Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994'
MORGUNBLAÐIÐ
IMEYTEIUDUR
Ensk/íslenska skólaorðabókin. Útg. Örn og Örlygur, 1986
Ensk/íslensk. Útg. ísafold, 1976
íslensk/ensk. útg. ísafold, 1976
íslensk/ensk. útg. iðunn, 1989
GÉI :m CM
Hvað kostar
orðabókin?
Ensk/ensk. Longman Active Study Dictionary of English
Ensk/ensk. Oxford Advanced Learner's Dictionary, 1989
Ensk/ensk. Oxford Student's Dictionary (kilja)
Sænsk/íslensk. Útg. Mál og menning, 1994
íslensk/sænsk. Útg. Mál og menning, 1994
Dönsk/íslensk. Útg. Mál og menning, 1992
Norsk/íslensk. Útg. Mál og menning, 1993
íslensk/norsk. Útg. Mál og menning, 1993
Íslensk/ítölsk. Útg. Iðunn, 1994
íslensk/þýsk. útg. iðunn, 1993
íslensk/þýsk - þýsk/íslensk Langenscheidts vasaorðabók
Þýsk/þýsk; Schuler Duden Mayers Lexikonverlag (kilja)
íslenska orðabókin. Útg. Mál og menning, 1992,1 ódýrasta b.
íslenska orðabókin. Útg. Mál og menning, 1992, í betra bandi
íslenska orðabókin. Útg. Mál og menning, 1992, í kassa
Frönsk/íslensk. útg. ísafoid, 1953
íslensk/frönsk. útg. isafoid, 1950
(slensk/latnesk. útg. ísafoid, 1958
Spænsk/íslensk. útg. ísafoid
Bóka- Bóka- Bóka- Bóka- Bókab. Bók- Bókabúð Bókabúð Kaupfélag Bókav. Bókabúð Bókval- Bókabúð
verslanir deild verslun búð Máls og Bóka- sala Olívers Lárusar Borg- Jónasar Kefla- Tölvu- Sigbjörns
Eymundson Pennans ísafoldar menningar hornið stúdenta Steins Blöndal firðinga Tómass. víkur tæki Brynjólfss.
Reykjavík Reykjavík Reykjavík Reykjavlk Reykjavík Reykjavík Hafnarf. Reykjavík Borgarnesi ísafirði Keflavík Akureyri Egilsstöðum
4.490,- - 5.580,- 5.690,- - 5.030,- 5.689,- 5.590,- - 5.586,- - 5.586,- 5.586,-
3.990,- 3.990,- - 3.990,- 3.990,- - - 3.490,- - 3.990,- 3.990,- 3.490,- 3.990,-
3.990,- 3.990,- 3.490,- 3.990,- 3.990,- 3.590,- 3.490,- 3.490,- - 3.990,- 3.990,- 3.490,- 3.990,-
4.980,- - - 2.895,- 4.770,- 4.480,- 4.968,- 4.790,- 4.770,- 4.980,- 4.770,- 4.980,- 4.770,-
1.395,- - - 995,- - - - - - 950,- - - -
2.590,- - - 2.495,- - 2.115,- - - - 2.495,- - 2.395,- -
1.090,- - - 995,- - - - - - - 1.038,- - 1.000,-
4.990,- 4.990,- - 4.990,- 4.990,- 4.490,- - 4.990,- - 5.700,- 4.990,- 4.990,- -
4,990,- 4,990,- - 4,990,- 4,990,- 4,490,- - - - - 4,990,- 4,990,- -
8.990,- 5.990,- 8.990,- 8.990,- 5.980,- 8.090,- - 5.980,- 5.980,- 5.980,- 8.990,- 5.980,- 5.980,-
3.853,- 3.853,- 3.853,- 3.853,- 3.853,- 3.470,- - 3.850,- - 3.853,- 3.853,- 3.853,- 3.853,-
3.853,- 3.853,- 3.853,- 3.853,- 3.853,- 3.470,- - 3.850,- - 3.853,- 3.853,- 3.853,- -
