Morgunblaðið - 21.10.1994, Qupperneq 11
MÖttGÚNÖLÁÐÍé PÖSTUDÁG0R 21: ÖK1X)6’EK lðÖÁ M
FRÉTTIR
Birnaí
Miss World
BIRNA Bragadóttir verður
fulltrúi íslands í keppninni
um titilinn
Miss World
1994 að
þessu sinni.
Keppnin
fer fram 19.
nóvember
nk. og líeld-
ur Birna til
Jóhannesar- Birna >
borgar í Bragadóttir
Suður-Afr-
íku föstudaginn 21. október
en í Sun City er keppnin hald-
in þriðja árið í röð. Island tók
ekki þátt í keppninni í fyrra.
Birna vann nýverið titilinn
Miss Scandinavia í Finnlandi
en hún varð í öðru sæti í
Fegurðarsamkeppni íslands
20. maí sl.
Margrét Skúladóttir Sig-
urz, fegurðardrotting Islands,
tók fyrir skömmu þátt í
keppninni Miss Europe í
Tyrklandi og komst hún í 12
stúlkna úrslit.
Klippt af bíl-
um í umferð-
arátaki
KLIPPT verður af bifreiðum
á Suðvesturlandi í sameigin-
legu umferðarátaki í næsta
mánuði.
Á samstarfsfundi um um-
ferðarmál á Suðvesturlandi á
þriðjudagsmorgun var ákveð-
ið að vera með samræmt
úmferðarátak í næsta mánuði
og beina sérstaklega athygli
að bifreiðum, sem ekki hafa
verið færð'ar til skoðunar,
ekki hafa verið greiddar
tryggingar og bifreiðagjöld
af, og klippa númer af þeim
sem þannig er ástatt um.
Lögreglan hvetur bifreiða-
eigendur, sem ekki hafa sinnt
þessum skyldum, að gera
hreint fyrir sínum dyrum og
spara sér óþægindi og óþarfa
kostnað.
Tillaga um
breytingu á
stjórn borg-
arinnar
BORGARSTJÓRI hefur lagt
fram tillögu í borgarráði um
breytingu á samþykkt um
stjórn Reykjavíkurborgar og
að felld verði niður sú krafa
að borgarritari sé embættis-
gengur lögfræðingur.
Lagt er til að 2. mgr. 34.
gr. samþykktar um stjórn
Reykjavíkurborgar og
fundarsköp borgarstjórnar
verði breytt. í stað „Borgar-
ritari skal vera embættis-
gengur lögfræðingur. Hann
hefur með höndum daglega
stjórn á fjármálum borgar-
innar og umsjón með skrif-
stofum hennar", komi,
„Borgarritari hefur með
höndum daglega stjórn á fjár-
málum borgarinnar og um-
sjón með skrifstofum henn-
ar.“
Tillögunni var vísað til
borgarstjórnar.
MORFÍS hafín að nýju
VERSLUNARSKÓLINN og
Flensborgarskóli öttu kappi sam-
an í mælsku og ræðulist sl. mið-
vikudagskvöld í Bæjabíói í
heimabæ þess síðarnefnda, Hafn-
arfirði.
Flensborgarskólinnátti ræðu-
mann kvöldsins en Verslunar-
skólinn bar sigur úr býtum með
27 stiga mun og kemst áfram í
aðra umferð í MORFÍS, Mælsku-
og rökræðukeppni framhalds-
skóla á Islandi.
Umræðuefnið var valið fimm
dögum fyrir keppni, sem er ögn
styttri undirbúningstími en verið
hefur fram til þessa í MORFÍS.
Skólarnir þráttuðu um þá full-
yrðingu að kristnitakan hefði
spillt menningu og þjóð, og voru
Verslingar andmælendur þeirrar
staðhæfingar. Anna María
Pálmadóttir, formaður mál-
fundafélags Verslunarskólans,
segir að keppnin hafi verið hörð
og spennandi og sé enn mikill
áhugi meðal nemenda á mælsku
og rökræðum og leggi skólarnir
metnað sinn í að ná góðum
árangri á þessu sviði. Bæjarbíó
hafi verið troðfullt og stemmn-
ingin ósvikin. Klapplið skólanna
hafi ekki legið á liði sínu við að
viðhalda æsingnum og ekki hafi
mátt á milli sjá hvort ræðuliðin
eða klappliðin hafi átt í meiri
keppni. I lokakeppni MORFÍS í
fyrra vann Menntaskólinn í
Hamrahlíð og segir Anna María
að Verslunarskólinn hafi fullan
hug á að hreppa titilinn að þessu
sinni.
Morgunblaðið/Kristinn
HAFNFIRÐINGAR hvöttu sína menn með trompetblæstri.
/z //<5 /// tt rri
KENWOOD
kmftut; gœði, ending
2 gerðir Kenwood MIDI samstæður frá 59.900,-
3 gerðir Kenwood MINI samstæður frá 69.900,-
Margskonar samsetningar á Kenwood útvarpsmögnurum,
geislaspilurum og Wharfedale hátölurum.
Auk þess ýmis stök tæki á mjög lækkuðu verði.
þar sem gœðin heyrast
Ármúla 17, Reykjavík, sími 688840