Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.10.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 29 BENTKOCH + Bent Koch, for- stjóri við 'Svejsecentralen í Danmörku, var fæddur 26. nóvem- ber 1928. Hann lést á heimili sínu sunnudaginn 28. ágúst síðastliðinn, 65 ára að aldri. Hinn 29. september 1956 gpftist Bent eftirlifandi konu sinni Jette Höeg Koch kennara, f. 14. september 1933. Börn þeirra eru: Christian, verk- fræðingur, f. 1958, Bolette, kennari, f. 1961, og Dorte, þjóð- hagfræðingur, f. 1963. Barna- börnin eru orðin fimm. Bent Koch varð stúdent af stærð- fræðibraut 19 ára gamall og lauk mastersgráðu í vélaverk- fræði frá DTH 1953. Hann var í sjóhernum 1953-1955 og lauk þar störfum sem liðsforingi. Frá flotanum réðst Bent ásamt fjór- um öðrum verkfræðingum til Svejsecentralen sem þá var til húsa á DTH við Östervoldgade. Útför Bents fór fram frá Gen- toftekirkju 3. september. OKKUR var snögglega brugðið þeg- ar tengdasonur Bent Koch, Sigurður Steinþórsson á Hæli, hringdi og til- kynnti okkur lát hans. Með Bent Koch er genginn mikilhæfur og góður drengur, einlægur íslandsvin- ur um áratugaskeið. Ég frétti fyrst af Bent gegnum kennara mína á Svejsecentralen. Síðan áttu leiðir okkar eftir að liggja saman um áratugi í leik og starfi. Árið 1961 réðst Bent til Bur- meister & Wain, sem suðuverkfræðingur við nýja stálframleiðslu- deild skipasmíðastöðv- arinnar. Þessi deild varð síðan fyrirmynd margra stærstu skipa- smiðja veraldarinnar. Frá þeim tíma hefír B&W verið talin ein fremsta skipasmíða- stöð í heiminum, þegar rætt er um stálsmíði. Eftir miðjan sjöunda áratuginn streymdu suðutæknilegar nýj- ungar frá Japan. Það var því freistandi fyrir áhugasaman mann að kynnast þessu betur og árið 1967 réðst Bent Koch sem tæknilegur framkvæmda- stjóri til suðufyrirtækisins Emil Hjort. Það var samt ekki eins mikil sala á japönskum suðuvörum í Dan- mörku og vænst hafði verið og 1968 er Bent aftur kominn til B&W, en nú í Motor-fabrikken í Christians- havn, þar sem hann leiddi deildina fyrir þróun nýjunga og framleiðslu- tækni. Árið 1970 kom Bent aftur á Svejsecentralen, þar sem hann tók við stjórninni á suðutæknilegri þró- un og seinna deildinni fyrir ráðgjöf, með sameinað starfsliðið frá suðu- deildinni við Svejsecentralen og Teknologisk Institut, þar sem stund- aðar eru jöfnum höndum rannsókn- ir, þróun og kennsla á sviði hvers konar málmsuðu, sem er mjög mikil- væg í þveiju nútíma iðnaðar-þjóðfé- lagi. Árangurinn leiddi til þess að Svejsecentralen fékk sífellt aukinn íjölda ráðgjafarverkefna innanlands og á alþjóðavettvangi. M.a. nutum við í ríkum mæli góðs af því í ís- lenskum skipaiðnaði þegar við feng- um Bent hingað með nokkra ráð- MINNINGAR gjafa með sér á sviði skipaiðnaðar. Bent var hvarvetna kjörinn til forystu þar sem hann kom við sögu. Hann kom ótrúlega miklu og góðu í verk með ævistarfi sínu. Vegna starfa sinna og kunnáttu á sviði suðutækni og stjórnunar voru Bent falin mörg trúnaðarstörf heima og erlendis. Frá 1963 var Bent kjörinn i stjórn DSL, þ.e. Dansk Svejsetekn- isk Landsforening, varaformaður 1966 og formaður 1968 til 1976. Árið 1965 var Bent kjörinn full- trúi Dana hjá „International Instit- ute of Welding“ (IIW), en þar varð hann fljótlega kjörinn í stjórnunar- nefndina, „Governing Council", og varaforseti 1975-1978 sem tengd- ist svo aðalfundi sem haldinn var undir hans forustu í Kaupmanna- höfn 1977. Þegar Bent féll frá var hann enn- þá meðlimur í Governing Council auk margra tæknilegra starfs- nefnda og hafði undirbúið ferð sína á ársfund IIW í Kína í september síðastliðnum. Meðal trúnaðarstarfa sem Bent gegndi var þátttaka hans í Sam- bandi suðutæknistofnana Evrópu, sem nú heitir EWF. (European Welding Federation). Þar var Bent Koch kjörinn forseti 1989. Bent var ráðgjafi hjá