Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 37
VIORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 37 MINNINGAR ~ Fundum okkar Sigurpáls bar fyrst iman á stjórnarfundi hjá SÍS að ig minnir haustið 1981. Hann var í fulltrúi samvinnustarfsmanna á kureyri. Með okkur tókst góður unningsskapur og varð brátt nán- ri og meiri eftir því sem kynni juk- st. Árið 1982 var aldarafmæli Sam- innuhreyfingarinnar á íslandi. Af ví tilefni var stjórnarmönnum og íökum þeirra boðið til Bandaríkj- nna í orlofs- og skemmtiferð að koða m.a. dótturfyrirtækið Iceland ieafood er þá var í örum vexti og tendur enn með blóma, að ég held. Auk þess voru og ýmsir merkir taðir sóttir heim, sem of langt mál rði upp að telja. Þetta var um það lil viku ferð. I henni tókust nánari ;ynni meðal þessa hóps en annars lefðu orðið. Þeirra kynna gætir enn dag á ýmsan hátt. Þau hjónin Sigurpáll og Erla ann- irsvegar og við Elladís hinsvegar lundumst þá þeim vináttuböndum ir ei síðan hafa rofnað. Seint verða fullþakkaðar þær inægju- og gleðistundir er við höfum ;aman átt síðan. Oftast vorum við nggjendur en þau veitendur í sam- skiptum okkar, en þau voru slíkir löfðingjar að manni fannst stundum dð gera þeim stóran greiða er við úddumst hvað mest á greiðasemi leirra og gestrisni. Mig langar í stuttu máli að rifja jpp þær samverustundir sem efst ?ru í huga. Nokkurra daga dvöl hjá æim í bústaðnum þeirra „Lækjar- undi“ í Axarfirði fyrir nær 11 árum. Þar var Sigurpáll á heimavelli og íunni á öllu skil bæði landi, fólki Dg sögu. Ekið var á Viðarfjall en þaðan er útsýni mikið og fagurt. Komið var við á Raufarhöfn í glaða sólskini. Gjörður var á stuttur stans er farið var yfir heimskautsbauginn. Síðasn ekin sléttan sem leið lá og komið að Leirhöfn og þegnar veitingar. Þar var Sigurpáll gagnkunnugur og fór þar oft í göngur og réttir mörg haust. Um kvöldið þegar heim vár komið í bústað var gleðskapur mikill og góður. Þá var sungið út í hausthúm- ið af veröndinni. Að morgni var haldið til Akur- eyrar og hinn næsta dag heim að Melum. Öðru sinni óku þau með okkur vítt og breitt um Eyjafjörðinn að Villingadal og um Leynishóla. Út á Grenivík, Svalbarðseyri, til Dalvíkur og eitt sinn til Siglufjarðar á Síldar- ævintýrið. Hér er aðeins stiklað á stóru en á þessu má sjá að margan nætur- greiðann höfum við af þeim þegið að annarri fyrirhöfn ótaldri. Sem betur fór gátum við stundum greitt fyrir þeim og fengið þau í heimsókn. Ég minnist þess t.d. að okkur tókst að leiða saman hesta þeirra Sigurpáls og Kristmundar á Gilja- landi í Haukadal vestra. Kristmundur hafði þá með hönd- um vísnaþátt fyrir Tímann. Eftir það mun Kristmundur oft hafa leitað efnisfanga hjá Sigurpáli. Ég minnist þess og að við ókum með þau hjón eitt sinn síðsumars og sýndum þeim þijú fjallbýli í Hrútafirði er farið höfðu í eyði á fyrri helmingi þessarar aldar. Um haustið hringdi hann í mig eitt sinn sem oftar og tjáði mér að þessi för og dagur væri eftirminni- legastur af frídögum sumarsins. Þetta þótti okkur hjónum ákaflega gaman að heyra. Hér hafa nú í sem fæstum orðum verið raktar minningar frá liðnum samverustundum. En hvað var það í raun er olli því að samvistir við Sigurpál voru svo heiilandi er raun bar vitni? Því er erfitt að svara í stuttu máli og verður kannski aldrei gert svo viðunandi sé. Þó er víst að hin hæga ljúfmennska, leiftrandi gáfur, frábært minni og alveg fram- úrskarandi frásagnarlist, krydduð léttri kímni áttu þar dtjúgan hlut. Þekking hans á landi og þjóð, lífi og starfi kynslóðanna var og þung á metum. Hann var sannkallaður fræðasjór og fjölhæfni hans á því sviði átti sér lítil eða engin takmörk. Kannski