Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 29
28 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 HÚSBRÉF MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 691100. Auglýsingar: 691111. Askriftir: 691122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 691329, frétt- ir 691181, íþróttir 691156, sérblöð 691222, auglýsingar 691110, skrif- stofa 681811, gjaldkeri 691115. Áskriftargjald 1.400 kr. á mánuði innan- lands. 1 lausasölu 125 kr. eintakið. IÐNAÐUR OG AUÐLINDAGJALD * AUNDANFORNUM árum hafa staðið, með hléum, snarp- ar umræður um gjaldtöku í sjávarútvegi vegna nýting- ar á sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Þau rök, sem Morg- unblaðið m.a. hefur fært fram fyrir slíkri gjaldtöku, hafa fyrst og fremst verið þau, að eðlilegt væri, að tiltölulega fámennur hópur þjóðfélagsþegna, sem nýtir sameiginlega auðlind, greiði öðrum landsmönnum þóknun fyrir aðgang að fiskimiðunum. Önnur rök hafa ávallt verið fyrir hendi en minna rædd á opinberum vettvangi en þau lúta að starfsskilyrðum iðnað- arins. Snemma á þessu ári skipaði Sighvatur Björgvinsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, nefnd til þess að kanna starfsskilyrði og samkeppnisstöðu íslenzks iðnaðar. Afrakst- ur af starfi nefndarinnar er skýrsla, sem rædd var á sér- stakri ráðstefnu í fyrradag. í niðurstöðum skýrslunnar er fjallað um auðlindagjald og þar segir m.a.: „Markmiðið með auðlindagjaldi er fyrst og fremst að eyða því forskoti, sem gjöfulasta auðlind þjóðarinnar veitir notendum hennar um- fram það, sem aðrir atvinnuvegir verða að búa við, og jafn- framt treysta hinar efnahagslegu forsendur þess, að hér vaxi úr grasi nýjar atvinnugreinar. Einnig má líklegt telja, að auðlindagjald leiði til betri sáttar um fiskveiðistjórnunar- kerfið, þar sem handhafar kvóta fengju gegn gjaldi ráðstöf- unarrétt yfir sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.“ í skýrslunni segir ennfremur: „Með auðlindagjaldi er átt við opinbera gjaldtöku fyrir rétt til fiskveiða eða gjald fyr- ir veiddan afla. Hægt er að leggja auðlindagjald á undir hvaða fyrirkomulagi fiskveiðistjórnunar sem er og álagning þess getur hvort sem er verið miðstýrð eða ákveðin á mark- aði.“ Og loks segir: „Flest fræðileg rök og niðurstöður hag- rannsókna benda til að upptaka auðlindagjalds hefði jákvæð áhrif á íslenzkan þjóðarbúskap.“ Þetta eru athyglisverðar niðurstöður. Þær benda til þess, að sú gjaldtaka í sjávarútvegi, sem Morgunblaðið hefur mælt með undanfarin ár til þess að leiðrétta það ranglæti, sem stór hluti þjóðarinnar hefur verið beittur með ókeypis aðgangi hluta þjóðarinnar að sameiginlegri eign, sé æskileg einnig af öðrum ástæðum. Iðnaður hefur ekki náð að blómstra hér að nokkru marki vegna þess, að iðnaðurinn getur ekki keppt við sjávarútveginn, þegar góðæri er til sjávar. Með auðlindagjaldi í sjávarútvegi er stefnt að því að jafna samkeppnisskilyrðin milli þessara tveggja atvinnu- greina. Það er því býsna stór hópur landsmanna, sem