Morgunblaðið - 09.10.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER1994 B 23
Beltagrafa brann í Kollafirði
Logandi olía sprautaðist á húsið
BELTAGRAFA í eigu Steypustöðv-
arinnar hf. brann í gær í grjót- og
malarnámum í landi Esjubergs í
Kollafirði. Að sögn Arngríms Mar-
teinssonar, sem var að vinna á vél-
inni, stökk hann út þegar hann varð
þess var að logandi olía sprautaðist
á húsið sem hann var inni í og slapp
ómeiddur.
Arngrímur segist telja að senni-
lega hafi háþrýstislanga í vökva-
kerfi bilað og olían úr henni spraut-
ast á heitan pústflöt og þar með
hafi allt verið í einu báli á svip-
stundu. „Ég hefði sjálfsagt getað
brennst, hefði logandi olía sprautast
á mig. En ég stökk bara út úr öllu
logandi og slapp alveg,“ segir Arn-
grímur.
Vinnufélagar Arngríms voru
skammt frá þegar kviknaði í vél-
inni. Þeir náðu að slökkva í henni
að mestu áður en slökkviliðið kom
á vettvang. „Við komumst með stóra
hjólaskóflu í vatnspoll, jusum fleiri
tonnum yfir allt saman og vorum
nánast búnir að slökkva þegar
slökkviliðið kom,“ segir Arngrímur.
Arngrímur segist ekki alveg átta
sig á hvað tímanum leið meðan á
þessu stóð en telur að ekki hafi liðið
nema um 15-20 mínútur þar til
slökkviliðið var komið á staðinn.
„Maður var í hálfgerðu sjokki yfir
þessu en þeir komu mjög fljótt,“
segir hann.
Vélin, sem er 15-20 ára 55 tonna
beltagrafa af Poclain-gerð, er mjög
mikið skemmd.
■ HUGLEIÐSL U VIKA er yfir-
skriftin á röð ókeypis kynning-
arnámskeiða sem haldin verða á
vegum Sri Chinmoy-miðstöðvar-
innar þessa viku. Þetta er í þriðja
sinn sem boðið er upp á námskeið
sem þessi, en greinilegt er að kynn-
ing á hugleiðslu með þessum hætti
nýtur vaxandi vinsælda og er reikn-
að með að yfir þúsund manns sæki
eitt af þeim námskeiðum sem í boði
eru. Fjögurra vikna ókeypis fram-
hald, „Aukið vald á hugleiðslu“, fylg-
ir í kjölfar hugleiðsluviku þar sem í
boði verða nýjar æfingar og nýtt
efni fyrir þá sem vilja ná lengra í
hugleiðsluiðkun. Hugleiðsluvikan
stendur frá 10.-16. október og fer
fram í Sri Chinmoy-miðstöðinni,
Hverfisgötu 76. Dagskrá liggur
frammi í öllum bókasöfnum.
WtÆkW>AUGL YSINGAR
Húsnæði við Laugaveg
Við neðanverðan Laugaveg er til leigu 350
fm innréttað húsnæði á 2. hæð. Húsnæðið
er að mestu leyti einn stór salur. Húsnæðið
býður upp á marga notkunarmöguleika. Upp-
lýsingar veittar í síma 77059 eftir kl. 18.00.
Skrifstofuhúsnæði -
Þingholtin
75 fm skemmtilegt húsnæði á 1. hæð til leigu
strax í Þingholtunum nálægt miðbænum.
Upplýsingar veitir Karl í síma 91-20160 milli
kl. 13 og 18 í dag og næstu daga.
Lagerhúsnæði
Óskum eftir að taka á leigu lagerhúsnæði á
stærðarbilinu 200-300 fm á jarðhæð með
aðkeyrsludyrum.
Æskileg staðsetning væri á svæði 104 en
aðrir staðir koma til greina.
Vinsamlega hafið samband í síma 680891
frá mánudegi til föstudags kl. 9-17.
Húsnæði undir kæli
Óskast til leigu 40-50 fm kælir á Reykjavíkur-
svæðinu. Einnig kemur til greina húsnæði
sem mætti innrétta sem kæli.
