Morgunblaðið - 23.10.1994, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1994
Atlaga
að Dalai
Lama
Kínveq'ar gera nú lokatilraun til að grafa undan
áhrifum Dalai Lama í Tíbet og fella hann af stalli
sem andlegan leiðtoga. Þar sem Kínveijar geta
ekki tortímt manninum sjálfum hafa þeir nú haf-
ið herferð gegn ímynd hans; myndir af Dalai
Lama hafa verið bannaðar og hafín er ófrægingar-
herferð gegn honum í heimalandinu.
NÝJA herferðin hófst í Lhasa,
höfuðborg Tíbets, og tí-
betskum félögum í komm-
únistaflokknum var falið að stjóma
henni til að draga úr mótspyrnu
Tíbeta, er vegsama Dalai Lama sem
guðlegan konung og biðja þess á
hveijum degi að hann komist aftur
til heimalandsins sem fyrst.
Dalai Lama er talinn holdtekja
fyrirrennara sinna og var jafnframt
veraldlegur leiðtogi í Tíbet frá því
á 17. öld til 1957. Þá flýði núver-
andi Dalai Lama undan Kínveijum
til Indlands eftir misheppnaða upp-
reisn Tíbeta gegn kínverskum yfir-
ráðum. Hann hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1989.
„Uppræta ímynd Dalais“
Fregnir frá Tíbet herma að „til-
tektin" gangi vel og án teljandi
mótspyrnu. Dagblaðið
Ming Pao í Hong Kong
hafði eftir heimildar-
mönnum í kínverska
stjórnkerfinu að forystu-
menn kommúnistaflokks-
ins teldu tímabært að „uppræta
ímynd Dalais" meðal almennings í
Tíbet og eyða í eitt skipti fyrir öll
þeirri hættu sem Kínverjum stafar
af honum.
Upplýsingastofnun Tíbeta í
Lundúnum kveðst hafa fengið
fregnir af herferðinni. Talsmaður
stofnunarinnar sagði að bannið við
myndum af Dalai Lama væri mikil
háðung fyrir forystumenn komm-
únistaflokksins, sem hefðu haldið
því fram að þeir vildu stuðla að
„trúfrelsi“ í Tíbet.
Auk bannsins við myndum af
Dalai Lama hafa Kínveijar hert
baráttu sína gegn sjálfstæðishreyf-
ingunni í Tíbet og áróðursherferð-
ina gegn Dalai Lama, sem er rægð-
ur hvenær sem tilefni gefst til.
„Dalai-klíkan er helsta orsök ólg-
unnar í Tíbet,“ sagði málgagn kín-
versku stjórnarinnar í Tíbet um
fylgismenn nóbelsverðlaunahafans.
„Með sundrungarstarfsemi sinni
vilja þeir beijast gegn kommúnista-
flokknum, afneita sósíalismanum,
grafa undan einingu landsmanna,
steypa stjórn alþýðunnar, kljúfa
föðurlandið og endurheimta völdin
í Tíbet."
Stjórnin í Kína kveðst
reiðubúin að hefja við-
ræður við Dalai Lama að
því tilskildu að hann falli
frá kröfunni !um sjálf-
stæði Tíbets. Fundir full-
trúa hans og kínverskra embættis-
manna hafa þó hingað til verið
stormasamir og árangurslitlir. Fátt
er til marks um að Kínveijar séu í
alvöru fúsir til að semja við Dalai,
miklu fleira bendir til þess að þeir
séu staðráðnir í að kveða niður
andstöðu við yfirráð þeirra í Tíbet
með öllum ráðum.
Baráttan gegn
sjálfstædis-
sinnum hert
við dýrar viðgerðir á Potala-höllinni
í Lhasa, gömlu aðsetri Dalai Lama.