var það þetta eða eitt- hvað þessu skylt. Ef til vill ekki. Má vera að allt það er að framan er skráð sé aðeins hismið um kjarn- ann, þann eina og sanna, innan umbúðanna. Það var bara hann sjálf- ur, andi hans hið innra „sjálf", sem segullinn er að sér dró. Þetta mun það sem kallast persónutöfrar, en þá átti hann í ríkum mæli. Eins og áður sagði var Sigurpáll mikill fræðasjór. Hann var enda sjálfkjörinn í keppnislið þeirra Akur- eyringa á hinu andlega sviðinu. Hann var einstakur vísnavinur en vildi aldrei við kannast sköpun sína á því sviði. Þá fullyrðingu hans dró ég nú alltaf í efa. Hvað um það en fáa menn vissi ég fljótari að nema vísu. Ef hann heyrði snjalla stöku einu sinni var hún þegar lærð. Hann var mikill bókamaður og las mikið. Átti mikið og gott bókasafn og hafði mikinn áhuga á eldri útgáf- um fornra bóka. Kannski var hann ástríðusafnari en hann gjörði og meira. Hann las sínar bækur og unun var að sjá hve hann fletti blöð- um bóka sinna fimum fingrum og fór um þær mjúkum höndum líkt og elskhugi ástmey sína. í einkalífi sínu var hann mikill hamingjuhrólfur. Heimili þekra Erlu bókstaflega ljómaði af ást og um- hyggju. Þau voru í okkar hugum ekki aðeins elskendur og ástrík hjón. Þau báru einnig svo glöggt vitni um gagnkvæma virðingu hvors í annars garð. Það var ekki síst af þessum sökum að svo yndislegt var að eiga þau að vinum. Erla var ekkja og einstæð móðir þegar þau kynntust og átti þrjú börn ung. Þeim gekk Sigurpáll í föður- stað. Ég held þau hafi notið hjá honum mikils ástríkis og hann verið þeim sem besti faðir. Tengdamóður sinni aldraðri var hann sem synir gerast bestir. Einn son, Rúnar, eignuðust þau hjónin saman. Hann virðist sækja flest gott til foreldranna beggja og þar af leiðandi vera drengur góður, sem var til forna mest lof hveijum manni er hlaut. Við sjáum á bak einlægum vini sem var svo ljúft að leita til ef ein- hver áleitin spurning þarfnaðist svars. Var þá sama hvort það snerti ætt eða uppruna einhvers eða notk- un orðs í setningu eða texta að ekki sé talað um ef beija átti saman bögu af einhveiju tilefni. Umsögn Sigurp- áls var dómsorð og varð ekki áfrýj- að. Þess gjörðist ekki þörf. í þá smiðju verður ekki lengur sótt. Rödd hans er þögnuð og hann mun ekki hringja okkur upp oftar og hafa yfir nýjustu stökuna sem rekið hefur á fjörur hans. Það þarf ekki lengur að taka penna eða papp- ír. Við hittum hann síðast hérna heima í lok júní í sumar. Við vissum að vísu að hann hafði átt við veik- indi að stríða seinni hluta vetrar og í vor, en ekki hve alvarleg þau voru. Svo var það að dyrasíminn hringdi. Þar var kominn Sigurpáll. Þá sagði hann okkur án allrar æðru að hann væri að koma frá lækni sínum á Landspítalanum. Þar hefði hann gengið undir ná- kvæma rannsókn og læknirinn úr- skurðaði hann með þann sjúkdóm er síðan dró hann til dauða, tæpum þrem mánuðum síðar. Okkur brá illilega við þessi tíðindi en vildum þó ekki trúa að svo fljótt tæki þetta af. Og nú er hann allur þessi lífsglaði öðlingur er átti svo mörgu ólokið. Hann sagði oft við okkur að hann kviði í engu þeim árum eftir að hann léti af fastastörfum. Þá gæti hann af alvöru sinnt hugðarefnum sínum, svo sem ættfræði og ýmsum þjóðleg- um fróðleik er hugur hans stóð jafn- an til. Til þess kom ekki. Hann var burt- kallaður löngu áður en dagsverki lauk. Hann er öllum harmdauði er hann þekktu og hans mun sárt saknað og mest af þeim er þekktu hann best. Nú er skarð fyrir skildi í hópi vina og kunningja. Það var mannbætandi að kynnast Sigurpáli. En sárastur er harmur nánustu ástvinanna, þeirra Erlu, Rúnars, stjúpbarnanna og tengdamóðurinnar öldnu. Barnabörnin eiga á bak að