Morgunblaðið - 21.10.1994, Page 4

Morgunblaðið - 21.10.1994, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ráðstefna um hvert skuli stefna í launa- og starfsmannamálum ríkisins Stjórnendiw ríkis- stofnana fái ákvörð- unarvald um laun FJÖLMENNI var á ráðstefnu fjármálaráðuneytisins um launamál opinberra starfsmanna. Fjármálaráðherra sagði á ráðstefnu um launa- mál ríkisstarfsmanna að færa þurfí skipulag þeirra nær því sem gildi -- á almennum vinnu- markaði. Fram- kvæmdastjóri VSI fagn- aði yfirlýsingum ráð- herra en formaður BSRB sagði að breyt- ingar afþessu tagi hefðu hvarvetna leitt af sér aukinn launamun. FJÁRMÁLARÁÐHERRA telur að draga þurfí úr miðstýringu í launa- kerfi opinberra starfsmanna og færa launaákvarðanir í hendur stjómenda ríkisstofnana og opinberra fyrir- tækja. Samræma þurfi réttindi opin- berra starfsmanna réttindum á al- mennum vinnumarkaði. í stað þess að leggja í kjarasamningum meginá- herslu á starfsaldurshækkanir verði tillit tekið til ábyrgðar, frammistöðu og framleiðni. Ogmundur Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, varar mjög við að dreg- ið verði úr miðstýringu í launa- ákvörðunum og segir að reynslan sýni að það hafi aukið launamun alls staðar þar sem það hafí verið reynt. Þórarinn. V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, fagnaði hins veg- ar viðhorfum fjármálaráðherra og sagði þáð forsendu þess að hægt yrði að bæta framleiðni hjá hinu opinbera. Þetta kom fram á ráðstefnu sem fjármáiaráðuneytið gekkst fyrir í gær um hvert skuli stefna í launa: og starfsmannamálum ríkisins. í upplýsingum sem lágu frammi á ráð- stefnunni kemur fram meðal annars að útgjöld ríkisins vegna greiðslu launa eru um 36 milljarðar króna á ári. Starfsmenn eru um 25 þúsund í 20 þúsund ársverkum, auk um 3.500 starfsmanna hjá sjúkrastofn- unum sem sjá sjálfar um greiðslu launa. Meðallaun hjá ríkinu eru 128 þúsund krónur á mánuði án launa- tengdra gjalda og fá ríkisstarfsmenn að meðaltali greiddar 39 yfirvinnu- stundir í mánuði. Launin eru mjög mismunadi eftir starfsstéttum. Með- allaun starfsmanna í Félagi íslenskra flugumferðarstjóra eru um 270 þús. kr. á mánuði, en í Póstmannafélagi {slands um 90 þús.kr. Meðaliaun háskólamenntaðra ríkistarfsmanna eru 144 þús. kr. á mánuði en meðal- laun félaga í BSRB um 111 þús. kr. Ríkisstarfsmenn fá greidd laun eftir um 140 kjarasamningum og í launa- kerfinu eru 307 launategundir og 16 þúsund starfsheiti og afbrigði þeirra. Dregið úr miðstýringu Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, nefndi nokkur atriði sem taka þyrfti tillit til við umbætur í launa- og starfsmannamálum ríkisins. Draga þyrfti frekar úr miðstýringu en þegar hafi verið gert. Ríkið sé í samkeppni við einkafyrirtæki um vinnuaflið og eigi það að verða samkeppnisfært verði það að taka mið af starfsmanna- haldi þeirra. Miðlæg launaafgreiðsla hafi orðið til þess að vinnuveitenda- ábyrgð hjá oddvitum opinberrar starf- semi hafi veslast upp. Þá þurfi að endurskoða lög um réttindi og skyld- ur opinberra starfsmanna. í flestum nágrannaríkjunum hafí lögum verið breytt þannig að starfsmenn hins opinbera séu jafnsettir um réttindi og skyldur og launafólk almennt, ef undan sé skyldur þröngur hópur sér- hæfðra embættismanna. Sagði hann eðlilegt að bæði lögin frá 1954 um réttindi og skyldur opinberra starfs- manna og lögin um samningsrétt opinberra starfsmanna frá árinu 1986 yrðu endurskoðuð. Friðrik sagði nauðsynlegt að ein- falda launakerfi ríkisins og færa ákvörðun um laun nær vettvangi þess sem ber ábyrgð á starfseminni. Bylta verði homsteini núverandi launaskip- unar, launatöflunni, sem byggi eink- um á starfsaldri og menntun, og skoða í fullri alvöru hvort ekki eigi í stað þess að byggja á frammistöðu og ábyrgð. Friðrik sagði að auka þyrfti og skerpa ábyrgð yfirmanna nkisfyrir- tækja og stofnana, leggja af æviráðn- ingar og meta stjómunarstörf eftir árangri. Þá þyrfti að hverfa frá laga- legri sérstöðu