Morgunblaðið - 23.10.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1994 23
IIMNLENT
Dagur SÞ
UNIFEM á íslandi heldur hátíðleg-
an dag Sameinuðu þjóðanna 24.
október. Unifem boðar til morgun-
verðarfundar þann dag á Hótel
Holiday Inn. Fundurinn er öllum
opinn og hefst kl. 8.30 og lýkur
um kl. 10.
Jón Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra, verður heiðursgestur
fundarins. Flutt verða þijú erindi:
Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir, mannfræðingur, flytur erindi
sem ber yfirskriftina „Þiggjendur
eða gerendur — konur, þróun og
félagslegar breytingar", Agúst Þór
Árnason, framkvæmdastjóri Mann-
réttindaskrifstofunnar, flytur erind-
ið „Mannréttindi — réttindi kvenna“
og Helga Leifsdóttir, viðskiptafræð-
ingur og sendifulltrúi Rauða kross
íslands, segir frá starfi sínu og
nefnir erindi sitt „Konur í þróunar-
ríkjum og neyðaraðstoð“.
Tónlistarflutningur verður í
höndum Kolbeins Bjarnasonar,
flautuleikara og Guðrúnar Óskars-
dóttur, píanóleikara.
------♦ ♦ »------
■ SENDIHERRA Svíþjóðitr á
Islandi, Pár Kettis, heldur fyrir-
lestur í Norræna húsinu sunnu-
daginn 23. október kl. 16 um
væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu
Svía um aðild að Evrópusamband-
inu. Svíar munu ganga að kjörborði
sunnudaginn 13. nóvember.
■ MIÐILLINN Derek Coker
starfar hjá Pýramídanum, Duggu-
vogi 2, frá 21. október til 12. nóv-
ember. í frétt segir að hann sé
meðal annars reikimeistari, tarot-
lesari, áruteiknari og þjálfaður
Feng Shui, list sem tengist orku-
kerfi jarðar, staðsetningu bygginga
og innanhússmuna. Elnngi kennir
hann fólki að beisla innri orku og
samræma orkustöðvarnar. Þá er
Margrét Hafsteinsdóttir sam-
bandsmiðill byijuð að starfa hjá
Pýramídanum en hún verður með
einkatíma í sambandsmiðlun.
GD AFLÍSARÁG tmmi - -j-j— s
/kifl
— 1
V
y TL.
Stórhöfða 17, vtð Gullinbrú, sími 67 48 44
ÁTAK í FITUBRENNSLU
7 vikna námskeið fyrir þær sem vilja losna við aukakíló.
Morgun-, dag- og kvöldtímar. Einfaldar og árangurs-
ríkar æfingar.
Athugið !!! Námskeiðið hefst 31. okt.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 65 22 12
HRFSS
LÍKAMSRÆKT OG LJÓS
BÆJARHRAUNI 4/VK) KEFLAVlKURVEGINN/SlMI 65 22 12
Blab allra landsmanna!
|H»p
- kjarni málsins!
Nú er tími skynsaml
A næstu misserum verða. teknar ákvarðanir í mörgum
mikilvægum málaflokkum sem varða heill og hamingju allra
íslendinga. Það verður líklega hlutskipti Sjálfstæðisflokksins
að leiða þau mál til lykta.
Þess vegna er það lykilatriði að velja til forystu stjórnmála-
mann sem lætur skynsemina ráða ferðinni. Mann sem býr yfir
þekkingu og reynslu og þeirri einurð sem þarf til að koma
brýnum málum farsællega í höfn. Geir H. Haarde er sá maður.
S tu ðningsmenn
Styðjum formann þingflokksins
- Geir H. Haarde í
Prófkjörsskrifstofa Geirs H. Haarde Faxafeni 5 er opin kl. 16 - 22 virka daga
og 14 - 19 um helgar. Símar 811235, 811265 og 811275. Allir stuðningsmenn velkomnir!