Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR ÓÐFLUGA styttist í þjóðaratkvæðagreiðsl- ur í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi um aðild ríkj- anna að Evrópusam- bandinu (ESB). Þar til talið verður úr kjör- kössunum er óvíst hvemig fer. Ymsir minnast þess þó, að í Austurríki snerist meirihluti hinna óráðnu á sveif með stuðnings- mönnum aðiidar. Um 66% Austurríkismanna samþykktu aðild að lokum. Færi á sömu leið á Norðurlöndunum þremur yrðu þau öll aðilar að ESB um áramótin. í atkvæðagreiðslum sem þessum kann að verða afdrifaríkara að neiat- kvæðin séu fleiri en hin, sem segja já. Ástæðan er sú, að í nei-hópnum er ekki samstaða um annað en að vera á móti. Andstæðingarnir hafa enga fastmótaða stefnu um fram- haldið. í Noregi er málum til dæmis þannig háttað, að þar hefur alls ekki náðst sami friður um aðildina að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og hér á landi. Ýmsir and- stæðingar ESB-aðildar vilja einnig að Norðmenn fari úr EES. Aðrir eru þeirrar skoðunar, að með EESsamn- ingnum hafí komist á viðunandi samband Noregs við ESB. Árið 1972 höfnuðu Norðmenn aðild að þáverandi Evrópubandalagi. Tæplega er gróið um heilt enn vegna hinna hatrömmu deilna, sem þá urðu vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Margt bendir til að sár- indin yrðu ekki minni núna, ef nei-atkvæðin yrðu fleírí. Ef já- atkvæðin yrðu fleiri, biði Noregs þátttaka í ESB með réttindum og skyldum, sem allir yrðu að sinna, hvort sem þeir hefðu verið með eða á móti. Stefnan og verkefnin lægju skýr og augljós fyrir. Höfnuðu Norðmenn aðild, tækju við átök um framhaldið. Hagsmunir íslands Eftir virka þátttöku í afgreiðslu EES-máls- ins á Alþingi er ég sannfærður um að aðild íslands að EES hefði verið stofnað í hættu, ef ríkisstjórn Is- lands hefði kosið að feta í fótspor annarra EFTA-ríkja og sækja um aðild að ESB á árinu 1992, eins og þau gerðu. Við hefðum hæglega getað lerit í sömu stöðu og Svisslend- ingar, sem höfnuðu í senn aðild að EES og að stefnt yrði að þátttöku í Evrópusambandinu. í stað þess að stofna til átaka um ESB-aðild samhliða ákvörðun um þátttöku í EES, tók Alþingi stefnu- markandi ákvörðun eftir deilurnar um EES, sem miðar að framtíðars- amskiptum íslands og Evrópusam- bandsins, ef fjögur EFTA-ríki gerast aðilar að ESB. I þessari ákvörðun felst, að stofnað verði til tvíhliða samskipta við Evrópusambandið á grundvelli EES-samningsins. Fari svo, að Norðmenn, Svíar eða Finnar Þegar líður að þjóðar- atkvæðagreiðslunum um ESB-aðild í ná- grannalöndunum, þurf- um við íslendingar að huga að hagsmunum okkar, segir Björn Bjarnason. Hann telur okkur geta gætt þeirra á grundvelli EES-samn- ingsins, enda verði náið fylgst með framvind- unni innan ESB. segi nei við aðild, munu þessar þjóð- ir eða þær, sem hafna aðild, væntan- lega einnig treysta á EES-samning- inn áfram. Hagsmunum Íslands gagnvart ESB er vel borgið á grundvelli EES- samningsins. Fari Finnar og Svíar inn í ESB, þarf sérstaklega að huga að tollum á síld. Fríverslun er með fisk milli EFTA-ríkjanna, en gagn- vart ESB er tollur á síld, sem ekki fékkst lækkaður nægilega mikið með EES-samningnum. Hagsmunir íslands krefjast þess einnig, að sjálfstæð eftirlitsstofnun og dómstóll fylgist með því, að EES- samningurinn sé virtur. Þá þurfum við að nýta rétt okkar eins og frek- ast er kostur til að fylgjast með málum á undirbúningsstigi innan vébanda ESB. Aðiidin að EFTA hef- ur auðveldað okkur það starf. Ef EFTA hverfur úr sögunni, þarf að fylla tómarúmið, sem skapast að því er þetta samband við ESB varðar. Loks er nauðsynlegt að sinna þeim fríverslunarsamningum, sem gerðir hafa verið af EFTA-löndunum við ýmis ríki í Mið- og Austur-Evrópu, Tyrkland