hefur hags- muni af því að gjaldtaka í einhveiju formi verði tekin upp í sjávarútvegi. Þar er átt við þann meginþorra þjóðarinnar, sem hefur ekki beinlínis atvinnu af fiskveiðum, þótt þjóðin öll lifi að sjálfsögðu með einum eða öðrum hætti á fiskveið- um og -vinnslu. En þar er líka átt við iðnaðinn sérstaklega, þá atvinnugrein, sem miklar vonir hafa verið bundnar við um að taki við þeim vaxandi fjölda, sem leitar út á vinnu- markaðinn. Talsmenn útgerðarinnar hafa hingað til barizt hart gegn gjaldtöku í sjávarútvegi. Sú afstaða byggist á misskilningi af þeirra hálfu. Ef talsmenn iðnaðar og kjörnir trúnaðar- menn meginþorra landsmanna taka höndum saman er kannski von til þess, að útgerðin sjái sér hag í því að ganga til samkomulags um sanngjarna og skynsamlega gjaldtöku í sjávarútvegi. Umræðurjim þessi efni eru nú komnar í nýjan farveg með skýrslu nefndar iðnaðarráðherra um starfsskilyrði iðn- aðar. Þess vegna er þessi skýrslugerð fagnaðarefni. I ræðu, sem Jón Sigurðsson, forstjóri íslenzka járnblendifélagsins hf., flutti á fyrrgreindri ráðstefnu, sagði hann m.a.: „Af hægfara og skrykkjóttri þróun iðnaðar á því tímabili, sem skýrslan fæst við, og beinum stórfelldum samdrætti síðustu 6-8 árin, er ljóst að það sem vantar er vöxtur. Það er vöxt- ur, sem þarf til að svara kalli þess fólks, sem nú og næstu ár býður fram vinnu sína. Sá vöxtur verður ekki, nema aðstæður fyrir hann séu beinlínis og með afgerandi hætti búnar til.“ Bæði höfundar skýrslunnar og Jón Sigurðsson eru í raun og veru að leggja til grundvallarbreytingu á þeim aðstæð- um, sem atvinnuvegum okkar eru búnar. Tími stöðugleika í efnahagsmálum og lágrar verðbólgu er rétti tíminn til þess að framkvæma slíkar breytingar. Vaxandi vanskil í húsbréfakerfinu Hlutfall vanskila af heildaútlánum 2,0% — 0,0- 1992 1993 1994 Ástæður þess að fólk lendir í vanskilum í húsbréfakerfinu Vegna atvinnuleysis Vegna lægri tekna Vegna veikinda Af öðrum orsökum Um 2/3vanskila orsakast af atvinnuleysi og lægri tekjum Um 5.000 af um 17.000 lántakendum í hús- bréfakerfínu eru með lán sín í vanskilum. Vanskil um 20% lántakenda eru það mikil að lánin hafa verið sett í lögfræðiinnheimtu. Egill Olafsson leitaði skýringa á þessum miklu vanskilum Ikönn'un sem Grétar J. Guð- mundsson, rekstrarstjóri Hús- næðisstofnunar, gerði nýlega á ástæðum þess að fólk lendir í vanskilum með húsnæðislán sín kom fram að 35% vanskila má rekja til lægri tekna kaupenda. Þar getur verið um að ræða allt frá atvinnu- ieysi einstaklings í 1-2 ár til atvinnu- leysis annarrar fyrirvinnu fjölskyldu í 2-3 mánuði. Um 30% ientu í van- skilum vegna þess að tekjur lækk- uðu. Vanskil um 15% lántakenda má rekja til veikinda. Vanskil þeirra 20% sem eftir standa má rekja til annarra þátta, ekki síst rangra ákvarðana húskaupenda. í byijun mars 1994 hafði Hús- næðisstofnun veitt 16.594 hús- bréfalán frá upphafi. Þar af voru 4.378 lán I vanskilum. Vanskilin eru í raun enn meiri því að þau voru metin skömmu fyrir gjalddaga