sjá umhyggjusömum afa. Við hjónin sendum þeim öllum, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Megi góður guð styðja þau og styrkja í raunum þeirra. En minnug skulum við þess að minningin um góðan dreng mun lifa og aldrei gleymast. Þar sem góðir menn ganga þar eru Guðs vegir. Þau skulu lokaorð þessara sundurlausu þanka. Við hjónin sendum vkkur aðstand- endum öllum innilegar samúðar- kveðjur. Elladís og Jónas frá Melum. Sálmaskáldsins man ég mál um manninn verkaslynga. Ljóðlínur þessar vísa í þann útfar- arsálm sem sunginn hefur verið yfir moldum íslendinga í meira en þijú hundruð ár og eru teknar úr kvæði eftir skáld sem sjálft féll fyrir hinum slynga sláttumanni langt um aldur fram. Þær leituðu á huga minn þeg- ar ég frétti lát Sigurpáls Vilhjálms- sonar, viðskiptafræðings, og fann mig knúinn til þess að minnast hans í nokkrum orðum. Þeim mun sterkar orkuðu þær á mig að hið sama verk hafði ég unnið fyrir réttum þremur vikum vegna fráfalls Þórodds Jónas- sonar, héraðslæknis á Akureyri. Leiðir okkar allra þriggja lágu sam- an fyrir tæpum 29 árum er við vor- um valdir saman í sveit er keppa skyldi fyrir hönd Þingeyjarsýslna í spurningakeppni Ríkisútvarpsins, „Sýslurnar svara“, veturinn 1965-66. Um keppni þessa og ferðalög tengdum henni á aftaka miklum snjóavetri fjallaði ég nokkuð í mlnningargrein um Þórodd, en örð- ugar samgöngur veturinn þann ollu því að eitt sinn náðist ekki til Sigurp- áls austan af Kópaskeri að hann kæmi til liðs við okkur Þórodd í ferð úr Reykjadal, Suður-Þingeyjarsýslu, til Akureyrar. Kynni okkar Sigur- páls urðu ekki mjög náin við þetta tækifæri enda, eins og hér kom fram, gat á þeim tíma verið torsótt leið frá Kópaskeri, þar sem hann var starfsmaður Kaupfélags Norður- Þingeyinga, til þáverandi heimkynna minna að Laugum í Reykjadal. Liðu svo nokkur ár. Sigurpáll hvarf frá Kópaskeri að störfum á Skattstofu Norðurlands eystra á Akureyri. Starfstími hans þar var á árunum 1967-69 en þá fór hann til starfa á skrifstofu Iðnaðardeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga á Akureyri að hvatningu sýslunga síns, Ragnars Ólasonar, verkfræð- ings og verksmiðjustjóra Skinna- verksmiðjunnar Iðunnar. Árið 1973 lá leið mín á hinn fyrr- verandi vinnustað hans, Skattstofu Norðurlands eystra. Jukust þá sam- skipti okkar einkum sökum þess að ýmsum aðilum þótti hann álitlegur kostur að sækja til um framtalsgerð með hliðsjón af viðskiptafræði- menntun hans og störfum á skatt- stofu. Þannig kynntist ég ljúf- mennsku hans og hinni léttu, græskulausu kímni er honum var svo_ töm og laðaði fólk að honum. Á árabilinu 1984-85 var ég starfsmaður á aðalskrifstofu Iðnað- ardeildar SÍS. Þar var Sigurpáll aðalbókari og að því er ég best fékk skynjað hinn verkaslyngasti í því starfi. Hann var og einn í hópi manna er héldu þarna uppi gaman- semi og smábrellum til að bregða lit á gráma hversdagsleikans. Settu menn þá gjárnan í bundið mál álit sitt á því er efst var á baugi aTinað hvort á vinnustaðnum ellegar í þjóð- lífinu. Vist mín þarna varð skemmri en ætlað var í fyrstu og má segja að þar hafi komið til þau innanmein er innan tíðar felldu að moldu hinn mikla risa íslenskra fyrirtækja, Sam- band íslenskra samvinnufélaga. Að- alskrifstofa Iðnaðardeildar átti þó enn skemmra ólifað og eru nú mjög breyttir hagir margra er þar unnu áður. Sigurpáll sætti þó ekki þeim örlögum að bragði. Þegar aðskilnað- ur varð með skinnaiðnaði Sambands- ins og ullariðnaði, er sameinaðist Álafossi, hélt hann áfram starfi sem aðalbókari hjá fyrrnefnda fyrirtæk- inu. Stóð svo þar til gjaldþrot skinna- iðnaðarins dundi yfir á síðastliðnu ári að þá missti hann þar