og Israel. Ákvarðanir um framtíð EFTA yrðu í höndum okk- ar, Sviss og Liechtenstein, en þar hafa stjórnvöld átt i erfiðleikum með að fullnægja ákvæðurri EES-samn- ingsins. Óþarfur ótti Það er ástæðulaus hræðsluáróður að halda því fram, að ísland lendi í óbærilegri stöðu gagnvart ESB, af því að ekki verði unnt að gæta þeirra hagsmuna gagnvart ESB, sem hér hafa verið raktir. Þótt EFTA-ríkin fjögur gangi öli í ESB, er EES:samn- ingurinn áfram í gildi milli íslands og ESB. Fengist hafa ótvíræðar vísbend- ingar um að ráðamenn ESB vilji gera sitt til þess að aðlögun íslands og EES-samningsins að stækkuðu ESB verði eins auðveld og einföld og kostur er. Reynslan segir okkur, að í samskiptum við ESB skuli ríki ætíð búa sig undir óvænta erfið- leika. Annarlegar ástæður geta legið að baki því hjá einhveiju ESB-ríki að gera einföld mál óþarflega flókin. Þeir starfshættir tíðkast innan ESB að setja lausn mála í dramatískt Ijós, sé þess nokkur kostur. Sambandið er hins vegar sjálfu sér samkvæmt og þar standa orð í samningum. Á meðan beðið er úrslita í þjóðar- atkvæðagreiðslum á Norðurlöndun- um þremur, munu ráðamenn ESB fara sér hægt í samskiptum sínum við íslensk stjórnvöld. Ákvarðanir verða ekki tímabærar fyrr en at- kvæðagreiðslunum er lokið. Niður- stöður kosninganna ráða einnig miklu um það, sem ákveða þarf. Forystumenn ESB vilja forðast að verða dregnir inn í kosningabaráttu í umsóknarlöndunum. Engin tímaþröng Þegar þessi staða er metin, er ljóst, að ríkisstjórn íslands er ekki í neinni tímaþröng varðandi ákvarð- anir um samskiptin við ESB. Hana skortir ekki heldur umboð frá Al- \ þingi til að bregðast við, ef fjögur , EFTA-riki ganga inn í ESB. Umsóknarríkin vilja komast inn í ) ESB 1. janúar 1995 til að geta orð- ið fullgildir þátttakendur í ríkis- stjórnaráðstefnu Evrópusambands- ríkja á árinu 1996, um stjórnar- hætti innan ESB og skipan æðstu stjórnar þess. Fleiri ríkjum verður ekki veitt aðild að sambandinu fyrir ráðstefnuna. Pólitískir forystumenn innan ESB hafa þegar kynnt, að | hvetju þeir vilja stefna á ráðstefn- , unni. Hugmyndimar hafa ekki verið lagðar fram á ESB-vettvangi en eru I til umræðu innan aðildarríkja. EFTA varð til, af því að sum Evrópuríki vildu ganga skemur í þá átt að stofna sambandsríki Evrópu en önnur. EFTA hafði starfað í tiu ár þegar ísland gerðist þar aðili. Nú er að koma í ljós, að innan ESB eru gömlu EFTA-ríkin enn treg til að kyngja hugmyndum um sam- j bandsríki. Evrópusamband með mis- , . munandi aðildarskyldum kann að ' vera í mótun. íslensk stjórnvöld eiga ) að fylgjast náið með þeirri þróun. Það er breytt Evrópusamband, sem við íslendingum blasti, ef þeir ákvæðu að sækja um aðild. Ríkis- stjórn Davíðs Oddssonar eða meiri- hluti hennar á Alþingi hefur ekki lagt neina hindrun í götu þeirra, sem vilja ganga til nánara samstarfs við ESB en felst í EES-aðild. Á Alþingi > hefur hins vegar náðst víðtæk sátt . um næstu skref til að gæta hags- muna íslands gagnvart Evrópusam- ) bandinu á grundvelli aðildarinnar að Evrópska efnahagssvæðinu. Höfundur er þriðji þingmaður Sjáifstæðisfiokksins í Reykja vík. Hagsmunir íslands gagnvart ESB Björn Bjarnason Dýrahald í atvinmiskyni í NÝJUM dýravemd- arlögum, er tóku gildi 1. júlí sL, er í 12. gr. laganna fjallað um dýrahald í atvinnuskyni. Þar segir svo: „Leyfi lögreglustjóra þarf til hverskonar ræktunar, verslunar, þjálfunar, tamningar, geymslu og leigu dýra í atvinnu- skyni, sem ekki fellur undir búfjárhald. Einnig þarf leyfí lögreglustjóra til setja á stofn dýra- garða, halda dýrasýn- ingar og efna til dýra- happdrættis. Leyfi lög- reglustjóra þarf til að handsama villt dýr fyrir dýragarða eða önnur söfn lifandi dýra. Umhverfisráðherra