sem ríki um málefni ríkisstarfsmanna og í stað þess að leggja megináherslu á starfsaldurs- hækkanir í kjarasamningum, þurfi að taka meira tillit til ábyrgðar, frammistöðu og framleiðni. Þá þurfi að samræma lífeyrismál opinberra starfsmanna því sem gerist á almenn- um vinnumarkaði og umsýsla um launa- og starfsmannamál að færast út í einstakar stofnanir. Stefnan ætti að verða sú að ríkið geti keppt við einkamarkaðinn um hæft starfsfólk á jafnréttisgrundvelli. „Mikil umsvif ríkisins krefjast nú- tímalegra vinnubragða og gera kröfu til að fyllstu hagkvæmni sé gætt. Jafnframt er að sjálfsögðu nauðsyn- legt að ríkisstarfsmenn verði með í ráðum og sérhver breyting sé rædd ítarlega við þá. Okkur er öllum ljóst að árangurinn í ríkisrekstrinum byggist á hæfu starfsfólki og góðum starfsanda," sagði fjármálaráðherra. Samningar um laun á félagslegum grunni Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, lagði áherslu á að ekki yrði ráðist í að gera neinar breytingar nema í fullu samráði við starfsmenn ríkisins og lagði áherslu á að áður en ákveðið yrði að fara út í grund- vallarbreytingar á launakerfi ríkisins yrðu málin skoðuð frá öllum hliðum. Einstaklingsbundnir samningar skapi óeðlilega mikil völd hjá launa- greiðanda, skapi hættu á mismunun og spillingu. Launabætur, bónusar og álagsgreiðslur séu alls annars eðlis ef þær séu greiddir á félagsleg- um grunni. Þá gildi almennar reglur og þó þær kunni að mismuna ein- staklingunum, séu reglumar öllum ljósar. Ögmundur sagði að allar athugan- ir sýndu að eftir því sem samningar færu meir inn í stofnanir og fyrir- tæki þeim mun meiri yrði launamun- urinn. Staðreyndin væri sú að því dreifðari sem samningamir væru með tilliti til stofnana og fyrirtækja því meira fengju hinir hæstlaunuðu og þeim mun minna hinir lægstlaun- uðu. Hann spurði hvort ekki væri of mikið gert úr stjórnunarlegu mikil- vægi launanna og hvort staðreyndin væri ekki sú að himinhá laun stjórn- enda væru ekki í nokkmm tengslum við gæði þeirra sem starfsmanna. Ögmundur varaði ríki og sveitarfélög að ráðast gegn þeim réttindum sem launafólk hefði komið sér upp, því það mætti ekki afvopna sig í sam- keppninni við aðra atvinnurekendur. Kjarasamningar lágmarkssamningar Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, sagði að ekki væm sýnilegar forsendur fyrir því að skipa starfskjömm og ráðningar- málum opinberra starfsmanna með öðmm hætti en gerðist á almennum vinnumarkaði. Því fagnaði hann ummælum fjármálaráðherra um að draga úr þessum mun þannig að sömu lög tækju til beggja hópa. Hann sagði að kjarasamningar væm lágmarkssamningar og mat á fram- lagi hvers og eins starfsmanns gæti ekki farið fram nema í samskiptum starfsmanna og stjómenda á einstök- um vinnustöðum. Frammistaðan sé einstaklingsbundin en ekki félagsleg og því verði umbunin aldrei ákveðin á félagslegum gmndveili í formi lqa- rasamnings. Stjómendur opinberra stofnana yrðu að fá mun rýmra svig- rúm til launaákvarðana en verið hefði. En því svigrúmi yrði að fylgja fagleg og fjárhagsleg ábyrgð og þar með að staða stjórnenda opinberra stofnana og fýrirtækja hlyti að breyt- ast í grundvallaratriðum. Þórarinn sagði að vissulega væri þörf á breyttri starfsmanna- og launastefnu hins opinbera, en fyrst og fremst væri þörf á að skilgreina hlutverk, markmið og ábyrgð í rekstri einstakra þátta opinberrar þjónustu. „Launin em mikilvægasta stjómtæki í ölium atvinnurekstri og oftast stærsti útgjaldaliðurinn sem stjómendur ráða við. Launaákvarð- anir verða því að hvetja einstakling- inn og efla frammistöðu og árangur. Það verður því að færa ábyrgðina út til stjórnenda einstakra stofnana, stjómenda sem hafa tekið á sig ábyrgð á tilteknum framkvæmdum eða þjónustu. Markmiðið er betri þjónusta, sem lægst launaútgjöld og sem best laun. Að þessu marki þarf að vinna því hagsmunir allra hlutað- eigandi fara hér býsna vel saman.