8.800,- 8.800,- - 8.800,- - 6.120,- 6.800,- 6.800,- - 6.800,- 6.800,- 6.800,- -
6.279,- 6.279,- 5.980,- 5.980,- 5.980,- 5.650,- 6.279,- 6.270,- - 5.980,- 5.980,- 6.280,- 5.980,-
995,- - - 775,- - - - - - 682,- - 565,- -
1.850,- - - 1.645,- - - - - - 1.595,- - - -
7.866,- 7.900,- 6.900,- - 7.900,- 6.210,- 6.900,- 6.866,- - 6.900,- 7.900,- 6.900,- -
7.990,- 8.990,- - 8.990,- 8.900,- 7.190,- 7.990,- 8.990,- 7.990,- 7.990,- 8.900,- 7.990,- 7.990,-
8.990,- 9.990,- 8.990,- 9.990,- 9.900,- 8.090,- - - - 8.990,- - 8.990,- -
3.990,- 3.990,- 3.490,- 3.990,- 3.990,- 2.980,- 3.490,- 3.490,- - 3.990,- 3.990,- 3.490,- 3.990,-
3.990,- 3.990,- 3.990,- 3.990,- 3.990,- 2.980,- 3.490,- 3.490,- - - 3.990,- 3.490, 3.990,-
1.495,- 1.995,- 1.950,- 1.995,- 1.990,- 1.345,- - 2.395,- - - - - -
1.995,- 1.995,- 1.950,- 1.995,- 1.990,- 1.345,- 1.495,- 1.995,- 1.995,- 1.995,- 1.995,- 1.495,- -
400 safn-
kortshafar
fá ávísanir
OLÍUFÉLAGIÐ
hf. Essó sendir um
þessar mundir 400
Safnkortshöfum
ávísun í pósti
ásamt yfirliti um
viðskiptin. Avísan-
imar fá þeir sem
hafa safnað að
minnsta kosti 10.000 punktum í
sumar sem jafngildir þá þúsund
krónum. Ávísanirnar gilda sem
greiðslumiðill á bensínstöðvum
Essó.
Um 35.000 manns eiga nú Safn-
kort og allir félagar hafa fengið
fréttabréf þar sem upplýsingar um
sértilboð og afsláttarkjör koma
fram.
Nýja bensíniö frá
Olís minnkar
myndun útfellinga
Nýja HreintSystem 3 bensíniö frá Olís dregur úr
myndun útfellinga í inntaksventlum, en þaö leiöirtil
meiri bensínsparnaöar. Þegar nýja HreintSystem 3
bensínið er notaö, veröa minni útfellingar á inntaks-
ventlum miðað við notkun á ööru
ÉÉ Nýja HreintSystem 3
bensíniö
IH Bensín án
íblöndunarefna
2 Meöalmagn útfelllnga í Inntaksventlum i
C fimm mlsmunandi pörum evrópskra bila eftir
S 12.000 km akstur.
Meirl kraftur, hrelnnl útblástur, mlnnl eyösla.
Sjá nánar I kynningarbæklingi Olis um HreíntSystem 3.
Eitt blab fyrir alla!
- kjarni málsins!
Verðkönnun vikunnar
Orðabækur víða
á tilboðsverði
Orðabækur bjóðast á afar mismunandi verði.
Verðmunurinn felst í því að bókaútgáfur
bjóða verslunum bækur á tilboðsverði, þær
kaupa mismikið inn, selja mismikið og eiga
því tilboðsbækur mislengi.
LÆGSTA verð sex nýlegra orða-
bóka er samtals 32.325 kr., en
hæsta verð 43.730 kr. Munurinn
er 11.405 kr. Bækurnar sem um
ræðir eru Ensk/íslensk skólaorða-
bók (Örn og Örlygur, 1986), ís-
lensk/ensk orðabók (Iðunn, 1989),
Dönsk/íslensk (Mál og menning,
1992), Íslensk/ítölsk (Iðunn, 1989),
íslensk/þýsk (Iðunn, 1993) og ís-
lenska orðabókin (Mál og menning,
1992).
