Morgunblaðið - 23.10.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1994 9
FRETTIR
Unnið að skýrslu um stöðu landbúnaðar á íslandi innan Evrópusambandsins
Áhrif ESB-aðildar
á landbúnað metin
SVOKÖLLUÐ sjömannanefnd er
að vinna skýrslu um Evrópusam-
bandið með hliðsjón af aðildar-
samningum hinna EFTA-ríkjanna
við ESB. Þetta kom fram í utan-
dagskrárumræðu um landbúnað-
armái á Alþingi á fimmtudag.
Sjömannanefnd er skipuð full-
trúum frá samtökum vinnuveit-
enda, launþegasamtaka, bændum
og landbúnaðarráðuneyti og hefur
einkum það hlutverk að fjalla um
stefnumörkun í landbúnaði.
Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra sagði að unnið hefði ver-
ið að upplýsingaöflun og greiningu
á landbúnaðarkafla aðildarsamn-
inga nágrannalandanna á vegum
undirnefndar sjömannanefndar og
finnsks sérfræðings sem er starfs-
maður nefndarinnar. Nú lægi fyrir
verulegt magn upplýsinga sem
myndi nýtast við frekari vinnu við
könnun á því hvaða áhrif möguleg
innganga íslands í ESB hefði á
einstakar greinar landbúnaðarins.
Kótilettur eða kjúklingar
Umræðan á Alþingi var að ósk
Egils Jónssonar, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins, vegna lauslegrar
verðkönnunar sem Ríkissjónvarpið
gerði á landbúnaðarvörum hér og
í Bandaríkjunum. Þar kom fram
að innkaupakarfa með samskonar
vörum kostaði 1.424 krónur í
Bandaríkjunum en 3.458 krónur
hér eða 150% meira.
Egill sagði að við þessa könnun
hefðu verið viðhöfð afar ónákvæm
vinnubrögð auk þess sem ekki virt-
ist vera tekið mið af mismunandi
neysluvenjum í löndunum tveimur.
Og ef kótilettur hefðu verið í körf-
unum í stað kjúklinga hefðu þær
verið jafndýrar, þegar virðisauka-
skattur hefði verið dreginn frá
verðinu.
„í framhaldi af þessu kom við-
skiptaráðherra í sjónvarpið og seg-
ir frá því að þessi verðmismunur
komi honum ekki á óvart þar sem
Háskólinn hafi reiknað út að hag-
ur íslenskra neytenda myndi batna
um allt að 6 milljarða króna við
að ganga í ESB,“ sagði Egill, og
sagði Alþýðufiokkinn þannig gera
þessa niðurstöðu að sinni.
Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra sagði að sú skýrsla Hag-
fræðistofnunar HÍ sem viðskipta-
ráðherra hefði vitnað til, hefði
verið til athugunar í Sjömanna-
nefnd og augljóst væri að þar
væru sum atriði röng, sum atriði
ónákvæm en sum atriði rétt.
Hann sagði að ef markmiðið
væri að fá ódýra matvöru til lands-
ins þá mætti finna aðrar leiðir til
þess en ganga í ESB, það sýndi
samanburðurinn við Bandaríkin.
Hins vegar tók Halldór og fleiri
þingmenn undir þá skoðun Egils
að verðsamanburður Sjónvarpsins
hefði verið vafasamur.
Milliliðir hækka verðið
Þingmenn ræddu nokkuð ástæð-
ur þess verðmunar sem væri á ís-
lenskum og erlendum matvörum.
Halldór Blöndal sagði að sam-
kvæmt frétt Ríkissjónvarpssins
kostaði kílóið af nautahakki 783
krónur hér en 246 krónur í Banda-
ríkjunum. Samkvæmt upplýsing-
um OECD næmi skilaverð tii
bænda í Bandaríkjunum 73% af
nautakjötsverði til bænda hér á
landi. En þegar kjötið hefði farið
gegnum vinnslu og verslunarkerf-
ið, og skattar og álögur bæst við
væri verðmunurinn ríflega þrefald-
ur.