Li Tieying, sem á sæti í stjómmála-
ráði kommúnistaflokksins, lýsti við-
gerðunum sem „miklum viðburði
sem hefur víðtæk áhrif á sögu Tíb-
ets“ í ræðu sem hann flutti í tilefni
þess að framkvæmdunum var lokið.
Ming Pao segir að viðgerðirnar
á Potala-höllinni hafi haft „mjög
jákvæð áhrif“ á Tíbeta. Sama megi
segja um störf háttsettra embættis-
manna í Peking í nefnd um málefni
Tíbets í júlí. Því sem næst allir
helstu forystumenn kommúnista-
flokksins, þeirra á meðal Jiang
Zemin forseti og Li Peng forsætis-
ráðherra, sátu fundi nefndarinnar.
Nefndin boðaði hraða efnahags-
lega uppbyggingu í Tíbet og lofaði
miklum fjárhæðum í aðstoð við
landið. Margir Tíbetar urðu djúpt
snortnir yfir þeirri umhyggju sem
forystumennirnir sýndu heimalandi
þeirra.
Karmapa endurholdgaður á
bandi Kínveija
DALAI Lama ásamt erkibiskupnum af Kantaraborg.
1 OOOkm
Fangar pyntaðir
Áætlað er að um 300-400 manns,
flestir ungir munkar og nunnur, séu
í fangelsum í Lhasa vegna þátttöku
í baráttunni fyrir sjálfstæði Tíbets.
Á meðal þeirra er nunna sem fyrr
á árinu fékk átta ára fangelsisdóm
til viðbótar fyrir að syngja baráttu-
söng sjálfstæðissinna í fangelsi.
Mannréttindahreyfingar segja að
fangaverðir berji og pynti fanga til
að játa sekt sína og ljóstra upp um
aðra Tíbeta sem eru andvígir yfir-
ráðum Kínveija.
Zhang Shutian, fulltrúi kommún-
istaflokksins í Vopnuðu alþýðulög-
reglunni - milljón manna lögreglu
sem ætlað er að hindra andstöðu
við kommúnistaflokkinn - fór til
Tíbets í ágúst. Hann sagði liðs-
mönnum lögreglunnar þar að hún
þyrfti að „einbeita sér að barátt-
unni gegn aðskilnaðarsinnum og
búa sig undir neyðaraðgerðir".
Peningastraumur til Tíbets
Kínveijar virðast þó hafa náð
meiri árangri í þeirri viðleitni sinni
að vinna Tíbeta á sitt band með
góðu fremur en illu. Viðhorf komm-
únistaflokksins til búddatrúar-
manna hafa breyst; hann lítur ekki
lengur á búddasiðinn sem „frum-
stæð hindurvitni" heldur „bestu
vörnina“ fyrir einstaka ________________
menningu Tíbets. Reyna að ná
Kínveijum tókst næst-
um því að uppræta allt
klausturlif í Tíbet í menn-
ingarbyltingunni
tökum á trúar
stofnuninni
sem
hófst 1966, lögðu þá tugi klaustra
í rúst og ofsóttu munka og nunnur.
Ekki er vitað hversu margir Tíbetar
voru drepnir.
Nú reyna Kínveijar hins vegar
að tryggja sér hollustu Tíbeta með
því meðal annars að veija miklu fé
í viðgerðir á trúarlegum mannvirkj-
um. Til að mynda hafa þeir nýlokið
Urgyen Thinley, tíu ára tíbetskur
drengur, hefur einnig orðið hrærður
yfir þeim áhuga sem leiðtogar Kína
hafa sýnt honum. Samkvæmt tíb-
etskum búddasið endurholdgast
helstu leiðtogarnir, svokallaðir
„lamar“ („hinir æðri“), þannig að
þeir eru alltaf sömu mennirnir, þótt
þeir þurfi að skipta um líkama.
Eftir andlát Karmapa, þriðja æðsta
leiðtogans á eftir Dalai Lama og
Panchen Lama, var úrskurðað að
hann hefði endurholdgast í drengn-
um. Kínverska stjórnin viðurkenndi
endurholdgunina árið 1992.
