Morgunblaðið - 23.10.1994, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1994 29
borið, enda snyrtilegra heimili en
hennar vart að finna.
Ég minnist hennar með söknuði.
Megi andi hennar svífa yfir okkur.
Drottinn blessi þig.
Kristinn Sigmarsson.
í dag kveðjum við elsku ömmu
okkar sem okkur þótti svo vænt
um. Margs er að minnast frá þeim
stundum sem við áttum saman.
Amma og afi hafa búið í sama
húsi og við síðan við munum eftir
okkur. Þeirra heimili var eins og
okkar annað heimili. Varla leið sá
dagur að við færum ekki upp til
afa og ömmu.
Við höfum enn ekki áttað okkur '•
á brottför ömmu að fullu, sérstak-
lega ekki Ágústa og Pétur Óskar
sem eru svo ung enn. Við kveðjum
ömmu með söknuði og þökkum
samfylgdina.
Elsku afi og langafi, Guð geymi
þig.
Eyrún, Bryndís, Agústa
og Pétur Oskar.
Snemma á laugardagsmorgun
hinn 15. október fengum við símtal
frá mömmu um að nú hefði amma
öðlast frið eftir þrálát veikindi síðast-
liðin ár.
Við minnumst ömmu sem mjög
ástríkrar konu sem umfram allt
hugsaði um velferð annarra. Okkur
er efst í huga hversu vel henni tókst
að halda utan um fjölskylduna og
heimilið. Altaf hélt hún mikið upp á
okkur litlu börnin, en talaði alltaf
við okkur sem fullorðið fólk um
heima og geima.
Við munum ætíð minnast ánægju-
stunda okkar i Breiðvanginum. Á
jólum var'alltaf gaman að vera hjá
ömmu, því spenningurinn var ekki
síður hjá henni en okkur krökkunum.
Ætíð hafði hún gaman af að ferð-
ast um landið og oft fengum við að
fylgja með og var það alltaf mikil
tilhlökkun.
Við munum sárt sakna ömmu okk-
ar og þökkum henni fyrir allar góðu
samverustundirnar á liðnum árum.
Við biðjum góðan Guð um að varð-
veita sálu hennar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur,
mín veri vðrn í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Pétur, Valdís, Kristrún,
Pétur og Arndís.
Okkur langar að minnast móður-
systur okkar Sign'ðar Eyjólfsdóttur
eða Siggu frænku, eins og við köll-
uðum hana alltaf. Minningar streyma
fram í hugann þegar kveðja skal
mannkostakonu eins og Siggu
frænku. Það eru sennilega fá orð sem
geta lýst krafti hennar og dugnaði.
Myndarlegt heimili Siggu og Péturs
eiginmanns hennar ber því glöggt
vitni. Minnisstæðastar eru þó stund-
irnar þegar við vorum litlar og bjugg-
um í Vestmannaeyjum og vorum að
koma í frí suður, þá var alltaf hlakk-
að mikið til að fara í heimsókn á
Kópavogsbrautina, þaðan eigum við
góðar minningar.
Sigga og Pétur fluttu síðar í Hafn-
arfjörð. Alltaf var vel tekið á móti
okkur. Gjafmildi hennarog hjálpsemi
í garð allra, hvort sem var í orði eða
verki, verður a’.drei fullþökkuð.
Sigga átti við vanheilsu að stríða
hin síðari ár. Hún naut dyggilegs
stuðnings eiginmanns sins, sem stóð
eins og klettur við hlið hennar í hví-
vetna.
Við kveðjum hana með sorg í
hjarta og þökkum henni vináttu og
tryggð í gegnum árin.
Ég lifi’ í Jesú nafni
í Jesú nafni’ ég dey,
þó heilsa’ og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
i Kristí krafti ég segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(H.P.)
Elsku Pétur, börn og aðrir að-
standendur, innilegar samúðarkveðj-
ur til ykkar allra.
Blessuð sé minning hennar.
Kristín Ósk, Líney
Guðbjörg og Ágústa.
MIIUNINGAR
GUÐBRANDUR
MAGNÚSSON
+ Guðbrandur Magnússon
fæddist á Hólum í Stein-
grímsfirði 24. ágúst 1907. Hann
lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar
15. október síðastliðinn og fór
útför hans fram frá Siglufjarð-
arkirkju í gær.
í ÞAU 21 ár sem ég fékk að þekkja
Guðbrand Magnússon voru þau
fyrstu 3 viðburðaríkust í okkar sam-
skiptum, en hin því dýrmætari sem
á leið, þegar lengdist á milli húsa
hjá okkur og samverustundunum
fækkaði. Hann tók á móti mér í
Siglufjarðarkirkju og sagði mér til
um aðbúnað, hefðir og lífsvenjur í
þeirri stofnun. Annað siagið tók hann
svo bakföll og hló við hátt og breitt.