„Það er augljóst að meginskýr-
ingin liggur ekki í verðinu til
bænda heldur á vegferð vörunnar
frá bóndanum til neytandans.
Þannig að ef menn vilja leita skýr-
inga, og mér skilst að hæstvirtur
viðskiptaráðherra kur.ni þær, þá
getur hann kannski spurt iðnaðar-
ráðherra hvernig á því standi
hversu mikið kjötvinnslan tekur til
sín, og síðan viðskiptaráðherrann
að því hversu mikið sé eðlilegt að
versiunin taki til sín,“ sagði Hall-
dór. Sighvatur Björgvinsson er
bæði viðskiptaráðherra og iðnaðar-
ráðherra.
Anna Ólafsdóttir Björnsson,
þingmaður Kvennalista, benti
einnig á að matarskattur hér á
landi væri með því hæsta sem ger—
ist í OECD-löndum á því sem flokk-
aðist undir nauðþurftir og það
skýrði hluta af þessum verðmun.
Lakkrís-
verksmiðjan
í Kína flytur
ÍSLENSK-kínversk lakkrísverk-
smiðja verður færð úr miðborg
Guangzhou í Suður-Kína í útjaðar
borgarinnar einhvem tíma á næsta
ári. Kristján Vilhelmsson,
stjórnarformaður íslenska eignar-
haldsfélagsins, segir að færa verði
verksmiðjuna vegna skipulags-
breytinga í borginni. Hann segir
að kínversk stjórnvöld hafi boðist
til að greiða kostnað vegna flutn-
inganna.
Lakkrísverksmiðja var sett á
stofn í miðborg Guangzhou í Suð-
ur-Kína í mars á síðasta ári.
Starfsmenn voru 60 til 80 þar til
reksturinn var stöðvaður á miðju
sumri.
Kristján, sem nýkominn er frá
Kína, vildi ekki láta uppi af hverju
starfsemi verksmiðjunnar hefði
verið stöðvuð. Engu að síður viður-
kenndi hann að markaðssetning
hefði gengið hægar en vonir hefðu
staðið til og óðaverðbólga ylli
hækkandi kostnaði.
Aðspurður sagði hann þó ekki
standa annað til en að verksmiðjan
yrði færð og rekstrinum haldið
áfram. Framtíðarmöguleikar varð-
andi rekstur verksmiðjunnar verða
ræddir á hluthafafundi hér á landi
á næstunni. Islendingar eiga helm-
ingshlut í verksmiðjunni á móti
Kínverjum.
Lakkrísverksmiðjan getur af-
kastað um 2.000 tonnum af lakkr-
ís á ári. Hún hefur hins vegar
ekki verið rekin með fullum af-
köstum.
[ I
k . ííii5í:i.s-l
Náðu í Kanaríeyjabækling Flugleiða og
skipuleggðu vetrarfríið á Kanaríeyjum,
vinsælasta sólarstaðnum í skammdeginu.
Frá 4. nóvember og fram á vor verður
beint leiguflug til Kanaríeyja. Tveggja og
þriggja vikna ferðir.
Jól og áramót á Kanaríeyjum
Þriggja vikna ferðir 16. og 22. desember.
Verð frá
41.524 kr*
stgr. á mann m.v. þríbýli,
2 fullorðna og 1 barn (2-15
ára) í Broncemar í 15 daga/ 14
nætur í ferð 2. des.
frá 45.080 kr.* stgr. á mann
m.v. þríbýli, þrjá fullorðna, í
15 daga/14 nætur í sömu ferð.
frá 51.191 kr.*
stgr. á mann m.v. tvíbýli, 2
fullorðna, í Broncemar i 15
daga/14 nætur í sömu ferð.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt
land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 91- 690 300 (svarað mánud. -
föstud. kl. 8 -19 og á laugard. kl. 8 -16).
*lnpifalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
FLUGLEIÐIR
Traustur tslenskur ferðafélagi