Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 27 AÐSENDAR GREINAR NÚ ÞEGAR í móti blæs, er líkt og margir vakni af svefni. Eins og landsmenn hafa hagað sér í gegnum tíðina í umgengni sinni um landið okkar, hefði því vegnað betur án þeirra. Nú er svo komið að það þarf á okkur að halda vegna margra alda án- íðslu. Undanfarna áratugi hefur nokkrum fram- sýnum mönnum tekist að opna augu þjóðarinn- ar fyrir ægilegri eyði- leggingunni. Nú er ört vaxandi áhugi hjá þjóðinni fyrir land- vernd og uppgræðslu. En þó virða beri það, sem gert hefur verið, er það í órafjarlægð frá því sem þarf til að stöðva gróðureyðinguna. Landið þarf fleiri eins og Ómar Ragnarsson sem haft'hefur vakandi augu með þvi og gert hefur þeim líf- ið leitt sem á ökutækjum gera eyði- leggingu gróðurs sér að leik. Svo er Herdís Þorvaldsdóttir sem vakið hefur athygli með skrifum sínum um óþarf- an ágang búfjár, þar sem hægt er öllum að meinalausu að komast hjá því. íslandsbankafólkið á heiður skilinn. Þessi og fleiri eru manneskj- umar sem elska landið sitt. Eru ekki bara þiggj- endur. í borgarstjóratíð Dav- íðs Oddssonar var tekið til hendinni í sorp- og frárennslismálum borg- arinnar og ekki má gleyma því sem snýr að görðum borgarinnar og gróðri, sem reyndar hef- ur lengi verið til fyrir- myndar. Ekki er minnsti vafi á að í tveimur fyrr- nefndu málunum átti að gera svo vel sem hægt væri. En voru ráðgjafarnir starfi sínu vaxnir? Skoð- um málin og sjáum hvað hægt er að gera. Það er staðreynd að vinna má áburð og lífræn jarðvegsefni úr frá- rennsli og sorpi. Við eigum að leggja drög að hvoru tveggja strax. Því þó lenging skolplagna frá ströndinni eigi að skila hreinni fjörum, heldur meng- un sjávar áfram og þá auðvitað fískimiðanna líka. Með því að koma upp útbúnaði sem skilur ailan úrgang úr frárennslum borgarinnar má koma Skrítið að sumir svokall- aðir umhverfissinnar, segir Albert Jensen, koma eins og „skrattinn úr sauðarleggnum“ þegar eitthvað óvenju- legtfer í undirbúning. í veg fyrir mikla eyðileggingu. Hreinn sjór þýðir góður fiskur og meiri sölu á betra verði, fyrir utan allt annað. Horfum til framtíðar. Að bagga sorp í plast og grafa síðan, er að koma samansöfnuðum stórkostlegum vandamálum nútíðar, yfir á afkomendur okkar til úrlausn- ar. Vansæmd er að slíkri arfleifð. Lausn á þessu máli er ekki einföld, en vel framkvæmanleg. Þar færi sam- an atvinnusköpun, förgun sorps og uppgræðsla. Það er fjöldi manns á atvinnuleysisbótum, sem mundi gleðj- ast ef til þeirra yrði leitað í svo skap- andi framtíðarstörf. Það þarf að vinna skama úr því sorpi sem hæft er tii þess og annað nýtt að undangengnum rannsóknum. Með því að koma upp slíkri framleiðslu í Reykjavík og ná- lægum sveitarfélögum er leystur stærsti og bráðasti vandinn. Það er eyðing stærsta hluta sorps af landinu öllu, um leið og framleidd eru jarð- vegsefni. Síðan er að láta skarnan borga 'sig og kem ég nánar að því. ísland er víða þakið eyðimörkum í orðsins fyllstu merkingu. Það má tala um víðáttur uppblásins lands og illfær hraunin sem mörg hver mættu hverfa undir gróður. Sandauðnirnar