Morgunblaðið - 21.10.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 1994 35
FRÉTTIR
Háskólafyr-
irlestur um
Balkan-
skagastríðið
RITHÖFUNDURINN og heim-
spekingurinn Mihajlo Mihajlov flyt-
ur opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla íslands
sunnudaginn 23. október kl. 16 í
stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn
nefnist: Styijöldin á Balkanskaga
og framtíð Evrópu. Einnig flytur
hann fyrirlestur laugardaginn 22.
október á vegum Félags áhuga-
manna um heimspeki á fyrrnefnd-
um stað kl. 14 og nefnist hann
„The Symbolism of 2x2=4 in
Dostoevsky, Zamyatin & Orwwell.
Mihajlo Mihajlov fæddist 1934 í
Pancevo, Júgóslavíu, sonur útflytj-
enda frá Rússlandi. Hann lauk
háskóianámi í Zagreb, Krótatíu.
Síðan kenndi hann rússneskar bók-
menntir við háskólann í Zadar.
Árið 1965 kom út eftir hann bókin
Sumar í Moskvu. Þar rekur hann
kynni sín af ýmsum rithöfundum
í Rússlandi. í kjölfar útkomu
bókarinnar var Mihajlov handtek-
inn og sat síðan í fangelsum í Júgó-
slavíu fyrir óleyfilegar hugsanir í
sjö ár á árunum 1965 til 1978.
Mihajlov er nú bandarískur ríkis-
borgari. Hann hefur haldið fyrir-
lestra við háskóla í Þýskalandi,
Bandaríkjunum, Bretlandi og víðar.
Mihajlov hefur síðustu ár fylgst
grannt með atburðum á Balkans-
skaga og ritað um þá margar grein-
ar í blöð og tímarit, einkum í
Bandaríkjunum og Króatíu.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og er öllum opinn.
Missögn leiðrétt
FIMMTUDAGINN 22. september
sl. birtust hér í Morgunblaðinu
minningargreinar um Gunnar Niel-
sen Björnsson, sem jarðsettur var
þann dag. í æviágripi, sem birtist
með minningargreinunum var þess
getið, að faðir Gunnars væri Karl
Kvaran, listmálari.
Hér var um missögn að ræða,
sem Morgunblaðið vill hér með leið-
rétta og biðjast velvirðingar á.
Ritstj.
Iðnnemaþing
ÞING Iðnnemasambands íslands,
það 52., verður haldið í dag, föstu-
daginn 21. kl. 16 í Borgartúni 6.
Við þingsetninguna munu Sighvat-
ur Björgvinsson, iðnaðarráðherra,
Benedikt Davíðsson, forseti Al-
þýðusambands íslands, og Sigurð-
ur Gunnarsson, stjórnarformaður
Félagsíbúða iðnnema, flytja ávarp.
Yfirskrift þingsins að þessu sinni
er: Eru hagsmunir iðnnema tryggð-
ir innan sveinafélaga. Mun það
verða aðalmál þingsins sem stend-
ur fram á sunnudag.
Norðurlöndin í
ótryggum heimi
JAHN Otto Johansen, yfirmaður
erlendra frétta norska sjónvarps-
ins, flytur erindið -Norðurlöndin í
ótryggum heimi á sameiginlegum
hádegisverðarfundi Samtaka um
vestræna samvinnu (SVS) og Varð-
bergs í Átthagasal Hótels Sögu
laugardaginn 22. október.
Jahn Otto Jo-
hansen er fædd-
ur 1934, lauk
námi í landa-
fræði árið 1956
og rússnesku
1959. Hann var
um tíma við
framhaldsnám í
Varsjá í Póllandi
og á árunum
1961-63 var
hann Rockefeller Foundation
Fellow og gestaprófessor við Amer-
ican University í Washington.
Hann var um árabil fréttamaður
við norska sjónvarpið og fréttarit-
ari þess um tíma, bæði í Moskvu
og Washington. Á árunum
1977-84 var Jahn Otto aðalrit-
stjóri Dagbladet.
Jahn Otto hefur skrifað um 30
bækur um utanríkis- og alþjóða-
mál. Hann hefur nokkrum sinnum
komið til íslands og m.a. fjallað
um íslensk utanríkis- og stjórnmál.
Aðalstöðin
fimm ára
AÐALSTÖÐIN er 5 ára í dag, föstu-
daginn 21. október. Verður þess
minnst á útvarpsstöðinni í dag og
me_ð afmælishátíð í kvöld.
I október 1991 keyptu núverandi
eigendur, Baldvin Jónsson og fjöl-
skylda, stöðina af Ólafí Laufdal
veitingamanni og hafa því átt hana
og rekið í rúm þtjú ár. 5. nóvember
1993 opnaði Aflvakinn hf. útvarps-
rásina X-ið 97,7 — stöð unga fólks-
ins. Þessar tvær stöðvar eru nú rekn-
ar samhliða og þjóna tveimur ólíkum
markhópum. I febníar á næsta ári
er fyrirhugað að bæta þriðju útvarps-
stöðinni við, Klassík FM.