„Við reynum svo að hafa hreinar
hendur, eins og stendur hér á rú-
brikku sálmatöflunnar." Þessum
hreinu og verklegu höndum umvafði
hann mig upp frá því sem meðhjálp-
ari og vinur.
Hann var meðhjálpari í þeim víða
skilningi, sem nær út fyrir kirkju-
vegg og garðshorn. Virðing hans og
lotning fyrir húsi Guðs og þjón-
ustunni við hann var óskipt og hrein.
En hann kenndi manni líka að meta
nýjar víddir íslenskrar menningar og
gerði manni kleift að skyggnast um
þá sali dulúðar og glettni, sem leyn-
ist í klassískum fræðum þjóðlegum,
fyrir utan nú að hjálpa manni að
lesa á milli lína eða fara inn undir
bókarkjöl og lesa rúnir handbragðs
og listfengis. Stundirnar í kjallaran-
um hjá honum á laugardagsmorgn-
ana við bókband og gamanmál eru
eins og dropasteinar í draumhelli,
sem ljóma í ljósi minninga. í síðasta
bréfinu, sem ég fékk frá honum, rifj-
ar hann upp vísukorn, sem varð til
hjá okkur félögunum.
Brands í ranni brugðu þeir
beini fals,
og með sanni sauminn tveir
seymdu karls.
Ég vildi ég gæti saumað bækur og
strokið þær jafn fallega og hann.
Vinátta Guðbrandar var líka heil
og trygg. Bréfin hans mörgu vitna
um það. Þau voru þó fyrst og fremst
stórkostlega skemmtileg með litlum
sögum og spaklegum nótum — og
þegar hann hló í bréfi kom ein lauf-
létt slaufa á staf. Já, hvílík bréf og
hvílík skrift. Nokkur voru reyndar
gefin út á korti og þar fór vel, enda
seldust þau strax upp. Það var svo
heimur út af fyrir sig að skyggnast
um safnsjóði þessa merka lista- og
vísindamanns. Stórmerkilegt korta-
safn, spilasafn af þeirri gráðu að
menn hvaðanæva úr heiminum sendu
bónarbréf og tilboð, bókasafn svo
fallegt í bandi Guðbrandar að það
fór um mann unaðskennd af snert-
ingunni einni saman. „Bótanisering"
alis Skagafjarðar og fleiri héraða var
svo auðvitað merkust. Komandi kyn-
slóðir munu lengi búa að þeirri ná-
kvæmnis- og hagleiksvinnu. Aldrei
var slegið slöku við. Einu sinni skrif-
aði hann meira að segja bók um
það, hvernig lesa má persónugerð
úr rithönd fólks. „Það dugði fyrir
pússningu á húsið,“ sagði Guðbrand-
ur og sló sér á lær. Meira var ekki
gert úr því.
Hann hafði mikla samúð með fá-
kunnáttu minni þegar plöntur og
jurtir voru annars vegar. Það var
fásinna og vanvirðing við sköpun
Guðs. Ef ég gat nefnt honum nafn
á algengum svartfugli við ystu strönd
íslands millum jóla og nýjárs, þegar
hann tók til við sína árlegu fuglataln-
ingu, hló hann glaður og sagði að
þetta myndi kannski bjargast með
hann drenginn. Fegnastur var ég þó
held ég nývígður, þegar hann leiddi
mig í gegnum guðsþjónustu í Siglu-
ijarðarkirkju, traustur, uppöi’vandi,
fumlaus og glettinn. I því guðshúsi
Drottins þjónaði hann í aldarfjórðung
af alúð sinni og tryggð. Þar í skrúð-
húsinu varð til sú vinátta, sem ég
sakna nú, en bý að allt til enda.
Góður Guð blessi elskulega fjöl-
skyldu hans, Önnu og börnin öll og
varðveiti dýrmætar minningar
þeirra.
Hver fær að stíga upp á fjall Drottins...
Sá sem hefur óflekkaðar hendur og hreint
hjarta. (Ds. 24).
Birgir Ásgeirsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
MARGRÉTAR BENEDIKTSDÓTTUR.
Björg H. Randversdóttir, Þorlákur Þórðarson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
MAGNÚS ÓSKAR GUÐBJARTSSON,
Fögrukinn 25,
Hafnarfirði,
sem andaðist í Borgarspítalanum
mánudaginn 17. október, verður jarð-
sunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
þriðjudaginn 25. október kl. 10.30.
Hallgerður (Halla) Guðmundsdóttir,
Herdís Erla Magnúsdóttir, Herbert Árnason,
Halla Magnúsdóttir, Guðbrandur Gi'slason,
Magnús Óskar Magnússon,
Þórarinn Jón Magnússon, Oddfríður Steindórsdóttir,
Guðmundur Magnússon, Inger Mariana Fransson,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
Minningarathöfn um ástkæra eigin-
konu, móður, ömmu og systur,
EDDU BORG STÍGSDÓTTUR,
Strom Terrasse 20B,
Noregi,
sem andaðist í Noregi 7. september
síðastliðinn, fer fram samhliða útför
tengdaföður hennar, Magnúsar Óskars
Guðbjartssonar.