setur í reglugerð nánari fyrirmæli um leyf- isveitingar samkv. þessari grein, þar á meðal að leyfí megi binda þeim skilyrðum, sem nauðsynleg þykja til að tryggja góða meðferð dýranna, svo sem aðbúnað þeirra, umhirðu og viðhlítandi vistarverur og eftirlit með starfsseminni. Undanþegnar eru sýningar samkvæmt búfjárrækt- arlögum." Ljóst er að í 12. gr. eru ekki tæmandi talin öll þau tilvik, sem falla undir dýrahald í atvinnuskyni og að 12. greinin verður heldur ekki slitinn úr samhengi við önnur ákvæði laganna. I þeim segir t.d. i 6. gr.: „Einungis má nota í keppni dýr, sem eru heilbrigð og vel þjálfuð. Óheim- ilt er að nota hormón, deyfílyf eða hliðstæð efni til að hafa áhrif á af- kastagetu dýra.“ Þar sem dýraverndarlögin ná til allra dýra mætti ætla að auðvelt yrði að framfylgja ákvæðum 12. gr. um leyfisveitingar varðandi dýrahald í atvinnuskyni en svo er ekki. I grein- inni eru Ieyfísveitingar vegna dýra- halds og dýrasýninga í landbúnaði undanskildar, þar sem þær falla nú þegar und- ir ákvæði búfjárhalds og búfjárræktarlaga. I fljótu bragði virðast því hverskonar leyfisveit- ingar samkvæmt 12. gr. ekki ná til hesta, þar sem þeir eru taldir falla undir lög um búfjáhald enda þótt þeir séu fyrst og fremst ræktaðir sem reiðhest- ar en ekki til fram- leiðslu búfjárafurða. Samkvæmt orðalagi 12. greinarinnar verður því ekki hjá því komist að reyna í örstuttu máli að skilgreina nán- ar, um hvað ofangreind lög fjalla, hvað til landbúnaðar heyrir og hvort hrossarækt fellur þar undir, enda virðist það fyllilega tímabært. ' Landbúnaður er matvælafram- leiðsla og skiptist með einfaldri greiningu í akuryrkju og búfjárhald. Með nútíma búskaparháttum er óhætt að fulyrða að hestar eru ekki lengur notaðir við neins konar akur- yrkju (jarðrækt) hér á landi. En þá er eftir að skilgreina þátt hestsins í búfjárhaldi og búfjárrækt. Til eru tvenn lög um búfjárrækt. I lögum um búfjárrækt nr. 84/1989 segir: „Tilgangur laga þessara er að tryggja framfarir við ræktun búfjár í landinu til hagsbóta fyrir bændur og neytendur búíjárafurða.“ Þar er mælt fyrir um skipan búfjárræktar og mótun hennar og þátttöku ríkis- sjóðs í stofnun og rekstri ræktunar- stöðva fyrir búfé. Samkvæmt þeim lögum er Búnaðarfélagi íslands skylt að gefa búfjáreigendum kost á dóm- um á búfé og/eða sérstöku mati á búfjárafurðum eða úrvalsgripum. Ekkert ákvæða þeirra lýtur sérstak- lega að hrossarækt eða hestasýning- um. Hinsvegar er í búfjárræktarlög- um nr. 31/1973 mælt fyrir um hrossarækt en þar er einungis fjallað um vörslu og lausagöngu stóðhesta og um spjöll, sem þeir kunna að valda. Ekkert er þar að fínna annað um hrossarækt, hestamennsku eða hestaíþróttir. í þriðja lagi eru svo lög um búfjárhald nr. 46/1991 en til- gangur þeirra er að tryggja góða meðferð búfjár til framleiðslu bú- fjárafurða. Þar segir að með búfé sé átt við alifugla, geitur, hross, kanínur, loðdýr, nautgripi, sauðfé, svín og önnur dýr, sem haldin verða til nytja. Lögin fjalla um takmörkun búfjárhalds og vörslu, aðbúnað og meðferð búfjár og forðagæslu, vegna framleiðslu búfjárafurða. I þessum lögum er einnig sérstakt ákvæði vegna vörslu graðhesta en engin önnur ákvæði er þar að finna um hesta sérstaklega. Nánar tiltekið fjalla þessi þrenn framangreindu lög um matvælaframleiðslu úr húsdýra- afurðum til hagsbóta fyrir framleið- endur og neytendur búfjárafurða. í öllum ofangreindum lögum er fjalla um dýravernd og dýrahald í atvinnuskyni er gert ráð fyrir að settar verði samræmdar reglugerðir um hverskonar meðferð dýranna. í lögum um búfjárhald segir: „Land- búnaðarráðuneytið skal beita sér fyrir samvinnu við Búnaðarfélag ís- lands, viðkomandi búgreinafélag, yfirdýralækni og dýraverndarnefnd (nú -ráð) að fyrir hverja búfjárteg- und verði gefnar út leiðbeinandi reglur um, sem flesta þætti er lúta að fóðrun, aðbúnaði, meðferð og heilbrigði búíjár af viðkomandi teg- und. Tryggt skal að slíkar reglur séu endurskoðaðar reglulega í samræmi við bestu þekkingu á hveijum tíma.