Upplýsingar á skrifstofutíma í síma 677800,
Samúel.
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu ca 70 m2 skrifstofuhúsnæði í Stór-
holti. 3 herbergi, kaffistofa, sér salerni og
eldtraustur skjalaskápur. Hentar vel fyrir lög-
fræði- og endurskoðunarskrifstofur.
Upplýsingar í síma 91-13760.
Skólar og
námskeiðshaldarar
Einkaskóli í Reykjavík hefur til leigu 1-2
kennslustofur í lengri eða skemmri tíma hvort
sem er að degi eða kvöldi. Aðgangur að
kaffistofu fyrir nemendur og Ijósritunarvél
fylgir. Allur kennslubúnaður fyrir hendi. Sím-
svörun og fjölritun námsefnis getur líka verið
inni í myndinni.
Þeir, sem áhuga hafa, leggi inn upplýsingar,
m.a. um nafn og símanúmer, til afgreiðslu
Mbl. fyrir 15. október 1994, merktar:
„Kennsluhúsnæði - ’94‘‘. Samband verður
haft við þá, sem sýna þessu áhuga.
Til leigu í miðbænum
Nýlega endurnýjað og snyrtilegt 240 fm skrif-
stofuhúsnæði. 5 skrifstofur, móttaka og eld-
hús. Dúkur á gólfum. Lagnastokkar. Oflugt
loftræsikerfi. Skiptanlegt. Góð kjör í boði.
L
~i
EIGULISTINN
LEIGUMIÐLUN
sími 622344.
T
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Skattamálanefnd Sjálfstæðisflokksins
Opinn fundur
Opinn fundur á veg-
um skattamála-
nefndar Sjálfstaeðis-
flokksins verður
haldinn f Valhöll
miðvikudaginn 12.
október nk. kl.
17.15-18.45.
Gestur fundarins er
Friðrik Sophusson,
fjármálaráðherra,
og mun hann ræða stöðu og horfur í ríkisbúskapnum.
Allir sjálfstæðismenn velkomnir.
Fundarstjóri: Sólveig Pétursdóttir, alþingismaður.
Skattamálanefnd.
I.O.O.F. 10 = 17510108 = Sp.
I.O.O.F. 3= 17610108 = Dd.
□GIMLI 5994101019 III = I
□ HELGAFELL 5994101019 VI
□ MlMIR 5994101019 I 2
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Barnasamkoma og barnagæsla
á sama tíma. Allir hjartanlega
velkomnir.
• VEGURINIU
J Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Morgunsamkoma kl. 11.00. Eitt-
hvað fyrir alla aldurshópa. Kvöld-
samkoma kl. 20.00. Samúel Ingi-
marsson prédikar. Allir hjartan-
lega velkomnir. Guð er góður!
fctmhjólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16.00.
Fjölbreyttur söngur. Samhjálp-
arkórinn tekur lagið. Vitnisburð-
ir. Barnagæsla. Ræðumaður Óli
Ágústsson. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Samhjálp.
með hlutvetk
YWAM - ísland
Samkoma í Breiðholtskirkju f
kvöld kl. 20.30. Eirný Ásgeirs-
dóttir prédikar. Mikill söngur,
lofgjörð og fyrirbænir.
„Trúr er Guð sem yður hefur
kallað til samfélags sonar síns
Jesú Krists, drottins vors".
1. Kor. 1:9.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma og sunnu-
dagaskóli kl. 11.00.
Allir velkomnirl Sjónvarpsút-
sending á OMEGA kl. 16.30.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustrætí 2
Fjölskyldusamkoma kl. 11.00.
Ester og Inger Jóhanna stjórna
og tala. Hjálpræðissamkoma kl.
20.00. Tom Harriger fulltrúi Billy
Graham talar. Mánudag kl.
16.00. Heimilasamband. Áslaug
Haugland talar. Allir velkomnir.
x
o>
io’
Q>
»
UO'
•
on
3
cn
£
UJ
UJ
Dagsferð sunnud. 9. okt.