I tilefni dagsins efnir Aðalstöðin
til afmælishátíðar á Hótel íslandi
kl. 21 í kvöld. Meðal skemmtiatriða
verða Sniglabandið, Bubbi Morth-
ens, K.K., Þjóðhátíðarspaugararn-
ir; Halli, Laddi, Siggi Sigurjóns og
Edda Björgvins. Fjöldi starfs-
manna Aðalstöðvarinnar kemur
fram og flytur slagara eftir Pres-
ley, Tom Jones, Sinatra o.fl. Þá
verða tískusýningar og vörukynn-
ingar.
Húsið verður opnað kl. 21 og fá
fyrstu 1.000 gestirnir fordrykk í
boði Karls K. Karlssonar og Sólar
hf. Aðgöngumiðarnir gilda einnig
sem happdrættismiðar og er
Glasgowferð með Ferðaskrifstofu
Reykjavíkur í vinning.
Ráöstefna um
stöðu aldraðra
ÖLDRUNARRÁÐ íslands gengst
fyrir ráðstefnu í dag, 21. október
kl. 13 í Borgartúni 6, Reykjavík,
og ber hún yfirskriftina: Eru aldr-
aðir utangarðs og einmana í ís-
iensku samfélagi?
Dagskráin hefst með að sr.
Pálmi Matthíasson flytur erindið:
Eiga aldraðir vináttuna vísa?, Sig-
urgeir Jónsson, hæstaréttarlög-
maður, flytur erindi um réttarstöðu
fóiks á efri árum í sambúð og erfða-
málum og Sigríður Jónsson, félags-
fræðingur, flytur erindi sem hún
nefnir: Að eldast í æskudýrkunar-
samfélagi.
Kaffiveitingar verða en ráð-
stefnugjald er 1.000 kr. og er ráð-
stefnan öllum opin. Ráðstefnustjóri
verður Gísii Páll Pálsson, forstöðu-
maður.
Fj ölskylduganga
BANDALAG kvenna, Hafnarfirði,
ætlar þann 22. október nk. að
standa fyrir fjölskyldugöngu í til-
efni af ári fjölskyldunnar 1994.
Farin verður gamla gönguleiðin
að Görðum á Álftanesi, undir leið-
sögn. Lagt verður af stað frá Hafn-
arfjarðarkirkju kl. 11.
Jahn Otto
Johansen
Samþykkt fundar
háskólaráðs
HÁSKÓLARÁÐ mótmælir harðlega þeirri
stefnu sem kemur fram gagnvart Háskóla
íslands í fjárlagafrumvargi fyrir árið 1995.
Fjárframlög til Háskóla íslands hafa ekki
verið í samræmi við aukin verkefni og nem-
endafjölda undanfarin ár. Háskólinn hefur
verið ábyrgur í fjármálastjórn sinni og mætt
fjárhagsvandanum, fyrst með hagræðingu
og síðan niðurskurði í kennslu. Lengra verð-
ur ekki gengið á þessari braut og því er
komið að alvarlegum tímamótum í starfsemi
háskólans. Yfirlýst mennta- og vísindastefna
ríkisstjórnarinnar kemur ekki fram í fjárlaga-
frumvarpinu. Háskólaráð hlýtur því að spyija
þessara spurninga:
Er það í reynd stefna stjórnvalda að gera
Háskóla Islands að annars flokks háskóla?
Er það stefna stjórnvalda að flytja æðri
menntun Islendinga úr landi?
Háskólaráð bendir á eftirfarandi atriði:
1. ' Fjárveiting á nemanda í fullu námi
hefur lækkað um þriðjung að raungildi á
síðustu sjö árum.
2. Samanburður við aðra háskóla í Vestur-
Evrópu sýnir að kennslumagn við Háskóla
ílsands er um 75% af því sem erlendis telst
viðunandi.
3. 'Afleiðingar niðurskurðar undanfarinna.
ára hafa m.a. birst i því að valnámskeið
hafa verið felld niður, svo og umræðutímar
og raunhæf verkefni, auk þess sem verkleg
kennsla hefur dregist saman. Fjöldi nem-
enda, sem hver kennari verður að sinna, er
svo mikill að ekki gefst tími til viðræðna og
handleiðslu eins og þörf er. Framboð náms-
greina verður of fábreytt, námsefni ekki
endurnýjað og nýjar greinar ekki teknar upp.
4. Ljóst er af þessu að Háskóli íslands
hefur dregist aftur úr á síðustu árum. Erlend-
is eiga nemendur val milli háskóla og einn
slakur háskóli ræður því ekki úrslitum um
háskólamenntun í viðkomandi landi. Þessu
er ekki þannig varið hérlendis. Háskóli Is-
lands er eina miðstöð háskólamenntunar og
grunnrannsókna hér á Iandi.