Magnús Óskar Magnússon,
Gerður Ósk Magnúsdóttir, Herdi's Erla Magnúsdóttir,
Jóakim Magnús Tómasson,
Jón Stígsson, Heimir Stígsson,
Dagbjartur Stígsson, Þórhallur Stígsson.
Þingholt - Miðbær - nágrenni
Höfum kaupanda að 4ra-5 herb. rúmgóðri nýlegri íb.
á hæð í Þingholtunum eða næsta nágrenni. Við leitum
að vel útlítandi íbúð ca 100-130 fm ásamt bílskúr eða
bílskýli. Verðhugm. er á bilinu 9-13 millj., staðgreitt.
Fasteignsalan Hátún,
Suðurlandsbraut 10,
símar687808 og 687828.
FASTEIGN ER FRAMTID
FASTEIGNAá.O
í VEHRIR KRIS TJA HSSON L OCCIL WR FA 5 WCHA SAL
SUDURLANDSBRAUT 12, 108 REYKJAVIK, FAX 687072
MIÐLUN
SiMI 68 77 68
Sýningarsatureropinn ídagfrákl. 13-15
Eftirtaldar eignir eru til sýnis af
eigendum milli kl. 14 og 16 í dag.
Þú getur bankað uppá.
Sæviðarsund 36 - raðhús
Mjög gott 160 fm raðh. á einni hæð ásamt innb. bílsk.
Sæviðarsundið er mjög eftirsóttur staður. Þar er skjól-
gott, stutt í stórverslanir og aðra þjónustu. Húsið er
forstofa, stórt hol með arni, 3-4 svefnh., eldh. m. nýl.
innr., þvottaherb. innaf eldh. Góð suðurverönd og garð-
ur. Verð 13.950 þús. Vandað, gott og vel umgengið
hús. Sölumaður verður á staðnum milli kl. 14 og 16
í dag og sýnir húsið.
Hlíðarhjalli 60 - Kóp.
Fallegt, vandað og vel staðsett ca 200 fm einbhús á
tveimur hæðum ásamt ca 40 fm bílsk. Húsið stendur
ofan götu. Mikið útsýni. í húsinu eru m.a. 3-4 svefnh.,
stofur, sjónvhol og mjög stórt eldhús með mjög fal-
legri innr. o.fl. Stórar suðursv. Áhv. ca 6,0 millj. veðd.
og húsbr. Verð 15,8 millj. Ólöf sýnir húsið milli
kl. 14 og 16 í dag.
Víðihvammur 7 - Kóp.
Ca 120 fm mjög góð efri sérh. ásamt 32 fm bílsk. Fal-
leg sólstofa. Og svo rúsínan í pylsuendanum: 60 fm
skjólgóðar sólsvalir. í íb. eru m.a. 4 svefnh., góðar nýl.
innr. o.fl. Útsýni. Verð tilboð. Halldóra sýnir íb. milii
kl. 14 og 16 í dag.
Njörvasund - bflskúr
Falleg og björt 105 fm rishæð í þríbýlishúsi ásamt efra
risi. Ibúðin er því í raun talsv. stærri en fm segja til
um. íþ. er m.a. 3-4 svefnh., stór stofa o.fl. M.a. í efra
risi er stórt herb. og geymsla. Góðir kvistir. Parket.
Ágætur bílskúr. Auður sýnir íb. milli kl. 14og 16 ídag.
Búðargerði - góð staðs.
Rúmg. ca 90 fm 4ra herb. íbúð á 1. hæð. 3 svefnh.,
rúmgóð stofa. Nýbyggður sólskáli út frá stofunni.
Gott eldhús. Stutt í alla þjónustu. Áhv. 2,8 mitlj.
Verð 8,0 millj.
ATVINNUHUSNÆÐI
Klapparstígur 28
í einkasölu meginhluti hússins Klapparstígur 28. Um
er að ræða alian kjallarann, grunnfl. ca 220 fm. Ágætt
geymsluhúsn. Á 1. hæð eru 2 stór herb. ca 70 fm.
Parket á gólfum. Góð snyrtiherb.
Önnur hæð er ca 185 fm sem skiptist í tvo sali. Parket
á gólfum. Opið eldhús (bar). 2 snyrtiherb. o.fl. Gæti
hentað sem samkomusalur eða opin íbúð fyrir lista-
menn o.s.frv.
Á 3. hæð er fallegt og bjart ris. 5 herb. íb. Svalir ca 60
fm sem gefa ýmsa möguleika.
Dugguvogur - jarðhæð
Til sölu ca 340 fm góð jarðhæð í hornhúsi. Áberandi
staðs. Stór inngönguhurð. Gott verð sé samið strax.