Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
_______LISTIR____
Leikari grípur
til örþrifaráða
KVIKMYNPIR
Laugarásbíó
JIMMY HOLLYWOOD ★
Leiksljóm og handrit: Barry Levin-
son. Aðalhlutverk: Joe Pesci, Christ-
ian Slater, Victoria Abril. Para-
mount. 1994.
KVIKMYNDAGERÐARMAÐ-
INN Barry Levinson hefur ekki
riðið feitum hesti frá Hollywood
undanfarin ár eða eftir að hann
gerði stórmyndina „Rainman".
Hann gerði stórmistökin „Toys“
síðast en hefur nú hallað sér aftur
að smærri verkefrium með „Jimmy
Hollywood“, gamansögu um at-
vinnulausan leikara í Los Angeles.
Hún er smámynd með þokkalegu
leikaraliði en hefur ekki erindi sem
erfiði, söguþráðurinn er með ólík-
indum og það er fráleitt að gaman-
semin kítli hláturtaugarnar.
í henni leikur Joe Pesci atvinnu-
lausan leikara sem reynir hvað
hann getur að koma sér áfram í
kvikmyndaborginni en árangurs-
laust. Gervi Pescis er hið undarleg-
asta, hárið er gulbrúnt og nær
niður á herðar og virðist koma úr
hárkolludeild Paramount-versins.
Vinur hans er einfeldningur sem
Christian Slater leikur en hefur
lítið hlutverk í sögunni nema það
að flækjast í kringum Pesci.
Spænska Almadovar-leikkonan
Victoria Abril leikur svo sambýlis-
konu Pescis, en hennar hlutverk
er líka heldur ómerkilegt. Það eina
sem hún gerir er að rífast í Pesci.
Nú hefði sjálfsagt mátt gera
gamansama mynd um nauðir at-
vinnulauss leikara og hvernig hon-
um vegnaði í baráttunni við
frægðardrauminn. En markmið
Levinsons er mun háfleygara.
Hann vill koma á framfæri boð-
skap um hinar dökku hliðar kvik-
myndaborgarinnar og hvernig lög-
reglan hefur gefist upp á glæpun-
um, svo áður en maður veit af er
Pesci kominn í' fátækrahverfin og
farinn að taka ýmis smáglæpaverk
uppá myndband, handtaka smák-
rimma og skila til lögreglunnar
og jafnvel ræna glæpamönnum og
halda í einn dag „til að skelfa þá“
og þar fram eftir götunum.
Hvernig þetta kemur heim og
saman í lítilli grínmynd um at-
vinnulausan leikara í Hollywood
er alltaf hulin ráðgáta nema auð-
vitað verður Pesci frægur fyrir
- uppátæki sitt og það verður leið
hans á stjörnuhimininn. Þannig er
myndin ein stór lumma um amer-
íska drauminn og hvernig hann
rætist með einkaframtakinu. Það
sem undrar mann kannski mest
er að Levinson skuli vera skrifaður
fyrir þessari dellu.
Arnaldur Indriðason
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 21
QTAKAR Rll
rr i amramsR b Vi
Islenskur fatnaður - Islenskt, já takk
s s :
NYBYLAVEGUR
„i ' " .... ' íí!,'
rr
Toyot a
DALBREKKA
AUÐBREKKA
Nýbýlavegi 4,
(Dalbrekku megin)
Kópavogi, sími 45800.
Við sérhæfum
okkur í að fram-
leiða stakar btixur
úr bestu fáau-
legum efnum,
saumað og liann-
að af ísiensku
fagfólki.
Dömu- og
hcrrabuxur úr
terylín, ull og
flaueli.
■
SAUMASTOFA
Klæðskera-
þjónusta á
staðnum
þannig að allir
geta fengið buxur
við sitt hæfí.
Aðeins:
i fullum gangi
m/springdýnu
ÁðUP 26.880
MKD
ORNSOF
svefnsófi
Aðeins:
L
með 8 skuffum
"B0X„dýna
með krómgaffi ^
80x200 cm - mm
120x200 cm»8MÍXD^
140x200 cm-MGm
Aðeins:
fíYcYc
140x200
Holtagörðum ^SÉI Skeifunni 13 Reykjarvikurvegi 72 Norðurtanga 3
Reykjavík ■H Reykjavík Hafnarfirði Akureyri