5. Háskólaráð bendir á að hnignun há-
skóla, sem er óhjákvæmileg afleiðing skertra
fjárveitinga, tekur skamman tíma og það er
síður en svo auðvelt að snúa þeirri þróun
við. Endurreisn getur orðið mjög torveld því
að uppbygging vísindastofnana tekur langan
tíma.
6. Fjöldatakmarkanir munu ekki leysa
bráðan fjárhagsvanda háskólans.
7. Háskóli Islands er ein stærsta stofnun-
in í samfélagi okkar. Þar vinna 5.500 nem-
endur og 500 starfsmenn auk stundakenn-
ara. Háskólinn er lykilþáttur í íslensku at-
vinnulífi og menningu. Viðskiptafræðingar,
lögfræðingar og verkfræðingar stýra flestum
stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins.
Án kennslu og rannsókna við háskólann
væri ekki hægt að halda heilbrigðiskerfinu
og menntakerfinu gangandi.
8. Háskólaráð mótmælir því einnig að í
fjárlagafrumvarpi er ekki séð fyrir nægjan-
legu rekstrarfé til hins nýja Landsbókasafns.
Bygging Þjóðarbókhlöðunnar hefur tekið
yfir 20 ár og nú, þegar henni er lokið, vant-
ar verulegan hluta nauðsynlegs rekstrarfjár.
Þessi stefna er algjörlega óviðunandi. Há-
skóli íslands er í 19. sæti af 20 sambærileg-
um háskólum hvað varðar bóka- og tímarita-
kaup á árinu 1993. Hér ber enn að sama
brunni. Ónógar fjárveitingar draga mátt úr
stofnuninni og háskóli án öflugs bókasafns
á erfitt um rannsóknir.
9. Háskóli íslands hefur haft það orð á
sér á síðustu áratugum að vera góð kennslu-
stofnun og jafnframt hefur verið reynt af
vanefnum að byggja upp rannsóknir í sam-
ræmi við alþjóðlegar kröfur. Nemendum hef-
ur gengið vel að komast að í framhaldsnám
við góða háskóla erlendis. Kennarar háskól-
ans eru flestir mjög vel menntaðir, m.a. með
margvíslega framhaldsmenntun við þekkta
háskóla. Aukin tengsl við erlenda háskóla
og stofnanir gera sífellt meiri kröfur til
Háskóla íslands um gæði kennslu og rann-
sókna. Þess er ekki að vænta að Háskóla
íslands takist að halda góðum kennurum og
fá nýja vísindamenn til starfa ef stefna
stjórnvalda í íjárveitingum til hans breytist
ekki. Háskóli íslands er í alþjóðlegri sam-
keppni um góða starfsmenn.
10. Samkeppnishæfni þjóða á næstu öld,
í sífellt opnari þjóðfélögum, mun fyrst og
fremst ráðast af menntun þegnanna, ekki
síst færni til nýsköpunar á grundvelli vísinda-
legrar þekkingar. Ef Háskóli íslands verður
ekki efldur á næstu árum mun það koma
fram í verri lífskjörum landsmanna, brott-
flutningi hæfra kennara og nemenda og lak-
ari kennslu og rannsóknum. Það getur orðið
álitamál hve lengi erlendir háskólar taka
prófgráður frá Háskóla íslands gildar.
íslendingar hafa verið stoltir af háskóla
sínum og það með réttu. Þetta getur breyst
og háskólaráð getur ekki staðið hjá aðgerða-
laust, þegar stefnir í verulega hnignun Há-
skóla íslands vegna ónógra fjárveitinga.
Háskólaráð styður aðgerðir Félags háskóla-
kennara og samtaka stúdenta við að vekja
máls á vandanum og beijast fyrir hagsmun-
um háskólans.
Háskólaráð mun óska eftir fundi með for-
sætisráðherra, fjármálaráðherra og mennta-
málaráðherra þar sem málefni háskólans
verða rædd. Þar verður lögð áhersla á að í
fjárlögum næsta árs verði framlag til háskól-
ans aukíð frá fjárhagáfrumvarpi um a.m.k.
200 millj. króna og að gerð verði áætlun til
næstu ára um aukið fé til starfsemi Háskóla
íslands. Jafnframt leggur háskólaráð áherslu
á að fullnægt verði þörfum Landsbókasafns-
Háskólabókasafns fyrir rekstrarfé.
Samþykkt á aukafundi háskólaráðs 19.
október 1994
RAFHA
TILBOD
Láttu okkur gera þér tílboö I
bæði innréttinguna og tækin og
við komun þér þægilega á óvart.
Opið Laugardaga 10-16 • Opið Sunnudag 10-15
MANAÐARSNS
SUÐURLANDSBRAIIT 16 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 880-500