Morgunblaðið - 21.10.1994, Síða 13

Morgunblaðið - 21.10.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 13 LAIMDIÐ JÓHANNA og Guðrún Snorradætur á nýju stofunni. Ný hársnyrti- stofa opnuð í Hveragerði Hveragerði - Hársnyrtistofan Ópus var nýverið opnuð í Hvera- gerði. Það eru systurnar Guðrún Erika Snorradóttir rakari og Jó- hanna Snorradóttir hárgreiðslu- dama sem eru eigendur stofunnar. Saman bjóða þær upp á allt það nýjasta í hársnyrtingu á sann- gjörnu verði. Ellilífeyrisþegar fá 10% afslátt á allri þjónustu. A hársnyrtistofunni Öpus verða til sölu vörur frá Redken og Sebast- ian. Opnunartími stofunnar verður mánudagaga til fimmtudaga kl. 10-18, föstudagakl. 10-19 ogá laugardögum kl. 10-14. Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson HAFNARGARÐURINN á Drangsnesi, hraðfrystihúsið til vinstri. Grímsey á Steingrímsfirði í baksýn. Morgunblaðið/Björn Bjömsson MARGRÉT Margeirsdóttir frá félagsmálaráðuneytinu með nemendum sínum. Farskóli Norðurlands vestra hefur vetrarstarfið Starfsnám fyrir meðferðar- og uppeldisfulltrúa Súðavíkurhreppur Tveir listar boðnir fram eftir sam- eininguna TVEIR listar eru boðnir fram í Súðavíkurhreppi eftir sameiningu Súðavíkur, Ögurhrepps og Reykjafjarðarhrepps í Isafjarðar- djúpi. Sömu aðilar standa að list- unum og stóðu að tveimur listum í Súðavík við hreppsnefndarkosn- ingarnar í vor. Nýja sveitarfélagið varð til með ákvörðun félagsmálaráðherra um sameiningu Ögurhrepps- og Reykjafjarðat'hrepps, sem báðir voru með færri en 50 íbúa, við Súðavík. Liðlega 300 íbúar verða í nýja sveitarfélaginu sem form- lega verður til um næstu áramót. F-listi og S-listi Listarnir eru F-listi umbóta- sinna, sem fékk einn mann í hreppsnefndarkosningunum í Súðavík í vor, og S-listi, Samein- ingarlistinn, sem fékk fjóra menn kosna í vor undir heitinu Súðavík- urlistinn. Heiðar Guðbrandsson á Súðavík er efstur á lista umbóta- sinna og Siguijón Samúelsson úr Ögurhreppi í öðru sæti. Sigríður Hrönn Elíasdóttir, sveitarstjóri í Súðavík, skipar efsta sætið á Sam- einingarlistanum, Sigmundur Sig- mundsson, oddviti úr Reykjafjarð- arhreppi, er í öðru sæti, Friðgerð- ur Baldvinsdóttir í Súðavík í því þriðja, Salvar Baldursson í Vigur í Ögurhreppi í fjórða sæti og Guð- mundur Halldórsson í Súðavík í því fimmta. Sauðárkróki - Við Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki stendur nú yfir fyrsta önn Starfsnáms fyrir meðferðar- og uppeldisfulltrúa. Forstöðumaður Farskólans og annar umsjónarmaður námskeiðs- ins, Ársæll Guðmundsson, sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem boðið væri upp á þetta nám utan Reykjavíkursvæðisins, og hefði náðst mjög góð samstaða um að koma þessu námskeiði á laggirnar á milli Farskólans, Fræðslunefndar félagsmálaráðuneytisins og Svæð- isskrifstofu um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra. Þörfin væri líka mjög mikil og hefðu tæplega 50 sótt um að sitja námskeiðið en aðeins hefði verið unnt að taka við 31 nemanda frá níu vistheimilum og stofnunum úr kjödæminu. Fyrsta önnin skiptist í þrjár lot- ur. Frá 26. september til 7. októ- ber sitja nemendur á skólabekk en vikuna 10.-14. október er vinna. Síðan er aftur tveggja vikna skóla- seta og lýkur námskeiðinu þann 28. október og hafa nemendur þá lagt að baki 80 kennslustundir. Á námskeiðinu er víða komið við og meðal annars er fjallað um almenna stjórnsýslu, lög og reglu- gerðir, hugmynda- og siðfræði, uppeldis- og þroskasálarfræði, heilbrigðis-, næringar- og lífeðlis- fræði, aðferðarfræði og tóm- stundastörf og koma jafnmargir fyrirlesarar að námskeiðinu. Ár- sæll Guðmundsson gerir ráð fyrir að síðar í vetur verði svo þráðurinn tekinn upp aftur og náminu lokið með annarri 80 kennslustunda lotu. Farskóli Norðurlands vestra starfar í öllum þéttbýlisstöðum í kjördæminu og er boðið upp á margvíslegt nám svo sem um stað- byggð timburhús, stofnun og rekstur fyrirtækja, alls konar tungumálanám, tölvubókhald, skipstjórnarréttindanám og flugu- hnýtingar. Ársæll sagði að stefnt væri að því að sem flestir finndu eitthvað við sitt hæfi. Hafnarbót- um lokið við Drangsnes Laugarhóli, Bjarnarfirði- Ný- lega er lokið viðgerð hafnarmann- virkja bæði á Drangsnesi og í friðar- höfninni í Kokkálsvík sem er rétt suðvestan þorpsins. Viðgerð hefur staðið yfir mikinn hluta sumars á haus hafnargarðsins á Drangsnesi og á dráttarbraut fyrir báta í Kokk- álsvík, svo að auðveldlega megi koma bátum á þurrt til viðgerðar. Það hafa farið fram þó nokkrar viðgerðir á haus hafnargarðsins á Drangsnesi núna í sumar, en hann var farinn að láta undan sæbarn- ingnum og hafði látið mikið á sjá. Nú er hann að nýju reiðubúinn til þess að kljúfa ölduna sem getur orðið allskörp í höfninni á Drangs- nesi. Þess vegna hefur orðið að byggja aðra höfn, serrT friðarhöfn í Kokkálsvík, þar sem bátarnir eru geymdir og þeim er ekki hætta búin ef hvessir eins og heima við hafnargarðinn. Þá var einnig farið í framkvæmd- ir við að bæta aðstöðuna í Kokkáls- vík, meðal annars til að ná bátum á land til að dytta að þeim. Hefur nú verið bætt að mun sú aðstaða sem fýrir var svo að bátaeigendur geta gert við og málað báta sína. Þá er einnig hægt að draga bátana á land og jafnvel taka þá til flutn- ings. Það var Ólafur Ingimundarson, byggingarmeistari frá Svanshóli, sem ásamt fleirum annaðist við- gerðina og þykir hún hafa tekist vel. Á undanförnum árum hefur einn- ig verið varið nokkru fé til viðgerð- ar löndunarpláss í Kaldrananesi, en þar er nú sífellt að dragast saman útgerð. Þó mun sú löndunaraðstaða koma að notum á grásleppuvertíð og á sumrin. Þurkarar kr. 32.900 ískápar kr. 27.900 Hárþurkur kr. 990 Kaffivélar kr. 2.990 Viftur kr. 6.990 Eldavélar kr. 41.900 Þvottavélar kr. 47.900 Uppþvottavél kr. 55.900 Minútugrill kr. 7.990 Opið Laugardaga 10-16 • Opið Sunnudag 10-15 iMkkmm SUÐURLANDSBRAUT 16 • 108 REYK1AVÍK • SÍMI 880-500

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.