Hinn nýi Karmapa vottaði kín-
verskum stjórnvöldum hollustu sína
þegar hann kom til Peking í fyrsta
sinn fyrr í mánuðinum. A fundum
með Jiang forseta og fleiri ráða-
mönnum hét hann því að „kynna
sér vel kommúnistaflokkinn og
fylgja honum um alla framtíð".
Borgarstjórinn í Peking gaf
drengnum forláta reykelsisbrenn-
ara, litasjónvarp og tvær möppur
með myndum af kínversku höfuð-
borginni.
Svo virðist sem Kínveijar hafi
Karmapa í vasanum og leitin að
Panchen Lama, endurholdguðum í
tíunda sinn, fer nú fram undir „leið-
sögpi“ kínverskra embættismanna.
Líklega verður næsti Panchen
Lama ungur að árum og jafn leiði-
tamur og Karmapa. Kínveijar telja
sig því um það bil að ná tökum á
trúarstofnuninni í Tíbet.
_________ Aðeins Dalai Lama
hefur gengið Kínveijum
úr greipum og hann held-
ur áfram að skora á þjóð-
ir heims að bjarga Tíbet
áður en kínverskir inn-
flytjendur leggi landið undir sig og
kínverska stjórnin gjörbreyti því
með dýrkun sinni á Mammon og
„efnahagsuppbyggingu".
Það er því engin furða að Kínveij-
ar skuli nú leggja mikið kapp á að
fella hann af stalli.
Heimild: The Daily Telegraph.
I
L
I
!
i
í:
í
i
fi
I
l
l
i
i
i
f
í
í
í
i
i
KRIPALUJÓGA
jóga eins og það gerist best.
Styrkur, orka og einbeiting.
BYRJENDANÁMSKEIÐ — JÓGA 1
hefst mánudaginn 24. okt. kl. 20.00.
Leiöbeinandi: Áslaug Höskuldsdóttir.
B YR JENDANÁMSKEIÐ — JÓGA 1
hefst þriöjudaginn 25. okt. kl. 16.30.
Leiöbeinandi: Ingibjörg G. Guömundsdóttir.
HUGLEVÐSLUNÁMSKEIÐ
hefst mánudaginn 31. október kl. 16.30.
Leiðbeinandi: Helga Mogensen.
BYRJENDANÁMSKEIÐ FYRIR HJÓN/PÖR
hefst þriðjudaginn 1. nóv. kl. 20.00.
Leiðbeinandi: Jenný Guðmundsdóttir.
MJÚKT JÓGA, OPNIR TÍMARm
Mánudaga og fimmtudaga kl. 10.30.
Fyrír fólk á öllum aldri sem vill fara hægt frá byrjun. Hentar vel þeim, sem eiga
viö einhver líkamsvandamál að etja eða hafa lítiö getaö sinnt líkama sínum
í gegnum árin.
Leiöbeinandi: Hulda G. Sigurðardóttir.
JÓGASTÖÐIN HEIMSLJÓS,
Skeifunni 19, 2. hæð.
Sími 889181 mánud. 24/10 og þriðjud. 25/10 kl. 10-12 og
alla virka daga kl. 17-19. Einnig símsvari.
- kjarni málsins!
PKÓFKJÓB SJÁI.VSTÆÐISMANKA í tlEYIUAÍR 28. OC 29. OKT
Stærslu og mikilvægustu ákvarðanir íslensku þjóðarinnar
á komandi árum verða um utanríkis- og Evrópumál.
Því skiptir öllu máli að í forystu Sjálfstæðisflokksins
sé maður sem hefur víðtæka þekkingu og reynslu á
þeim sviðum. Þessi maður er Björn Bjarnason.
B)ÖRNBIARNAS0N
ÁFRAMÁ^SdcIl
i
I
i