Kl. 10.30 Hengilssvæðið
Róleg og þægileg haustganga
fyrir alla fjölskylduna um svæðið
í kringum Hengil. Brottför fra
BSÍ bensínsölu.
Dagsferð sunnud.
16. okt.
Kl. 10.30 Vitagangan 9. áfangi
og Fjölskyldugangan.
Fjallaferð um veturnæt-
ur 21.-23. október.
Ferðinni er heitið inn á hálendi,
nánar tiltekið Hveravelli. Gengið
í Þjófadali og komiö við í Hvítar-
nesi o.fl. Sameiginleg máltíð á
laugardagskvöld.
Fararstjórar Ágúst Birgisson og
Eyrún Ósk Jensdóttir.
Otivist.
FERÐAFÉLAG
© ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
SunnudagsferAir 9. okt.
Kl. 10.30 Kálfstindar - Kálfsgil.
Skemmtilegir fjallshryggir aust-
an Þingvalla. Verð 1.200 kr.
Kl. 13.00 Þingvellir í haustiitum.
Gengið að eyðibýlunum Hraun-
túni og Skógarkoti. Missið ekki
af haustlitunum á Þingvöllum.
Verð aðeins 1.000 kr., frítt f.
börn m. fullorönum.
Brottför frá BSÍ, austanmegin,
og Ferðafélagshúsinu, Mörkinni
6.
Myndakvöld F.í.
Fyrsta myndakvöld vetrarins
verður fimmtudagskvöldið 13.
okt. í Fóstbræðraheimilinu,
Langholtsvegi 109-111, og
hefst það kl. 20.30. Fylgist með
auglýsingum um helgina.
Nýr staður og dagur. Vegna
breytinga á Sóknarsalnum er
ekki lengur hægt að hafa
myndasýningarnar þar. í vetur
er stefnt að því að komast í
nýjan sal Ferðafélagsins f
Mörkinni 6.
Hornstrandafarar F.í.
Hin árlega haustganga Horn-
strandafara F.l. verður laugar-
daginn 15. október. Gengið
verður frá Höskuldarvöllum að
Bláa lóninu og snæddur kvöld-
verður þar. Nánari upplýsingar
veita Guðmundur Hallvarðsson,
s. 91-686114, Eiríkur Þormóðs-
son, s. 91-18538, Guðmundur
Hjartarson, s. 91-654299, og
skrifstofa F.f.
Árbók F.Í.1994
Gerist félagar og eignist árbók-
ina „Ystu strandir norðan
Djúps". Einstaklega falleg og
fróðleg bók. Hún er innifalin í
árgjaldi kr. 3.100. Árbókin er
einnig fáanleg í harðkilju fyrir
500 kr. aukagjald. Sendum hvert
á land sem er. Hringið eða lítiö
inn á skrifstofuna, Mörkinni 6,
S. 91-682533, fax 682535.
Ferðafélag Islands.
Frá Sálar-
rannsókna-
Breski miðillinn Irine Nederman
starfar hjá félaginu 13.-22. októ-
ber. Hún er mjög góður sam-
bands- og sannanamiöill og hef-
ur komið til íslands áður og
starfaö með góðum árangri.
Bókanir á einkafundi í símum
18130 og 618130.
Stjórnin.
Frá Sálar-
^ ^ rannsókna-
félagi
íslands
Skyggnilýsingafundur
Breski miðillinn
Dorothy Toole
verður með
skyggnilýsinga-
fund þriðjudag-
inn 11. október
kl. 20.30 i
Garðastræti 8.
Dorothy býður
einnig uppá einkafundi og eru
bókanir í símum 18130 og
618130.
Stjórnin.
\v---7/
KFUM
V
Aðalstöðvar
KFUM og KFUK,
Holtavegi 28
“Ég þekki verk þín“ Op. 2:1-7.
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.00. Ræðumaður verður Guð-
mundur Karl Brynjarsson. Gunn-
ar Bjarnason og Kristin Sverris-
dóttir sjá um efnið: Kynni okkar
af Kenýu. Þú ert velkominn í
kvöld.