starfa sinn. Fékk hann ekki aftur fasta vinnu fyrr en snemma á þessu ári á skrif- stofu Fjórðungssjúkrahússins hér á Akureyri. En þá var skammt að bíða árásar hins illvíga sjúkdóms er nú hefur bundið enda á ævi hans, alltof snemma að því er okkur finnst er þekktum hann. Sú hugsun hvarflar að, hvort þau snöggu umskipti til hins verra er urðu á högum hans við atvinnumissinn hafi greitt fyrir atlögu hins slynga sláttumanns. Þegar ég lít til baka til kynna minna af Sigurpáli, verður mér tvennt efst í huga, hvernig hann í amstri hversdagsins var bæði gleði- gjafi og fróðleiksbrunnur. Eins oft var það er við áttum saman símtal um eitthvert álitaefni í skattamálum skjólstæðinga hans að hann í lokin lét mig heyra hnyttilega vísu og vel kveðna. Slíkar yrkingar virtist hann alltaf hafa á takteinum, kunna oft- ast skil á tilefnum þeirra og gera sér far um að safna þeim. Þá var heldur ekki komið að tómum kofun- um hjá honum ef leita þurfti úrlausn- ar um einhver vafamál varðandi ættfræði. Kom þar til hvorttveggja að hann var sjálfur hafsjór af fróðleik og hafði aflað sér hinna margvíslegustu heimildarrita og sum af því tagi að þau eru í fárra höndum eins og t.d. hin mikla Þingeyingaskrá Konráðs Vilhjálmssonar. Þegar komið er að hinstu kveðju- stund trúi ég að mörgum fari eins og mér að efst í huga verði eftirsjá þess bæði að njóta ekki lengur sam- vistanna við Sigurpál og hins að honum skyldi ekki auðnast lengri ævidagar að sinna hugðarefnum sín- um og miðla öðrum fróðleik og gleði. En enginn deilir við hinn hæsta höf- uðsmið er ákvarðar okkur öllum endadægur. Okkur sem eftir lifum eru faldar til varðveislu minningarn- ar um góðan dreng og vammi firrð- an og hin ljúfa skylda að votta eftir- lifandi eiginkonu, Erlu Ásmunds- dóttur, syni þeirra, Rúnari, og stjúp- börnum af fyrra hjónabandi Érlu samúð okkar á sorgarstundu. Guðmundur Gunnarsson. Kveðja frá Skákfélagi Akureyrar Ég kynntist Sigurpáli ekki fyrr en ég kom aftur inn í stjórn Skákfé- lags Akureyrar 1989. Ég vissi þó það um Sigurpál að hann var víðles- inn maður og þekktur af þátttöku sinni í spurningaþáttum í útvarpi og sjónvarpi. Með Sigurpáli var sérstaklega gott að vinna, hann var ætíð jákvæð- ur og stutt í spaugsyrðin. Állt sem hann vann fyrir Skákfélag Akur- eyrar var unnið af mikilli alúð og vandvirkni. Hann var gjaldkeri fé- lagsins frá 1987-1992. Hann kom á og stjórnaði, í nokkur ár, bóka- dreifingu félagsmanna fyrir stóran bókaklúbb. Siðastliðinn vetur var hann formaður blaðanefndar alþjóð- lega skákmótsins sem haldið var á Akureyri í febrúar. Sigurpáll fylgdist vel með öllu sem gefið var út um skák og oft kom hann með bæklinga, blöð og blaðaúr- klippur sem hann taldi rétt að félag- ið varðveitti. Skákmenn í Skákfélagi Akureyrar kveðja Sigurpál Vil- hjálmsson ineð miklu þakklæti og votta Erlu og börnum hennar djúpa samúð. Guð blessi minningu Sigurpáls Vilhjálmssonar. F.h. Skákfélags Akureyrar, Þór Valtýsson. Á skólaárum mínum var ég svo gæfusamur að vera í tveim skólum, sem nemendur hvaðanæva af land- inu sóttu. Ósjálfrátt mótaðist ímynd ýmissa staða í huganum af kynnum við skólafélagana, er þaðan komu. Mikil birta var yfir mörgum stöðum, en frá engum stafaði slíkum ljóma sem Kópaskeri. í Reykholti var Gunnlaugur Sig- urðsson, íþróttakennari og rann- sóknarlögreglumaður, herbergisfé- lagi minn í tvo vetur. Hann var sjálf- sagður oddviti hópsins þar. Þegar ég kom síðan í Menntaskólann á Akureyri var þar fyrir fámennur hópur eftir hreinsunareld lands- prófsins aldræmda. Oddviti þess hóps var öðlingurinn Sigurpáll Vil- hjálmsson frá Kópaskeri. Vegna fá- mennis bekkjarins urðu kynni nán- ari en