austan Víkur í Mýrdal eru víðáttumiklar freistingar fyrir þau sem græða vilja landið. Á þessum sandauðnum er hægt að koma upp nytjaskógi eða víðáttumiklum útivistarsvæðum með margskyns gróðri. Það sem þarf er þykkt jarðlag. I það eigum við að nýta öll úrgangsefni sem til þess eru nýtileg. Til að vatn hripi ekki strax úr gróðurlaginu í sandinn og sand- stormar tefy'i minna, verður jarðlag að vera minnst tveir metrar á þykkt. Á sumrin þarf að gróðursetja tré eft- ir þörfum í svæðin sem þannig vinn- ast. Lausn á sorp- og frárennslis- vandamálum er að nýta það sem hægt er að nýta en láta það ekki eyðileggja umhverfið. Hér er um að ræða framtíðariausn margra vanda- mála á einu bretti. Jámbraut, tvær samhliða leiðir, frá Reykjavík austur á sanda væri lang- tímalausn á mestum hluta flutning- anna. Mögulegt er að knýja járnbraut- arvagnana áfram með rafmagni. Öll orka við framleiðslu jarðvegs yrði inn- lend. Ef sandurinn er gott efni í steypu, er hægt að nýta flutningaleið- ina betur. Ef járnbrautarvagnar þykja ekki góður kostur, eða dráttur yrði á lagningu brautar eru flutningabílar til staðar. Vörubílstjórar hafa oft þurft að búa við atvinnuleysi, en aldr- ei sem nú. Hækkun lands í nálægð vega, er auðleyst mál. Vegur í miðju tveggja km breiðrar lænu, þar sem hefðbund- in uppgræðsla yrði auðveld. Halli þar frá, vel inná jarðvegshækkun. Víðs vegar um landið eru fyrr- nefndar aðferðir eina ráðið við jarð- vegseyðingu og uppgræðslu sanda. Hættum að losa okkur við spillingar- efni til himins og sjávar. Vinnum úr þeim smyrsl á jarðvegssárin. Skrítið, hvað sumir svokallaðir umhverfíssinnar geta komið eins og skrattinn úr sauðarieggnum, þegar eitthvað óvenjulegt fer í undirbúning, hvort sem um er að ræða mannvirkja- gerð eða uppgræðslu. Má þar nefna hina bráðnauðsynlegu brú yfír Gils- ijörð og uppgræðslu sanda við Dimmuborgir. Við megum ekki láta þröngsýni í náttúruvernd koma í veg fyrir að við fegi'um landið á raunsæj- an hátt. Að blanda góð mál ofstæki, eyðileggur þau. Höfundur er byggingameistari. Horfum til framtíðar Albert Jensen Til varnar Flugleiðum hf. MORGUNBLAÐIÐ hefur ávallt talið skyldu sína að fjalla um ís- lenskt atvinnulíf. Um- fjöllun blaðsins hefur lengst af verið á vin- samlegum nótum. Á fimmtudögum kemur blaðauki, sem eingöngu fjallar um atvinnu og viðskiptalíf. Stundum" gengur lofið heldur langt í umljöliun um fyrirtæki, það hefur borið við að fyrirtæki, sem til umfjöllunar hafa verið, hafa orðið gjaldþrota innan þriggja vikna frá há- stemdu lofi viðskiptablaðs Morg- unblaðsins. En lofið er takmarkað. Lesendur hafa tekið eftir því að heldur hefur andað köldu til fyrirtækja eins og Hf. Eimskipafélgs íslands og Flug- leiða hf. Ekki ætla ég að bæta neinu við til varnar Hf. Eimskipafélagi íslands því athuga- semdir mínar við skrif Agnesar Bragadóttur í mars í vetur hafa reynst fyllilega réttmætar. Agnes Bragadóttir heldur nú áfram rann- sóknarblaðamennsku sinni og fjallar þann 24. september um Flugleið- ir hf. og milliuppgjör þess. Allt sem neikvætt getur talist er tínt fram og lagt út á versta veg, en því sem stefnir