Eins og sést á meðfylgjandi töflu
þyrfti að leita fanga í þremur bóka-
verslunum til þess að fá þessar
bækur á lægsta verði. Þrjár síðast-
nefndu bækurnar voru ódýrastar í
Bóksölu stúdenta, sem yfirleitt var
með lægsta verðið. Ensk/íslenska
skólaorðabókin var á 4.490 kr. í
Eymundsson, íslensk/enska orða-
bókin var langódýrust í Bókabúð
Máls og menningar á 2.895 kr., en
kostaði hátt á fimmta þúsund ann-
ars staðar. Mesti verðmunurinn var
á Dönsk/íslensku orðabókinni eða
3.010 kr., en hún kostaði tæp sex
þúsund í sjö verslunum og tæp níu
þúsund í fimm.
Þetta eru helstu niðurstöður
verðkönnunar, sem gerð var fyrr í
vikunni í þrettán bókaverslunum á
höfuðborgarsvæðinu og úti á landi.
Kannað var verð flestra stærri orða-
bóka, sem framhaldsskólanemend-
ur þurfa á að halda. Verð nokkurra
ensk/enskra orðabóka var látið
fljóta með, sömuleiðis verð á
þýsk/þýskri orðabók og ís-
lensk/þýskri vasaorðabók, sem
gengur jafnan undir nafninu „Litla
gula hænan". Tilfínnanlegur skort-
ur virðist vera á þýsk/íslenskri
orðabók og notast nemendur jöfn-
um höndum við „Litlu gulu hæn-
una“ og þýsk/íslensk - ís-
lensk/þýsku orðabók Orðabókaút-
gáfunnar.
Tilboðsbækur
Verðmunur einstakra bóka felst
í því að bókaútgáfur bjóða verslun-
um stundum bækur á tilboðsverði,
verslanir kaupa mismikið inn, seija
mismikið og eiga því tilboðsbæk-
urnar mislengi. Nanna Rögnvaldar-
dóttir, ritstjóri hjá Bókaútgáfunni
Iðunni, segir að bókaútgáfur ákveði
verð bóka sinna þannig að þær selji
verslunum bækur samkvæmt við-
miðunarverði og gefi 30% afslátt
af því verði án virðisaukaskatts.
Hún segir verslanir yfirleitt nýta
afsláttinn til fulls við álagninguna.
Verð á nýju Dönsk/íslensku
skólaorðabókinni er ekki á töflunni,
en hún fékkst alls staðar á 2.990
kr. á sérstöku tilboðsverði, sem gild-
ir út þennan mánuð. I október
hækkar hún í 4.490 kr.
Tæplega eitthundrað eintök
Stóra Ensk/íslenska orðabókin
(Örn og Örlygur, 1986) fékkst
hvergi nema í Eymundsson, sem
fyrir nokkru keypti allar birgðir
Arnar og Örlygs hf. Hún kostar
22.686 kr. og er til í innan við
hundrað eintökum.
VSOP-
lambakjöt
í Hagkaup
HAGKAUP er að hefja söluátak á
nýju lambakjöti í verslunum sínum.
Um er að ræða svokallað VSOP-
lambakjöt frá SS, en nafnið stendur
fyrir vöðvamikið, sérvalið og prýðis-
gott.
Kjötið er úr gæðaflokki DIB, sem
er örlítið stærri og feitari en DIA,
sem mesta framboðið er af.
VSOP-kjötið er fitusprengt og lát-
ið meyrna við kjöraðstæður, sem
þýðir að það á að vera meyrt. Kjötið
er meira snyrt en gengur og gerist.
Morgunblaðið/Júllus
Hryggurinn er mjórri en ella og allur
mör fjarlægður. Lærið er snyrt með
því að taka af hupp og fitu og mör
er snyrtur af við rófubein.
Kílóið af umræddu VSOP-lamba-
kjöti kostar 785 krónur.