hús- bréfalána. Vanskilin hafa aukist stöðugt, einkum á þessu og síðasta ári. Segja má að síðustu misserin hafí vanskilin aukist um hundrað milljónir milli gjalddaga. í ágúst- mánuði námu 30 daga vanskil meira en 1,1 milljarði króna. í ágúst 1992 námu vanskiiin um 230 milljónum. Lán eru send í lögfræðiinnheimtu og uppboðsbeiðni send til sýslu- manns þegar tveir gjalddagar eru í vanskilum. Samkvæmt nýjustu tölum fara um 20% lána þessa leið. Stjórnvöld óttast aukin útlánatöp Vanskil í húsnæðiskerfinu eru ekki nýtt fyrirbæri. Vanskil hjá Byggingarsjóði verkamanna hafa t.d. verið meiri en í húsbréfakerfinu. Fjögurra mánaða vanskil hjá sjóðn- um voru yfir 30% á árinu 1990, en lækkuðu niður í 22% á árinu 1992. Vanskilin hafa síðan aukist aftur. Vanskil hjá Byggingarsjóði ríkisins eru í kringum 12%. Arið 1991 ákvað ríkisstjórnin að veita húskaupendum í greiðsluerfiðleikum sérstök greiðsluerfíðleikalán. Gefinn var út sérstakur flokkur húsbréfa að upp- hæð um 2,5 milljarðar í þessu skyni. Um 60% af þeim sem fengu þessi lán eru nú í vanskilum. Fyrir meiri- hluta fólks í greiðsluerfiðleikum virðast þessi lán ekki hafa falið í sér varanlega lausn. Sú spurning vaknar hvort búast megi við að Húsnæðisstofnun eigi eftir að verða fyrir miklu tapi vegna þessara vanskila. í gegnum árin hefur tap stofnunarinnar vegna hús- næðislána einungis numið 0,1-0,2% af heildarútlánum. Stjórnvöld virð- ast óttast að tapið eigi eftir að verða meira í framtíðinni. Umræða á sér nú stað innan ríkisstjórnarinnar um að hækka ábyrgðargjald úr 0,25% í 0,45%. Gjaldinu er ætlað að standa undir útlánatöpum. Atvinnuleysi og lægri tekjur valda erfiðleikum „Stærstur hluti eða ZA lántakenda er í vanskiium vegna þess að tekjur hafa lækkað frá því sem þær voru þegar fólk keypti eða það hefur misst vinnuna tímabundið eða um lengri tíma. Það er auðvitað nokkuð um að fólk taki rangar ákvarðanir. Við höfum fengið þó nokkur dæmi um fólk sem hefur farið í nám í 6 mán- uði eða eitt ár í von um að komast í hærri tekjur að því loknu. Það gengur ekki eftir eða eitthvað fer úrskeiðis. Svo getur verið að fólk taki ákvörðun um að kaupa sér bíl FIMM manna fjölskylda hóf að byggja sér 130 fermetra hús árið 1988. Eiginmaðurinn og eigin- konan voru bæði í góðum störfum og höfðu ágætar tekjur. Áríð 1993 voru heildartekjur fjölskyld- unnar um 240 þúsund á mánuði. Aðstæður breyttust hjá báðum fyrirvinnum snemma á þessu ári vegna samdráttar hjá vinnuveit- eudum. Yfirvinna var skorin nið- ur. Skyndilega voru heildartekjur fjölskyldunnar komnar niður í 170 þúsund á mánuði. Vanskil á húsnæðislánum hlóðust upp og á endanum leitaði fjölskyidan til Húsnæðisstofnunar með ósk um aðstoð. Þá var staðan þannig að heildarskuldir fjölskyldunnar með vanskilum voru 6,5 milljónir. Skuld hjá Húsnæðisstofnun nam sem það hafði ekki efni á að kaupa. Annars fáum við ekki mörg slík dæmi inn til okkar vegna þess að flestir vita að við eigum eingöngu að sinna erfiðleikum fólks sem rekja má til húsnæðiskaupa,“ sagði Grét- ar. 35-40% verða að selja íbúðina „Það sem við gerum þegar fólk kemur til okkar með vanskil sín er að við reiknum út hvort hægt er að koma greiðslubyrðinni undir viðráð- anlegt mark. Þá skoðum við alla þá möguleika sem fólki standa til boða. Við reiknum út hveiju það myndi breyta ef lánum væri skuldbreytt með lengsta mögulega lánstíma. Ef við komumst að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir það verði greiðslu- þá 3,9 milljónum, skammtíma- skuldir I bönkum voru 1,6 milljón- ir og lífeyrissjóðslán stóð í 600 þúsundum. Vanskil námu samtals 900 þúsundum. Greiðslubyrði lána var 64% af heildartekjum. Með skuldbreytingum hjá öllum lánadrottnum náðist að koma greiðslubyrðinni niður í 30%. Með óbreyttum tekjum verður greiðslubyrðin þetta mikil næstu 3-4 ár. Það er mat Húsnæðisstofn- unar að það verði mjög erfitt fyr- ir fjölskylduna að halda hús- næðinu, en að hún eigi þó mögu- leika á því, ekki síst ef launin hækka á ný. Stofnunin hvetur fjöl- skylduna til að vera mjög vakandi yfir fjármálum sínum og að selja strax ef vanskil fara að hlaðast upp á ný og engar líkur séu á að tekjur hækki að nýju. byrði meiri en við teljum fólk ráða við hvetjum við það eindregið til að selja. Það eru um 35-40% lánþega sem fá slíka ráðgjöf frá okkur,“ sagði Grétar. Grétar sagði að Húsnæðisstofnun hvetti þetta fólk til að selja strax því þegar lán væru komin í mikil vanskil væri hver mánuður dýr. Dráttarvextir væru fljótir að hlaðast upp og eigið fé fólks fljótt að eyðast. I þeim tilvikum þar sem stofnunin metur að líkur séu á að hægt sé að koma málum þannig fyrir að fólk geti ráðið við lánin eru vanskil sett á skuldabréf til allt að 15 ára. Fólk greiðir síðan af þeim lánum samhliða sjálfum húsbréfunum. Mörgum nægir að minnka við sig’ Grétar sagði að fólk sem neyðst hefði til að selja íbúðir sínar ætti nokkra kosti. Stór hópur gæti bjarg- að sér með því að kaupa ódýrara húsnæði. Ákveðnum hópi væri ráð- lagt að selja og fara á leigumarkað- inn. Þá ættu sumir kost á því að fara yfir í félagslega íbúðakerfið ef tekjur og eignir væru innan tilskil- inna marka. Grétar sagði að það væri reyndar dálítið mismunandi milli sveitarfélaga hvort fólk ætti kost. á því að fara í félagslega íbúða- kerfíð. Sum sveitarfélög gerðu þá kröfu að fólk hafi ekki átt húsnæði í einhver ákveðin ár fyrir umsókn. Taka verður tillit til óvissu um framtíðartekjur Greiðslumatið gerir ráð fyrir að greiðslubyrði fólks sé ekki meiri en 20% af heildarlaunum. Grétar sagði að flestir ættu að ráða vel við slíka greiðslubyrði og sumir gætu með hagsýni ráðið við hærri greiðslu- byrði. Matið byggðist á því að greiðslubyrðin væri þung fyrstu 4 árin, en léttist síðan. Flestir ættu að geta ráðið við lánin eftir 4 ár. „En greiðslumatið byggir á því að ekkert fari úrskeiðis. Ef tekjur lækka, eins og gei-st hefur hjá mörg- um, hefur greiðslumatið í sjálfu sér ekkert gildi," sagði Grétar. Grétar sagði að þennan þátt, óvissuna um framtíðartekjur, yrði fólk