ella innan hans og hópurinn þjappaðist saman. Á mótunartíma skólaáranna dreg- ur hver dám af sínum sessunaut og áhrif slíks hóps á einstaklinginn endast út lífið. Hin góðu áhrif Sig- urpáls á hópinn í heild verða seint fullmetin, þótt aðrir góðir menn legðu þar einnig mikið fram. Einn vetur af fjórum í menntaskólanum var öðrum erfiðari hvað námskröfur snerti, fjórði bekkur að fornu tali. Þann vetur var ég herbergisfélagi Sigurpáls ásamt Lárusi Jónassyni, landbúnaðarfræðingi. Sigurpáll var ljóðelskur maður og hafði forgöngu um að við skiptumst á að velja ljóð kvöldsirts og lesa fyrir hina herberg- isfélagana. Ennþá hlýnar mér um hjartarætur við að minnast þessara kvölda. Hann hafði mikið dálæti á ljóðum Arnar Arnarsonar og læt ég eitt erindi úr kvæðinu um Stjána bláa fylgja með sem sýnishorni: Horfi ég út á himinlána. Hupr eygir glæsimynd: Mér er sem ég sjái Stjána sigla hvassan beitivind austur af sól og suður af mána sýður á keipum himinlind. Á þessum árum vorum við haldn- ir óskökkvandi þekkingarþorsta. Ekki var þekkingarþorsti Sigurp- áls þó í ætt þekkingarleit Galdra- Lofts, sem var til þess að afla sér valds, heldur vegna þeirrar lífsfyll- ingar, sem víðfeðm þekking veitir. Frábært minni, létt skopskyn og frumleiki ásamt mannlegri hlýju ein- kenndi Sigurpál. Seinna varð hann landsþekktur vegna frammistöðu sinnar í einni af þjóðaríþróttum ís- lendinga, spurningakeppni. Hann keppti þá í liði Þingeyinga í útvarps- þáttunum „Sýslurnar svara“. Þessari íþrótt hefur Sigurpáll komið til næstu kynslóðar, þar sem sonur hans, Rúnar, er orðinn landskunnur fyrir þátttöku sína í spurningakeppni skóla í liði Verkmenntaskólans á Akureyri. Öll menntaskólaárin var Sigurpáll umsjónarmaður bekkjar, fyrst bekkjarins í heild en eftir skiptingu, stærðfræðideildar. Að afloknu stúd- entsprófi 1954 lá leið verulegs hluta hópsins í Háskóla íslands. Sigurpáll fór í viðskiptafræði ásamt ileirum en aðrir í verkfræði, læknisfræði og guðfræði. Mikil samheldni var með hópnum og var Sigurpáll ekki síst sameiningaraflið. Eftir þriggja ára fyrrihlutanám í verkfræði hélt ég til Kaupmanna- hafnar og eftir það var vík milli vina. Við skiptumst þó á bréfum og var tilhlökkun mikil að fá bréf frá Sig- urpáli. Sem dæmi um létt skopskyn hans get ég nefnt, að hann bað eitt sinn kærlega að heilsa Friðriki Krist- jánssyni og Ingiríði konu hans. Nöfn- in hljómuðu eitthvað svo norður-þin- geysk, að mér komu dönsku kon- ungshjónin hreint ekki til hugar og svaraði í mesta sakleysi, að ég hefði því miður ekki hitt þessi ágætu hjón ennþá. Við skemmtum okkur síðar konunglega yfir skilningsskorti mín- um. Síðar kom fyrir, en alltof sjald- an, að við ræddum saman kvöld- stund í síma og svo hittumst við að sjálfsögðu, þegar stúdentaárgangur- inn kom saman. Ávallt var ég vísari og ánægðari með tilveruna eftir þau samskipti. Á 40 ára stúdentsafmælinu í vor var ég því miður fjarstaddur, en hringdi í Sigurpál seinna að leita frétta. Hann hafði verið valinn til þess að koma fram fyrir hönd ár- gangsins og sagði af sinni meðfæddu hæversku, að hann vonaði að það hefði verið skammlaust. Hann hafði nokkur orð um það, að hreystin væri ekki sú sama og fyrir 40 árum, en ég frétti seinna, að hann var þá þegar sárþjáður. Hann sagði mér hins vegar, að hann hefði legið á sjúkrahúsi og einn ágætur félagi okkar hefði heimsótt sig. Helsta áhyggjuefni hans var, að félaga okkar fylgdi ekki sami dillandi hláturinn og fyrrum. Slíkur var Sigurpáll. Við Kristín sendum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur til Erlu og annarra aðstandenda. Helgi Sigvaldason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.