Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Veitingamenn gagnrýna veisluhöld í íþróttahúsum sem byggð eru fyrir opinbert fé Stórsteikurnar eru skorn- ar í sturtuklefunum „VIÐ ERUM að vekja athygli á þeirri stórauknu veitingastarfsemi sem orðið hefur í íþróttamann- virkjum í bænum. Okkur þykir gagnrýnivert að haldnar séu veislur í húsum sem byggð eru af opinberu fé til allt annarra nota og uppfylla ekki þau skilyrði og greiða ekki þau gjöld sem okkur er gert að gera,“ sagði Gunnar Karlsson, hótel- stjóri á Hótel KEA, sem ásamt veitingamönnun- um Gísla Jónssyni í Sjallanum, Héðni Beck á Fiðlaranum og Hlyni Jónssyni á Greifanum hefur ritað Jakobi Björnssyni bæjarstjóra bréf þar sem spurt er hvort eðlilegt sé að nýta íþróttamann- virki sem reist eru fyrir skattpeninga bæjarbúa fyrir veislur meðan sérbyggð hús til skemmtana- halds séu tii staðar. I eina tíð voru allar stórar matarveislur haldn- ar í Sjallanum eða Hótel KEA sem taka hvort hús um 260 manns og síðan hefur Fiðlarinn bæst við með um 200 manna sai. Þróunin hafi á síðustu árum hins vegar orðið sú að stærri sem smærri veislur séu haldnar í íþróttahöll bæjarins. A sama tíma séu veitingahús bæjarins sem sérhönnuð séu fyrir slíka starfsemi vannýtt. I undantekningartilvikum þegar veislur sprengja utan af sér stærstu veitingastaðina sé réttlætan- legt að opna dyr íþróttahallarinnar og verði þá allir veitingastaðir að hafa jafna möguleika á að ná til sín slíkum verkefnum. Samkeppnisstað- an sé því óeðlileg og hafi átt stóran þátt í að beygja rekstur veitingahúsa í bænum. Bent er á að samkvæmt ársreikningum bæjarins hafí leigu- tekjur vegna starfseminnar á síðasta ári verið 485 þús. kr. sem sé samkvæmt þeirra heimildum um 10 þús. kr. fyrir hverja veislu. Bent er á að bæjarféiagið hafi skatttekjur af reksti og launum þeirra nærri tvö hundruð starfs- manna í veitingaþjónustu og því sé hart að bæjar- félagið skulu óbeint grafa undan heilli atvinnu- grein. íþróttir í andrúmslofti menguðu af vímugjöfum „Þykir þér fýsilegt fyrir börnin okkar að ganga til æfinga í andrúmslofti menguðu af þeim vímug- jöfum sem skemmtanahaldi fylgja?" spyija veit- ingamenn bæjarstjóra og einnig spyrja þeir hvort eðlilegt sé að skera niður stórsteikur í sturtuklef- um sem andartaki áður voru iðandi af hraustum íþróttagörpum „og er jafnvel enn iðandi af ein- hvers konar lífi sem ekki hefur þótt lystaukandi fram til þessa“. Með lamb- hrúta úr eftirleitum Grýtubakki. Morgfunblaðið. Bændur úr Grýtubakkahreppi fóru í fyrstu fjárleitir frá því gengnar voru hefðbundnar haust- göngur á dögunum og fundust þá þrír lambhrútar í námunda við Grenivíkurtungur en það er á þeirri leið sem farið er yfir í Fjörður. Vel gekk að handsama lömbin enda kominn nokkur sjór á svæðið sem hrútarnir fundust á. Vitað er um ær og tvö lömb sem sluppu úr höndum gangnamanna og lentu í klettum í síðustu göngum, í svonefndum Kötlum sem eru á milli Þorgeirsfjarðar og Keflavíkur í Fjörðum. Telja menn að þau hafi spjarað sig nið- ur úr klettunum og verður vitjað um þær seinna. Trillusjómenn frá Grenivík og rjúpnaveiðimenn hafa látið vita af kindum sem gengið hafa á Látraströnd og Leirdalsheiði eftir göngurnar. Fjárheimtur bænda í Grýtubakkahreppi voru með svip- uðu móti og síðastliðin ár. Morgunblaðið/Jónas Baldursson Útvarp Norðurlands Auknar út- sendingar ÚTVARP Norðurlands hefur ákveðið að auka útsendingar í svæðisútvarpi og verður á morgun, fyrsta vetrardag hleypt af stokkunum nýjum þætti sem hlotið hefur nafnið Norðurljós. Hann hefst kl. 11 og lýkur fyrir hádegisfréttir. Utvarpað verður á dreifikerfi Rásar 2. Fréttir vikunnar verða