að reyna að taka með í reikning- inn þegar ákvörðun væri tekin um kaup á húsnæði. „Allir sem kaupa húsnæði eiga að reikna með því að geta lækkað í launum." Hugarfarsbreyting Grétar sagði að of mikið væri um að fólki drægi of lengi að leita að- stoðar Húsnæðisstofnunar. Stund- um væri hreinlega ekkert hægt að gera nema að selja vegna þess að vanskil væru orðin svo mikil. Mjög stór hópur kæmi hins vegar tíman- lega og fengi aðstoð áður en allt væri komið í óefni og sá hópur færi stækkandi. „Við höfum einnig orðið vör við að fólk er farið að gera meira af því að kaupa húsnæði sem er ekki upp úr öllu valdi hvað varð- ar stærð eða verð. Við merkjum að smá hugafrarsbreyting er að eiga sér stað. Fólk er farið að leggja meiri áherslu á að vera ekki að leggja allt í sölurnar til að eignast stórt húsnæði,“ sagði Grétar. 900 þús. í vanskilum FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 29 Afskipti bæjaryfirvalda af framkvæmdum Miðbæjar Hafnarfjarðar hf. \ Morgunblaðið/Sverrir VIÐ Fjarðargötu 13-15 í Hafnarfirði er Miðbær Hafnarfjarðar hf. að reisa verslunar- þjónustu- og skrifstofuhúsnæði. Framkvæmdir hófust í mars 1993 og er gert ráð fyrir að verslunarmiðstöðin verði fullbúin í nóvember næstkomandi. Draumur um miðbæ sem stæð- ist samkeppni við Reykjavík Uppbygging miðbæjarins og þeir draumar manna að miðbær Hafnarfjarðar yrði að miðbæ sem stæðist samkeppni við Reykjavík lágu að baki samþykktar um að veita Miðbæ Hafnarfjarðar hf. bæjarábyrgð. Krístín Gunnarsdóttir rekur afskipti bæjaryfírvalda af framkvæmdum í miðbæ Hafnarfjarðar, en að mati Magnúsar Jóns Ámasonar bæjar- stjóra á bærinn um 290 milljónir króna bundn- ar í byggingunni fyrir utan ábyrgðir. Heistu ákvarðanir og samþykktir 26. febrúar 1991: Miðbær Hafnarfjarðar hf. sækir um lóð í miðbæ Hafnarfjarðar. 5. nóvember 1991: Bæjaryfirvöld sam- þykkja lóðarúthlutun við Fjarðargötu 19. desember 1991: Bæjaryfirvöld samþykkja að kaupa hlut í húsinu og styðja byggingu hótels 13. nóvember 1992: Bæjaryfirvöld samþykkja einfalda bankaábyrgð að upphæð 120 milljónir króna. Desember 1992: Hugmyndir um bílageymslu koma fram. 14. jan. 1993: Bæjaryfirvöld samþykkja leigu á bílageymslukjallara til 15 ára. 22. febrúar 1993: Mótmæli gegn fyrirhugaðri stórbyggingu afhent bæjaryfirvöldum. 6. aprfl 1993: Bæjaryfirvöld samþykkja að lækka húsið frá upphaflegum hugmyndum. 4. ágúst 1993: Byggingamefnd samþykkir endanlegar teikningar. 17. maí 1994: Bæjarstjórn samþykkir að kaupa húsnæði af Miðbæ Hafnarfjarðar hf. fyrir Almenningsvagna og hugsanlegt bókasafn. að var í byijun nóvember árið 1991 að bæjarstjórn Hafnar- fjarðar samþykkti að úthluta Miðbæ Hafnarfjarðar hf. lóð við Fjarð- argötu 13-15. Álögð gatnagerðar- gjöld ásamt byggingaleyfisgjaidi voru rúmar 82,6 millj. og í desember árið 1991 greiddi fyrirtækið 22 millj. af þeirri upphæð. Þá er með kaupum bæjarins á hluta í húsnæðinu miðað við að skuldajafna 15 millj. og greiða 20 millj. með skuldabréfi sem fellur í gjalddaga 1. desember