“ Ályktun Fiskiþings Alþingi greiði fyrir veitta þjónustu Fiskifélagsins FISKIÞING lagði í gær mikla áherzlu á rannsóknir og þróunar- starf í sjávarútvegi. Þingið sam- þykkti tvær tillögur þess efnis. Annars vegar um að stjórn Fisk- veiðasjóðs leggi fé til þróunardeild- ar sjóðsins, sem veitt verði til að styrkja, rannsóknir, þróunarverk- efni og markaðssetningu. Þá var því beint til stjómvalda að skatta- lögum verði breytt þannig, að heim- ilaður verði sérstakur skattaafslátt- ur til fyrirtækja vegna rannsókna og þróunarstarfa. Þá vill þingið að Alþingi greiði fyrir veitta þjónustu Fiskifélagsins. Af öðrum samþykktum Fiski- þings í gær má nefna, að lýst var yfír áhyggjum af gæðum fisks á fiskmörkuðum og tekið fram að úrbóta væri ekki að vænta nema menn tileinkuðu sér þann hugsun- arhátt að koma með gallaiausan fisk að landi og kaupendur keyptu ekki fisk, sem ekki stæðist fyllstu gæði. Samþykkt var ályktun þess efnis, að verði rækjukvóti aukinn, njóti loðnuskip þeirrar aukningar ekki. Ályktunin er svohljóðandi: „Loðnuflotinn fékk á sínum tíma verulega fyrirgreiðslu þegar erfið- leikar steðjuðu að, meðal annars fékk hann sérstakar aflaheimildir á kostnað annarra útgerða, sem nú eiga í erfiðleikum. Nú þegar heim- ildir til loðnuveiða em í hámarki er því eðlilegt að farið sé fram á að loðnuflotinn skili einhvetju til baka. Komi til þess að aukið verði við rækjukvótann, komi sú aukning ekki til loðnuskipa." Háu raforkuverði mótmælt Þingið mótmælti háu raforku- verði og lagði til sérstakar aðgerðir til að auka tekjur Fiskifélagsins. Þar vom taldir nokkrir tekjumögu- leikar svo sem aukning auglýsinga í ritum félagsins og að gengið verði fastar fram 5 verðlagningu þeirrar þjónustu, sem félagið veitir, en hvomm þessum lið er ætlað að skila einni milljón króna. Þá er gert ráð fyrir því að Alþingi greiði þijár milljónir króna fyrir þá þjónustu, sem Fiskifélagið veitir því. Til þessa hefur ekki verið farið fram á greiðslu fyrir þessa þjónustu, enda hefur Fiskifélagið notið beinna opinberra fjárframlaga, en ekki er gert ráð fyrir því í fjárlögum næsta árs. Loks er gert ráð fyrir að leita eftir tveggja milljóna styrk frá Al- þingi til að halda óbreyttri starfsemi tæknideildar Fiskifélagsins og gert er ráð fyrir spamaði í rekstri upp á 1,5 milljónir króna. Þá má nefna samþykkt þess efnis að hvalveiðar verði hafnar ekki síðar en næsta sumar. Fiskiþing heldur áfram af- greiðslu ályktana í dag, en þá verð- ur einnig gengið til kosninga um formann og stjórn félagsins og lýk- ur þinginu að því loknu. Andlát MARKÚS Á. EINARSSON MARKÚS Á. Einars- son, veðurfræðingur og deildarstjóri hjá Veðurstofu íslands, er látinn, 55 ára að aldri. Markús var fæddur í Reykjavík 5. mars 1939, sonur Ingibjarg- ar Helgadóttur hús- freyju og Einars Þor- steinssonar fram- kvæmdastjóra. Markús lauk stúd- entsprófi frá MR 1959 og lokaprófi í veður- fræði frá Óslóarhá- skóla 1964. Hann hóf störf á flugveðurstofu Veðurstofu íslands á Keflavíkurflugvelli að loknu námi,_ en réðst til starfa á Veðurstofu íslands 1967 og starf- aði þar til dauðadags. Markús var deildarstjóri veðurfarsdeildar Veð- urstofu íslands 1971-1974 og deildarstjóri veðurspárdeildar frá 1975. Auk starfa á Veðurstofu kenndi Markús veðurfræði i MR, MH og Háskóla íslands um árabil. Hann flutti veður- fregnir í Ríkissjónvarp- inu á ámnum 1968- 1989. Markús tók þátt í starfi Bandalags há- skólamanna og var for- maður þess 1972-74. Hann tók ennfremur virkan þátt í starfi Framsóknarflokksins, og var bæjarfulltrúi flokksins í Hafnarfirði 1978-1986 og fyrsti varaþingmaður Fram- sóknarflokksins í Reykj aneskj ördæmi 1979-1983. Maricús sat í útvarps- ráði 1980-1991 og var varaformað- ur ráðsins 1983-1991. Þá var hann formaður útvarpslaganefndar 1981-1982. Eftir Markús liggja nokkrar bæk- ur um veðurfræði, auk sjónvarps- þátta um veður. Eftirlifandi eiginkona Markúsar er Hanna Sesselja Hálfdanardóttir. Þau eignuðust þijú börn. \ I > i I I í I I ! 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.