í rétta átt er sleppt. Flugleiðir hf. birtu uppgjör fyrir fyrstu 6 mánuði ársins fyrr í þessum mánuði. Afkoma félagsins samkvæmt rekstrarreikningi var 160 milljónum lakari en á sama tímbili í fyrra. „Tap“ var 732 milljón- ir. Ógnvænleg tala. Nú er það svo að reikingsskil eru ekki einföld fræði. Þegar við bætast árstíðasveiflur og rekstur í mismun- andi myntum og allt er saman dreg- ið í rekstrarreikningi kemur út tap eða hagnaður. í flóknu uppgjöri Flugleiða hf. em margir reiknaðir liðir, sem ekki hafa áhrif á getu Flugleiða hf. í bráð tii að standa við skuldbindingar sínar eða eru áhrif frá liðnum árum. Hér er átt við tekjuskattskuld- bindingar frá liðnum ámm, sem hafa fallið niður en taidar til „tekna“ á síðasta ári. Hér er einnig átt við áhrif af gengisbreytingu dollars en áhrifa gengisbreytinganna gætir á lánstíma erlendra lána og líftíma eigna. Liðurinn „Misvægi gengis og verðlags“ á sér mótfærslu í flugvéla- eign. Að þessu sinni var gengishagn- aður vegna lækkunar dollars. Á móti kemur lækkun á verði flugvéla en verð þeirra á alþjóðlegum mark- aði er í dollurum. Það er ekki aug- ljóst að framvirkir samningar séu til bóta. Þegar reiknaðir liðir em taldir frá kemur í ljós við samanhurð milli ára Sjóðsstreymið eitt gefur hugmynd um hvernig fyrirtæki getur staðið við skuldbindingar sín- ar, segir Vilhjálmur Bjarnason, og bætir við að hvergi sé minnst á sjóðsstreymi í umfjöllun Morgunblaðsins. að rekstur Flugleiða hf. á þessu ári, samkvæmt sjóðsstreymi, hefur skilað 275 milljónum betri árangri en á liðnu ári. Yfir því er ástæða til að gleðjast en ekki kætast Þórðar- gleði, ef það er á annað borð leyfi- legt að láta atvinnurekstur ganga vel. Sjóðsstreymið eitt gefur hug- mynd um hvernig fyrirtæki getur Vilhjálmur Bjarnason staðið við skuldbindingar sínar. Hvergi er minnst á sjóðsstreymi í umljöllun Morgunblaðsins. Það að eiginfjárhlutfall hefur lækkað í lægð árstíðarsveiflu þarf ekki að vera áhyggjuefni. Eiginíjárhlutfallið greiðir ekki skuldir ef um áfram- haldandi rekstur er að ræða. Það eru aðeins tekjur sem greiða skuldir og arð til hluthafa. Eiginijárhlutfall Flugleiða hf. hefur lækkað mest vegna fjárfestingar í flugvélum og lántökum vegna þeirra á undanförn- um árum. Það þarf ekki að vera óeðlilegt. Ef rekstur Flugleiða hf. skilar svipuðum bata á seinni hluta árs ög varð á fyrri hluta ársins, er von til að hagnaður Flugleiða hf. gæti orðið á bilinu 100 til 300 millj- ónir á þessu ári og það er sömuleið- is gleðiefni. Af framansögðu má sjá að bati í rekstri félagsins er veruleg- ur en það er ekki hægt að lesa út úr umfjöllun Morgunblaðsins. Það er óskandi að Morgnublaðið láti fólk, sem ber skyn á reiknings- hald, íjalla um flókinn rekstur, en láti af skrifum eins og þeim sem birtust 24. september sl. Höfundur er viðskiptafræðingur. OIM '4Bi ‘ : Hvítlauks- eða ostabrauð frá Hatting Þau eiu best nýbíkuð og ilmandi Ef þú átt Hatting brauð í frystinum þarftu lítið til viðbótar í Ijúffenga máltíð. mnmi -—a£g,j- -alltaf fersk - alltaf nýbökuð HÉÍ&NÚ AUGLÝSINGASTOfA/SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.