næstkomandi og með tryggingu í greiðslu sömu fjár- hæðar sem Búnaðarbankinn mun greiða samkvæmt kaupsamningi. Gert er ráð fyrir að eftirstöðvarnar, 25,6 milljónir,. verði greiddar með skulda- bréfi til þriggja eða fjögurra ára með veði í fasteigninni. Bæjaryfirvöld samþykkja kaup og bæjarábyrgð Þann 19. desember 1991 sam- þykkja bæjaryfirvöld að kaupa hlut í húsnæðinu fyrir allt að 60 millj. til þess meðal annars að auðveida bygg- ingaraðilum að hefja framkvæmdir. Hugmyndin var að skipta hlut bæjar- ins þannig að 50 millj. rynnu til kaupa á hluta í verslunarmiðstöðinni en 10 millj. til styrktar hótelbyggingunni. Tæpu ári síðar eða 13. nóvember 1992 samþykkti bæjarráð að veita Miðbæ Hafnarfjarðar hf. einfalda bæjarábyrgð fyrir skuldabréfum að upphæð allt að 120 milljónum til 17 ára með 9,7% vöxtum og hefur í dag verið gengið frá sölu skuldabréfa fyr- ir þessari upphæð. Að sögn Magnúsar Jóns Árnasonar bæjarstjóra nemur bæjarábyrgðin í dag rúmum 143 millj- ónum. Baktrygging bæjarins er veð í þeim hluta byggingarinnar sem ætlað- ur er undir hótel og hvíla skuldabréf- in á 1. veðrétti. Samþykkt í bæjarráði Ingvar Viktorsson, fyrrverandi bæj- arstjóri, segir að bæjarábyrgðin hafi verið veitt með það fyrir augum að stuðla að uppbyggingu miðbæjarins og uppfylla um leið þá drauma manna um miðbæ í Hafnarfirði sem stæðist samkeppni við Reykjavík. „Þess vegna er þetta til komið og samþykkt af öllum bæjarráðsmönnum nema tveim- ur, ef ég man rétt,“ sagði hann. „Menn vildu að þarna risi þetta mannvirki sem raun ber vitni í dag. Síðar var lofað að kaupa af þeim hluta af hús- inu og einnig var loforð um 10 milljón króna hlutafé í hótelhlutanum. Þá var ákveðið að kaupa húsnæði sem var eyrnamerkt sem skiptistöð fyrir al- menningsvagna á neðstu hæðinni. Einnig var lengstum talað um hús- næði á annarri og þriðju hæð fyrir bókasafn þó svo það hafi ef til vill ekki verið eyrnamerkt fyrir safnið en það er löngu búið að ganga frá þessu öllu.“ Keypt fyrir 55,3 millj. í janúar 1993 samþykkir bæjarráð áform lóðarhafa um bílageymslukjall- ara undir húsinu sem rúmi að minnsta kosti 100 bíla, sem komi til viðbótar öðrum bílastæðum í miðbænum. Af þvi tilefni samþykkti bæjarráð að end- urgreiða liluta gatnagerðar- og bíla- stæðagjalda sem næmi að nafnvirði 3.3 milljónum króna á ári að viðbætt- um verðbótum og markaðsvöxtum næstu 15 ár. í samræmi við yfirlýsingu bæjar- stjómar frá 10. desember 1991 sam- þykkti bæjarstjórn 17. maí síðastliðinn að kaupa hlut í húsinu. Hefur verið gengið frá kaupsamningi og er um tvo eignarhluta að ræða fyrir samtals 55.3 millj. Þá hefur bæiarsióður gefið út 10 mmj ' ióiia viaii með gjalddaga 15. september sl. Til tryggingar hefur Miðbær Hafnarfjarðar hf. gefið út tryggingarbréf að nafnverði 10 millj. með 1. veðrétt í eignarhluta i fasteign- inni. Jafnframt lýsir Miðbær Hafnar- fjarðar hf. því yfir að tilkall til þess að Hafnarfjarðarbær kaupi 10 millj- óna króna hlut falli niður þar tii um- ræddur víxill hefur að fullu verið greiddur. Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar 15. september síðastliðinn var sam- þykkt bókun vegna umíjöllunar um viðræður bæjaryfirvalda við forsvars- menn Miðbæjar Hafnarfjarðar hf. Þar kemur fram að ósk um óformlegar og formlegar viðræður um hugsanleg kaup bæjarins- á húsnæði í miðbæjar- kjarnanum hafi einungis komið frá forsvarsmönnum Miðbæjar Hafnar- fjarðar hf. Kostnaður ekki gefinn upp Þeir sem standa að Miðbæ Hafnar- fjarðar hf. eru Þorvaidur Ásgeirsson tæknifræðingur, Gunnar Hjaltalín endurskoðandi, Páll Pálsson kaup- maður og Þórarinn Ragnarsson kaup- maður ásamt Viðari Halldórssyni við- skiptafræðingi sem jafnframt er fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins. Viðar vill ekki uppiýsa um kostnaðaráætlun !> framkvæmdanna né hversu miklu fé f hafi verið varið til þeirra. Það sé við- skiptaleyndarmál sem einungis verði I upplýst ef bæjaryfirvöld kalli eftir því. Sérstök kvöð hvílir á eigninni við Fjarðargötu 13-15 og er Miðbæ llafnarfjarðar hf. óheimilt að veðsetja * skuldabréf, önnur verðbréf eða kvaðir á fasteignina nema með samþykki bæjaryfirvalda. Mun þetta fyrirkomu- lag gilda þar til lóðarleiguhafar og bæjaryfirvöld ákveða annað. Sam- kvæmt veðbókarvottorði eru rúmlega 430 milljónir áhvílandi á eigninni auk rúmlega 55,3 millj. frá bænum sem enn hefur ekki verið þinglýst. Hvers virði er eignin? Mjög erfitt er að segja til um hvers virði húsið er þar sem ekkert bruna- bóta- eða fasteignamat hefur farið fram, enda húsið enn í byggingu. Byggingin öll er samtals Fl.600 fer- metrar og þar af eru báðar verslunar- hæðirnar 5.400 að meðtöldu sameig- inlegu rými í kjallara. Skrifstofur eru um 1.000 fermetrar og hótelrými um 2.300 fermetrar að meðtöldu rými sem fylgir í kjallara. Bæjaryfirvöld hafa látið meta fast- eignina og þar kemur fram að senni- legt markaðsverð er rúmar 517 millj. miðað við staðgreiðslu en Magnús Jón Ámason bæjarstjóri segist miða við að söluverð sé um 850 millj. Viðar Halldórsson, framkvæmdastjóri Mið- bæjar Hafnarfjarðar hf., vildi ekki gefa upp söluverð fyrir hvern fer- metra, enda væri það mismunandi eftir einingum en í viðtali við Fast- eignablað Morgunblaðsins fyrir skömmu er haft eftir Þorvaldi Ásgeirs- syni tæknifræðingi að húsnæðið verði afhent fullbúið en óinnréttað og að reiknað sé með 100 þús. fyrir hvern fermetra. Samkvæmt þvi má ætla að Miðbær Hafnarfjarðar hf. geri ráð fyrir að söluverð fyrir húsið í heild sé um 900 milljónir. Að sögn Viðars Halldórssonar framkvæmdastjóra eru níu einingar í verslunarkjamanum á neðri hæð húss- ins og er þegar búið að ráðstafa átta einingum sem ýmist hafa verið seidar eða leigðar og á efri hæð eru fimmtán einingar og er búið að ráðstafa sjö. Gert er ráð fyrir að verslunarmiðstöð- in verði fullbúin í nóvember næstkom- andi. Samkvæmt veðbókarvottorði hafa þrír aðilar keypt hlut í húsinu, Búnaðarbankinn, Almenna verkfræði- stofan og Teppahúsið hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.