tekn- ar saman í upphafi þáttarins, sest á rökstóla með tveimur- þremur Nórðlendingum og málefni er varða landshlutann rædd og í lokin verður fjalla um atburði og uppákomur helg- arinnar. Umsjónarmaður Norð- urljóss verður Arnar Páll Hauksson og aðrir starfsmenn Útvarps Norðurlands. Þáttur- inn er viðbót við svæðisútvarp- ið sem er alla virka daga bæði kvölds og morgna. Kartöflu- geymslunni lokað í vor KARTÖFLUGEYMSLA Akur- eyrarbæjar í Grófargili er ónýt og telur umhverfisnefnd bæj- arins óhjákvæmilegt að loka geymslunni næsta vor nema gagngerar kostnaðarsamar endurbætur eigi sér stað. „Húsið mjög illa farið og það kostar verulega fjármuni að gera við það,“ sagði Árni Stein- ar Jóhannsson umhverfisstjóri Akureyrarbæjar. Á þriðja hundrað bæjarbúa hafa geymt kartöflur í geymslunni að jafn- aði á ári. Nefndin hefur falið umhverfisstjóra að kanna áhuga kartöflubænda í ná- grenni Akureyrar á að veita þessa þjónustu. „Ég er ekki farinn að kanna hvort menn hafi áhugi en það væri gott að vita hafi menn áhuga og að- stöðu til að taka þetta að sér,“ sagði Árni Steinar. Sýningarmet hjá Leikfélagi Akureyrar Barpar slær Piaf út SÝNINGARMET verður sett hjá Leikfélagi Akureyrar að lokinni sýningu á leikritinu Barpar annað kvöld, laugardagskvöld, en þá verð- ur 59. sýning á verkinu og eru áhorfendur um 4.600 talsins. Verk- ið hefur verið sýnt í litlu leikhúsi sem LA lét innrétta sérstaklega fyrir þessa sýningu og kallar Þorp- ið en á bilinu 80-85 manns komast að á hverri sýningu. Barparið slær nú eldra sýningar- met sem söngleikurinn Piaf átti og var sýndur 58 sinnum hjá Leikfé- lagi Akureyrar árið 1985, en þar áður höfðu verið 55 sýningar á söngleiknum My Fair Lady. Lítið lát er á vinsældum leikrits- ins sem frumsýnt var í janúar síð- astliðnum því að sögn Rögnu Garð- arsdóttur miðasölustjóra liggja fyrir pantanir á sýningar langt fram í nóvember. „Áhorfendur eru veru- lega mikið í bland héðan úr bænum og utanbæjarfólk," sagði Ragna en til að mynda var verkið sýnt tíu sinnum á Listahátíð í Reykjavík fyrir um 1.000 áhorfendur og um aðra helgi er væntanlegur hópur fólks frá Neskaupstað sem ætlar að sjá þessa sýningu. Þá hefur áhöfnum Skipa verið gefínn kostur á að sjá leikritið þegar menn eru í landi og þannig var sett upp sýning fyrir áhöfnina á Oddeyri EA í vik- unni. Sunna Borg og Þráinn Karlsson fara með öll fjórtán hlutverkin í leikritinu sem er eftir Jim Cartwr- ight undir leikstjórn Hávars Sigur- jónssonar. Til sölu Glerárgata 32, Akureyri Verslunar- og skrifstofuhúsnæöi á þremur Im Puiin samtals 659,8 fm. 1. hæð er 246,6 fm og hentar mjög vel scm verslunarhús- næði með góðri aðkomu. 2. hæð er 206,6 fm og er rúm- góður stigi á miili 1. og 2. hæðar. 3. hæð er 206,6 fm og er ekki fullfrágengin. Góður stigagangur, sem uppfyllir brunavarnir, er í liúsiim. Eiguin er á hesta stað í bænum og er laus strax. Allar nánari upplýsingar veitir Fasteignasalan, Brekkugötu 4, fSa2r7748620o92,744/ FASTÍIGNASÁLAN Krakkahópur á Karamellukvöm RÚTUBÍLAR stefndu í stríðum straumum frá ýmsum stöðum á Norðurlandi og var ferðinni heitið að Samkomuhúsinu á Akureyri. Innanborðs voru kátir krakkar á leið í leikhús. Nafnið eitt hefur eflaust vakið fiðring hjá einhverjum - Kara- mellukvörnin. Enda kom á daginn að stemmningin var eins og best verður á kosið en hennihéldu uppikrakkar frá Kópaskeri, „besta stað á land- inu“, eins ogþau sögðu sjálf, Mývatnssveit, Grenivík, Hofs- ósi og Arskógsströnd. Og í til- efni dagsins, leikhúsferðar, mátti borða mikið sælgæti þó sennilega hafi ekki verið hefð- bundinn nammidagur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.