við Tíðaskarð.
19.58. Bifreiðin var á leið til
Reykjavíkur og er talið að ökumað-
ur hafi lent út fyrir malbikið í möl
og misst stjórn á bílnum með þeim
afleiðingum, að hann fór margar
veltur og lenti út af veginum. Mað-
urinn sem lést og konan köstuðust
bæði út úr bílnum við veltuna. Ekki
er unnt að greina frá nafni hins
látna að svo stöddu.
ALLS hafa níu evrópsk trygginga-
félög sent Tryggingaeftirlitinu til-
kynningu um að þau bjóði þjónustu
sína hér á landi frá því samningur-
inn um Evrópska efnahagssvæðið
gekk í gildi 1. janúar sl. Hafa flest-
ar tilkynningarnar borist á seinustu
mánuðum, en ný lög um vátrygg-
ingastarfsemi öðluðust gildi 30. maí
sl.
Að sögn Rúnars Guðmundssson-
ar, skrifstofustjóra hjá Trygginga-
eftirlitinu, starfa félögin í mismun-
andi vátryggingagreinum. Flest eru
líftryggingafélög en einnig eru félög
sem starfa á sviði stóráhættu í
tengslum við atvinnustarfsemi og
stærri fyrirtæki.
Ekkert þessara félaga hefur til-
kynnt að það hyggist opna útibú hér
á landi. Samkvæmt EES-samningn-
um er vátryggingafélögum í löndum
Evrópska efnahagssvæðisins fijálst
að bjóða þjónustu sína óhindrað í
öðrum aðildarríkjum án þess að
þurfa að setja upp útibú og með
sama hætti geta vátryggingartakar
í aðildarríkjunum keypt allar tegund-
ir vátrygginga að eigin vali hvar sem
er innan bandalagsins.
Flest frá Bretlandi
Tryggingaeftirlitið hefur þegar
lokið afgreiðslu tilkynninga nokk-
urra tryggingafélaga en fyllri gögn
vantar frá öðrum áður en þau geta
hafið starfsemi. Ekki er vitað til
þess að einstök félög séu þegar far-
in að kynna starfsemi sína hérlendis
að sögn Rúnars. Flest tryggingafé-
lögin sem tilkynnt hafa að þau bjóði
þjónustu á íslandi eru bresk en eitt
er hollenskt og einnig hefur borist
tiikynning frá þýsku líftryggingafé-
lagi.