“ (Leturbr. m.) Jafnframt segir einnig í 5. gr. dýraverndarlaganna að: „Umhverfísráðherra setur í reglu- gerð, í samráði við landbúnaðarráð- Nauðsynlefft er að ströngu aðhaldi sé beitt við tamningu og þjálfun hesta, segir Sig- ríður Asgeirsdóttir, sem og við keppni og sýningar á þeim. herra, nánari fyrirmæli um vistar- verur og aðbúnað dýra. Þegar búfé á í hlut skal einnig farið eftir reglum um búfjárhald." Af framangreindu er því ljóst að vegna þeirrar sérstöðu sem hrossa- rækt nýtur er fyllilega tímabært að reyna að gera sér grein fyrir stöðu hennar nú. Með breyttum búskapar- háttum hefír notkun hesta við lan- búnaðarstörf nánast horfið, nema sem smalahestar. Hestar sem aldir eru til nytja munu aðallega vera folöld. Hinsvegar hefir hesta- mennska og ræktun reiðhesta aukist gífurlega og íslenski hesturinn er orðinn vinsælt keppnis- og gæludýr, sem flutt er út til fjölda landa. Til nánari skýringa á aðal hlutverki ís- lenska hestsins nú er rétt að benda á eftirfarandi atriði: Hestamennska er íþrótt sem stunduð er á hestum. Alþjóðlegar keppnisgreinar eru kappreiðar og reiðlist. Hér á landi er hestamennsku skipt í hestaíþrótt- ir, gæðingakeppni og kappreiðar. Hestaíþróttir eru íslensk keppnis- grein í hestamennsku. Þar reynir einkum á hæfni knapans til að þjálfa hestinn og stjórna honum, Hesta- íþróttir eru tölt, fjórgangur, fimm- gangur, gæðingaskeið, hindrunar- stökk og hlýðnikeppni. Gæðinga- keppni er góðhestasýning, sem Sigríður Ásgeirsdóttir skiptist í tvo flokka. Annarsvegar eru alhliða gæðingar, sem keppa í fetgangi, brokki, tölti, stökki, skeiði, ) vilja og fegurð í reið. Hinsvegar t keppa klárhestar í fetgangi, brokki, P stökki, hægu tölti, greiðu tölti, vilja P og fegurð í reið. Kappreiðar eru kapphlaup hesta með knapa eða fyr- ir kerru. Af þessu má sjá að tilgangur nú með ræktun hrossa í atvinnuskyni er fyrst og fremst sá að ala reið- hesta og keppnishesta. Sem fyrr segir telst ræktun hesta til búfjár- halds, enda þótt markmið hennar sé | ekki ræktun búfjárafurða. Ræktun t bænda og áhugamanna á reiðhestum j" og meðfylgjandi hrossasýningar, I hestamannamót, hestakeppnir og hestaíþróttir er allt annars eðlis og byggist á tamningu og langri og strangri þjálfun hestsins. Miklar kröfur eru gerðar til hæfni hestsins og eru ofantaldar hestagreinar hveiju nafni, sem þær nefnast mikið álag og áreynsla, bæði líkamlega og tilfinningalega fyrir hestinn. Ekki | er hægt að greina á milli hrossa- t. ræktar bænda annarsvegar og - hrossaræktar áhugamanna hinsveg- I ar og er nauðsynlegt að ströngu aðhaldi sé beitt við hverskonar tamn- ingu og þjálfun hesta, ekki síður en við keppnir og sýningar á þeim. Því er óeðlilegt að undanskilja hrossa- rækt bænda ákvæðum 12. gr. dýra- verndarlganna á þeirri forsendu, að hrossarækt falli undir lög um búfjár- hald eða búíjárrækt Og á sama hátt | er fráleitt að telja að áhugamenn ; sem stunda hrossarækt falli undir « lög um búfjárhald eða búijárrækt | og að þess vegna séu þeir und- anskildir ákvæðum um hverskonar eftirlit og leyfisveitingar samkvæmt 12. gr. Því er tvímælalaust rétt, að hverskonar leyfisveitingar til þjálf- unar, sýninga, keppni og kynbóta- sýninga á hestum falli undir alla 12. grein dýraverndarlaganna, hvort sem þær fara fram á skipulagðri | búfjársýningu, hestamannamóti eða | einar sér. Höfundur er lögfræðingur og fulltrúi SDÍ í Dýravendarráði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.