Efnahags- bandalaginu varðandi áætlanir, sem nefndar voru Esprite og Brite/ Eura. Bent var sæmdur heiðursmerki frá sænska suðufélaginu „Svejse- tekniske Föreningen“ og heiðurs- merki frá „Dansk Svejseteknisk Landsforening“ 1988. Sem stjórnandi á Svejsecentralen stóð Bent fyrir þýðingarmikilli ráð- gjöf og kennslu í dönskum stál- og einkum skipaiðnaði, sem stendur með því besta sem þekkist í heimin- um. Þrátt fyrir öll þau störf sem hlóðust á Bent, gaf hann sér tíma til að sinna okkar íslenska skipaiðn- aði með ráðgjöf og kennslu þegar við leituðum til hans. Með starfs- mönnum hans var nýjasta tækni og hlutasmíði innleidd í íslenskan skipaiðnað á áttunda áratugnum. Ég þakka Bent Koch fyrir alla þá velvild og hjálp sem hann veitti okkur af sinni miklu reynslu og kunnáttu. Mér koma í hug orð Gunnars á Hlíðarenda við Njál: „Góðar eru gjafir þínar en meira þykir mér vert vinfengi þitt og sona þinna.“ Svo sem að framan getur var Bent mikill íslandsvinur og átti hér marga góða vini. Árið 1974 ferðað- ist hann um landið með íjölskyldu sinni og var á 1100 ára hátíðinni á Þingvöilum. Bent átti tvo íslenska hesta sem fjölskyldan naut í ríkum mæli um margra ára bil. Minningarnar þjóta hratt fram hjá þegar maður hugsar til þeirra mörgu góðu stunda sem fjölskyldur okkar hafa átt saman, bæði í Lyngby, hér í Garðabæ og á Hæli. Það var alltaf hátíð í bæ þegar þau hjónin, Bent og Jette, gáfu sér tíma til að staldra við hjá okkur. Við gleymum ekki hve ánægulegt var að vera við brúðkaup Bolettu og Sigurðar í kirkjunni í Lyngby og fá að taka þátt í gleði fjölskyldunnar. Mér er minnisstætt eftir aðra heim- sókn til fjölskyldunnar í Lyngby, með fyrrverandi starfsmanni mín- um, að hann þagði um stund en sagði svo: „Ég vissi ekki að svona gott fólk væri til.“ Þannig var Bent Koch og fjölskylda hans. Ég og fjölskylda mín sendum þér, Jette mín, og fjölskyldunni sam- úðar- og virðingarkveðju okkar. Bent lifír í minningu okkar og hug- ur okkar er hjá þér. Jón Sveinsson og fjölskylda. Skilafrest- ur vegna minningar greina Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudags- blaði ef útför er á mánudegi); er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádefi á föstudag. í miðvikudags-, fímmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Stretsbuxur kr. 2.900 Mikið úrval af allskonar buxum Opið á laugardögum kl. 11 -16 Claris Works námskeið 94041 Tölvu- og verkfræðiþjónustan Tölvuskóli Halldórs Kristjanssonar Grensásvegi 16 • ® 68 80 90 'ARDAEAR I BORGARKRINGLUHNI - Glœsileg tilboð-Frábœrt verð - Nýtt kortatímabil XXX Gleraugnasmiöjan xj--------------ö 20% afsláttur af öllum gleraugnaumgjörðum og hulstrum. Hugo tungumálanámskeið með 40% afslœtti. 20% afsláttur af afmœlisdagbók frá Krydd í tilveruna og Islensk-enskri skólaorðabók. 20% afsláttur af öllum púsluspilum, skjalatöskum og myndaalbúmum. “fári ]orð jyrir Lvo 4 sandblásnar desertskálar í litum aðeins kr. 990 Samlokur lagaðar að ósk hvers og eins með 20% afslœtti. Verð nú aðeins kr; 180 Græni Vagninn 20% afsláttur afHigh Desert blómafrjó- kornum, drottnignar- hunangi og propolis. SNYRTIST0FAN NN Norðurturni, 4. hæö, sími 685535 20% afsláttur afvöru og þjónustu sem veitt er eða pöntuð á Borgardögum. Andlitsböð, húðhreinsun, litgreining, hand- ogfótsnyrting. 20% afsláttur af öllum plastmódelum demanTáhúsið 20%) afsláttur af silfurhálsmenum og silfurnœlum. 13.-22. aktáber 30% afsláttur af English Ironstow te setti 20% afsláttur af öllum töskum afPremier gerð ÞORPII) Hvergi betra verð Og aðalréttur * a tilboðsverði á Borgardögum kr. 510. 4> v /. man j KRINGLUNNI 4 A Borgardögum kynnir Slysavarnafélag Islands öryggisvörur fyrír heimili - Starfsmenn SVFÍ leiðbeina foreldrum um öryggi og hvernig megi draga úr slysum á börnum á heimilum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.